Morgunblaðið - 15.02.2019, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2019
Tilkynnt var í gær hvaða fjórir
listamenn eru tilnefndir til Íslensku
myndlistarverðlaunanna en þau
verða afhent í annað sinn í Iðnó á
fimmtudaginn kemur. Tilnefnd eru
Eygló Harðardóttir, Guðmundur
Thoroddsen, Hekla Dögg Jónsdóttir
og Steinunn Gunnlaugsdóttir.
Einnig var tilkynnt hvaða þrír
listamenn væru tilnefndir til Hvatn-
ingaverðlauna ársins en það eru
Auður Ómarsdóttir, Fritz Hendrik
og Leifur Ýmir Eyjólfsson.
Myndlistarráð stendur að verð-
laununum sem hafa þann tilgang að
vekja athygli á því sem vel er gert á
sviði myndlistar á Íslandi. Verð-
launaféð nemur einni milljón króna
en verðlaunin eru veitt íslenskum
myndlistarmanni eða myndlistar-
manni með búsetu á Íslandi sem
þykir hafa skarað fram úr með ný-
legum verkum og sýningu á Íslandi.
Hvatningarverðlaunin, 500 þúsund
krónur, eru veitt ungum starfandi
myndlistarmanni sem lokið hefur
grunnnámi á síðustu fimm árum og
sýnt opinberlega. Auglýst var eftir
tilnefningum og bárust 70.
Í dómnefnd eru Margrét K. Sig-
urðardóttir formaður, Aðalsteinn
Ingólfsson, Hanna Styrmisdóttir,
Jóhann Ludwig Torfason og Sig-
urður Guðjónsson.
Öryggi og fágun
Eygló Harðardóttir er tilnefnd
fyrir sýninguna Annað rými í Ný-
listasafninu. Í greinargerð dóm-
nefndar segir: „Með verkum sem í
senn voru fínleg og stórkarlaleg,
unnin í viðkvæman efnivið, opnaði
listakonan fyrir gáttir sem áhorf-
andinn gat smeygt sér inn fyrir og
aukið skynjun sína og næmi á
kostnað hinnar vanabundnu rök-
hyggju. Eygló virðist umhugað að
áhorfendur verka hennar skynji að
ekkert eitt svar sé rétt, að allar
víddir hafi sama vægi og að upp-
lifun þeirra geti verið persónuleg og
án endastöðvar. Verkin voru gal-
opin til túlkunar. Í öruggri og fág-
aðri beitingu fundins og aðkeypts
efnis lá hvati til innsæis, til þess að
lesa ekki aðeins í efnivið verkanna
heldur duldar víddir, undirmeðvit-
und, og samspil við birtuna og hið
steypta rými efnisheimsins.“
Karlfígúrur allra tíma
Guðmundur Thoroddsen er til-
nefndur fyrir Snip Snap Snubbur í
Hafnarborg. Í umsögn segir: „Á
sýningunni … hlóð listamaðurinn
upp þétta og áferðarríka fleti á
mörkum hins hlutlæga og óhlut-
læga. Þessir fletir þróuðust yfir í
sviðsmyndir af listsögulegum upp-
runa, myndrænan arkitektúr á borð
við hallir, súlur og sigurboga, sem
listmálarar fyrri tíma notuðu til að
gefa til kynna völd og ríkidæmi við-
skiptavina sinna. Í þessu umhverfi
ofgnóttar og sjálfsupphafningar
hrærast karlfígúrur allra tíma, jafn
utangátta, afkáralegar og að-
þrengdar og í fyrri myndum lista-
mannsins, fangar aðstæðna sem
þeir ekki skilja.“
Nýtt og ófyrirséð
Hekla Dögg Jónsdóttir er til-
nefnd fyrir Evolvement í Kling &
Bang. Í umsögn segir: „Hin hæg-
láta en markvissa framvinda sem
titillinn gaf til kynna varð smám
saman ljós þegar gengið var um
niðurhólfað sýningarrýmið. Eitt
leiðarstef af mörgum var samstarf
við aðra. Í því gaf listakonan að
ákveðnu leyti frá sér stjórnina yfir
útkomu hins skapandi ferlis, og
varð þess þannig valdandi að til
varð svigrúm þar sem eitthvað nýtt
og ófyrirséð gat kviknað í samspili
hennar og boðsgesta hennar
… Heklu tókst einkar vel á sýning-
unni að virkja hvort tveggja töfrana
sem verða til í samstarfi lista-
manna, og meðvitund hvers og eins
áhorfanda um eigin upplifun og
framlag til túlkunar verkanna.“
Litla hafpulsan
Steinunn Gunnlaugsdóttir er til-
nefnd fyrir Litlu hafpulsuna, úti-
listaverk sem sett var upp í Reykja-
víkurtjörn í tengslum við „Cycle
Music and Art: Þjóð meðal þjóða“. Í
umsögn segir: „Litla hafpulsan,
tveggja metra hár skúlptúr í formi
pulsu á brauðbollu í miðri Tjörn-
inni, var framlag Steinunnar … til
aldarafmælis fullveldis Íslands …
Pulsan vakti fljótlega eftirtekt og
umræðu á almennum vettvangi og
skömmu eftir afhjúpun voru unnin á
henni skemmdarverk, hún „aflim-
uð“, með orðum listamannsins, sem
vakti enn frekari vangaveltur um
merkingu hennar … Með Litlu haf-
pulsunni sætti listakonan lagi með
afgerandi hætti í almenningsrými, í
samhengi, sem gaf tilefni til að
túlka verkið sem gagnrýni á menn-
ingarleg áhrif Dana á Íslandi til
langs tíma, enda fólst í því augljós
tilvísun til eins helsta kennileitis
Kaupmannahafnar. Formið leiddi
áhorfendur þó víðar og margir sáu í
því háð og gagnrýni á karlaveldið.“
Léttleiki, hæfileikar og alúð
Auður Ómarsdóttir er tilnefnd til
Hvatningarverðlaunanna fyrir
Stöngin inn í Kling & Bang. Í grein-
argerð segir að í sýningunni skauti
„hún yfir vítt svið persónulegrar
reynslu og tilvísana í listasöguna og
poppmenningu. Léttleiki og til-
raunagleði listakonunnar kemur
berlega í ljós í flæði og hugmynda-
auðgi verkanna.“
Fritz Hendrik er tilnefndur fyir
Draumaregluna, sýningu sem einn-
ig var í Kling &
Bang. Um hana
segir: „Málverkið
leikur í höndum
Fritz Hendrik,
og það er aug-
ljóst á þessari
sýningu, sem
öðrum, að hann
hefur sérstakan
hæfileika til að
miðla inntaki og
ásetningi í hverj-
um þeim efnivið
sem hann velur
sér.“
Loks er Leifur
Ýmir Eyjólfsson
tilnefndur til
Hvatningar-
verðlauna fyrir
Handrit, sýningu
sem nú er í D-sal
Listasafns
Reykjavíkur. Í
umsögn segir að
hann hafi „lagt
sérstaka alúð við
að tileinka sér
tækni og aðferðir
á borð við þrykk,
ristur, stimpla og
keramík. … hann
leitar til baka til
hugmyndar sem
kviknaði á náms-
árum hans. Þá
þegar var brenn-
andi áhugi hans á bókverkagerð
vakinn og hugmyndin var að gera
blaðsíður úr brenndum leir sem
hver og ein stæði sem sjálfstætt
bókverk.“
Tilnefnd til Myndlistarverðlauna
Fjögur tilnefnd
og þrjú til Hvatn-
ingarverðlauna
Eygló Um sýninguna Annað rými í Nýló segir að Eygló „virðist umhugað
um að áhorfendur verka hennar skynji að ekkert eitt svar sé rétt“.
Guðmundur „… hlóð listamaðurinn upp þétta og áferðarríka fleti á mörk-
um hins hlutlæga og óhlutlæga,“ segir um sýninguna í Hafnarborg.
Hekla Dögg Henni „tókst einkar vel á sýningunni að virkja […] töfrana sem
verða til í samstarfi listamanna,“ segir um Evolvement í Kling & Bang.
Steinunn „Með Litlu hafpulsunni sætti listakonan lagi með afgerandi hætti
í almenningsrými,“ segir um umtalað verk Steinunnar í Reykjavíkurtjörn.
Eygló
Harðardóttir
Guðmundur
Thoroddsen
Hekla Dögg
Jónsdóttir
Steinunn
Gunnlaugsdóttir
Auður
Ómarsdóttir
Fritz
Hendrik
Leifur Ýmir
Eyjólfsson
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195