Morgunblaðið - 15.02.2019, Side 17

Morgunblaðið - 15.02.2019, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019 www.apotekarinn.is - lægra verð Nýtt Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. ERT ÞÚ MEÐ HÁLSBÓLGU? Bólgueyðandi og verkjastillandi munnúði við særindum í hálsi Pjongjang. AFP. | Norðurkóreskir matreiðslumeistarar stilla sér upp í rúmgóðum sölum ríkisveitingahúss í Pjongjang til að taka þátt í mat- reiðslukeppni í landi þar sem alvar- legur skortur er á matvælum. Í einu gímaldanna er borð hlaðið réttum sem búnir eru til úr kartöflumjöli, hráefni sem einræðisherrann Kim Jong-un vill hefja til vegs og virð- ingar í því skyni að stemma stigu við næringarskorti. Um 300 matreiðslumenn taka þátt í keppninni og matreiða 40 rétti hver á þremur dögum. Sigurvegararnir fá matreiðslubækur og eldhústæki, auk viðurkenningarskjals og verð- launapeninga. „Ástæða þess að kóreskur matur er frábær er sú að hann einkennist af hreinu og fersku bragði,“ segir einn dómaranna, Han Jong-guk, sem er kökugerðarmeistari. „Til dæmis bragðast fiskréttirnir eins og ekta fiskur og kjúklingaréttirnir eins og kjúklingur.“ Margir alvarlega vannærðir Hundruð þúsunda manna dóu í hungursneyð í Norður-Kóreu á síð- asta áratug aldarinnar sem leið og þótt hún sé liðin hjá er matvæla- framleiðslan enn lítil og margir landsmenn þjást af alvarlegri van- næringu. Matvæla- og landbúnaðar- stofnun Sameinuðu þjóðanna segir að 43% Norður-Kóreumanna, eða 10,9 milljónir, búi við fæðuóöryggi og þriðjungur barna fái ekki næga næringu. Eitt af hverjum fimm börnum þjáist af viðvarandi vannær- ingu. „Auka þarf matvælaframleiðsl- una í landinu um milljón tonna á ári til að mæta þörfinni,“ segir í nýlegri skýrslu stofnunarinnar. Hún segir að þetta megi m.a. rekja til skorts á ræktanlegu landi því að stór hluti Norður-Kóreu sé fjöllóttur, auk náttúruhamfara og skorts á land- búnaðartækjum og áburði. Kim Jong-un, leiðtogi einræðis- stjórnar landsins, vill að vandamálið verði leyst með því að auka fram- leiðsluna á kartöflum og bendir á að ólíkt hrísgrjónum er hægt að rækta kartöflur í fjallendi. Kim hefur nokkrum sinnum heimsótt kartöflu- mjölsverksmiðjur til að vekja at- hygli á þessu þjóðþrifamáli. Norðurkóreska fréttastofan KCNA segir að leiðtoginn hafi í síð- ustu ferðinni rætt mikilvægi þess að fræða landsmenn um „kosti og nyt- semi kartöflunnar“ og „aðferðir við að matreiða margs konar rétti úr kartöflumjöli“. Matreiðslukeppnin í Pjongjang er liður í þessu fræðsluátaki ráðamann- anna. Í einum sala veitingahússins eru borð hlaðin réttum úr kartöflu- mjöli, svo sem flatbökum, kartöflu- bollum, núðlum og jafnvel súkku- laðitertu. Skipuleggjandi keppninnar, Kim Kum-hun, viðurkennir að steikur séu í mestu uppáhaldi hjá sér en kveðst vera mjög hlynntur því að hefja kartöflumjölið til vegs og virð- ingar. „Hrísgrjón eru auðvitað aðal- fæða okkar en brauð og kartöflumjöl getur líka verið það,“ segir hann og bætir við að kartöflurækt gefi af sér 20 tonn á hektara en hrísgrjónarækt minna en 10 tonn. AFP Kartöfluréttir Gestir virða fyrir sér rétti úr kartöflumjöli á landsmóti norðurkóreskra matreiðslumanna í Pjong- jang. Um það bil 300 matreiðslumenn taka þátt í keppninni og matreiða fjörutíu rétti hver á þremur dögum. Kartöflumjölið hafið til vegs og virðingar  Hörgull setur mark sitt á matreiðslukeppni í N-Kóreu AFP Keppni Gestir fylgjast með kepp- anda matreiða hrísgrjónaköku. Tónlistarmaður leikur á gítar á götu í Gamla bænum í Havana þar sem tón- listarmenn eru á hverju götuhorni. Margir listamenn á Kúbu hafa gagn- rýnt ný lög þar sem listamönnum er bannað að koma fram opinberlega án leyfis menningarráðuneytis landsins. Skv. lögunum er heimilt að refsa listamönnum, sem gerast sekir um karlrembu eða dónalegt orðbragð, og talið er að þau beinist einkum að tónlistarmönnum. Stjórnin segir lögin nauðsynleg til að „vernda menningu landsins“ en andstæðingar þeirra segja að markmiðið með þeim sé að þagga niður í listamönnum. AFP Ný lög gagnrýnd á Kúbu Tillaga um að lýsa yfir stuðningi við brexit-stefnu ríkisstjórnar breska Íhaldsflokksins var felld í neðri deild breska þingsins í gærkvöldi með 303 atkvæðum gegn 258. Hópur brexit- sinna úr röðum þingmanna Íhalds- flokksins sat hjá við atkvæðagreiðsl- una. Litið er á niðurstöðuna sem enn einn auðmýkjandi ósigurinn fyrir Theresu May forsætisráðherra í deilunum um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Fyrir atkvæðagreiðsluna höfðu embættismenn stjórnarinnar varað við því að ef tillagan yrði felld gæti það „stórskaðað“ tilraunir May til að knýja fram breytingar á brexitsamn- ingi hennar við ESB sem var kol- felldur í neðri deild þingsins 15. jan- úar. Þeir sögðu að leiðtogar Evrópusambandsins myndu draga þá ályktun að Theresa May hefði ekki meirihluta á þinginu á bak við sig og því væri tilgangslaust að fall- ast á frekari tilslakanir í viðræðun- um við bresku stjórnina. Deilt um útgöngu án samnings Brexit-sinnar í Íhaldsflokknum sögðu hins vegar að með því að styðja tillöguna væru þingmenn í raun að útiloka útgöngu Bretlands úr ESB án samnings og það myndi veikja samningsstöðu stjórnarinnar. Stephen Barclay, brexit-ráðherra stjórnarinnar, sagði á þinginu að forgangsverkefni hennar væri enn að tryggja samn- ing um brexit en áréttaði að hún léði enn máls á út- göngu úr ESB án samnings. Nokkrir þing- menn Íhaldsflokksins gagnrýndu ummæli Barclays um að stjórnin úti- lokaði ekki útgöngu án samnings. Ein þeirra, Justine Greening, benti á að þegar neðri deild þingsins sam- þykkti í lok janúar að leitað yrði eftir breytingum á brexit-samningi stjórnarinnar við Evrópusambandið samþykkti deildin einnig tillögu um að hafna útgöngu úr ESB án samn- ings. Greening sagði ummæli brexit- ráðherrans benda til þess að stjórnin hunsaði síðarnefndu samþykktina en virti kröfu þingsins um breytingar á umdeildu ákvæði samningsins um landamæri Írska lýðveldisins og Norður-Írlands. May hefur lofað að koma aftur fyr- ir neðri deild þingsins 26. febrúar með nýja yfirlýsingu sem borin yrði undir atkvæði daginn eftir, ef sam- komulag næst ekki við ESB um breytingar á samningnum fyrir þann tíma. May beið enn ósigur á þingi  Tillaga um brexit-stefnuna felld Theresa May

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.