Fréttablaðið - 16.05.2019, Page 52
Það var vel til fundið og rausnarlegt hjá Erró að stofna þennan sjóð til heiðurs frænku sinni, Guðmundu, sem hann var víst mikið hjá sem
barn. Ég er alsæl og stolt yfir viður
kenningunni,“ segir Hulda Rós
Guðnadótt ir my nd list arkona
ánægjuleg, þegar haft er símasam
band við hana í Berlín. Hún flaug
þangað strax eftir úthlutunar
athöfnina í Listasafni Reykjavíkur
sem einnig var opnun sýningar
Errós, Heimsferð Maós.
Nú er Hulda Rós nýkomin af Fen
eyjatvíæringnum. „Það voru foropn
anir á listsýningum í síðustu viku og
svo var almenn opnun á laugardag
inn. Það var frábært að vera þarna,
margir mættir úr bransanum þannig
að þetta var eiginlega bæði bisniss
og skemmtiferð. Auk þess er svo
yndislegt í Feneyjum, manni líður
eins og prinsessu innan um hallirn
ar. Það er gaman að leyfa sér svona
ævintýri, maður er svo skynsamur
alla hina dagana!“
Leið eins og í fantasíu
Hulda Rós flutti til Berlínar fyrir tíu
árum og á þar tvær dætur, sjö og tíu
ára. Hún kveðst alltaf hafa nóg fyrir
stafni. „Ég var að ljúka stóru verkefni
hér í Berlín, því fylgdi mikið sýning
arhald og kynningar á því sem ég hef
verið að gera. Ég hafði lúxusvinnu
stofu í Künstl erhaus Bethanien í eitt
ár. Það er fyrrverandi iðnaðarhús
næði frá 19. öld, með risagluggum og
mikilli lofthæð, eins og alla dreymir
um. Mér leið eins og í fantasíu! Nú
er ég nýbúin að skila þeirri aðstöðu
en fékk úthlutað 66 fermetra rými
hjá Berlínarborg og má hafa það í
átta ár, borgin greiðir helminginn
af leigunni. Ég flutti mitt hafurtask
þar inn daginn áður en ég flaug til
Feneyja og fyllti rýmið gersamlega
því ég var með svo stóra sýningu í
janúar og febrúar. Það var lundabúð
með 3.000 lundum, þrír stórir skúlp
túrar sem ég þarf að selja einhverjum
stórkaupanda.“
Hulda Rós er með BAgráðu í
myndlist frá Listaháskóla Íslands og
MAgráðu í gagnvirkri hönnun frá
Middlesexháskóla. Hún er líka með
bakgrunn í mannfræði úr Háskóla
Íslands og notar myndlistina sem
rannsóknartæki til að nálgast við
fangsefnin. „Félagsfræðingar nota
ákveðnar rannsóknaraðferðir og
raunvísindamenn enn aðrar en
myndlistin skilar öðruvísi útkomu
og annars konar umræðuferli en
aðrar greinar,“ útskýrir hún.
Margir kannast við heimildar
myndir Huldu Rósar, Kjötborg, sem
hún gerði með Helgu Rakel Jóns
dóttur og kom út fyrir tíu árum, og
Keep Frozen, sem hún vann með
löndunarmönnum í Reykjavíkur
höfn og kom út 2016. Sú mynd fór
á virtar kvikmyndahátíðir um
allan heim og var tilnefnd til fjölda
verðlauna. Hún var líka sýnd sem
einkasýning í nútímalistasafninu,
Berlinische Galerie í fyrrasumar.
Hulda Rós segir marga þekkja hana
í Berlín eftir þá sýningu. „Við bröll
uðum margt saman, ég og löndunar
mennirnir. Ég bauð þeim til Leipzig
árið 2016 og við gerðum þar gjörn
ing sem var opinn fyrir almenning.
Hann hófst klukkan sex að morgni
í 500 fermetra sýningarsal og stóð í
48 tíma, eða jafnlengi og það tekur
þessa menn að tæma einn frysti
togara. Í raun voru þeir að fleygja
2530 kílóa kössum úr einum stað til
annars, eins og þeir væru fiður. Við
vorum líka með myndatökur þannig
að úr varð abstrakt vídeóinnsetning
úr hreyfingum strákanna.“
Þú hefur þjóðnýtt þessa löndunar
menn, segi ég í gríni. Hulda Rós tekur
því vel. „Já, algerlega, þeir eru minn
helsti innblástur. Ég er að byrja á
verkefni núna sem spannst út úr
hinum. Strákarnir búa sér nefni
lega til verkfæri úr kústsköftum og
nöglum sem þeir beygja og nota til
að krækja í bönd utan um kassana.
Ég er búin að steypa einn svona krók
í brons og nú hafa verið gerð tíu ein
tök af honum sem verða seld í nýju
fjölfeldisgalleríi, Multis, sem verður
opnað 23. maí. Þá verður hægt að
skoða verkin milli klukkan 5 og 7
í Tryggvagötu 13 og síðan verður
opið fjóra tíma í viku út maí áður en
Multis breytist í vefsíðuverslunina
multis.is með fjölfeldi. Ásdís Spanó
og Helga Óskarsdóttir eru konurnar
bak við verkefnið sem ég held að
henti íslenskum listmarkaði vel. Ég
ákvað að vinna með bronsið því það
á sér svo langa hefð innan listarinnar
og er gaman að hafa uppi á vegg. Það
upphefur hið hversdagslega.“
Kísilverið uppspretta listar
Nú eftir Feneyjaferðina kveðst
Hulda Rós ætla að draga sig aðeins í
hlé því hún þurfi að búa til tvö verk
fyrir haustið. Annað vinnur hún
úr hljóðum í kísilverinu á Bakka
við Húsavík, það verður sett upp í
af lagðri kapellu í Berlín, hitt er úr
kísilmálmi og verður sýnt í Fælles
hus, sameiginlegum sýningarstað
norrænu sendiráðanna í Berlín.
„Verkin mín eru opin og án pre
dikunartóns. Ég vil leggja marg
ræðnina á borð og gefa fólki rými
til að spyrja spurninga sjálft í sam
bandi við verkin,“ segir Hulda Rós
og kveðst hafa átt í góðu samstarfi
við starfsfólkið á Bakka. „Það var
ekki að draga neitt undan eða fela.
Kísill er algengur í jörðu á Íslandi
en ekki í því formi að hægt sé að
vinna hann. Því er allt innf lutt á
Bakka og efnið fer langar skipa
leiðir, sem hráefni, hálfunnið og
fullmótað.
Flestallt sem við erum með í
kringum okkur hefur farið í gegn
um langt ferli og ferðast um heim
inn. Ég tel mikilvægt að við séum
meðvituð um það.“
Þeim sem vilja kynna sér verk
Huldu Rósar er bent á vefinn
hulda rosgudnadottir.is.
Ég vil leggja margræðnina á borð
Hulda Rós Guðnadóttir myndlistarkona hlaut nýlega viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristins-
dóttur, sem Erró stofnaði til að veita framúrskarandi listakonu úr ár hvert. Hulda Rós var sú 20. í röðinni.
Listafólkið Hulda Rós og Erró er hún tók við verðlaunafé og blómum og hann opnaði sýninguna Heimsferð Maós í Listasafni Reykjavíkur.
Krókur sem Hulda Rós steypti í brons
og verður í fjölfeldisgalleríi Multis.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Hulda Rós notar myndlistina sem rannsóknartæki til að nálgast viðfangsefni sín. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FLESTALLT SEM VIÐ
ERUM MEÐ Í KRINGUM
OKKUR HEFUR FARIÐ Í GEGNUM
LANGT FERLI OG FERÐAST UM
HEIMINN.
1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
1
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:3
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
0
1
-9
B
1
C
2
3
0
1
-9
9
E
0
2
3
0
1
-9
8
A
4
2
3
0
1
-9
7
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K