Morgunblaðið - 08.01.2019, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2019
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
TONON Up
Barstóll – viðarfætur
Verð 129.000,- stk.
ICQC 2018-20
Golden Globe-verðlaunin voru af-
hent aðfaranótt mánudags á Beverly
Hilton-hótelinu í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum og komu úrslitin mörgum í
opna skjöldu, eins og sjá má af um-
fjöllunum ýmissa fjölmiðla bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum en úrslit
Golden Globe ráðast af atkvæða-
greiðslu félagsmanna í samtökum
erlendra blaða- og fjölmiðlamanna í
Hollywood, Hollywood Foreign
Press Association eins og þau heita á
frummálinu.
Óvæntust þóttu úrslitin í flokki
bestu dramatísku kvikmyndar en
fyrir valinu varð Bohemian Rapsody
sem segir af hljómsveitinni Queen í
árdaga og þá einkum forsprakka
hennar, Freddie heitnum Mercury.
Kvikmyndin heitir eftir einum
þekktasta smelli Queen og þótti hún
allt eins eiga heima í flokki gaman-
og söngvamynda. Bohemian Rap-
sody hefur hlotið heldur dræmar við-
tökur gagnrýnenda á heildina litið,
eins og sjá má af meðaltalseinkunn-
inni 49 af 100 mögulegum á vefnum
Metacritic sem tekur saman gagn-
rýni víða að. Aðalleikari myndar-
innar, Rami Malek, hreppti verðlaun
sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir
túlkun sína á Mercury.
Gaman- eða dramamynd,
aðal- eða aukaleikari?
Besta kvikmyndin í flokki gaman-
og söngvamynda þótti Green Book
sem hefði allt eins getað verið í flokki
dramatískra kvikmynda þar sem
hún þykir bæði gamansöm og
dramatísk. Mahershala Ali hlaut
verðlaun sem besti leikari í auka-
hlutverki fyrir leik sinn í myndinni
sem er út af fyrir sig skrítið þar sem
hann er í öðru af tveimur aðalhlut-
verkum kvikmyndarinnar, hlutverki
klassísks píanóleikara sem fer í tón-
leikaferð um sunnanverð Bandaríkin
og fær dyravörð til að keyra sig milli
staða en sá er leikinn af Viggo Mor-
tensen.
Áttu margir von á því að A Star is
Born, kvikmynd Bradleys Coopers
sem hann fer einnig með aðalhlut-
verk í, á móti Lady Gaga, yrði sigur-
vegari kvöldsins en hún hlaut aðeins
ein verðlaun, fyrir besta frumsamda
lagið, „Shallow“ eftir Gaga. Green
Book hlaut svo ein verðlaun til við-
bótar, fyrir besta handrit, og því
flest verðlaun af þeim kvikmyndum
sem tilnefndar voru að þessu sinni.
Roma eftir mexíkóska leikstjór-
ann Alfonso Cuarón hlaut tvenn
verðlaun, sem besta erlenda kvik-
myndin (þ.e. kvikmynd á öðru máli
en ensku) og fyrir bestu leikstjórn,
en henni er spáð velgengni á Óskars-
verðlaununum 25. febrúar. Þá var
Spider-Man: Into the Spider-Verse
verðlaunuð sem besta teiknimyndin.
Bretar fengsælir
Dagblaðið The Guardian vekur
sérstaklega athygli á góðu gengi
Breta á Golden Globe í ár en þeir
voru margir í hópi verðlaunahafa og
þá sérstaklega þegar kemur að sjón-
varpsþáttum. Enski leikarinn
Christian Bale hlaut verðlaun fyrir
túlkun sína á Dick Chaney í gaman-
myndinni Vice og þakkaði hann m.a.
kölska fyrir þann árangur í ræðu
sinni; Olivia Colman var verðlaunuð
sem besta aðalleikkona í gaman-
mynd fyrir The Favorite; Richard
Madden hlaut verðlaun sem besti að-
alleikkari í dramaseríu fyrir Body-
guard og Ben Whishaw verðlaun
fyrir bestan leik í aukahlutverki fyr-
ir A Very English Scandal.
Bandaríkjamenn voru þó öllu fleiri
í hópi verðlaunahafa og má af þeim
nefna Patriciu Clarkson sem var
verðlaunuð fyrir besta aukahlutverk
í sjónvarpsþáttum, Sharp Objects;
Patriciu Arquette sem hlaut verð-
laun sem besta leikkona í stuttri
þáttaröð fyrir Escape at Danne-
mora; Rachel Brosnahan sem hlaut
verðlaun sem besta aðalleikkona í
gaman- eða söngvaþáttaröð, The
Marcellous Mrs. Maisel, og Michael
Douglas sem hreppti styttu sem
besti leikari í sama flokki, fyrir The
Kominsky Method, og helgaði verð-
launin 102 ára gömlum föður sínum,
Kirk. Heiðursverðlaun fyrir ævi-
starfið hlaut svo fjölhæfi leikarinn
Jeff Bridges. helgisnaer@mbl.is
Tvenna Mexíkóski leikstjórinn Alfonso Cuarón með stytturnar sem hann
hlaut fyrir Roma, fyrir bestu leikstjórn og bestu erlendu kvikmyndina.
AFP
Kampakátir Liðsmenn Queen, Brian May og Roger Taylor, með leikaranum Rami Malek.
Í hátíðarskapi Leikarinn Viggo Mortensen, leikstjórinn Peter Farrelly, leikkonan Linda Card-
ellini og leikarinn Mahershala Ali voru ánægð með gott gengi kvikmyndarinnar Green Book.
Óvænt úrslit
Bohemian Rapsody, Green Book
og Roma þær bestu á Golden Globe
Koss Lady Gaga smellti laufléttum kossi á verðlauna-
styttuna sem hún fékk fyrir lagið „Shallow“.
Margreynd Glenn Close hlaut verðlaun fyrir besta leik í
aðalhlutverki dramatískrar kvikmyndar, The Wife.