Morgunblaðið - 08.01.2019, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2019
✝ Þórður Helga-son var fæddur
á Staðarhóli í
Höfnum 4. október
1930. Hann lést 25.
desember 2018.
Foreldrar hans
voru Þóra Magnús-
dóttir og Helgi
Maris Sigurðsson.
Systkini Þórðar
sammæðra eru
Kristín Guðmunds-
dóttir, Ólafur V. Guðmundsson,
Guðmundur M. Guðmundsson,
d. 2017.
Eiginkona Þórðar er Guð-
björg Hulda Þórðardóttir, f. 18.
febrúar 1933. Þau eignuðust
fimm börn: Þórður, f. 1953, d.
2018. Maki María Ólafsdóttir,
barnabörn. Guðbjörn Þór, f.
1971. Maki Brynja Traustadótt-
ir, þau eiga tvo syni, Leif Örn, f.
1996, og Ísak Örn, f. 2001.
Hulda og Þórður bjuggu lengi
í Háukinn 4 í Hafnarfirði en síð-
ustu tvo áratugina á Suðurgötu
96 í sama bæ.
Þórður var lærður vélstjóri.
Hann og félagi hans Gunnar
Hermannsson stofnuðu út-
gerðarfélagið Eldborg hf. og
fengu afhent sitt fyrsta skip árið
1963. Alls gerðu þeir út fjögur
skip með Eldborgarnafninu.
Eftir að útgerð Eldborgar lagð-
ist af starfaði Þórður hjá Véla-
verkstæði Jóhanns Ólafs í
Hafnarfirði.
Þórður var félagi í Rótarý-
klúbbi Hafnarfjarðar.
Úför Þórðar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 8.
janúar 2019, og hefst athöfnin
klukkan 13.
hún á eina dóttur og
tvö barnabörn. Arn-
þrúður, f. 1956.
Maki Eiríkur Bj.
Barðason. Þau eign-
uðust þrjú börn,
Gustav Þór, f. 1976,
Laufeyju, f. 1980,
og Árna Þór, f.
1985. Barnabörnin
eru fjögur. Guð-
mundur, f. 1958.
Maki Fríða Eyjólfs-
dóttir. Þau eignuðust þrjú börn,
Thelmu, f. 1981, Huldu Kristínu,
f. 1988, og Eyjólf, f. 1990.
Barnabörnin eru fimm.
Ólafur Örn Þórðarson, f.
1962. Maki Erna Jóhannes-
dóttir, hún á fjögur börn, 10
barnabörn og fjögur barna-
Elsku Diddi afi minn var ein-
staklega góður maður. Öll börn
hændust að honum enda nálgað-
ist hann þau alltaf á yfirvegaðan
og ljúfan máta. Ég var þar engin
undantekning. Ég á minningar
frá því ég var lítil þar sem ég sat á
hnjánum á honum sem dúuðu létt
og við sungum saman um krakk-
ana sem duttu í kolakassann og
Atti katti nóa.
Hann kallaði mig oft hrossa-
brestinn hans afa. Hann sagði
mér að þegar ég var pínulítil hafi
ég stundum gefið frá mér skræk
hljóð sem minntu hann á hrossa-
brest. Mér hefur alltaf þótt vænt
um þessa nafngift sem afi gaf
mér og á eftir að sakna þess
mikið að heyra hann kalla mig
hrossabrestinn sinn.
Blessuð sé minning elsku afa
míns.
Thelma.
Elsku Diddi afi minn.
Þegar ég hugsa um þig og allar
góðu minningarnar stendur upp
úr hversu barngóður og ljúfur þú
varst. Mér eru minnisstæðar
sumarbústaðaferðirnar á Staðar-
hól með ykkur ömmu og þegar ég
fór með ykkur norður á Vatns-
nesið og til Óla frænda. Einnig
koma upp í hugann heimsóknirn-
ar í skúrinn til þín bæði í Háu-
kinninni og svo seinna á Suður-
götunni. Þar var mikið sport að fá
að hringja í þig í innanhússíman-
um niður í skúr. Ég minnist þess
líka að þegar ég var lítil varstu
alltaf að blása á milli tánna á mér.
Það þótti mér alltaf jafn fyndið.
Þið amma komuð tvisvar
sinnum í heimsókn til mín til
Danmerkur, þær minningar
þykja mér mjög dýrmætar.
Þú varst líka yndislegur við
strákana mína og þið Gunnar
Jökull voruð miklir vinir. Alltaf
þegar þið hittust settist hann í
fangið þitt eða þú lagðist á gólfið
til að leika við hann, jafnvel þótt
þú ættir orðið erfitt með gang og
ekki auðvelt með að standa upp
aftur, léstu það ekki stoppa þig.
Síðustu skiptin sem við kom-
um til þín hafðirðu í hógværð
þinni orð á því að það væri óþarfi
að vera að eyða tíma okkar á Ís-
landi í að heimsækja þig. En það
gaf mér mikið að sjá hversu glað-
ur og þakklátur þú varst alltaf að
fá okkur í heimsókn.
Þín er sárt saknað, elsku afi.
Þín
Hulda Kristín.
Elsku tengdapabbi minn Diddi
lést á jólanótt. Hann sagði alltaf
að loga ættu ljós á jólanótt. Ég
hef alltaf haldið þeim sið og mun
gera áfram.
Hann var einstakur tengda-
pabbi, tók mér sem dóttur frá
fyrstu stundu.
Diddi hafði lúmskan húmor.
Mér er mjög minnisstætt þegar
ég, sextán ára, dvaldi fram eftir
nóttu í heimsókn hjá Mumma.
Seint og um síðir dríf ég mig af
stað í flýti og ætla að klæða mig í
skóna mína. Þá kem ég ekki fæti í
skóna, orsökin var kleina. Þetta
var ljúf kveðja frá tengdapabba
og stríðni um leið.
Þegar ég kom inn í þessa
yndislegu fjölskyldu varð ég
strax ein af þeim. Það var góð til-
finning að eignast fjögur ný
„systkini“.
Það var alltaf gaman að koma í
Háukinn 4. Þvílíkt líf og fjör sem
þar var á neðri hæðinni. Um-
gangurinn var eins og á lestar-
stöð. Ég naut þessara ærsla en ef
ég þurfti ró, læddist ég upp á efri
hæðina til Þrúðu og Þórðar. Þar
voru rólegheit og þau voru sann-
kölluð amma og afi.
Allar gömlu minningarnar sem
nú koma upp í hugann, Eld-
borgarárin, Danmerkurferðirn-
ar, smíði og skírn síðustu Eld-
borgarinnar. Á þeim árum áttum
við frábærar stundir í Hirtshals,
Fredrikshavn, Strandby og víð-
ar, og eignuðumst þar góða vini.
Stundirnar við byggingu Stað-
arhóls, sumarbústaðar tengda-
foreldra minna, voru ógleyman-
legar. Þar var vandað til allra
verka eins og gert er þegar hlutir
eiga lengi að standa. Gróðursetn-
ing var honum hugleikin enda
ber lóðin þess merki enn í dag.
Diddi var einstaklega blíður og
góður maður, en fastur var hann
fyrir. Ef hann tók ákvörðun var
henni varla haggað. Hann var
einstaklega barngóður. Öll börn
hændust að honum. Börn og
barnabörn okkar Mumma hafa
fengið að njóta þess í ríkum mæli.
Alltaf nálgaðist hann þau hægt
og hljótt. Gott þótti þeim þegar
hann tók tærnar þeirra og blés á
milli þeirra. Það hafði róandi
áhrif á þau.
Þegar Thelma okkar var barn
var hún með mjög hvella rödd og
kallaði tengdapabbi hana ætíð
hrossabrestinn sinn. Hann náði
svo sannarlega þeim tón, þrátt
fyrir að hafa ætíð glímt við skerta
heyrn og lesið mikið af vörum
manna.
Ekki er hægt að minnast
tengdapabba án þess að nefna
Huldu tengdamóður mína. Hún
hefur staðið við hlið manns síns
eins og klettur alla tíð.
Betri tengdaforeldra gat ég
ekki fengið.
Blessuð sé minning elsku
tengdapabba.
Fríða Eyjólfsdóttir.
Kveðja frá Rótarýklúbbi
Hafnarfjarðar.
Félagi okkar og vinur Þórður
Helgason, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri, lést á Sólvangi
þriðjudaginn 25. desember sl., 88
ára að aldri. Þórður fæddist í
Höfnum á Reykjanesi 4. október
1930.
Eftirlifandi eiginkona Þórðar
er Hulda Þórðardóttir og eignuð-
ust þau fimm börn.
Snemma fékk Þórður áhuga á
vélum og ungur að árum byrjaði
hann að keyra vélar í frystihús-
inu í Höfnum, þar sem hann ólst
upp.
Þórður fór fyrst á vertíð 17 ára
gamall og var það á hvalfjarðar-
síld. Þórður aflaði sér snemma
1.000 hestafla vélstjóraréttinda,
en vélstjóraréttindin voru á þeim
tíma flokkuð eftir stærð véla í
hestöflum talið.
Þórður og Gunnar Her-
mannsson stofnuðu útgerðar-
félagið Eldborg hf. og fengu þeir
fyrsta skipið, Eldborg, afhenta
árið 1963, en þeir höfðu látið
smíða skipið í Noregi. Gunnar
var skipstjóri og Þórður vélstjóri.
Eldborgin varð strax landsþekkt
aflaskip.
Þeir félagar létu síðar smíða
þrjú önnur skip, sem öll báru
Eldborgarnafnið og urðu þau öll
landsþekkt aflaskip. Tvö þau síð-
ustu voru langt á undan sinni
samtíð hvað stærð og tækni-
búnað varðar.
Síðustu starfsár sín vann
Þórður hjá Vélaverkstæði Jó-
hanns Ólafs hér í bæ.
Þórður gekk í Rótarýklúbb
Hafnarfjarðar 6. desember 1984
og var hann fulltrúi fyrir starfs-
greinina „fiskveiðar“.
Þórður sótti fundi klúbbsins
reglulega. Gott var að fá sér sæti
nálægt Þórði því hann var ætíð
léttur í lund og hafði góða nær-
veru.
Síðustu árin var Þórður
heiðursfélagi klúbbsins.
Við Rótarýfélagar sendum
Huldu, börnum og fjölskyldum
þeirra okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Minningin um góðan dreng og
rótarýfélaga lifir.
Guðbjartur Einarsson,
forseti Rótarýklúbbs
Hafnarfjarðar.
Þórður Helgason
✝ Helga Jóns-dóttir fæddist
9. febrúar 1932 á
Akureyri. Hún lést
á Öldrunarheimil-
inu Hlíð á Akur-
eyri 27. desember
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Svanlaug
Jónsdóttir, f. 6.
mars 1896 á Heiði
í Gönguskörðum,
Skagafirði, d. 4. október 1936.
Hún sótti hómópatanámskeið á
Englandi 1929 og auk þess kom
hún víða við í kennslu barna og
ungmenna. Faðir Helgu var Jón
Jónasson, f. 11. nóvember 1899
á Hólum í Öxnadal, d. 23. maí
1964. Hann varð búfræðingur
frá Hólum 1921. Einnig fór
hann til náms í Kaupmannahöfn
1925. Fékkst við smábarna-
kennslu á Akureyri 1925-1940,
stundaði síðan búskap á Ey-
vindarstöðum í
Saurbæjarhreppi
og Kambi, Önguls-
staðahreppi, 1940-
1963, fluttist þá til
Akureyrar. Helga
var eina barn
þeirra hjóna. Hún
varð gagnfræð-
ingur frá GA, einn-
ig lauk hún námi
frá Húsmæðraskól-
anum á Laugalandi
1953. Eftir að hún fluttist til
Akureyrar 1963 vann hún mörg
ár hjá KEA, lengst af við síma-
afgreiðslu á skiptiborði KEA.
Eiginmaður Helgu var Eiður
Reykjalín Stefánsson, f. 24. júlí
1926, d. 8. ágúst 2016. Þau
gengu í hjónaband 20. apríl
1974.Þau áttu sitt heimili á
Lögbergsgötu 1, Akureyri.
Útför Helgu fer fram frá
Höfðakapellu í dag, 8. janúar
2019, klukkan 10.
Helga Jónsdóttir fæddist 9.
febrúar 1932 neðst á Gilsbakka-
veginum á Akureyri. Hún lést
27. desember 2018.
Foreldrar hennar voru þau
Svanlaug Jónsdóttir smábarna-
kennari og Jón Jónasson frá
Engimýri, smábarnakennari.
Þau ráku um tíma smábarna-
skólann á árunum rétt fyrir og
eftir fæðingu Helgu. Svanlaug,
móðir Helgu, kom úr Skagafirði
og lærði til hómópata. Hún var
meðlimur Sjónarhæðarsafnað-
arins til dauðadags en hún lést
úr sykursýki 4. október 1936.
Eftir andlát Svanlaugar lá leið
Jóns með dóttur þeirra fram í
Eyjafjarðarsveit þar sem bú-
skapurinn og bændastörfin réðu
öllu í lífi þeirra. Hann bjó á
Kambi 1940 og þar undi Helga
barnæsku sinni vel fram til árs-
ins 1963. Helga lauk bæði
barnaskóla og gagnfræðaskól-
anum en framhaldsmenntunin
varð Húsmæðraskólinn á
Laugalandi veturinn 1952-1953.
Áratug síðar fluttist Helga
ásamt föður sínum til Akureyrar
að Lögbergsgötu 1. Hún var
orðin símamær KEA-samsteyp-
unnar og varð þannig rödd hins
mikla bákns um langan tíma.
Það voru nokkrir aðrir áhrifa-
valdar í lífi Helgu. Þeir voru
föðursystur hennar sem bjuggu
líka á Lögbergsgötu 1 og svo
Hvítasunnusöfnuðurinn Fíla-
delfía á Akureyri. Henni var
boðið á 20 ára afmæli safnaðar-
ins 1956 og eftir það var fram-
tíðin ráðin. Það kirkjustarf
studdi hún með ráðum og dáð.
Ég kynntist Helgu ekki fyrr
en árið 2001 þegar ég flutti frá
Vestmannaeyjum til Akureyrar.
Okkur varð vel til vina. Ég fékk
að vita um skyldleika hennar við
tengdamömmu og mig grunar
að ég hafi fengið betri móttökur
vegna þeirra tengsla enda var
Helga frændrækin.
Helga giftist Eiði Reykjalín
Stefánssyni frá Gauksstöðum á
Skaga hinn 20. apríl 1974 en
þeim varð ekki barna auðið. Eið-
ur var bóndi af Guðs náð og
flinkur hestamaður. Hann bauð
mér í útreiðartúr sem sýndi mér
augljóslega hve frábær tök hann
hafði á gæðingunum.
Það var í gegnum safnaðar-
starf Hvítasunnusafnaðarins
sem leiðir okkar lágu saman og í
hvert sinn sem ég kom í heim-
sókn var lesið úr hinni helgu bók
og beðið fyrir landi og þjóð.
Það var ánægjulegt fyrir mig
að kynnast þessum hjónum með
baráttuanda trúarinnar. Ég ólst
upp við þann anda í Betel Vest-
mannaeyjum og hann var einnig
hjá Helgu og Eiði.
Eiður lést hinn 8. ágúst 2016
og þá tapaði Helga „hjarta-
manninum“ sem hún kallaði svo.
Hugur hennar og áhugi trúar-
innar færðist enn meira á himin
Guðs, staðinn sem okkur hlotn-
ast þegar lífinu hér lýkur. Trúin
á Jesú og dauði Eiðs skerptu
vonina hjá Helgu. Þannig
kvaddi hún lífið með von trúar-
innar.
Snorri í Betel.
Helga Jónsdóttir
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐBJÖRG FLYGENRING,
Hringbraut 67, Hafnarfirði,
sem andaðist fimmtudaginn 27. desember,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 9. janúar klukkan 13.
Ingólfur Flygenring
Magnús Flygenring Hildur Guðfinnsdóttir
Þóra Flygenring Sigurður Arnórsson
Unnur Flygenring Gunnlaugur Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÁRNI EINARSSON
kaupmaður,
Hjarðarhaga 32,
Reykjavík,
lést á líknardeild LSH í Kópavogi 3. janúar.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 11. janúar klukkan 15.
Ásgeir Heiðar Oddný Eiríksdóttir
Inga Árnadóttir Sigurður Pálmason
Danía Árnadóttir
Bryndís Árnadóttir
Danfríður Árnadóttir Halldór Ólafsson
Margrét Lillý Árnadóttir Ásgeir Ásgeirsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
NÍNA SÆUNN SVEINSDÓTTIR
kennari,
Hraunbraut 14, Kópavogi,
sem andaðist á líknardeild Landspítalans
28. desember, verður jarðsungin frá Kópa-
vogskirkju miðvikudaginn 9. janúar klukkan 13:30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarsjóð Kristins
og Rannveigar, rnr. 0130-05-578537, kt. 630807-1070, til
stuðnings nemendum Menntaskólans á Laugarvatni sem sýnt
hafa frábæran dugnað, hæfileika og ástundun í námi.
Ari Ólafur Arnórsson
Kjartan Arnórsson Traci Klein
Auðunn Arnórsson Margrét Sveinbjörnsdóttir
Hrafn Arnórsson
Þóra Arnórsdóttir Svavar Halldórsson
Arnkell, Sæunn Una, Oddur, Halldór Narfi,
Nína Sólveig og Ásdís Hulda
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
SIGURÐUR SÍMON SIGURÐSSON,
Fossheiði 15, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
fimmtudaginn 27. desember.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
fimmtudaginn 10. janúar klukkan 14.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Guðrún Halldóra Sigurðardóttir
Laufey Soffía Þórsdóttir