Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 58
Gæði og glæsileiki endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Gæði og glæs ileiki endalaust úrval af hágæ ða flísum Finndu okkur á facebook Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind Ódýr blekhylki og tónerar! Leikritið Istan eftir Pálma Frey Hauks- son verður sett upp í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ á morgun. Í því eru 35 persónur, og fer leikarinn Albert Halldórsson með hlutverk þeirra allra. Albert er uppalinn í Keflavík og langaði mikið til að setja verkið upp í sínum gamla heimabæ. Pálmi skrifaði verkið held ég með mig í huga. Hann kemur með hug-myndina og verkið og spyr mig hvort ég vilji ekki taka þátt. Ég var mjög spenntur fyrir þessu og sló auðvitað til,“ segir Albert Halldórs- son leikari um verkið Istan eftir Pálma Frey Hauksson, en hann leikstýrir líka. Istan var útskriftar verkefni Pálma frá sviðshöfundabraut Lista- háskóla Íslands. Verkið, sem er ein- leikur, fjallar um afskekktan bæ á Bretlandseyjum á 19. öld. Albert fer með hlutverk alls 35 persóna í verkinu en hann segir að það hafi reynst þrautin þyngri að leggja þau öll á minnið. „Við Pálmi þróuðum svo per- sónurnar áfram í samvinnu. Það tók líka tíma að læra allan textann, maður er þarna einn á sviði í tæpan einn og hálfan tíma. En við þróuð- um í sameiningu handritið. Fyrst fór mikill tími í að gefa einfaldlega öllum nafn og einkenni, gefa þeim eitthvert andlit.“ Hann segir þá hafa fundið mynd- ir af ýmsu fólki og reynt að tengja persónurnar við myndirnar. „Það hjálpaði mikið við að full- stúdera karakterana að hafa eitt- hvert andlit sem maður gat séð fyrir sér. Maður horfði á andlit af óþekktri persónu og hugsaði: Já, þetta er nú alveg eins og prestur- inn. Svo byrjar maður að reyna að leika manneskjuna á myndinni.“ Í bænum gerast dular f ullir atburðir og segir leikritið frá áhrifum þeirra á bæinn. Verkið var fyrst sett upp í Tjarnarbíói í mars, en Albert langaði mikið að sýna Istan í heimabæ sínum, Kef lavík. Fyrst var hann óviss um hvort það væri mögulegt, þar sem verkið krefst nokkuð sérstakrar sviðs- uppsetningar. „Leikarinn þarf sem sagt að vera í miðju áhorfenda, á ferköntuðu svæði. Þetta getur verið f lókið en virkaði í Tjarnarbíói. Það var því gaman að sjá að þetta var líka mögulegt í húsnæði Leikfélags- ins í Kef lavík, Frumleikhúsinu. Við fórum í sérstakan könnunar- leiðangur til að sjá hvort það væri hægt að púsla þessu saman, hvort okkur væri kleift að setja svið upp á sviðið,“ segir Albert. Albert steig sjálfur sín fyrstu skref í leiklistinni með Leikfélagi Kef lavíkur, þá var hann 11 ára gamall. „Það er líka svolítið skemmti- legt að þegar við vorum að kanna aðstæður og möguleikana rakst ég á plakat fyrir síðasta verkið sem ég setti upp með leikfélaginu. Mér fannst það nokkuð skemmtileg til- viljun að það voru akkúrat liðin 10 ár frá þeirri sýningu. Smá fyndið, svona eins og týndi sonurinn sé að snúa aftur,“ segir Albert kíminn og hlær. Albert segist sjálfur ekki sjá margt líkt með íbúunum í smábæn- um Istan og Kef lavík og íbúunum þar. „Mamma reyndar sá eitthvað í verkinu sem henni fannst geta virkað eins og allegoría. Henni fannst einhver tengsl við kísilverk- smiðjuna og Kef lavík, þá atburði sem sagt. Getur vel verið að það sé rétt. En karakterarnir eru svo sannarlega ekki byggðir á neinum sem ég þekki héðan,“ segir hann glettinn. Albert segir að hann hafi lengi langað til að setja upp sýningu í Frumleikhúsinu. „Ég er mjög spenntur f y rir þessu. Mig hefur lengi langað að snúa aftur á fjalir Frumleikshúss- ins og enn skemmtilegra að koma með svona gott verk í minn gamla heimabæ. Ég vona innilega að sjá sem f lesta,“ segir Albert að lokum. Istan er sýnt annað kvöld í Frum- leikhúsinu í Reykjanesbæ. Miðar fást við innganginn og kostar 3.000 krónur inn. Einnig er hægt að taka frá miða með því að senda tölvupóst á net- fangið istaneinleikur@gmail.com. steingerdur@frettabladid.is Albert leikur 35 persónur í verkinu Istan Albert hefur lengi langað til að snúa aftur á fjalir Frumleikhússins og annað kvöld gerir hann það í gervi 35 persóna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI ÞAÐ ER LÍKA SVOLÍTIÐ SKEMMTILEGT AÐ ÞEGAR VIÐ VORUM AÐ KANNA AÐSTÆÐUR OG MÖGULEIKANA RAKST ÉG Á PLAKAT FYRIR SÍÐASTA VERKIÐ SEM ÉG SETTI UPP MEÐ LEIKFÉLAGINU. MÉR FANNST ÞAÐ NOKKUÐ SKEMMTILEG TILVILJUN AÐ ÞAÐ VORU AKKÚRAT LIÐIN 10 ÁR FRÁ ÞEIRRI SÝNINGU. 1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 1 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :3 3 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 0 1 -B D A C 2 3 0 1 -B C 7 0 2 3 0 1 -B B 3 4 2 3 0 1 -B 9 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.