Morgunblaðið - 15.02.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 15.02.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019 Meðal verkefna ársins í Heiðmörk er að endurnýja 221 upplýsingaskilti og vegvísa í Heiðmörk. Áætlað er að heildarkostnaður verði um 22,5 millj- ónir króna. Orkuveita Reykjavíkur hefur samþykkt aðild að verkefninu, en Skógræktarfélag Reykjavíkur á einnig í viðræðum við Reykjavíkur- borg og Garðabæ um fjármögnun. Þáttur í verkefninu er að koma upp öryggiskerfi í Heiðmörk í samstarfi við Neyðarlínuna til að stytta við- bragðstíma ef óhapp verður. Á fjölda vegvísa og skilta verða númer, sem hægt er að vísa til og staðsetja sig nánar innan svæðis. Svæðið 3200 hektarar Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélag Reykjavíkur, segir að aukið öryggi sé veigamikill þáttur í verkefninu. Borið hafi á því að þegar fólk kalli eftir aðstoð lögreglu, sjúkrabíls eða slökkviliðs sé staðsetn- ingin einfaldlega Heiðmörk. Svæðið sé hins vegar alls 3200 hektarar að stærð og því ekki heigl- um hent að finna fólk fylgi ekki ná- kvæmari staðsetning. Geti fólk hins vegar gefið upp númer á nálægri stiku kvikni ljós á skjá hjá Neyðarlín- unni, sem sýni hvar þörf er á aðstoð. Helgi segir að verið sé að ljúka út- gáfu á nýju korti sem sýni gönguleið- ir um Heiðmörk og geymi einnig ýmsar aðrar upplýsingar um svæðið. Þá sé stígakerfi einnig breytt til að bæta umferð „Í raun er um að ræða breitt umhverfisverkefni með endur- nýjun ýmissa innviða á þessu vinsæla útivistarsvæði,“ segir Helgi. aij@mbl.is Allt til alls Á smíðaverkstæðinu er að finna amboð, merkingar og stoðir. Endurnýja 221 vegvísi í Heiðmörk  Öryggi aukið og viðbragðstími styttur Fallegar barnavörur úr endurvinnanlegum plöntutrefjum sem eru niðurbrjótanlegar í náttúrunni. Vörurnar eru BPA fríar. Beija floor vínylmotturnar henta vel inn í barnaherbergin, auðvelt að þrífa og hljóðeinangrandi U Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Matarsettið kr. 6.500 Órói kr. 4.900 Sænsku Klippan barnateppin úr lífrænni bómull Kr. 7.900 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum Á réttri leið í Reykjavík Hittumst á þínum heimavelli og ræðum það sem skiptir máli. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar næstu vikur vítt og breitt um landið í öllum landsfjórðungum. Þar gefst fólki einstakt tækifæri til að hitta alla þingmenn flokksins og ræða það sem skiptir máli. Nú er röðin komin að Reykjavík. Hringferð þingflokks Sjálfstæðisflokksins 2019 — nánar á xd.is Komdu í Iðnó, laugardaginn 16. febrúar kl. 12:00. Við hlökkum til að sjá þig. Heimilt verður að veiða 1.451 hreindýr á þessu ári, 1.043 kýr og 408 tarfa. Um er að ræða sama fjölda dýra og leyft var að veiða í fyrra. Heimildin er veitt með fyrir- vara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á breytingu á fjölda veiðileyfa. Umhverfis- og auðlindaráðherra ákvað hreindýra- kvótann að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Tilkynnt var um hreindýrakvótann í gær, 14. febr- úar, sem er nokkuð seinna en und- anfarin ár. Ráðuneytið hefur verið að skoða áhrif kúaveiði á kálfa. Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að nið- urstöður þeirrar athugunar geti mögulega haft áhrif á veiðitíma hreindýra, sem kveðið er á um í reglugerð. Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Bannað er að veiða hreinkálfa. Leyft verður að útluta allt að 34 leyfum til kúaveiði á svæði 8 og allt að 64 kýrleyfum á svæði 9, samtals 98 leyfum, á tímabilinu 1.-20. nóv- ember. Þetta er gert til að dreifa veiðiálagi á hjarðir á veiðisvæð- unum. gudni@mbl.is Leyft verður að veiða 1.451 hreindýr í haust Hreindýr Jafn stór kvóti og í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.