Morgunblaðið - 14.02.2019, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019 15FÓLK
MESSA MORGUNVERÐARFUNDUR
Fjármálaeftirlitið efndi til
morgunverðarfundar um
samkeppnisumhverfi fjármálakerfisins
í vikunni í ljósi mikilla tæknibreytinga,
nýs regluverks og fyrirhugaðra breyt-
inga á eignarhaldi banka í eigu ríkisins.
Tilefni fundarins var 20 ára starfs-
afmæli Fjármálaeftirlitsins.
Samkeppni í fjár-
málakerfinu rædd
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir,
hagfræðingur hjá Oliver Wyman
ræddi um mikinn vaxtamun
íslensku bankanna.
Birna
Einarsdóttir,
bankastjóri
Íslandsbanka
mætti á svæðið.
Flækjustig í verðskrám við-
skiptabankanna þriggja var
á meðal þess sem var rætt.
Fundurinn var
haldinn á Grand
Hótel Reykjavík.
Morgunblaðið/Eggert
UT-messan fór fram í Hörpu síðastliðna
helgi þar sem fagfólk í upplýsingatækni sótti
ráðstefnu auk þess sem almenningur fékk tækifæri
til þess að kynnast nýjustu tækni og vísindum. Ský
stendur að ráðstefnunni ásamt Háskóla Íslands og
Háskólanum í Reykjavík en um er að ræða einn
stærsta viðburð ársins í tölvugeiranum. UT-messan
hefur verið haldin árlega frá árinu 2011 en tilgang-
urinn er einna helst að sýna almenningi hversu stór
og umfangsmikil greinin er orðin á Íslandi.
UT-messan haldin í Hörpu
með pomp og prakt
Morgunblaðið/Eggert
Margt var um
manninn í Hörpu
á UT-messunni.
Á föstudeginum mætti
fagfólk úr upplýsingatækni-
geiranum á ráðstefnu.
Gestir gátu klórað
risaeðlu undir hökunni.