Morgunblaðið - 15.02.2019, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019
bestakryddid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á allt
Ragnheiður (Heiða) Árnadóttir heldur tón-
leika í Mengi í kvöld. Heiða lauk meistara-
námi í söng við Konunglega tónlistar-
háskólann í Haag í Hollandi. Hún hefur
haldið tónleika í Hollandi, Belgíu, Frakk-
landi, Indlandi og Danmörku, meðal ann-
ars í djass/þjóðlaga-, tilrauna- og nútíma-
tónlist. Heiða hefur einnig haldið fjölda
tónleika á Íslandi, meðal annars með
hljómsveitinni Mógil, flutt ný verk með En-
semble Adapter og unnið með tónskáld-
unum í SLÁTUR. Heiða hefur gefið út þrjá
geisladiska með hljómsveit sinni Mógil.
Húsið verður opnað kl. 20.30 en tónleikarn-
ir hefjast kl. 21.
Heiða með tónleika í Mengi í kvöld
Tónlistarkona Heiða Árnadóttir.
Leikhúslistakonur 50+ halda leik-
lestur á þremur einþáttungum;
Köngulónni, Við lestur framhalds-
sögunnar og Amalíu eftir Odd
Björnsson, í Hannesarholti kl. 20 í
kvöld og kl. 16 á sunnudaginn. Þór-
unn Magnea Magnúsdóttir leik-
stýrir.
Í Köngulónni er leiklesturinn í
höndum þeirra Sigurðar Skúlason-
ar, Kjartans Darra Kristjánssonar,
Orra Hugins og Kristínar Péturs-
dóttur.
Jakob S. Jónsson og Ólafur Ás-
geirsson leiklesa Við lestur fram-
haldssögunnar og Sigurður Skúla-
son, Jóhanna Norðfjörð og Kristín
Pétursdóttir leiklesa Amalíu.
Oddur Björnsson, sem lést árið
2011, var einn helsti módernistinn í
íslenskri leikritun. Hann samdi fjöl-
mörg leikrit sem hafa verið sett
upp á sviði, flutt í útvarpi eða sjón-
varpi og nokkur gefin út á prenti.
Jafnframt leikritun starfaði Oddur
sem rithöfundur og sem leikstjóri
við Þjóðleikhúsið, Leikfélag Akur-
eyrar og RÚV.
Oddur hlaut menningarverðlaun
DV árið 1981 fyrir leikstjórn á Beð-
ið eftir Godot og heiðursverðlaun
Grímunnar 2011 fyrir framúrskar-
andi ævistarf í þágu leiklista
Leikstjóri Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
Leiklesa einþáttunga Odds Björnssonar
Óháði kórinn heldur tónleika til
styrktar Rótinni – félags um mál-
efni kvenna með áfengis- og fíkni-
vanda í húsnæði Óháða safnaðarins
við Háteigsveg 56 í kvöld kl. 20.
Kórinn kemur fram ásamt hljóm-
sveit undir stjórn Kristjáns Hrann-
ars Pálssonar. Á efnisskránni er
tónlist eftir Tom Odell, Depeche
Mode, Mugison auk frumsaminna
laga eftir kórstjórann.
Miðaverð 1.500 kr. og rennur
miðaverð óskert til Rótarinnar.
Miðar eru seldir á tix.is og við hurð.
Óháði kórinn var stofnaður í
mars 2018. Rótin var stofnuð í mars
2013 með það að markmiði að
stofna til umræðu um konur, fíkn,
áföll, ofbeldi og geðheilbrigði og
huga að sérstökum meðferðar-
úrræðum fyrir konur.
Ný Óháði kórinn var stofnaður í fyrra.
Styrktartónleikar fyrir Rótina í kvöld
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hildigunnur Birgisdóttir myndlist-
arkona opnar tvær tengdar sýningar
á morgun, laugardag. Sýningarnar
nefnir hún Universal Sugar –
39.900.000 ISK, 11.900.000 ISK.
Fyrri sýningin verður opnuð á
Höfðavegi 11 í Vestmannaeyjum kl.
14 og hin í Löngulínu 2 (íbúð númer
203) í Garðabæ og verður sú opnuð
þremur tímum síðar eða kl. 17.
Sýningar Hildigunnar eru í nýrri
sýningaröð Listasafns ASÍ og er
hún annar listamaðurinn sem valinn
er til þátttöku en fyrst voru settar
upp sýningar Sigurðar Guðjóns-
sonar í Hafnarfirði og á Blönduósi.
Í tilkynningu segir að viðfangsefni
sýninga Hildigunnar, sem við fyrstu
sýn virðast mjög áþekkar, endur-
spegli á margan hátt samfélagið á
hvorum stað fyrir sig og sama má
segja um húsnæðið sem þær eru
settar upp í en um er að ræða ólík
rými frá mismunandi tímum, hvort
með sína sögu.
Listasafn ASÍ vinnur nú að því að
koma sér upp nýrri sýningaraðstöðu
og á meðan eru sýningar safnsins á
eldri og nýrri verkum haldnar í sam-
starfi við stofnanir og samtök víðs-
vegar um landið. Og Hildigunnur út-
skýrir að milljónirnar sem nefndar
eru í heiti sýningarinnar séu í raun
verðið á íbúðunum sem sýningarnar
eru settar upp í og eru báðar til sölu.
„Það er ætlast til þess að lista-
maðurinn í þessari sýningaröð setji
upp tvær sýningar, eina á höfuð-
borgarsvæðinu og aðra úti á landi.
Mér datt í hug að setja þær bara upp
samtímis,“ segir hún. „Ég vildi að
sýningarnar væru einhvern veginn
jafn réttháar en þá verða þær líka að
vera frumsýndar á sama tíma.“
Hildigunnur verður því fyrst við
opnunina í Vestmannaeyjum á
morgun en flýgur svo strax í bæinn
og verður mætt að til taka á móti
gestum í Garðabæ þremur tímum
síðar.
„Ég hef líka lengi haft á huga á
hlutum sem þykjast vera eins og
þetta var kjörið tækifæri til að velta
sér upp úr því!“ segir hún.
„Mér finnst það kostur að Lista-
safn ASÍ eigi ekki húsnæði um þess-
ar mundir og ég geti komið mér fyrir
hvar sem er með sýninguna. Við fór-
um að skoða hvaða húsnæði er laust
og hentar mínum verkum og það
leiddi hugann að tómu íbúðar-
húsnæði með „dúllunum“ mínum
hangandi einhvers staðar. Það hefur
lengi kveikt hjá mér vissa fagur-
fræðilega nautn að skoða fasteignir
á netinu og út frá því kviknaði hug-
myndin að sýna í íbúðum sem eru til
sölu, sem ég er að gera.“
Þegar spurt er út í verð íbúðanna
sem getið er um í heiti sýningarinar,
segir Hildigunnur að sýningin hafi í
og með þróast út í það að fjalla um
verðgildi. „Svo margt kemur til þeg-
ar verð er sett á íbúð, þessar eru
misgamlar, misstórar og á mismun-
andi stöðum. Tekið er tillit til alls
þessa. En báðar eru líka góðar eins
og þær eru.“
Þegar spurt er hvort samskonar
verk séu á sýningunum segir hún að
sama beinagrindin sé á báðum. „En
birtingarmyndirnar og útfelling-
arnar eru að sjálfsögðu ólíkar. Það
byggist á samspili við íbúðirnar, ég
verð að bregðast við rýminu. Ég hef
undanfarið ár verið að hanna staura
og súlur með verkunum sem ég gæti
sett upp nánast hvar sem væri.
Eins og flestir myndlistarmenn
hef ég ofboðslega mikinn áhuga á
rýmum og hef nú verið að leika mér
að því að koma fyrir þessari beina-
grind verkanna og bregðast við
íbúðunum en verkin eru nú í miklu
samtali við arkitektúrinn og smekk
fyrrverandi eigenda.“ Og hún segir
verkin flest þrívíð en „eins og fyrr
hjá mér eru aðalstjörnur sýning-
arinnar aukahlutir, hlutir sem hafa
orðið til sem einnota fyrirbrigði eða
útfellingar neyslusamfélagsins.“
„Datt í hug að setja þær
bara upp samtímis“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útfellingar Hildigunnur Birgisdóttir á sýningu sinni í íbúð í Garðabæ sem
er til sölu. Hin sýningin, sem líka verður opnuð í dag, er í Vestmannaeyjum.
Opnar í Vest-
mannaeyjum og
í Garðabæ í dag
Þungarokkssveitin Svartidauði
fagnar annarri plötu sinni, Revelat-
ions of the Red Sword, með útgáfu-
tónleika á Húrra í kvöld kl. 21, en
húsið verður opnað kl. 20. „Sveitin
kom íslenskum öfgamálmi á kortið
með útgáfu Flesh Cathedral sem
hefur rutt brautina fyrir bylgju ís-
lenskra svartmálmssveita sem hafa
vakið mikla athygli undanfarin ár. Í
kjölfarið hefur Svartidauði spilað
ötullega um alla Evrópu undan-
farin ár,“ segir í tilkynningu frá
sveitinni. Þar er rifjað upp að
fyrsta plata sveitarinnar Flesh
Cathedral sé „álitin költ klassík
innan stefnunnar“.
Svartidauði fer í tónleikaferð um
Evrópu í maí auk þess sem á döfinni
er frekara tónleikahald á erlendri
grundu. Sérstakir gestir á tón-
leikum kvöldsins eru Nornahetta
og Almyrkvi, en Almyrkvi mun
einnig vera Svartadauða til halds
og traust á komandi Evróputúr.
Miðar eru aðeins seldir við dyrnar
og kostar 2.000 kr. inn.
Svartidauði breiðir úr sér á Húrra
Svartidauði Nýjasta plata sveitarinnar
hefur hlotið góðar viðtökur erlendis.
Tónlistarhátíðin
Aldrei fór ég
suður á Ísafirði
fer fram í 16.
sinn 19.-20. apríl
í húsnæði Kampa
á Ísafirði. Í til-
kynningu frá
skipuleggjendum
er upplýst að í ár
koma fram
Mammút, Todmobile, JóiPé og
Króli, Jónas Sig, Svala Björgvins,
Hórmónar, Salóme Katrín, Auðn,
Berndsen, Þormóður Eiríksson,
Svala, sigurvegarar Músíktilrauna
2019, Herra Hnetusmjör, Ayia,
Bagdad Brothers, Gosi og Teitur
Magnússon & Æðisgengið.
„Dagskrá hátíðarinnar er sprúð-
landi glæsileg í ár og má með
sanni segja að allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi á fjölbreyttu
hlaðborði hátíðarinnar. Eins og áð-
ur fer dagskráin um víðan völl í
straumum og stefnum tónlistar þar
sem bæði landsþekktar hljóm-
sveitir og listamenn koma fram í
bland við ungt, upprennandi og
spennandi tónlistarfólk. Segja
mætti að breiddin í dagskránni,
þessi vel blandaði grautur, sé að-
alsmerki hátíðarinnar,“ segir í til-
kynningu.
Aldrei fór ég suður í 16. sinn
Pétur Magnússon