Morgunblaðið - 15.02.2019, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 15.02.2019, Qupperneq 27
gerðinni Frigg. Hún var síðar framkvæmdastjóri hjá meðal annars Kvenskátaskálanum á Úlfljótsvatni, Þroskahjálp, Póstmannafélagi Ís- lands, Félagi háskólakennara og Norræna skólasetrinu. Día sinnti skátastarfi af miklum móð í æsku og á unglingsárum sín- um. Hún var stórtæk í félagsmálum alla tíð og tók meðal annars virkan þátt í ýmsum friðarsamtökum, nátt- úruverndarsamtökum og jafnréttis- samtökum. Hún var einn af stofn- endum Kvennalistans og síðar Kvennaframboðs og sinnti fjáröfl- unar- og trúnaðarstörfum fyrir hvor tveggja samtökin. Hún var jafn- framt dreifingarstjóri Veru, tímarits um kvennabaráttu. Áhugamál Díu eru meðal annars lestur, félagsstörf og útivist. Hún var fyrst og fremst hugsjónamann- eskja og hafði alla tíð minni áhuga á hefðbundnum heimilisstörfum en baráttu fyrir bættum heimi og að vernd þeirra sem minna mega sín. Fjölskylda Eiginmaður Díu var Oddur Bene- diktsson, f. 5. júní 1937, d. 17. ágúst 2010, prófessor í tölvunarfræði. For- eldrar hans: Hjónin Stefán Már Benediktsson, f. 24. júlí 1906, d. 12. febrúar 1945, verslunarmaður, og Sigríður Oddsdóttir Benediktsson, f. 18. september 1907, d. 29. ágúst 1988, húsfreyja. Fyrri eiginmaður Díu: Páll Þórir Ásgeirsson, f. 22. apríl 1931, læknir, búsettur í Kópa- vogi. Börn: 1) Árni Geir Pálsson, f. 3. mars 1963, viðskiptafræðingur, bú- settur í Reykjavík, maki: Soffía Waag Árnadóttir, stjórnsýslufræð- ingur; 2) Kári Pálsson, f. 25. desem- ber 1964, forstjóri, búsettur í Kópa- vogi, maki: Guðrún María Ólafs- dóttir, kennari; 3) Guðrún Odds- dóttir, f. 12. júlí 1971, barnasálfræð- ingur, búsett í Reykjavík, maki: Árni Maríasson, stjórnmálafræðingur; 4) Katrín Oddsdóttir, f. 22. ágúst 1977, lögfræðingur, búsett í Reykjavík, maki: Kristín Eysteinsdóttir, leik- hússtjóri. Stjúpbörn: Kolbrún Þóra Oddsdóttir, f. 8. júní 1956, landslags- arkitekt, búsett í Bergen í Noregi, og Hákon Már Oddsson, f. 1. desem- ber 1959, kvikmyndagerðarmaður og kennari, búsettur í Reykjavík. Barnabörnin eru fimmtán og barna- barnabörnin fjögur. Systkini: Jón R. Árnason, f. 19. apríl 1926, d. 9. janúar 2006, heilsu- gæslulæknir í Hafnarfirði, og Þór- unn Árnadóttir, f. 19. júní 1929, myndlistar- og smíðakennari, bús. í Tjörn á Álftanesi. Uppeldissystir: Svala Eyjólfsdóttir, f. 21. júní 1918, d. 2. júní 2006, hárgreiðslukona og húsfreyja í Reykjavík. Foreldrar Díu voru hjónin Árni Magnús Pétursson, f. 2. júní 1899 í Ólafsvík, d. 31. júlí 1953, læknir í Reykjavík, og Katrín Ólafsdóttir, fædd 21. nóvember 1904 í Viðey, d. 18. apríl 1988, tónlistarkennari og húsfreyja í Reykjavík. Hólmfríður Rósinkranz Árnadóttir Þórður Þórðarson bóndi, hreppstjóri, dannebrogsmaður og alþingismaður á Rauðkollsstöðum Ásdís Gísladóttir húsfreyja á Rauðkollsstöðum í Hnappadal Pétur Þórðarson verslunarmaður í Ólafsvík og Reykjavík Árni Magnús Pétursson læknir í Reykjavík Þóra Rannveig Þórarinsdóttir húsfreyja í Ólafsvík og Reykjavík Þórarinn Árnason jarðyrkjumaður í Syðra-Langholti, síðar bóndi á Stóra-Hrauni við Eyrarbakka Ingunn Magnúsdóttir húsfreyja í Syðra-Langholti í Hrunamannahr., á Stórahrauni við Eyrarbakka og síðast í Reykjavík Árni Þórarinsson prófastur órunn Árnadóttir myndlistar- og smíðakennari Þ Anna Ólafsdóttir Björnsson sagnfræðingur og fv. þingkona Kvennalistans Ólafur Jónsson útvegsbóndi í Fjósakoti, Miðneshr. Ingibjörg Tómasdóttir vinnukona í Hvalsnesi, Miðneshr., Gull. Ólafur Ólafsson vélstjóri og afgreiðslumaður í Reykjavík Vilborg Jónsdóttir húsfreyja á Brekku í Seyðisfirði Jón Stefánsson vinnumaður á Neðra- Núpi í Miðfirði, V-Hún. Vigdís Vigfúsdóttir vinnukona í Knarrarhöfn í Hvammssveit, Dal. Úr frændgarði Hólmfríðar Rósinkranz Árnadóttur Katrín Ólafsdóttir tónlistarkennari og húsfreyja, var ættleidd af frænkunum Þórunni Finnsdóttur og Hólmfríði Rósinkranz og ólst upp á Uppsölum í Aðalstræti 18 í Rvík Hugsjónakona Hólmfríður, eða Día. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019 Bíldshöfði 9 Smáratorg 1 He 1 1lluhraun 6- 8 Fiskislóð 1 Við eru í þínu hverfi m 95 ára Oddný Gunnarsdóttir 90 ára Óskar Waagfjörð Jónsson 85 ára Garðar Svavar Hannesson Guðmundur Úlfur Arason Sigríður Zophoníasdóttir 80 ára Bára Vilborg Guðmannsdóttir Grétar Þórðarson Gunnlaugur Árnason Hólmfríður R. Árnadóttir Stefán Stephensen 75 ára Alfreð Þór Þorsteinsson Emil Þór Guðjónsson Jakob Jóhannesson Sigurður Ragnar Blomsterberg 70 ára Börkur Ólafsson Georg Thomas White Sigrún Halla Guðnadóttir Steinþór Hafsteinsson Sveinlaug O. Þórarinsdóttir Þorbjörg S. Aðalsteinsdóttir 60 ára Bjarni Friðriksson Guðmunda Jónsdóttir Guðmundur G. Sigurðsson Guðmundur Hárlaugsson Halla Stefánsdóttir Hörður Bragason 50 ára Ásta Skæringsdóttir Björn Sigurður Jónsson Heiða Bergþóra Þórðard. Indriði Waage Kristín Kristjánsdóttir Maciej Pawel Pyziol Rósa Hjartardóttir Sigurjóna Ósk Óskarsdóttir Vignir Björnsson Wojciech Piotr Cios 40 ára Aðalheiður Ólafsdóttir Aldís Elín Alfreðsdóttir Alseny Sylla Anna Ýr Böðvarsdóttir Arnþór Ágústsson Bergur Þorri Benjamínsson Brynjar Á. S. Agnarsson Chairat Youbanphot Eygló Rós Nielsen Friðgeir B. Valdimarsson Hafdís Sigursveinsdóttir Ineta Zvejniece Ingvar Rafn Hjaltalín Jana Janickova Jónína M. Sigmundsdóttir Pétur Hafsteinsson Runólfur Viðar Guðmundss. Sigurlaug Valdimarsdóttir Snorri Árnason 30 ára Andri Már Marteinsson Anna Þorsteinsdóttir Bergmann S. Guðjónsson Darri Hilmarsson Guðbjörg Anna Bragadóttir Guðlaug Ósk Bragadóttir Gunnar Ingi Valdimarsson Hafsteinn Valdimarsson Júlia Mituník Kolbrún Ósk Eyþórsdóttir Lilja Sif Þórisdóttir Nuria Hernandez Gonzalez Scott Fraser Drummond Sigurður Ingi Grétarsson Wojciech Jakub Buras Þórunn Guðmundsdóttir Til hamingju með daginn 40 ára Bergur ólst upp á Ytri-Tjörnum í Eyjafirði en býr í Hafnarfirði. Hann er formaður Sjálfsbjargar. Maki. Helga Magnúsdóttir, f. 1976, menningarfulltr. sendiráðs BNA. Börn: Tvíburarnir Benjamín Þorri og Birna Dísella, f. 2006. Stjúpbörn: tvíbur- arnir Guðni Natan og Sig- ríður Stella, f. 1998. Foreldrar: Benjamín Bald- ursson, f. 1949, og Hulda Magnea Jónsdóttir, f. 1950. Bergur Þorri Benjamínsson 30 ára Sigurður Ingi er lögreglumaður á Akranesi og er fæddur þar og upp- alinn. Maki: Guðrún Drífa Hall- dórsdóttir, f. 1990, sjúkra- liði á Sjúkrahúsinu á Akra- nesi. Börn: Selma, f. 2011, og Aldís Lilja, f. 2014. Foreldrar: Grétar Már Ómarsson, f. 1965, og Selma Sigurðardóttir, f. 1970. Stjúpfaðir: Þorvald- ur Sveinsson, f. 1970. Sigurður Ingi Grétarsson 40 ára Pétur er frá Blönduósi en býr í Reykja- vík. Hann er viðskipta- fræðingur að mennt og er framkvæmdastjóri fjár- málasviðs hjá Festi. Börn: Hilmir, f. 2006, og Emil, f. 2009. Foreldrar: Hafsteinn Pét- ursson, f. 1953, rafvirki, og Sigríður Hrönn Bjarka- dóttir, f. 1957, umsjónar- maður félagsstarfs aldr- aðra. Þau eru búsett á Blönduósi. Pétur Hafsteinsson William Konchak hefur varið doktors- ritgerð sína í heimspeki við Háskóla Ís- lands. Ritgerðin nefnist Developing a Contemporary Approach to Philosophy as a Way of Life, eða Samtímanálgun á heimspeki sem lífsmáta. Andmælendur verða Samantha Harvey, prófessor við Boise State-háskóla í Bandaríkjunum, og Jussi Backman, fræðimaður við Há- skólann í Jyväskylä í Finnlandi. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Björns Þorsteinssonar, pró- fessors í heimspeki, og aðrir í doktors- nefnd voru Svavar Hrafn Svavarsson prófessor og David Greenham frá Uni- versity of West of England í Bristol. Í ritgerðinni er gengið út frá hug- mynd Pierres Hadots um heimspeki sem lífsmáta, þ.e. sjálfsþroskaferli sem á sér stað með iðkun þess sem Hadot kallar andlegar æfingar, ásamt kenn- ingasmíð. Rannsóknin beinir sjónum að því hvernig beita megi þessu grundvall- arviðhorfi í samtímasamhengi og gerir í því skyni túlkunarfræði Hans-Georgs Gadamers og heimspeki Ralphs Waldos Emersons að viðfangsefni sínu. Skoðað er hvernig hugmyndir þessara hugsuða geta leitt til iðkana sem fela í sér djúpa umbreytingu, s.s. viðhorf Gadamers til samræðu og túlkunar, djúptæk sýn Emersons á náttúru, sjálfið og and- legan þroska, og fagurfræði hugsuð- anna beggja. Einnig er athugað hvernig iðkanir og viðhorf úr heimspeki til forna má taka upp og þróa í tengslum við hugsun Gadamers og Emersons og fella þær inn í heimspeki sem lífsmáta í samtímanum. William Konchak William Konchak hefur lokið námi í heimspeki frá Háskóla Íslands, umhverfis- stjórnun frá háskólanum í Cambridge og sálfræði frá Institute of Trans- personal Psychology (nú Sofia University). William hefur verið stundakennari í námskeiði um náttúrusiðfræði við Háskóla Íslands. Doktorsrannsóknin naut styrks frá Rannís fyrir tilstuðlan Páls Skúlasonar, fyrrverandi rektors Háskóla Íslands. Doktor

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.