Morgunblaðið - 09.01.2019, Side 2

Morgunblaðið - 09.01.2019, Side 2
Morgunblaðið/Eggert Karphúsið Fundað er í nokkrum hópum hjá Ríkissáttasemjara. Undirhópar vegna viðræðna Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Samtaka atvinnulífsins (SA) funduðu í gær. „Við teljum að það hafi þokast í ýmsum málum í dag og menn ætla að funda meira í vikunni. Við erum hóflega ánægð eftir daginn,“ sagði Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri SGS, í gær. Hóparnir eru myndaðir til þess að ræða sérstök álitamál innan hverrar stéttar. Fulltrúar Eflingar tóku þátt í vinnunni í gær þótt fé- lagið hafi dregið sig út úr samfloti SGS-félaga. Samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Sam- taka atvinnulífsins koma saman til viðræðna á fimmtudag og föstudag og vinnan úr hópunum verður lögð inn í viðræðurnar. Efling, VR og Verkalýðsfélag Akraness eru í samfloti í samninga- viðræðunum og vísuðu deilu sinni til Ríkissáttasemjara fyrir áramót. Annar fundur í deilu þeirra og SA verður hjá Ríkissáttasemjara í dag. Verkalýðsfélag Grindavíkur hef- ur vísað deilu sinni við SA til Ríkis- sáttasemjara. Það er fyrsta félagið sem það gerir á nýju ári. Þokast í viðræðum  Starfshópar SGS og SA funda  Grindvíkingar vísa til sáttasemjara 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2019 Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18 Fjölskyldufyrirtæki frá 1953 Þú kemur með fjórar flíkur en greiðir fyrir þrjár (ódýrasta flíkin frítt) 4 3fyrir Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ólafur Jóhann Ólafsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Time Warner-fjölmiðlasamsteypunnar, er einn þeirra fjögurra stjórnenda sem talið er að geti komið til greina sem næsti forstjóri CBS-sjónvarpsrisans bandaríska og til að vinna að sameiningu við Viacom, fjölmiðla- og kvikmyndasamsteyp- una. Kemur þetta fram á viðskipta- síðum New York Post. Milljarðamæringurinn Sumner Redstone á ráðandi hlut í báðum fyrirtækjunum, CBS og Viacom, í gegnum eignarhaldsfélag sitt. Sam- komulag var gert í september um að fyrirtækin yrðu ekki sameinuð í tvö ár. Vegna breytinga á stjórn CBS er talið að aðstæður kunni að vera breyttar. Meðal annars þurfti for- stjóri CBS, Les Moonves, að segja af sér vegna ásakana um kynferðislega áreitni gagnvart konum. Reki tvö stórfyrirtæki Nú er leitað að forstjóra til framtíðar og er Ólafur Jó- hann Ólafsson einn af fjórum mönnum sem nefndir eru til sögunnar í grein New York Post. Hlutverk nýs for- stjóra yrði hugsanlega ekki aðeins að stýra CBS heldur einnig Viacom því áhugi er sagður á því að hefja sem fyrst undirbúning að sameiningu. Blaðið segist hafa heimildir fyrir því að stefnt sé að því að ganga frá samn- ingum í mars eða apríl og hugsanlega tilkynna þá um leið forstjóra til framtíðar fyrir sameinað fyrirtæki. Ólafur Jóhann nefndur  CBS-sjónvarpsrisinn leitar að nýjum forstjóra  Sameining við Viacom-samsteypuna aftur til umræðu Frétt Fjallað er um málið á forsíðu viðskiptasíðna NYP. Ólafur Jóhann Ólafsson Lögreglan lagði hald á tvöfalt meira magn af marijúana á nýliðnu ári en árið á undan, eða tæplega 72 kíló. Er það meira en lagt hefur verið hald á á einu ári síðustu árin. Mest munar um mikla framleiðslu í einu máli þar sem lagt var hald á yfir 17 kíló af efninu. Kemur þetta fram í bráðabirgða- tölum Ríkislögreglustjóra um afbrot á árinu 2018. Brotum fjölgar Ef litið er til annarra fíkniefna má sjá að töluverðar sveiflur eru á milli ára. Þannig minnkaði verulega það magn af hassi sem hald var lagt á sem og amfetamín, þessi efni helm- inguðust á milli ára. Þá minnkaði það kókaín sem lagt var hald á. Hegningarlagabrotum fjölgaði um 6% á milli ára, miðað við bráða- birgðatölurnar sem nú liggja fyrir. Voru brotin 12.338 á árinu sem svar- ar til 34 brota á dag. Innbrotum fjölgaði um 265 brot, eða 25% á sama tíma og þjófnuðum fækkaði um 13%. Dreifing hegningarlagabrota er ójöfn eftir landshlutum. Flest brotin eru á höfuðborgarsvæðinu, 81% allra brota á landinu. Þar eru brotin einn- ig hlutfallslega flest miðað við fjölda íbúa en Suðurnes og Vestmannaeyj- ar koma næst þar á eftir. Hlutfalls- lega fæstu brotin eru á Norðurlandi vestra og Austurlandi. Sérrefsilagabrot voru 6.140 og fjölgaði um 9% frá fyrra ári. Fjölg- unin er enn meiri þegar fjöldinn er borinn saman við meðaltal þriggja ára. Flest brotin voru í umferðinni. Umferðarlagabrot voru 78.234 tals- ins. Hraðakstursbrot voru 61.282 og þar af voru 45.579 tekin á sjálfvirkar stafrænar hraðamyndavélar. helgi@mbl.is Marijúana tvöfaldaðist  Lögreglan lagði hald á 72 kíló af marijúana á síðasta ári en minna af hassi og amfetamíni  Fjórðungi fleiri innbrot Smygl Lagt var hald á tæp 5 kíló af amfetamíni en 14 kg árið áður. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Cargolux mun leggja til Boeing 747- 400ERF-vöruflutningaþotu til að flytja tvo mjaldra í vor úr Chang- feng-sjávardýragarðinum í Sjanghæ í Kína til Keflavíkur- flugvallar. Búið er að skreyta þot- una sérstaklega í tilefni af ferðalagi hvalanna. Búið verður um mjaldrana Litlu- Hvít og Litlu-Grá á sérstökum bör- um sem sniðnar eru að hvorum hval fyrir sig. Börunum verður komið fyrir í sérsmíðuðum flutningagám- um áður en gámarnir með hvöl- unum í verða hífðir úr laug safnsins. Mjöldrunum verður ekið fyrsta spöl- inn að Pu Dong-alþjóðaflugvellinum þar sem þeim verður komið fyrir um borð í þotu Cargolux sem flýgur með þá til Íslands. Flogið verður í einum áfanga en flugleiðin er um 9.000 km og tekur flugið um tíu klukkustundir. Hvöl- unum verður svo ekið frá Keflavík í Landeyjahöfn og þeir svo fluttir með Herjólfi til Vestmannaeyja þar sem þeirra bíður athvarf. Það er fyrsta athvarf mjaldra í heiminum sem er fyrir opnu hafi. Verkefnið þykir vera mjög krefjandi og vanda- samt og alþjóðlegir sérfræðingar í flutningi lifandi sjávarspendýra koma að undirbúningnum. Ferðalag hvalanna á að taka alls um einn sól- arhring, að því er fram kemur í til- kynningu frá Cargolux og Sea Life Trust. Auk farþeganna tveggja verða átta manns um borð í flugvélinni, samkvæmt upplýsingum frá Cargo- lux. Þar af verða fjórir dýralæknar, einn fulltrúi flugfélagsins og þrír flugmenn. Samtökin Sea Life Trust, sem mörg sjávardýrasöfn eiga aðild að, standa að flutningunum ásamt Cargolux. Einnig koma samtökin Whale and Dolphin Conservation að verkefninu. Merlin Entertainments styrkir verkefnið.Ljósmynd/Cargolux Cargolux-vél skreytt mjaldramyndum  Flytur tvo mjaldra í vor frá Kína til Íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.