Morgunblaðið - 19.02.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.02.2019, Qupperneq 16
BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Þau 68 fyrirtæki sem farið hafa í gegnum viðskiptahraðalinn Startup Reykjavik Invest hafa í heildina fengið um 3,8 milljarða króna í fjár- festingu eða styrkveitingar frá því að hraðallinn var stofnaður árið 2012. Um tveir þriðju hlutar koma inn í fyrirtækin sem hlutafé og um einn þriðji hluti kemur inn í fyrirtækin sem styrkveitingar, að mestu leyti í gegnum Tækniþróunarsjóð. Þetta segir Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunar hjá Ar- ion banka, við Morgunblaðið en hann ritaði nýlega færslu þar sem farið er yfir árangur verkefnsins á síðustu árum. 278 milljóna eignasafn Heildarfjárfesting Arion banka í Startup Reykjavik Invest frá upp- hafi verkefnisins nemur 176 milljón- um króna en við þátttöku í hraðlin- um fjárfestir Arion banki í hverju og einu fyrirtæki. Í dag nemur sú fjár- festing 2,4 milljónum króna. Virði eignasafns Startup Reykja- vik Invest nemur 278 milljónum króna sé miðað við nýjasta verðmat sem fjárfestar hafa greitt fyrir hluti í þeim fyrirtækjum sem fengið hafa fjárfestingu en önnur fyrirtæki eru metin út frá líkum á að ná árangri. 54% fyrirtækjanna í viðskipta- hraðlinum teljast virk og eru starf- andi í dag. Óvirk fyrirtæki eru 13% en þau liggja í dvala og óvíst er um framtíð þeirra og frekari starfsemi. Þriðjungurinn sem eftir er flokkast undir seld fyrirtæki sem ekki lengur eru í eignasafni Startup Reykjavik Invest þar sem vitað var að frum- kvöðlarnir hygðust ekki halda við- skiptahugmyndinni gangandi. Sterkir árgangar Sé litið til einstakra árganga sést að árin 2013 og 2014 voru einkar góð þegar kemur að fjárfestingu. Fjögur fyrirtæki frá árinu 2013 hafa hlotið um 990 milljóna heildarfjármögnun. Þar á meðal er fyrirtækið Florealis sem lauk 390 milljóna króna hluta- fjáraukningu á síðasta ári en fyrir- tækið þróar og markaðssetur skráð jurtalyf og lækningavörur. Þrjú fyrirtæki eru virk frá 2014-árgang- inum sem var afar öflugur þar sem heildarfjármögnun nemur 1,4 millj- örðum. Það eru fyrirtækin Authen- teq, sem unnið hefur að þróun á raf- rænum skilríkjum og auðkenningu í bálkakeðjum (e. blockchain) Mure, sem þróar hugbúnaðinn Breakroom sem skapar vinnuaðstöðu í sýndar- veruleika, og Mesher sem þróar hug- búnað til þess að mæla líkama fólks með notkun símamyndavéla og á að auðvelda fatakaup á netinu. Um- sóknarfresti í hraðalinn í ár lýkur 27. mars næstkomandi. 3,8 milljarðar í sprota Fjármögnun Startup Reykjavik Invest (SRI) Fyrirtæki eftir árgöngum Virk Seld Óvirk Eftir árgöngum, milljónir kr. 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 Hlutafé Styrkir Virk Seld Óvirk 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Heimild: einargunnar.com Heildarfjármögnun, milljónir kr. 608 990 1.361 272 348 124 22 Virði hlutar Startup Reykjavik Invest, milljónir kr. 4,3 84 119 21 12 18 22 2012 Kaptio Þríhöfði Designing reality Asteria Live Shuttle Stream Tags Eski Tech Skyhook Startupville Ævi 2013 Activity Stream Black Florealls SAReye Hey Heyr Sojóhus softw. Þoran Distillery Golf Pro Silverberg Technologies Zallbuna 2014 Authenteq Mesher MURE Boontrusic ESP Prod- uctions Fullklædd GG Software Levo Pioneur Relium 2015 Gorki Instruments Klappir Spor i sandinn Wasabi Iceland Three42 Cario Elsendia Floori hún/hann Ludis Delfi 2016 Flow VR Icelandic Lava Show Hold Film Platome Líftækni Travelade/ Total Host Drexler Hringborð Instrivo Moon Chocolate Convex 2017 Bone & Marrow Data Plato Maul Myrkur software Námsflæði Porcelain Fortress RAGNARS Safe Seat Zifra Tech 2018 Anymaker Ekki banka Huginn Care Konvolut Koride Leiguskjól LifeLine Sea Data Center UnifyMe Virði eignasafns Startup Reykja- vik Invest 54% 33% 13% Alls 278 m. kr.  Heildarfjárfesting Arion banka í Startup Reykjavik Invest nemur 176 millj- ónum króna  Meira en helmingur fyrirtækja úr hraðlinum er enn virkur 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á kostnað. Laun og launatengd gjöld hækkuðu um tæp 9% á árinu 2018 í krónum talið hjá Icelandair og laun sem hlutfall af tekjum nema 34,2%. Eru „hærri tölur vandfundnar“ að mati greinenda Capacent. Sama hlutfall nemur 7,6% hjá ungverska flugfélaginu Wizz Air og 21,1% hjá SAS. Sé nánar rýnt í þær tölur kem- ur í ljós að launakostnaður á hvern starfsmann hjá Wizz Air er innan við helmingur af því sem hann er hjá Icelandair en aðeins um 5% meiri en hjá SAS. Að mati grein- enda Capacent „eru rekstrarniður- stöður þessara þriggja félaga fyrir árið 2018 sláandi“. Wizz air úthýsir þjónustu í miklum mæli og var EBIT-hlutfall þess, þ.e. hagnaður sem hlutfall af tekjum fyrir fjár- magnsliði og skatta, 15%. EBIT- hlutfall SAS nam 5,6% en hlutfallið var neikvætt upp á 5,2% hjá Ice- landair sem sögulega séð hefur út- hýst litlum hluta starfseminnar. Í árslok 2018 nam eiginfjárhlutfall Wizz Air 58%, SAS 21%, og Ice- landair 32%. peturhreins@mbl.is Samkvæmt nýju verðmati ráðgjafa- fyrirtækisins Capacent sem Morgunblaðið hefur undir höndum er Icelandair Group nú metið á 12 kr. á hlut sem er 40% yfir markaðs- virði. Lækkar verðmatið um 24% frá síðasta mati en í því er mikið gert úr háum launakostnaði félags- ins og hann borinn saman við valin erlend flugfélög sem hafa í meiri mæli flutt hluta starfsemi sinnar úr landi til þess að lækka launa- Launakostnaður mikill í samanburði  Ráðgjafarfyrirtækið Capacent lækk- ar verðmat á Icelandair um 24% Morgunblaðið/Eggert Icelandair Hlutur metinn á 12 kr. ● Raforkudreifingarfyrirtækið Lands- net hagnaðist um rúma 4,3 milljarða króna á árinu 2018, samanborið við tæplega 3,3 milljarða króna hagnað ár- ið áður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Eignir félagsins námu rúmum 101 milljarði króna í árslok 2018, og drógust lítillega saman milli ára, en þær voru tæpir 102 milljarðar í lok árs 2017. Eiginfjárhlutfall í lok árs nam 43,8%. Guðmundur Ingi Ásmundsson, for- stjóri félagsins, segir í tilkynningunni að árið 2018 hafi verið ár stöðugleika í rekstri fyrirtækisins og rekstur hafi ver- ið samkvæmt áætlun. tobj@mbl.is Hagnaður Landsnets 4,3 milljarðar í fyrra 19. febrúar 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 118.81 119.37 119.09 Sterlingspund 152.27 153.01 152.64 Kanadadalur 89.36 89.88 89.62 Dönsk króna 17.946 18.052 17.999 Norsk króna 13.703 13.783 13.743 Sænsk króna 12.774 12.848 12.811 Svissn. franki 117.97 118.63 118.3 Japanskt jen 1.0754 1.0816 1.0785 SDR 164.67 165.65 165.16 Evra 133.93 134.67 134.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.9207 Hrávöruverð Gull 1318.0 ($/únsa) Ál 1828.0 ($/tonn) LME Hráolía 64.86 ($/fatið) Brent Hagnaður Reita fasteignafélags nam 110 millj- ónum króna á árinu 2018, en hann var 5.671 milljón króna árið áður. Í tilkynn- ingu segir Guðjón Auðunsson, for- stjóri félagsins, að matslækkun fjárfestingaeigna félagsins að fjár- hæð rúmlega 3,1 milljarður króna, liti uppgjör Reita fyrir árið 2018, en til samanburðar var matsbreytingin um 3,9 milljarðar til hækkunar árið 2017. Þá bætir hann við að megin- skýring lækkunarinnar liggi m.a. í fram kominni hækkun fasteigna- gjalda. Eiginfjárhlutfall var 32,6% miðað við 35,1% 2017. tobj@mbl.is Hagnaður Reita 110 m. Fasteignir Guðjón Auðunsson.  Matslækkun fast- eigna litar uppgjörið ● Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í gær nam tæpum 1,5 milljörðum króna. Mest hækk- uðu bréf Iceland- air eða um 4% í 195 milljóna króna viðskiptum. Næst- mesta hækkun dagsins var á bréf- um TM, en bréf tryggingafélagsins hækkuðu um 1,28%. Þá varð 0,11% hækkun á bréfum Mar- els. Mest lækkuðu bréf Arion banka og stendur gengi bréfa félagsins nú í 72,9 krónum á hvern hlut. tobj@mbl.is 1,5 milljarða velta á hlutabréfamarkaði Verð Lækkun varð á Arion banka. STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.