Morgunblaðið - 15.02.2019, Síða 25
ar hann tók flugið að litfögrum
sögum úr héraði því ekki urðu
þær bragðlausar í meðförum
sögumanns að tungutakinu
ógleymdu. Hann var þrekmaður
til líkama og sálar, skapfastur,
geðríkur og tilfinninganæmur.
Mér hefur jafnan fundist að
stærra skarð hefði verið í þekk-
ingu okkar hjóna á landshögum
og Íslendingum að fornu og nýju
ef við hefðum ekki kynnst honum,
svo vel var hann lesinn. Ríkulegur
bókakostur spillti ekki híbýlap-
rýði þeirra Halldóru í Fellsmúla
því eins og haft var eftir langafa
Guðmundar um annan mann af
öðru tilefni: „Hann hafði gott höf-
uð og notaði það.“ Jafnan fór ég
glaður af hans fundi. Sjúkrahús-
vist hans undir það síðasta breytti
litlu í þeim efnum.
Við óvænt fráfall föður síns upp
úr miðri síðustu öld þá vart af
unglingsaldri sýndi hann mann-
dóm sinn og gildismat er hann tók
við og leiddi búrekstur í Gríms-
húsum og óx þar að viti og atgervi.
Með tímanum þróaði og jók
Guðmundur svo mjólkurfram-
leiðslu að hún varð ein sú mesta
hér í sýslu og þegar aldur færðist
yfir varð honum ekki skotaskuld
úr því að átta sig á samtíðinni og
nýjum viðhorfum eftir því sem
hann þurfti og taldi sér samboðið.
Hann dreymdi að afl markaðarins
yrði ekki slíkt að það gæti eytt
byggð hvar og hvenær sem það
sæi sér hag af slíku.
Klukkan hefur glumið Guð-
mundi, en framganga vorsins
verður ekki tafin nú frekar en
fyrri daginn. Elfur tímans áfram
rennur og komið að öðrum að lifa
drauma hans. Hann var í mínum
huga mikilmenni í hinni gömlu
merkingu sem miðar að því hvað
maðurinn er af sjálfum sér, enda
brotsjóir áranna langt að baki.
Hann léttir nú heimdraganum
fyrir hægum byr. Mér finnst ég
horfa út dalinn úr stofuglugga í
Fellsmúla. Sól er gengin undir við
hafsbrún og síðustu geislar spegl-
ast í Laxá við Fögrufit. Á hugann
leitar þjóðvísan:
Kvölda tekur sest er sól,
sígur þoka á dalinn.
Komið er heim á kvíaból
kýrnar, féð og smalinn.
Sambúð þeirra Halldóru varði í
hálfa öld á gestkvæmu heimili þar
sem fólki var tekið opnum örmum.
Dóra, börn og aðrir aðstandendur
eiga samúð okkar Rannveigar.
Kristján Pálsson.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019 25
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Austurstræti 10A, Reykjavík, fnr. 222-2989, þingl. eig. Segulfoss
ehf., gerðarbeiðandi Veðskuld slhf., þriðjudaginn 19. febrúar nk.
kl. 10:30.
Grandavegur 42D, Reykjavík 50% ehl., fnr. 235-2993, þingl. eig.
Óskar Sigurðsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn
19. febrúar nk. kl. 11:30.
Tjarnargata 10C, Reykjavík, 90% ehl., fnr. 200-2790, þingl. eig.
Margrét Stefánsdóttir, gerðarbeiðandi þb.Ingvar Jónadab Karlsson,
þriðjudaginn 19. febrúar nk. kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
14. febrúar 2019
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. BINGÓ kl. 13.30, spjaldið
kostar 250 kr, veglegir vinningar. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Regínu kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bingó kl. 13. Bókabíllinn
kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur
kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
Sími 535-2700.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Blöðin
liggja frammi. Frjáls tími í Listasmiðju kl. 9-12. Thai chi kl. 9-10. Botsía
kl. 10.15-11.20. Myndlistarnámskeið hjá Margréti Zópaníasd. kl. 12.30-
15.30. Hádegismatur kl. 11.30. Zumbaleikfimi kl. 13-13.50. Hæðar-
garðsbíó kl. 14. Síðdegiskaffi 14.30.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl.
14.30. Allir velkomnir!
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20,
Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist ef óskað er. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 13–16. Velkomin.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Gler-
vinnustofa með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi
gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband
með leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Ljósmyndarklúbbur kl.
13. Gleðigjafarnir kl. 13.30.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum, nýliðar
velkomnir. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Þorrablót kl. 18.
Hraunsel Kl. 8-12 Ganga í Kaplakrika, kl. 10.30 línudans, kl. 13 brids,
kl. 13.30 botsía, kl. 11.30 leikfimi í Bjarkarhúsi.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bingó kl. 13.15
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9. í Borgum, sundleikfimi kl. 9 í
Grafarvogssundlaug, bridshópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum, hann-
yrðahópur Korpúlfa í Borgum kl. 12.30 og tréútskurður í umsjón
Davíðs á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag, allir velkomnir. Hið rómaða
föstudagsvöfflukaffi í Borgum kl. 14.30 til 15.30 í dag.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, Lesið upp úr blöðum kl.
10.15, trésmiðja / listasmiðja kl. 9-12, upplestur kl. 11-11.30, föstudags-
skemmtun kl. 14, bókasafnshópur kl. 15.30.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln-
um á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl.
13.30. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða
bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Íslendingasögur / fornsagnanámskeiðið kl. 13, þar
sem sögusviðið er Ísafjarðardjúp. Kennari Baldur Hafstað. Dansað
sunnudagskvöld 27. janúar kl. 20-23. Hljómsveit hússins leikur fyrir
dansi. Allir velkomnir. Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðju-
daginn 19. febrúar kl. 16, Ásgarði, Stangarhyl 4. Dagskrá samkvæmt
lögum félagsins.
Vesturgata 7 Ath. Söngstund við flygilinn (með Gylfa) fellur niður.
Kaffi kl. 14-14.30.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald,
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Tinna MjöllSnæland Hall-
dórsdóttir fæddist
14. desember 1992
á fæðingardeild
Landspítalans. Hún
lést 5. febrúar
2019.
Foreldrar henn-
ar eru Unnur
Aðalheiður Krist-
jánsdóttir, f. 1.
september 1967,
og Halldór Torfi Torfason, f. 21.
nóvember 1963. Bræður hennar
eru Tómas Leó Halldórsson, f. 8.
ágúst 1990, og
Maron Trausti
Halldórsson, f. 19.
september 1997.
Tinna Mjöll var
fiðlu- og kenn-
aranemandi við
Tónlistarskólann á
Akureyri og spil-
aði með Sinfóníu-
hljómsveit Norður-
lands.
Jarðarförin fer
fram frá Akureyrarkirkju í
dag, 15. febrúar 2019, og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Elsku Tinna. Mikið þykir
mér erfitt að kveðja þig. Mikið
þykir mér leitt að vera ekki á
staðnum til að fylgja þér í þína
hinstu för. Hugur minn er hjá
þér, fjölskyldu þinni og vinum.
Mér finnst svo stutt síðan ég
hitti þig fyrst. Samt eru rúm
tólf ár síðan. Þú varst 13 ára og
vildir hætta að læra á fiðlu. Ég
var 24 ára, nýflutt heim úr
námi og var nýi fiðlukennarinn
þinn. Ég gleymi því aldrei þeg-
ar þú mættir í fyrsta tímann,
ekki með fiðluna þína með þér.
Þú ætlaðir að hætta og varst
mætt af því að mamma þín bað
þig um það. Við spjölluðum smá
um hvaða tónlist þú hlustaðir á
og í ljós kom að þú hafðir mik-
inn áhuga á tónlist, alls konar
tónlist. Ég samdi við þig um að
mæta aftur eftir viku með fiðl-
una, bara svo ég gæti yfirfarið
hana, svo hún væri örugglega í
lagi, ef þig langaði að spila á
hana við tækifæri. Þú mættir
að viku liðinni. Þá var ég með
tilbúnar nótur að lögum sem þú
hafðir nefnt að þér þættu
skemmtileg. Við ákváðum að
spila smá. Þú ákvaðst líka að
hitta mig aftur. Þú hættir við
að hætta. Það var mikið gæfu-
spor fyrir þig en ekki síður fyr-
ir mig. Fiðlan og tónlistin átti
nefnilega eftir að spila gríð-
arlega stóran part í þinni allt of
stuttu ævi. Þú varst músíkölsk,
hæfileikarík og einstaklega
næm. Það voru forréttindi að fá
að kenna þér og fylgja á kom-
andi árum. Þrautseigja þín var
með eindæmum, þrátt fyrir
veikindi og erfiða tíma hélstu
alltaf áfram. Þó svo að ég eigi
að hafa kallast kennarinn þinn
þá veit ég ekki hvor okkar var
meiri kennari. Þú kenndir mér
svo margt um lífið. Hversu
ósanngjarnt og erfitt það getur
stundum verið. Hversu mikla
þýðingu tónlist getur haft fyrir
einstakling og fært mikla gleði,
hjálp og von.
Ég er svo þakklát fyrir að
hafa fengið að kynnast þér,
elsku vinkona. Ég er svo þakk-
lát fyrir að hafa fengið að hitta
þig fyrir ótrúlega tilviljun fyrir
ári síðan á spítalanum. Mér
þykir samt afskaplega leitt að
ekki varð af fyrirhuguðum hitt-
ingi og samspili síðasta sumar
áður en ég flutti. Ég er þess
hins vegar fullviss að við eigum
eftir að hittast aftur, með fiðl-
urnar og spila saman nokkur
vel valin lög eftir Elton John
eða Bítlana og Meditation eftir
Massenet sem þú spilaðir svo
ógleymanlega.
Elsku Unnur, Halldór, Tóm-
as og Maron. Ég og fjölskylda
mín sendum ykkur okkar inni-
legustu samúðarkveðjur og
megi góður Guð styrkja ykkur
á þessum erfiðu tímum.
Hvíl í friði, elsku Tinna mín
– takk fyrir allt.
Þín,
Lára Sóley.
Tinna Mjöll Snæ-
land Halldórsdóttir
✝ Björg ÓlöfBerndsen
fæddist á Blöndu-
ósi 25. apríl 1928.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir
8. febrúar 2019.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin El-
ísabet Karólína
Berndsen hús-
móðir, f. 26. maí
1891, d. 17. júlí
1974, og Fritz Hendrik Bernd-
sen blómakaupmaður, sem átti
og rak Blóm og ávexti, f. 20.
september 1896, d. 8. ágúst
1966. Fritz Hendrik og Elísa-
bet eignuðust þrjár dætur. Elst
var Guðlaug Birna (Binna
Mann), f. 5. desember 1918, d.
16. maí 1988. Maki hennar Fre-
deric S. Mann, f. 12. mars 1914,
d. 24. júní 2007. Þau bjuggu
alla tíð í Ameríku. Þá kom
Steinunn Herdís, f. 20. nóv-
ember 1925, d. 5. janúar 2001.
1952, d. 14. júlí 2018, börn
Kristínar eru Hendrik Björn,
Þráinn Arnar og Björg Ólöf. 3)
Birna Elísabet, f. 6. október
1957, og hennar maður Hilmar
Þórarinsson, f. 19. apríl 1960,
börn Birnu eru Benedikt Kjart-
an og Karítas María. Lang-
ömmubörnin eru orðin 16 og
það sautjánda á leiðinni.
Árið 1930 flutti Björg með
foreldrum sínum og systrum
frá Blönduósi til Reykjavíkur
þar sem hún bjó æ síðan. Hún
vann í blómaverslun pabba
síns, Blómum og ávöxtum, um
tíma. Árið 1948 fór hún til
Boston ásamt vinkonu sinni
Gunnhildi Björnsdóttur og þar
unnu þær í kjólaverslun á Tre-
mont Street. Björg rak um ára-
bil heildverslunina Berndsen
ehf. sem m.a. flutti inn Carteŕs
barnaföt. Hún starfaði líka í
sjálfboðavinnu hjá Rauða
krossi Íslands, m.a. í verslun
hans á Landspítalanum. Björg
var í Kvenfélagi Hringsins og
mjög virk í félagsstarfinu á
meðan hún hafði heilsu til.
Útför Bjargar fer fram frá
Kristskirkju í Landakoti í dag,
15. febrúar 2019, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Maki hennar Ingv-
ar N. Pálsson, f.
17. nóvember
1922, d. 1. janúar
2003, og yngst var
Björg Ólöf.
Árið 1951 giftist
Björg eftirlifandi
eiginmanni sínum
Benedikt Ólafs-
syni, f. 10. janúar
1925, fyrrverandi
forstjóra Glófaxa
ehf. Benedikt var sonur Krist-
ínar Benediktsdóttur hús-
móður, f. 22. apríl 1901, d. 12.
apríl 1985, og Ólafs Hjartar-
sonar, verksmiðjustjóra hjá O.
Johnson & Kaaber, f. 10. ágúst
1898, d. 4. febrúar 1989. Björg
og Benedikt eignuðust þrjú
börn. Þau eru: 1) Ólafur, f. 3.
ágúst 1952, og hans börn eru
Hulda, Benedikt og Sigríður
Rakel. 2) Kristín, f. 2. júní 1954
og hennar maður Sigurður J.
Stefánsson, f. 4. september
Elsku amma.
Þar sem í dalnum birtir og sólin skín
kemur minning um fallegu brosin þín
sem veita okkur hlýju, gleði og ást
þar sem skýin hverfa og geislarnir
sjást.
Þar sem lækurinn rennur og fjólan
grær
kemur minning um augun þín blá og
tær
sem lýsa okkur veginn hvern einasta
dag
líkt og englarnir syngi okkur fagurt
lag.
Betri gjöf gat mér enginn fært
því allt það sem ég hef af þér lært
mun leiða mig áfram lífsins braut
og leysa hverja lífsins þraut.
Hvar sem þú ert og hvernig sem líður
þá veit ég með englum þú situr og
bíður
aldrei mun gleymast þitt bros eða
grátur
eða tíminn sem bar með sér
taumlausan hlátur.
í minningum alltaf endist sú nótt
þegar heimurinn þagnaði og allt varð
hljótt.
Ég elska þig.
Þín nafna,
Björg Ólöf.
Nú hefur móðursystir okkar,
hún Björg, fengið hvíldina. Björg
frænka var stór hluti af lífi okkar,
þar sem fjölskyldan var mjög
samheldin og heimili hennar og
Benna var okkar annað heimili.
Of langt mál færi í að lýsa henni
en hún var góð kona með stórt
hjarta.
Við systkinin þökkum fyrir all-
ar góðu stundirnar í gegnum ár-
in, væntumþykjuna sem hún
sýndi okkur öllum, hvað hún
hugsaði fallega til okkar og vildi
fá að fylgjast með börnum og
barnabörnum okkar. Minning-
arnar eru margar og við geymum
þær hvert með okkur og kveðjum
hana með þakklæti í huga fyrir
allt.
Rauðagerðisbörnin
Kristinn Páll,
Elísabet,
Þórir,
Steinunn Björg.
Björg Ólöf
Berndsen
lega blíða. Ég man aldrei eftir
henni í vondu skapi og hún leysti
alltaf hlutina með stakri ró.
Amma naut þess að vera með
okkur barnabörnunum og hafði
mikil áhrif á okkar uppeldi, hún
var mjög fróð um eigin ætt og
sagði manni margar sögur frá
hennar árum fyrir vestan. Hún
hafði gaman af útiveru og ferðað-
ist mikið um landið.
Amma gat alltaf skellt sér í
hlutverk trúðsins með mér og á
ég endalausar minningar þar sem
við erum að hlæja að sjálfum okk-
ur.
Eftir að amma fór á Ísafoldina
var hún aðeins byrjuð að gleyma,
hún var kannski að segja mér eitt-
hvað tvisvar til þrisvar sinnum en
áttaði sig svo á því.
Svo sagði hún: Árni, ég vissi al-
veg að ég væri búin að segja þér
þetta.
Við áttum ótrúlegt samband og
það besta er að maður brosir þeg-
ar maður hugsar um ömmu Gógó.
Síðustu árin í lífi ömmu var hún
mikið með okkur fjölskyldunni,
það er frábært að eiga allar þess-
ar minningar með henni. Við
borðuðum saman hverja einustu
helgi og maður saknar allra gull-
kornanna frá henni, því þau voru
ótalmörg og ekki síst fyndin.
Blessuð sé minning þín, elsku
amma.
Árni Már Markússon.
Fleiri minningargreinar
um Gróu Jónu Bjarnadótt-
ur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar