Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 44
ÍA - FH 2-0 1-0 Bjarki Steinn Bjarkason (3.), 2-0 Bjarki Steinn Bjarkason (68.). Rautt spjald: Pétur Viðarsson (FH) (71.). KA - Breiðablik 0-1 0-1 Thomas Mikkelsen (vítaspyrna) (3.). Víkingur - Stjarnan 3-4 0-1 Hilmar Árni Halldórsson (30.), 0-2 Guðjón Baldvinsson (38.), 0-3 Guðjón Bald- vinsson (48.) 1-3 Ágúst Eðvald Hlynsson (53.), 1-4 Alex Þór Hauksson (65.), 2-4 Júlíus Magnússon, 3-4 Sölvi Geir Ottesen (89.). Nýjast Pepsi-deild karla Völsungur - Sindri 2-0 Afturelding - Grindavík 4-4 Augnablik - Grótta 4-1 Selfoss - Njarðvík 8-1 Framlenging var í gangi í Mosfellsbænum þegar blaðið fór í prentun. Dregið verður í 16 liða úrslit keppninnar í hádeginu í dag. Mjólkurbikar kvenna HANDBOLTI Gísli Þorgeir hafði verið að glíma við af leiðingar axlar- meiðsla sem hann varð fyrir vorið 2018 og svo var komið að eymslin í öxlinni höfðu svo mikil áhrif á hann innan vallar að aðgerð var óum- flýjanleg. Gísli segir endurhæfinguna ganga vel og eiginlega vonum framar en hann muni ekki leika með Kiel í lokaleikjum tímabilsins og sé með hugann við það að koma sér í eins gott líkamlegt form og mögulegt er fyrir næsta keppnistímabil. Kiel er í toppbaráttu þýsku efstu deildar- innar og mun leika til úrslita í EHB- bikarnum þannig að hann segir það auðvitað freistandi að fara inn á völlinn en það sé langt frá því að vera skynsamlegt. Þjálfaraskipti verða hjá Kiel eftir að yfirstandandi leiktíð lýkur en Alfreð Gíslason lætur af störfum eftir að hafa stýrt liðinu frá því árið 2008 og Tékk- inn Filip Jicha tekur við starfinu af honum. Gísli Þorgeir segir mikla eftirsjá að Alfreð en hann sé um leið mjög spenntur fyrir samstarfinu við Jicha en Tékkinn hefur verið í þjálfara- teymi Alfreðs hjá Kiel í vetur og Gísli segir hann koma honum vel fyrir sjónir sem þjálfari. „Staðan gæti eiginlega ekki verið betri þegar kemur að batanum á öxlinni og ég er farinn að geta skotið boltanum á markið og skothreyf- ingin er komin í samt lag. Meiðslin voru klárlega að aftra mér þegar ég spilaði með íslenska liðinu á heims- meistaramótinu og ég fann það alveg að ég gat ekki skotið af öllu afli og skothreyfingin var skert,“ segir Gísli Þorgeir um stöðu mála hjá sér í samtali við Fréttablaðið. „Það var erfitt að geta ekki beitt mér af fullum krafti og að eitt vopn í mínu vopnabúri væri ekki til staðar. Leikmenn gátu stillt sér upp á sex metrunum og ég þurfti að hafa mikið fyrir hverju marki með því að notast við gegnumbrot. Það gat ekki gengið til lengdar og því fór ég í aðgerðina. Þegar ég fór í aðgerðina var talað um að allt endurhæfingarferlið myndi taka sex mánuði og nú eru tæpir fjórir mánuðir liðnir. Staðan er eins góð og mögulegt er. Ég hef verið að æfa í um það bil fimm tíma á dag með frábæru lækna- og sjúkraþjálfara- teymi Kiel og ég er í mjög góðum höndum,“ segir hann um tímann frá aðgerðinni. „Einbeitingin hjá mér er bara á því að koma mér í mitt fyrra form og vera klár í slaginn þegar næsta keppnistímabil byrjar. Það verður gaman að fylgjast með liðinu á lokasprettinum og vonandi náum við að landa þeim tveimur titlum sem í boði eru. Ég er mjög spenntur fyrir því að byrja að vinna með Jicha og hann hefur komið sterkur inn í þjálfarateymið að mínu mati. Hann hefur látið meira til sín taka en fyrri aðstoðarþjálfarar Alfreðs og hann hefur komið með góða punkta. Þetta er handboltagoðsögn sem ég hef fylgst með frá því að ég var pjakkur og það verður gaman að vinna með honum,“ segir þessi frá- bæri leikstjórnandi um framhaldið hjá sér. Íslenska landsliðið leikur loka- leiki sína í undankeppni EM 2020 um miðjan júní og Gísli segir að staðan á öxlinni verði bara tekin með læknum Kiel og læknum lands- liðsins þegar þar að kemur og metið hvort hann geti spilað þá leiki. Það verði bara að koma í ljós þegar nær dregur. hjorvaro@frettabladid.is Uppbygging í gangi fyrir næsta haust Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta og leikmaður þýska stórliðsins Kiel, hefur ekkert leikið með liðinu síðan hann gekkst undir aðgerð á öxl eftir að heimsmeistaramótinu lauk í lok janúar síðastliðins. Hann stefnir á endurkomu í haust. Mörkunum rigndi í Laugardalnum í gærkvöldi Stjarnan fór með nauman eins marks sigur af hólmi þegar liðið sótti Víking heim á óvenjulegan heimavöll Víkingsliðsins, Eimskipsvöllinn í Laugardalnum. Stjarnan er í seilingarfjarlægð frá ÍA og Breiðablik sem tróna á toppi deildarinnar eftir leik gærkvöldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Einbeitingin hjá mér þessa stundina er á því að koma mér í mitt fyrra form og vera að fullu klár í slaginn þegar næsta keppnistímabil byrjar. Gísli Þorgeir Kristjánsson KÖRFUBOLTI Spænski þjálfarinn Israel Martin hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Hauka í körfu- bolta. Martin, sem hefur þjálfað karlalið Tindastóls undanfarin ár og gerði liðið að bikarmeisturum vorið 2018, tekur við liðinu af Ívari Ásgrímssyni. Hauk ar höfnuðu í 10. sæti Domino's-deildarinnar á tíma- bilinu sem var að ljúka. – hó Martin mun þjálfa Hauka Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur verið fjarverandi vegna meiðsla á öxl síðan í lok janúar. NORDICPHOTOS/GETTY 1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 1 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :3 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 0 1 -B 3 C C 2 3 0 1 -B 2 9 0 2 3 0 1 -B 1 5 4 2 3 0 1 -B 0 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.