Morgunblaðið - 08.01.2019, Blaðsíða 25
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
KRISTALS LJÓSAKRÓNUR
ÚTSALA er að byrja
Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir
falleg heimili. ÚTSALA. Handskornar
kristalsljósakrónur, veggljós, matar-
stell, kristalsglös til sölu.
BOHEMIA KRISTALL,
Glæsibær
Sími 7730273
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
BátarBílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur,
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-
8 kl. 12.30. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. MS fræðslu-
og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-
12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700.
Boðinn Botsía kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 12.30. Brids og kanasta kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 Yngingar jóga kl. 9-9.50, allir velkomnir. Opin
handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Botsía kl. 10.40-
11.20. Bónusrútan kemur kl. 14.40. Leshópur kl. 13. Opið kaffihús kl.
14.30. Qigong kl. 17.30-18.30.
Bústaðakirkja Félagsstarfið hefst miðvikudaginn 9. janúar kl. 13,
spilað, skrafað og Jónas Þórir mætir við píanóið. Framhaldssaga og
sóknarprestur verður með hugleiðingu og bæn. Kaffið góða frá Sigur-
björgu á sínum stað. Allir velkomnir, starfsfólk Bústaðakirkju.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð eftir stund-
ina á vægu verði. Fyrsta samvera á nýju ári. Kl. 13 kemur Steinunn
Leifsdóttir íþróttafræðingur, hún ræðir um hreyfingu og góða nær-
ingu á eftri árum. Hefðbundið starf að öðru leyti. Allir velkomnir.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverkstofa kl. 13. Landið
skoðað með nútímatækni kl. 13.50. Kaffiveitingar kl.14.30. Velkomin!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Kl. 9-12 bútasaumshópur, kl. 9-13 gler-
list, kl. 10.30 hópþjálfun með sjúkraþjálfara, kl. 13-17 bókband, kl. 13-
16.30 frjáls spilamennska, kl. 13-16 opin handverkstofa. Hádegisverð-
ur frá kl. 11.30-12.30, kaffisala frá kl. 14.30-15.30. Verið velkomin til
okkar á Vitatorg, Lindargötu 59, síminn er 411-9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl.. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9.
Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer
frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í
Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 handavinna, kl. 13 hreyfi- og jafn-
vægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafnvægisæfingar.
Grensaskirkja Kyrrðarstund kl. 12. Verið velkomin.
Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9, botsía kl. 9.30, málm- og silfursmíði
/ kanasta kl. 13, leshópur kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Hjúkrunarfræðingur kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl.
12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, helgistund
kl. 14 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Opnað kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp
á kaffi. Thai chi kl. 9-10, myndlistarnámskeið hjá Margréti Z. kl. 9-12,
leikfimi kl. 10-10.45, hádegismatur kl. 11.30. Spekingar og spaugarar
kl. 10.30-11.30, Listasmiðja er öllum opin frá kl. 12.30, Kríur myndlist-
arhópur kl. 13, brids kl. 13-16, enska I kl. 13-14.30, kaffi kl. 14.30, enska
ll kl. 15. Uppl. s. 411-2790.
Korpúlfar Listmálun kl. 9 í Borgum í dag, botsía kl. 10 og 16 í Borg-
um. Helgistund kl. 10.30 í Borgum og sundleikfimi í Grafarvogssund-
laug kl. 13.30 Heimanámskennsla kl. 16.30 í Borgum í dag.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með
leiðbeinanda kl. 13-16, botsía, spil og leikir kl. 15.30. Uppl í s. 4112760.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka-
bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30–15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30. Pútt í Risinu Eiðistorgi kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfi-
landi kl. 11.30. Brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Helgistund á Skólabraut
kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14.
Stangarhylur 4 Skák kl. 13, allir velkomnir. Íslendingasögu-/ forn-
sagnanámskeiðið hefst föstudaginn 18. janúar kl. 13, verður á hverj-
um föstudegi í tíu vikur (kl. 13–15 með kaffihléi). Opið öllum. Verð kr.
16.500. Góð samvera í góðum hópi. Kennari sem fyrr Baldur Hafstað.
Ferðalag á söguslóðir að yfirferð lokinni. Skráning á feb@feb.is / síma
5882111.
Félagslíf
EDDA 6019010819 I
Færir þér
fréttirnar
mbl.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
✝ Sigríður Ingi-björg Þorgeirs-
dóttir fæddist á
Hæringsstöðum í
Árborg 29. júlí
1937. Hún lést 28.
desember 2018 á
Ljósheimum, Sel-
fossi.
Foreldrar henn-
ar voru Elín Kol-
beinsdóttir, f. 12.
ágúst 1894, d. 9.
mars 1972 frá Vestri-
Loftsstöðum í Flóa, og Þorgeir
Bjarnason, f. 26. júlí 1890, d. 27.
janúar 1981 frá Eyri í Mjóafirði
við Ísafjarðardjúp. Systkini Sig-
ríðar eru: Kristján Eldjárn, f.
20. september 1922, d. 20. jan-
úar 2010, Kolbeinn, f. 24. desem-
ber 1923, d. 11. febrúar 2007,
Bjarni Kristinn, f. 1926, d. 28.
janúar 2012, og Sólveig Antonía,
f. 13. janúar 1940. Auk þess
eignuðust Elín og Þorgeir fimm
börn sem öll létust í fæðingu.
Sigríður Ingibjörg giftist árið
1972 Þorsteini Sveinssyni lög-
manni, f. 20. desember 1913, d.
6. ágúst 1981. Börn
Þorsteins eru: Petr-
ína Ólöf. f. 1941,
maki Gunnar Guð-
mundsson. f. 1941,
Jón Ragnar. f.
1942, d. 1997, maki
Sigrún Anna Boga-
dóttir. f. 1943, Ósk-
ar Sveinn. f. 1954,
d. 2015, maki Ólöf
Einarsdóttir. f.
1960, d. 2015, og
Elísabet Ingiríður. f. 1959, maki
Hörður Magnússon, f. 1956.
Börn Þorsteins eiga fjölda af-
komenda.
Sigríður Ingibjörg (Stella)
var grunnskólakennari í 56 ár,
þar af 54 ár við Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði. Hún vann um tíma
við prófarkalestur á dagblaðinu
Tímanum en þó mestmegnis við
landbúnaðarstörf á Hærings-
stöðum hjá foreldrum sínum og
bróður en var einnig skráð
bóndi þar síðustu árin.
Útför Sigríðar fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 8. janúar
2019, klukkan 13.30.
Ég hef náttúrlega þekkt hana
Stellu föðursystur mína alla tíð og
þegar ég fór í Kennaraskólann var
Stella búin að kaupa sér íbúð í
Hafnarfirði og bauð mér að koma
og vera hjá sér. Ég, sæmileg í ís-
lensku, stóð frammi fyrir að vanda
málfar mitt vegna þess hve vel
Stella var að sér í íslensku. Í hljóði
reyndi ég því beygja með hraði –
þf/þgf! Stella hefði þó aldrei leið-
rétt mig né nokkra manneskju
nema á blaði með penna. Stella
var þá að kenna við Öldutúnsskóla
og ég fór stundum með henni í
skólann; gott fyrir verðandi kenn-
ara. Stella var í Guðspekifélaginu
og fór ég með henni tvisvar þar á
fund. Ekkert botnaði ég í nokkru
sem þar fór fram og kaus frekar
öldurhús borgarinnar.
Stella ætlaði einu sinni að verða
fyrsti kvenpresturinn á Íslandi en
afa leist ekkert á það. Hélt ég að
Stellu hefði mislíkað það en svo
var ekki og sagðist hafa verið hon-
um þakklát fyrir að hún lærði ekki
til prests. „Það hefði nú verið ljóta
djobbið,“ sagði hún. Eftir frábær-
an námsárangur í MR fór hún að
kenna og síðar í réttindanám. Hún
sagði að sér hefði þótt sinn síðasti
kennsludagur jafn skemmtilegur
og sá fyrsti og gat kennt hvaða
bóklega grein sem var frá 1.-10.
bekk.
Eftir 56 ár í kennslu hefði for-
setinn (þáverandi) mátt veita
henni menntaverðlaun, en það
þykir kannske ekki vert að verð-
launa fólk sem vinnur verk sitt
hljóðlega.
Stella var líklega aldei sérstak-
ur ökumaður. Hún átti bíl í ein-
hver ár og einu sinni bauð hún
mér í ökuferð út á Bessastaði. Það
fór eitthvað óhönduglega og við
lentum í hálfgerðu öngstræti bak
við fjósið. Öðru sinni vorum við á
leið austur í Flóa en í Drauga-
hlíðarbrekkunni (fyrir ofan Litlu
kaffistofuna) gaf Stella heldur lítið
inn og komst ekki upp. Ég ók því
austur.
Stella var ákaflega gjafmild
eins og afinn Kolbeinn Þorleifsson
sem jós fé sínu á báða bóga. Hún
var afar gestrisin eins og afi og
amma og til hinstu stundar fylgd-
ist hún vel með öllum ættingjum
og Flókagötufólkinu – Þorsteins-
fólkinu.
Þegar kraftarnir voru á þrotum
þurfti Stella að fara á dvalarheim-
ili. Við brottför frá Hæringsstöð-
um skaust kötturinn Útivistar-
Brandur undir tré úti í garði. Mig
grunaði þá að Stella ætti ekki aft-
urkvæmt.
Elsku Stella mín. Ég þakka
samfylgdina, vináttu þína við mína
fjölskyldu og óska þér góðrar
ferðar „… á Guðs þíns fund“.
Þórdís Kristjánsdóttir.
Með örfáum orðum langar mig
til að minnast Stellu, góðrar vin-
konu minnar til margra ára.
Kynni okkar hófust þegar ég hóf
kennslu við Öldutúnsskóla haustið
1984. Ég var þá nýútskrifaður
sem kennari. Stella var hins vegar
búin að vera kennari við skólann
allt frá stofnun eða 1961. Við störf-
uðum aðeins saman í fjögur ár en
á þeim tíma veitti hún mér ómet-
anlega aðstoð einkum hvað ís-
lenskukennslu varðar og ekki
minnkaði hjálpsemi hennar eftir
að ég réð mig til annars skóla. Oft
áttum við gott spjall um stefnur og
leiðir í kennslu allt þar til að hún
hætti kennslu sjálf vorið 2015. Og
ávallt var það ég sem nam en hún
sem miðlaði.
Stella var mjög farsæll og góð-
ur kennari og hún var vinsæl með-
al samkennara og ekki síður nem-
enda sinna. Hún sýndi nemendum
sínum ávallt fyllstu vinsemd og
hlýleika, en ákveðni og þolinmæði
þegar það átti við. Henni lét vel að
umgangast börn og unglinga og
starfið lék í höndum hennar. Nú
mörgum árum síðar hef ég oft hitt
fyrrverandi nemendur okkar og
þeir hafa gjarnan minnst Stellu
með aðdáun og virðingu.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Þegar litið er til baka er ég ekki
í vafa um að hinn góði orðstír sem
Stella ávann sér við kennslu mun
lengi lifa meðal fyrrverandi nema
hennar og samstarfsfólks.
Stuttu eftir að við kynntumst
fór ég að heimsækja hana og
systkini hennar, Bjarna og Sól-
veigu, að Hæringsstöðum. Hær-
ingsstaðir standa á fallegu bæjar-
stæði í miðjum Flóanum. Þaðan er
á góðviðrisdögum fallegt útsýni
yfir fjallahringinn frá Eyjafjalla-
jökli í austri, norður um og allt til
Skálafells í vestri. Úr suðri mátti
oft heyra sjávarnið þegar vel viðr-
aði en brimöldugang á vetrum.
Þarna var mér og fjölskyldu minni
alltaf vel tekið með góðum veit-
ingum sem þær systur sáu um.
Það var gaman að koma til þeirra
systkina, oft reyndi ég að hlaupa
undir bagga með þeim, tók þátt í
heyskap og smalamennsku nú eða
öðrum störfum. Oft dáðist ég að
léttleika Stellu í smalamennsku.
Hún hljóp um erfiðar þúfur eins
og um jafnsléttu væri að ræða og
blés varla úr nös. Í pásum var
spjallað og þá gjarnan um pólitík.
Þá voru þau Stella og Bjarni í ess-
inu sínu. Flest virtist leika í hönd-
unum á Bjarna og eins var hann
bjartsýnismaður og óendanlega
þolinmóður. Reyndar áttu þau
systkinin það öll sameiginlegt.
Eftir fráfall Bjarna í janúar 2012
héldu þær systur búskap áfram
eða allt þar til Stella missti heils-
una.
Veikindi Stellu og fráfall var
mikið áfall fyrir okkur vini hennar
og við söknum hennar mikið. En
mest er þó áfallið fyrir Sólveigu
sem sér nú á bak síðasta systkini
sínu, kærri systur og sálufélaga.
Ég samhryggist henni innilega en
minningar um góða systur og vin-
konu munu lifa með okkur öllum
sem hana Stellu okkar þekktu.
Stella! Takk fyrir allt og allt og
Guð veri með þér.
Steinarr Þór.
Elsku hjartans Stella okkar.
Takk fyrir allt sem þú gerðir
fyrir mig sem kennari, þegar ég
var nemandi við Öldutúnsskóla.
Takk fyrir að hafa verið mér fyr-
irmynd sem kennari þegar við
störfuðum saman við sama skóla
síðar. Takk fyrir alla samveruna
og „sambúðina“ á Öldutúni 7, það
sem þú varst góð við börnin mín
og okkur öll. Takk fyrir sam-
veruna í sveitinni þinni. Takk fyrir
öll fallegu ljóðin þín. Takk fyrir
allt og allt, þú einstaka, hæfileika-
ríka, yndislega kona.
Þú munt alltaf eiga stóran stað í
hjörtum okkar.
Hér læt ég fylgja eitt af mínum
uppáhaldsljóðum eftir þig, elsku
vinkona. Þennan texta þinn sung-
um við í Kór Öldutúnsskóla í hvert
sinn er við gengum inn á tónleika
hvort sem var hér heima eða úti í
hinum stóra heimi.
Heyr mitt ákall þú ættjörðin kær,
þar sem eldi á jöklana slær,
yfir höf, yfir sund,
líkt og sólin kyssi grund,
þá er söngur minn rödd þín á hverri
stund.
(Höf. Sigríður Þorgeirsdóttir)
Innilegar samúðarkveðjur til
ættingja og vina.
Hvíl í friði, elsku Stella okkar.
Þín
Halla Eyberg Þorgeirsdóttir
og börn.
Sigríður Þorgeirsdóttir er látin.
Með örfáum orðum langar mig að
kveðja kæra vinkonu og þakka
áratuga samfylgd. Sigríður, eða
Stella eins og hún var oft nefnd,
var í hópi frumherja þegar Öldut-
únsskóli tók til starfa árið 1961 og
þar kenndi hún í meira en hálfa
öld. Fáum árum síðar hóf ég störf
við skólann og varð okkur Stellu
fljótt vel til vina. Hún unni ís-
lenskri tungu og var bæði ljóðelsk
og hagmælt. Fljótlega eftir að Kór
Öldutúnsskóla var stofnaður
haustið 1965 tók ég að leita til
hennar þegar vantaði texta og ljóð
við ýmis lög. Brást hún ævinlega
vel við kvabbi mínu og stóð þessi
samvinna okkar áratugum saman.
Hún hafði góða tilfinningu fyrir
því að ljóðið félli vel að laginu og
var alltaf til í að gera breytingar ef
einhverjir hnökrar voru þar á.
Mörg þessara laga eru oft sungin,
t.d. „María í skóginum“, „Senn
kemur vor“ og „Hljóðnar nú
haustblær“. Þessi fallegu ljóð
sýndu næmi hennar og ást á nátt-
úrunni og hæfileikann til að fanga
stemningu í tíma og rúmi. Sum
þessara ljóða voru þýðingar, önn-
ur frumort, og lék hvort tveggja í
höndum hennar.
En við Stella vorum ekki bara
samkennarar heldur bjuggum við
í sama húsi um langt árabil og
betri nágranna er ekki hægt að
hugsa sér. Stella var hógvær og
lítillát í allri framgöngu. Oftar en
ekki lék milt bros um varir hennar
og hún hafði ákaflega góða nær-
veru. Og nú hefur hún kvatt okk-
ur. Síðustu árin reyndust henni
erfið og sjálfsagt varð hún hvíld-
inni fegin. Við hjónin kveðjum
hana með söknuði og þakklæti og
vottum ættingjum samúð. Blessuð
sé minning Sigríðar Þorgeirs-
dóttur.
Egill R. Friðleifsson,
Sigríður Björnsdóttir.
Sigríður Ingibjörg
Þorgeirsdóttir