Morgunblaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019FRÉTTIR Gerður Huld er athafnakona að eðlisfari og var að- eins 21 árs gömul þegar hún stofnaði unaðsleik- fanga-verslunina Blush árið 2011. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Helstu áskoranir eru líklegast að halda utan um allt. Þegar ég byrjaði fyrir átta árum var Blush bara lítið fyrirtæki sem ég rak heima hjá mér við eldhús- borðið. Í dag eru um fjórtán starfsmenn hjá Blush og að auki verktakar sem sinna ýmsum verkefnum. Hver var síðasti fyrirlesturinn sem þú sóttir? Ég er núna að taka árs prógram með Tony Robb- ins sem felur í sér að ég ferðast um allan heim með honum og fer á fyrirlestra og námskeið hjá honum og hans teymi. Síðasti fyrirlesturinn sem ég fór á hét „Date with destiny“ og hann var algjörlega frá- bær. Undanfarin fimm ár hef ég verið dugleg að sækja námskeið til að öðlast nýja hæfni á fjöl- breyttum sviðum, og tel það mjög mikilvægt til að geta vaxið og dafnað í starfi; bæði til að vera betri stjórnandi en líka til að geta gefið meira af mér til samfélagsins. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég les og hlusta mjög mikið á fræðandi efni og reyni að fara á einhverskonar námskeið að lágmarki einu sinni í mánuði. Svo finnst mér mjög gott að hlusta á viðskiptavini mína og fylgjendur á sam- félagsmiðlum, því þá fæ ég oft innsýn í það hverju fólk er að leita eftir og hvar ég þarf mögulega að bæta reksturinn. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Ég væri til í að vera pizzubakari á Domino‘s. Ég elska pizzu, vann eitt sumar á Dominos og fannst það mjög gaman. Veit þó ekki hvort það yrði mjög hollt fyrir líkamann. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Kosturinn er að kynlífstækja-markaðurinn er vaxandi geiri og það er mikil þróun á kynlífstækjum. Umræðan um þessar vörur verður sífellt opnari sem gerir að verkum að fleiri og fleiri kaupa kynlífstæki. Gallinn er að það er mjög erfitt að auglýsa kyn- SVIPMYND Gerður Huld Arinbjarnardóttir eigandi Blush Þarf að hugsa út fyrir rammann til að koma vörunni á framfæri Morgunblaðið/Eggert Gerður í Blush segist leggja sig fram við að hlusta á viðskiptavini verslunarinnar og fylgjendur sína á samfélagsmiðlum til að sjá betur hvað má bæta og hvað fólk vantar. NÁM: Lauk grunnskóla en annað nám hef ég ekki stundað. STÖRF: Stofnaði Blush 2011 þegar ég var 21 árs svo ég hef ekki unnið við mikið annað en það nema á leik- skóla, í mötuneyti, á skyndibitastöð- um og þess háttar í aukavinnu. ÁHUGAMÁL: Söngur, tónlist, elda- mennska, andleg heilsa og heilbrigð samskipti. FJÖLSKYLDUHAGIR: Kærasti minn er Jakob Fannar Hansen og eigum við hann Hektor Elí Halldórsson, 9 ára. HIN HLIÐIN GRÆJAN Rétt eins og sum okkar eru nærsýn og önnur fjarsýn þá heyrum við ekki öll jafn vel. Við notum gler- augu til að sjá betur frá okkur, en grípum yfirleitt ekki til heyrn- artækjanna fyrr en við heyrum varla lengur orða skil. Fólkið hjá Nura vill meina að það að hlusta á tónlist með heyrnartólum sem ekki hæfa eyrunum, sé eins og að lesa bók í gegnum gleraugu með rangan styrkleika. Nuraloop-heyrnartólin laga sig að heyrn notandans og gera það með stuttu og einföldu heyrn- arprófi. Þegar Nuraloop hefur áttað sig á ástandi eyrnanna lagar græj- an hljóðið að þörfum notandans svo að tónlistin sem hann vill hlusta á komist rétt til skila. Þá á Nuraloop að geta dregið úr umhverfishljóðum, ellegar hleypt þeim í gegn ef notandinn vill ekki vera alveg einangraður frá því sem er að gerast í kringum hann. Ekki liggur enn fyrir hvað Nu- raloop mun kosta en heyrnartólin eiga að vera væntanleg á markað seinna á þessu ári ai@mbl.is Nuraloop gerir lítið heyrnarpróf til að ná fram rétta hljómnum. Heyrnar- tól sem vita hvað eyrað vill Á SKRIFBORÐIÐ Flest okkar lesa langtum meira af skjá en af blaði. Samt hefur lýsingin í kringum tölvuskjáina okkar, snjallsímana og spjaldtölvurnar ekki aðlagast til að taka mið af því hvernig nútímamaðurinn neytir ritaðs efnis. Fyrir vikið erum við með glampann af ljósaperum í augunum allar vinnu- og hvíldar- stundir, lúin, pirruð og gott ef ekki með bauga í ofanálag. En núna ætti þetta allt saman að breytast, með WiT Smart-lampanum frá taívanska raftækjaframleiðandanum BenQ. Eins og sést á meðfylgjandi mynd er birtugjafi WiT-lampans sveigður til að búa til mun breiðari upplýstan flöt en dæmigerðir lampar. WiT er búinn birtuskynjara sem aðlagar styrkleika ljóssins að aðstæðum hverju sinni, og varpar minni birtu á miðjuna svo að truflandi glampi myndist síður á tölvu- eða símaskjá notandans. Þá má fínstilla birtuna með ýmsum hætti, s.s. til að gera hana heitari eða kaldari. WiT-lampann má kaupa á Amazon.com á 179 dali. ai@mbl.is Birtan er daufari í miðjunni svo að myndist síður glampi á skjánum. Lampi gerður fyrir lestur af tölvuskjá lífstæki og miðlar á borð við Facebook og Google leyfa ekki auglýsingar af þeim toga. Fyrir vikið get- ur verið erfitt og dýrt fyrir okkur að auglýsa. Höfum við tekist á við það vandamál með því að fara aðrar leiðir eins og að nýta okkur Snapchat eða miðla þar sem við erum ekki að borga fyrir auglýsingar heldur senda frá okkur frítt efni í formi fræðslumyndbanda eða ljósmynda sem að ná til fólks. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráð í einn dag? Ef ég horfi á spurninguna frá viðskiptalegu sjón- armiði þá þætti mér sniðugt að breyta viðmiðum um skattgreiðslur af upphæðum sem greiddar eru til góðgerðarmála: að þau fyrirtæki sem kjósa að gefa til góðgerðamála þurfi ekki að greiða skatt af þeim upphæðum sem þau gefa. Ég held að það myndi hvetja íslensk fyrirtæki til að gefa meira af sér og þar að leiðandi yrði auðveldara fyrir góðgerðar- samtök að safna fyrir góðum málefnum. Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.