Morgunblaðið - 19.02.2019, Page 36

Morgunblaðið - 19.02.2019, Page 36
Kvartett söngkonunnar Kristjönu Stefánsdóttur kemur fram á djass- kvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30 og flytur fjölbreytta efnisskrá með völdum djassstandördum, frum- saminni tónlist og uppáhaldslögum í djassbúningi. Með Kristjönu leika Kjartan Valdemarsson á píanó, Valdimar K. Sigurjónsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur og er aðgangur ókeypis. Kvartett Kristjönu djassar á Kex hosteli ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 50. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Valsmenn tryggðu sér sæti í undan- úrslitum Coca Cola-bikars karla í handknattleik í gærkvöldi þegar þeir unnu Selfyssinga með sjö marka mun á Selfossi, 31:24. Segja má að handknattleikslið Selfoss hafi ekki náð sér á strik í gærkvöldi því kvennaliðið féll einn- ig úr leik eftir stórt tap fyrir bikar- meisturum Fram. » 3 Valur og Fram fyrstu liðin í undanúrslit ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Leitast er við að draga upp mynd af Arnari Guðjónssyni í blaðinu í dag. Stýrði hann karlaliði Stjörnunnar til sigurs í Geysisbikarnum á laugar- daginn en Arnar er á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari í efstu deild hérlendis. Axel Kárason lýsir Arnari sem harðduglegum og faglegum þjálfara. Arnar sé ekki skaplaus maður en sé ekki eins og fólk sé flest, í jákvæðum skiln- ingi. Sé persóna sem kryddi til- veruna. »1 Harðduglegur en skapstór bikarmeistari Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þorgeir Kjartansson, sem hefur verið formaður Fornbílaklúbbs Íslands í átta ár gefur ekki kost á sér áfram á aðalfundinum 22. maí nk. „Ég hef verið í stjórn og nefndum í rúm tíu ár og mér finnst það ágætt, það er kom- inn tími til þess að einhver annar taki við,“ segir hann. Fornbílaklúbburinn var stofnaður 1977 með það að markmiði „að efla samheldni með áhugamönnum og eigendum gamalla bíla og gæta hags- muna þeirra.“ Auk þess vinnur klúbburinn að því að auka áhuga al- mennings á gömlum bílum og skiln- ing á varðveislu þeirra. Þegar bíll hefur náð 25 ára aldri frá skráningarárgerð telst hann vera fornbíll. Þá falla bifreiðagjöld niður og hægt er að fá fornbílatryggingu auk þess sem ekki þarf að mæta með þá í skoðun nema annað hvert ár. Bílar, sem voru eldri en 25 ára 1. jan- úar 1989 geta verið með gömlu Steðjanúmerin og smíðar klúbburinn þau fyrir félagsmenn. Frá byrjun hafa hópakstur og forn- bílasýningar verið fastir liðir í starf- seminni á sumrin, en á veturna hefur skipulögð starfsemi einkum falist í rabbkvöldum, myndakvöldum, kvik- myndakvöldum, dóta- og verkfæra- kvöldum og fræðsluferðum. „Vetur- inn er rólegasti tíminn enda ekki bílvænn tími fyrir fornbíla en við reynum að hittast vikulega í félags- heimilinu okkar,“ segir Þorgeir. Klúbburinn á og rekur þrjár bíla- geymslur á Esjumelum á Kjalarnesi, samtals um 1.200 fermetra. Félagar eru um 1.200, en Þorgeir segir að erf- iðlega gangi að fá félagsmenn til starfa. Þetta bitni á ferðanefnd og á meðan komi ekki út prentað dagatal en dagskráin sé aðgengileg á heima- síðunni (fornbill.is). „Allt starfið er unnið í sjálfboðavinnu og það er ekki bara í fótboltanum sem erfitt er að fá sjálfboðaliða því vandinn virðist vera í öllu félagsstarfi,“ segir hann. Fyrsta verkefni klúbbsins var hóp- akstur í Reykjavík 17. júní 1977 og síðan hefur hann ásamt bílasýningu sama dag verið fastur liður í starf- seminni. Auk þess eru nokkrar aðrar skipulagðar ferðir á hverju sumri fyr- ir utan fornbíladaga í Árbæjarsafni og Húsdýragarðinum. „Fjörið byrjar með skoðunardegi í maí og svo reyn- um við að njóta sumarsins sem best,“ segir Þorgeir. Hann minnir á að svona gamlir bílar geti alltaf bilað og það hafi vissulega gerst í hópferðum en menn séu fljótir að gleyma slíku. „Yfirleitt er þetta ansi ljúft og það er alltaf best að muna bara björtu hlið- arnar.“ Næsta bíókvöld í félagsheimili klúbbsins í Hlíðasmára í Kópavogi verður miðvikudaginn 27. febrúar. Ævintýramyndin Herbie the Love Bug verður sýnd. „Við sýnum gjarnan fræðslumynd- ir eða bílatengdar myndir eins og til dæmis Bullitt,“ segir formaðurinn og bætir við að á myndakvöldum sýni menn oft myndir frá bílasýningum og ferðum innanlands og utan. Eigendur fornbíla gera klárt fyrir sumarið  Erfitt að fá sjálfboðaliða í fornbílum eins og í boltanum Fornbílar Þorgeir Kjartansson á nokkra eldri en 25 ára bíla og gerir hér við Land Rover árgerð 1963.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.