Fréttablaðið - 16.05.2019, Page 38
Það eru frábær
tilboð í tilefni 25
ára afmælis Sjávarbars-
ins.
Magnús Ingi hafði tröllatrú á að þarna myndi byggjast upp áhugaverður
veitingarekstur og það reyndist
rétt með vaxandi ferðamanna
straumi. Hann fagnaði hverjum
veitingastað sem var opnaður
árin eftir hrunið, enda styrkti það
Grandann í heild og gerði hann
eftirsóknarverðari fyrir jafnt
Íslendinga sem erlenda ferða
menn. Í dag er Grandinn þekktur
fyrir fjölbreytta flóru veitingahúsa
og gróskumikið mannlíf.
Ríkulegt sjávarréttahlaðborð
er aðalsmerki Sjávarbarsins en
einnig er boðið upp á fjölbreyttan
sér rétta seðil þar sem spriklandi
ferskur fiskur er í öndvegi. Frá
upphafi hefur vinnandi fólk í
nágrenninu fjölmennt á Sjávarbar
inn í hádeginu. Í dag er meirihluti
gesta þó ferðamenn, sérstaklega
á kvöldin, enda hefur staðurinn
hlotið af bragðsviðtökur á Trip
Advisor og hlotið viðurkenning
una „Certificate of Excellence“.
Í tilefni afmælisins er tilboð
á hádegishlaðborðinu og býðst
það á sama verði og við opnunina
fyrir tólf árum, aðeins 1.690 kr.
Sjávarbarinn fagnar 12 ára afmæli
Það voru ekki mörg veitingahús á Grandanum þegar Magnús Ingi Magnússon opnaði Sjávarbar-
inn fyrir tólf árum. Kaffivagninn og Grandakaffi höfðu sinn fasta sess á daginn en á kvöldin var
fátt sem dró að. Það þurfti því áræðni til að ryðja brautina með veitingamennsku á þessum stað.
Það er girnilegt
humartilboð á
Sjávarbarnum á
Grandanum.
Magnús Ingi hefur staðið vaktina á Grandanum í tólf ár.
Emmanuelle, eða Emma eins og hún er oftast kölluð, byrjaði að búa til skartgripi þegar hún
bjó í Noregi, og fékk þá hugmynd
að búa til litla fuglshöfuðkúpu
úr postulíni. „Síðan þegar ég fór
aftur til Parísar, þá setti ég mynd af
höfuðkúpunni á Facebook, og fullt
af fólki fór að spyrja mig hvort ég
gæti búið til f leiri og selt því,“ segir
hún en þannig hófst ferill Emmu
sem skartgripasmiðs.
Fuglinn er táknrænn að mörgu
leyti, en fuglshöfuðkúpan minnir
á grímur sem læknar báru þegar
plágan eða svarti dauði reið yfir
Evrópu á 14. öld. Emma var þó
ekki með pláguna í huga þegar
hún fékk hugmyndina.
Fuglshöfuðkúpan er enn vin
sælasti gripurinn, bæði sem
hálsmen og eyrnalokkar, en Emma
segist heillast af öllu „dauðu efni“
sem fyrirfinnst í bæði manns
líkamanum og dýralíkömum.
„Þetta er skrýtið viðfangsefni fyrir
skartgripi, fyrir mér tengja þeir
saman lífið og dauðann. Dauða
efnið, bein, tennur, horn á dýrum,
neglur og klær, allt sem vex út úr
líkamanum og táknar á einhvern
hátt dauðann. Það er óhugnanlegt
en ég heillast af því.“
Skartgripirnir eru í raun eftir
líkingar af stærri höggmyndum
sem Emma er stundum með til
Tennur, höfuðkúpur og bein
verða að skartgripum
Á Listastofunni eru skartgripir eftir högglistakonuna Emmanuelle Hiron, sem er frá Frakklandi
en hefur búið á Íslandi um nokkurt skeið. Skartgripirnir eru flestir smækkaðar myndir af tönnum,
mannshöfuðkúpum, beinum og fuglshöfuðkúpum, búnir til úr postulíni og 24 karata gulli.
Fuglahöfuð-
kúpurnar eru
vinsælastar, og
minna sumar
á grímur sem
læknar báru
þegar plágan
reið yfir Evrópu.
Hér hanga
eyrnalokkar
eftir Emmu.
Fuglahöfuð-
kúpur, manns-
höfuðkúpur,
tennur og píka.
Emmanuelle Hiron heillast af efni
tengir saman lífið og dauðann.
sýnis í Listastofunni. Emma segir
að í dag séu höggmyndirnar ekki
til sölu þótt hún hafi í fortíðinni
selt til listasafnara. „Ég get ekki
selt listaverkin mín lengur, þau
eru of persónuleg og tengjast lífi
mínu of sterkum böndum. En ég
get lifað á listinni með því að selja
eftirlíkingar í formi skartgripa.
Ég kann vel við þá hugmynd að
skartgripirnir fái að njóta sín á
líkömum. Þá eru skartgripirnir
eins og framhald af líkamanum,
og á sama tíma áminning um að
líkaminn er lifandi en hann mun
einhvern tíma deyja.“
Skartgripir geta líka þjónað þeim
tilgangi að endurspegla hvers konar
manneskja viðkomandi er sem ber
þá, en hún nefnir sem dæmi að í
æsku hafi hún alltaf borið kaþólsk
an kross þar sem hún fékk kaþólskt
uppeldi. „Síðasti skartgripurinn
sem ég bjó til er píka. Það að vera
með píkuhálsmen getur sumum
kannski þótt skrýtið, en mér finnst
gaman að sýna fólki eitthvað sem
það vill ekki sjá. Það er eitthvað
ljóðrænt við það.“ Hægt verður að
kaupa skartgripina fram til 17. júní
næstkomandi, en síðan fer Emma
aftur heim til Frakklands.
af humarveislu.
Sjávarréttarsúpa
dagsins, salatbar
og kaldir réttir á
hlaðborði fylgja
með.
Mánudaga til
sunnudaga frá
11.00 til 21.00.
Klipptu flipann út
og taktu með þér.
2
FYRIR
1
Innifalið í því er sjávarréttasúpa
dagsins, heitir og kaldir fiskréttir,
kjötréttur, salatbar, smáréttir,
kaffi og kökur.
Sjávarbarinn er að Grandagarði
9, sími 517 3131, sjá einnig sjavar
barinn.is.
Sólrún Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:3
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
0
1
-B
8
B
C
2
3
0
1
-B
7
8
0
2
3
0
1
-B
6
4
4
2
3
0
1
-B
5
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K