Morgunblaðið - 08.01.2019, Blaðsíða 1
Kakó- og kleinusalarnir duglegu létu ekki kuld-
ann á sig fá um helgina og voru með heimasmíð-
aða söluvagninn við Gróttu eins og marga laug-
ardaga. Bræðurnir Daníel Ólafur og Róbert
Frímann Stefánssynir Spanó hafa meðal annars
notað ágóðann til að styrkja þyrlusjóð Landhelg-
isgæslunnar. Af því tilefni bauð Gæslan þeim í
þyrluferð í janúar á síðasta ári sem var þeim
ógleymanlegt ævintýri.
Kleinusalarnir að störfum í kulda og trekki
Morgunblaðið/Eggert
Heimasmíðaður söluvagn við Gróttu á Seltjarnarnesi
Jukust um 11,5%
» Tekjur Veitna af sölu á heitu
vatni námu 9 milljörðum fyrstu
níu mánuði ársins 2018 sem er
um 11,5% aukning og metsala.
» Tekjurnar voru um 8 millj-
arðar sömu mánuði 2017.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Veitur áforma að hefja miðlun heits
vatns frá borholu vestan Árbæjar-
safns á næsta ári. Verður vatninu
dreift til þeirra hverfa borgarinnar
þar sem notað er lághitavatn.
Ingvar Stefánsson, fjármálastjóri
Orkuveitunnar, segir kuldatíð síð-
ustu tvo vetur hafa sitt að segja um
að auka þurfi framboð á heitu vatni.
Þá hafi umsvifin í samfélaginu aukist
mikið á síðustu árum. Meðal annars
kalli mikil fjölgun ferðamanna á
aukna notkun á heitu vatni. Nýir
gististaðir séu tengdir við kerfið.
„Vegna vaxandi notkunar hefur
skapast fjárfestingarþörf fyrir inn-
viði. Þá meðal annars í nýrri varma-
stöð á Hellisheiði,“ segir Ingvar.
Áætlað er að Veitur muni fjárfesta
fyrir 3 milljarða á ári í innviðum á
næstu árum og segir Ingvar að-
spurður að félagið sé vel í stakk búið
til að fara út í þessar fjárfestingar.
Fyrir utan mikla fjölgun ferða-
manna hefur íbúum höfuðborgar-
svæðisins fjölgað ört síðustu ár. Hef-
ur þeim til dæmis fjölgað um minnst
18 þúsund frá ársbyrjun 2014.
Virkja borholu í Árbænum
Veitur auka afkastagetuna vegna metnotkunar á heitu vatni Gamlar borholur
verða virkjaðar Kuldatíð og fjölgun ferðamanna eiga þátt í stóraukinni notkun
MAukningin kallar á fleiri … »4
AFP
Sellafield Endurvinnslu kjarnorku-
úrgangs hefur verið hætt hjá THORP.
Framundan er margra ára kostn-
aðarsamt hreinsunarstarf á stóru
svæði í Sellafield í Englandi en end-
urvinnslu á kjarnorkuúrgangi hef-
ur verið hætt í THORP-stöðinni
þar. Sigurður M. Magnússon, for-
stjóri Geislavarna ríkisins, segir að
eftir sitji mikið af úrgangi sem
flokkist sem geislavirkur; bygging-
arhlutar, búnaður, tæki og jarð-
vegur mengaður af geislavirkum
efnum.
Starfsemin í Sellafield hefur
lengi verið umdeild. Hávær mót-
mæli risu, meðal annars hjá íslensk-
um ráðamönnum, í kjölfar þess að
leki á hágeislavirkum vökva kom í
ljós þar í maí 2005 og var stöðinni
lokað í tæp tvö ár. Ekki er lengur
talið fjárhagslega hagkvæmt að
endurvinna brennsluefni kjarna-
ofna þar sem ekki er skortur á
úrani í heiminum. »15
Hreinsa þarf til við
Sellafield-stöðina
Þ R I Ð J U D A G U R 8. J A N Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 6. tölublað 107. árgangur
EKKI VAR ALLT
FYRIRSÉÐ Á
GOLDEN GLOBE BREYTT SÓKNARLÍNA
EIKI HREIFST
AF BÍTLUNUM
FJÖGURRA ÁRA
ÓLAFUR STEFNIR LANGT MEÐ VAL ÍÞRÓTTIR STEFNUMÓT VIÐ LÍFIÐ 30VERÐLAUN VEITT 33
Samningaviðræðurnar um endur-
nýjun kjarasamninga hafa gengið
allt of hægt og nú verða menn að
einsetja sér að setja kraft í þær, að
sögn Aðalsteins Árna Baldurssonar,
formanns Framsýnar. Að öðrum
kosti muni verkalýðshreyfingin telja
sig knúna til að fara í aðgerðir.
„Ef ekkert skýrist fyrr sé ég fyrir
mér átök upp úr næstu mánaða-
mótum og sumir vilja jafnvel að það
verði fyrr. Það mun í það minnsta
allt loga í febrúar semjist ekki. Menn
hafa verið að hittast af og til yfir
kaffibolla. Ég segi, leggjum kaffi-
bollana til hliðar og klárum þetta,
það er öllum til hagsbóta.“ »4
Segir allt loga í
febrúar semjist ekki
Að sögn Guðmundar Magnasonar,
framkvæmdastjóra netverslunar-
innar Heimkaupa, er sú nýjung að
leyfa kaupendum að sjá síðasta
söludag matvæla og veita þeim
50% afslátt þegar varan nálgast
síðasta söludag meðal annars gerð
til að forðast matarsóun.
Heimkaup komu inn á matvöru-
markaðinn í fyrsta sinn nú fyrir
skömmu og kaupir fyrirtækið alla
erlenda matvöru frá einum stað í
Bretlandi. Innlenda vöru kaupir
það frá innlendum framleiðendum.
„Kaupendur geta líka valið ná-
kvæma þyngd á kjötvörunni sem
þeir kaupa. Þetta er nýjung sem
hefur ekki verið í boði, hvorki hér
heima né erlendis,“ segir Guð-
mundur.
Hann segir að nú þegar mat-
varan hefur bæst í hillur verslunar-
innar bjóði Heimkaup fjórum sinn-
um fleiri vörunúmer en hefð-
bundinn stórmarkaður. „Við
bjóðum til dæmis 250 tegundir í
vöruflokknum te og kaffi. Það er
töluvert meira en aðrar verslanir
geta státað af.“ Fyrirtækið nái til
um 80% þjóðarinnar í heimsending-
um samdægurs og það fer með 300
sendingar að jafnaði á dag. »16
Heimkaup ráðast gegn
matarsóun í sölu matvæla
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Heimkaup Í vöruhúsinu í Smár-
anum eru um 50.000 vörunúmer.
Morgunblaðið/RAX
Hreinkálfur Hnik á vaxtartíma
plantna getur valdið misræmi við
næringarþörf dýra s.s. hreindýra.
Niðurstöður vísindarannsókna
benda til þess að heildar-blómg-
unartími plöntutegunda á norður-
slóðum styttist með hlýnun lofts-
lags. Þetta getur haft áhrif á
afkomu ýmissa dýrategunda að því
er fram kemur í vísindagrein eftir
38 plöntuvistfræðinga. Greinin
birtist í Nature Ecology and Evolu-
tion í desember 2018.
Ingibjörg Svala Jónsdóttir, pró-
fessor við Háskóla Íslands, er í hópi
vísindamannanna sem könnuðu
blómgunartíma 253 plöntutegunda
á 23 mismunandi stöðum á
heimskautatúndrunni á allt að 20
ára tímabili. Hún segir að breyting-
arnar geti mögulega haft áhrif á
frjóbera, þ.e. skordýr, og eins á t.d.
hreindýr sem lifa á gróðri. »11
Blómgunartími heimskauta-
jurta breytist með hlýnun