Fréttablaðið - 16.05.2019, Síða 34

Fréttablaðið - 16.05.2019, Síða 34
Skotbolti Reglurnar í þessum leik eru fáar. Einum eða tveimur mjúkum boltum er varpað á leikvöllinn og þeir sem grípa boltann eiga að skjóta á hina og dæma þá þann- ig úr leik. Ef boltinn er gripinn þá dettur sá sem skaut honum úr leik, og ef boltinn hittir haus þá er það ógilt. Það er mikilvægt að nota mjúkan bolta í þennan leik til að koma í veg fyrir slys! Snú-snú Tveir krakkar halda í sitthvorn enda á sippubandi og snúa því á meðan sá þriðji keppist við að hoppa í miðjunni án þess að stíga á bandið eða hrasa. Þetta er bæði skemmtileg og góð hreyfing. Ein króna Klassískur leikur fyrir krakka sem vilja bæði hlaupa og fela sig. Regl- urnar eru að einn leikmaður telur upp í tíu upp við staur á meðan hinir leikmennirnir fela sig, sá sem „er hann“ fer svo og reynir að finna hina og klukka þá áður en þeir snerta staurinn og segja „ein króna“. Ratleikur Það er hægt að semja sniðuga rat- leiki, umfang leiksvæðisins má vera eins vítt og þú nennir og sama með fjölda þrepa sem lið leiksins þurfa að klára! Þrep geta til dæmis verið að fá mynd með erlendum ferðamanni eða klifra upp í tré. Kríta Láttu listrænu hæfileikana skína og krítaðu á stéttina eða veggi. Ef þú ert ekki ánægð/ur með myndina er það allt í lagi því krítin skolast af með rigningunni. Krítar eru ódýrar og fást í f lestum stórum matvörubúðum. Dimmalimm Einn leikmaður snýr sér að vegg og telur upp í fimm áður en hann segir „Dimmalimm!“ og snýr sér við. Á meðan eiga hinir leikmenn- irnir að ganga frá ákveðinni upp- hafslínu eins langt og þeir komast að þeim leikmanni sem taldi upp í fimm, en verða að frjósa í miðri hreyfingu þegar hann snýr sér við. Ef þú hreyfir þig óvart ertu úr leik. Sá sem kemst fyrst upp að veggnum vinnur leikinn. solrunfreyja@frettabladid.is Skemmtilegir sumarleikir fyrir börn og unga í anda Ef þig eða barnið þitt langar til að gera eitthvað annað í sumar en að hanga heima, en vantar hugmyndir, þá er hér listi yfir skemmtilega sumarleiki sem geta stytt mönnum stundirnar! Lítil stúlka krítar á gangstéttina. Flestum krökkum finnst gaman að fara í snú- snú. ÚT Á GRANDA Grandagarði 3, 101 Reykjavík, Sími 552 9940 | Opið mán.–fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 10–16 Einlitar barnavöðlur st. 20-35 Gott úrval af vönduðum veiðisettum fyrir börn á öllum aldri Verð frá 5.900 kr.Verð frá 7.900 kr. Camo vöðlur, veiðivesti og derhúfa Verð 10.900 kr. 6 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RSUMAR OG BÖRN 1 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :3 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 0 1 -9 1 3 C 2 3 0 1 -9 0 0 0 2 3 0 1 -8 E C 4 2 3 0 1 -8 D 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.