Morgunblaðið - 05.03.2019, Side 7
Á ÍSLANDI RÍKIR SPILLING OG KLÍKUSKAPUR, SEM TAKA VERÐUR Á
BJARNI BENEDIKTSSON;
MEÐ EINDÆMUM FRÆND-
RÆKINN MAÐUR
JARÐARVINIR
Ole Anton Bieltvedt,
formaður
Almenningur getur og verður að refsa fyrir spillingu ogklíkuskap.
Það gerir hannbeztmeð atkvæði sínu.
2009 setti þáverandi sjávarútvegsráðherra reglugerð nr.
489/2009 um vinnslu og heilbrigðiseftirlit með hvalaafurðum.
Í 10. gr. reglugerðarinnar segir meðal annars þetta:
„Hvalskurður skal hafinn um leið og hvalurinn er kominn á
land, á þar til gerðum yfirbyggðum skurðarfleti“.
Hvalskurður á, skv. þessu, að fara fram í yfirbyggðu, lokuðu rými
til að tryggja hreinlæti við verkun, gæðaöryggi og hollustu
afurðarinnar. Er hér auðvitað hugsað til alls konar meindýra og
fugla, sem ekki verða hamin á opnu svæði undir beru lofti; rottur,
mýs, kannske minkar eða refir, máfar, svartbakar, hrafnar, skordýr
o.s.frv.
Þó að reglugerðin hafi tekið gildi 1. júní 2010, fór Hvalur hf
aldrei eftir henni, heldur skar fyrirtækið sína drepnu hvali úti,
undir beru lofti, án þeirrar yfirbyggingar og þess
matvælaöryggis, sem reglugerðin krafðist.
Þegar þetta reglugerðarbrot hafði viðgengist í 8 ár, án þess, að
stjórnvöld beittu sér í málinu, og Hvalur hf sá, að þetta
viðvarandi reglugerðarbrot gæti farið að mæta andstöðu
Matvælastofnunar, sem þó hafði greinilega sýnt ótrúlegt
langlundargeð, ritaði Kristján Loftsson Kristjáni Þór Júlíussyni,
sjávarútvegsráðherra, einfaldlega tölvupóst 15. maí 2018 og fór
fram á breytingu á reglugerðinni.
Var Loftsson kurteis vel og baðst afsökunar á hvabbinu! Skrifaði
hann svo m.a. þetta: „Þess vegna hef ég farið fram á það við
nokkra af þínum forverum í starfi að reglugerðinni verði
breytt, svo hún harmoneri við það hvernig hlutirnir eru
framkvæmdir í dag“.Harmóní er auðvitað alltaf af hinu góða.
Vísaði hann svo m.a. til þess, að hann skrifaði þáverandi
sjávarútvegsráherra þetta haustið 2016: „Frá 1948, er Hvalur hf.
hóf starfsemi í Hvalfirði hefur hvalur verið skorinn og limaður
í sundur undir berum himni...“.
Kristján Loftsson fór með þessu fram á það, að horfið yrði til
hollustuhátta og hreinlætis, sem tíðkaðist fyrir 70 árum.
Sendi Loftsson svo í viðhengi reglugerð 489/2009, sem hann
hafði alltaf hunzað, þar sem hann hafi fært inn allar þær
breytingar, sem honum hentuðu og hann vildi fá á henni. Strikaði
hann sumt út, breytti öðru. Hafði þetta einfalt.
Þetta var svo eins og við manninn mælt: 10 dögum seinna hafði
nafni hans Þór, ráðherrann, stillt up nýrri reglugerð, nr.
533/2018, skv. uppkasti Loftssonar. Verklagið í ráðuneytinu hafði
þannig nokkuð snúizt við.
Krafan um yfirbyggt og lokað rými breyttist nú í þetta:
„Hvalskurður skal hafinn eins fljótt og auðið er eftir að hvalur
er kominn á land á skurðarfleti með viðeigandi vörnum sem
koma í veg fyrir mengun afurða samkvæmt áhættumati sem
rekstraraðili gerir“. Svona á eftirlit vitaskuld að vera!
Semsagt; góða samstaða og samvinna. Þarna var hreinlætiseftirliti
og hollustuháttum við matvælaframleiðsu einfaldlega kippt 70 ár
aftur í tímann. Það stöðvar fátt tvo Kristjána, enda annar
kenndur við guðinn mikla, hinn reyndar aðeins við loft.
Skyldi það hafa haft eitthvað að segja, að Einar nokkur
Sveinsson, föðurbróðir fjármálaráðherra, varð umsvipað leyti
stjórnarformaður Hvals hf!? Eða, að fleiri af Engeyjarætt eru
hluthafar í Hval? Skyldi orðið klíkuskapur eiga við um þetta
athæfi?