Morgunblaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019
Útlánum Borgar-
bókasafns
Reykjavíkur
fjölgaði um 3,2%
á árinu 2008 mið-
að við árið áður.
Samkvæmt upp-
lýsingum frá
safninu fengu
lánþegar samtals
að láni 705.074
bækur, tímarit,
vínylplötur, geisladiska, DVD-diska
og annað sem var í boði á bókasafn-
inu árið 2018.
Mest fjölgaði bókalánum milli
ára, en lánþegar fengu 6,1% fleiri
bækur lánaðar árið 2018 en 2017,
samtals 705.074 bækur. Lánum á
tónlist fækkaði um 12,8% og lánum
á kvikmyndum og þáttum um 0,7%.
Loks fækkaði lánum á tímaritum
um 3,2%. Lánum á rafbókum fjölg-
aði hins vegar um 103,5% milli ár-
anna 2017 og 2018, en í fyrra voru
samtals 20.063 bækur teknar að
láni á rafrænu formi. Þess má geta
að 53% notenda Rafbókasafnsins
eiga kort hjá Borgarbókasafninu.
Útlánið jókst
Lestölva Nýtist
við lestur rafbóka.
Edda Guðmundsdóttir hefur opnað
10. málverkasýningu sína í Hann-
esarholti. „Edda hóf myndlistar-
nám sitt í Myndmáli Rúnu og var
þar í sex vetur. Undanfarin ár hef-
ur Edda verið í Myndlistarskóla
Reykjavíkur í módelteikningu í
frjálsri málun og nú síðast í vinnu-
stofu í Myndlistarskólanum. Edda
tók einnig námskeið í portrett-
málun hjá David Kassan 2009,“ seg-
ir í tilkynningu.
Sýningin stendur á fjórðu viku og
er opin þriðju-, miðviku- og sunnu-
daga milli kl. 11.30 og 17, en
fimmtu-, föstu- og laugardaga milli
kl. 11.30 og 23.
Edda sýnir málverk
í Hannesarholti
Málverk Edda Guðmundsdóttir.
Hlynur Páll Pálsson hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Íslenska dansflokksins frá og með 20. mars. Hlyn-
ur lauk BA-prófi í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands
og BA-prófi í leiklist frá Listaháskóla Íslands. Hlynur
hefur starfað sem fræðslustjóri Borgarleikhússins frá
2014 auk þess að vera framkvæmdastjóri sviðslista-
hópsins 16 elskendur á sama tímabili. „Hlynur hefur
einnig starfað sem framkvæmdastjóri Reykjavík Dance
Festival, sýningarstjóri í Borgarleikhúsinu og sviðs-
maður hjá Þjóðleikhúsinu auk þess sem hann hefur verið
aðstoðarleikstjóri í fjölda stórsýninga á borð við Mary
Poppins, Billy Elliot og Matthildi,“ eins og segir í til-
kynningu frá Íd.
„Hin mikla og víðfeðma reynsla Hlyns í sviðslistum er mikilsverð fyrir
Íslenska dansflokkinn og erum við full tilhlökkunar að fá hann til liðs við
okkur, hann er sannkallaður happafengur“ er haft eftir Ernu Ómars-
dóttur, listdansstjóra Íd, í sömu tilkynningu.
Nýr framkvæmdastjóri ráðinn hjá Íd
Hlynur Páll
Pálsson
Eins og undanfarin ár tekur i8 gall-
eríið þátt í Armory Show-list-
kaupstefnunni í New York sem hefst
í vikunni og stendur út næstu helgi.
Sýnd verða verk eftir níu af lista-
menn sem galleríið vinnur með, þau
Margréti H. Blöndal, Ólaf Elíasson,
Elínu Hansdóttur, Ragnar Kjart-
ansson, Alicju Kwade, B. Ingrid Ol-
son, Karin Sander, Ignacio Uriarte
og Þór Vigfússon.
Armory Show er haldin á tveimur
yfirbyggðum bryggjum með sýning-
arrýmum sem ganga út í Hudson-
fljótið og þar setja tugir gallería upp
sýningar í afmörkuðum svæðum.
Undanfarin ár hefur samhliða verið
haldin kaupstefna nýrra og minna
þekktra gallería á bryggjunni við
hliðina undir
heitinu Volta.
Fyrir tæplega
þremur vikum
var hins vegar til-
kynnt að vegna
ótraustra undir-
staða annarrar
bryggjunnar þar
sem Armory
Show er venju-
lega haldin, gengi það ekki núna og
var sá hluti kaupstefnunnar færður í
salina þar sem Volta átti að vera og
þeim sýningum aflýst. Olli það tals-
verðum vandræðum, til að mynda
fyrir erlend gallerí sem þegar höfðu
sent verkin sem átti að sýna til New
York.
Verk níu listamanna i8 á Armory Show
Margrét H. Blöndal
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Frönsk stemmning svífur yfir salar-
kynnum Hafnarborgar í hádeginu í
dag. Á slaginu klukkan tólf hefur
Bergþór Pálsson barítónsöngvari
upp raust sína og syngur frægar
franskar aríur við undirleik Antoníu
Hevesi píanóleikara í samfellt hálf-
tíma. Bergþór hefur áður sungið á
hádegistónleikum í menningar- og
listamiðstöð Hafnarfjarðar, sem
haldnir eru fyrsta þriðjudag í mán-
uði á veturna. Antonía er listrænn
stjórnandi og velur ekki aðeins
söngvarana heldur líka efnið, en
vitaskuld í fullu samráði við væntan-
lega flytjendur. Eins og Bergþór.
Hún þurfti ekki beinlínis að pína
hann til þess að syngja á frönsku.
„Nema síður væri,“ segir Bergþór
brosandi og bætir við að hann hafi
haft svolitla hönd í bagga hvað þema
tónleikana áhrærði; Frakkland og
frönsk tónskáld. „Frönsk óperu-
tónlist er ekki mikið flutt hér á landi,
enda tiltölulega fáir sem hafa vald á
tungumálinu. Ég er svo heppinn að
hafa aðeins sautján ára gamall farið
sem skiptinemi til Frakklands þar
sem ég lærði málið. Það er allt öðru-
vísi að læra tungumál svona ungur
þegar tungan er lipur og sveigjanleg
heldur en þegar maður er orðinn
eldri. Síðan hefur mér verið tamt að
syngja á frönsku og finnst það mjög
skemmtilegt.“
Syngur þrjár aríur
Antonía er kynnir á tónleikunum
og útskýrir fyrir áheyrendum sög-
urnar í óperunum sem Bergþór
syngur á sinni fínu frönsku. „Kynn-
ingin er um leið hálfgert skemmti-
atriði og lífgar upp á viðburðinn,“
segir Bergþór og víkur að efnisskrá
tónleikanna:
„Ég syng þrjár aríur og kannski
eitthvað aukalega ef ég kem því við í
svona stuttri dagskrá, sem alls ekki
má teygjast úr. Margir áheyrendur
eru að nota hádegishléð sitt og því
tímabundnir. Aríurnar eru „Söngur
nautabanans“, þekkt lag úr Carmen,
eftir Georges Bizet, „Faust“ eftir
Charles-François Gounod og „Her-
ódes“ eftir Jules Émile Frédéric
Massenet.“
Aríurnar eru úr óperum sem
frönsku tónskáldin þrjú gátu sér
helst frægð fyrir, en þau voru nánast
samtímamenn, öll fædd á nítjándu
öld. Á tónleikunum bregður Bergþór
sér í býsna ólík hlutverk. Hann verð-
ur nautabaninn ástríðufulli Esca-
millo í Carmen, umhyggjusamur
bróðir á leið í stríð sem biður um
vernd Margréti systur sinni til
handa í Faust og loks syngur hann
hlutverk Heródesar í samnefndir
óperu, þar sem þessi konungur Galí-
leu túlkar ást sína til konu sem hann
veit ekki að er dóttir eiginkonu
hans.“
Góð tilbreyting
Bergþór segist einhvern tímann á
söngferlinum hafa sungið brot úr
þessum óperum á tónleikum en aldr-
ei þó í uppfærslu verkanna. Raunar
hafi einungis Carmen verið sett upp
hér á landi. Honum finnst hálftími
feikinógur tími fyrir aríurnar þrjár
ásamt kynningum Antoníu. „Ég er
hrifinn af stuttu tónleikaformi, sem
brýtur upp daginn og er góð til-
breyting fyrir marga. Og þá tala ég
bæði sem flytjandi og áheyrandi því
sjálfur vil ég helst hvorki syngja né
sitja í meira en hálftíma á tón-
leikum,“ segir óperusöngvarinn.
Fleiri virðast sama sinnis því oftast
er húsfyllir á hádegistónleikum
Hafnarborgar, sem kosta ekki
krónu.
Morgunblaðið/Eggert
Franskar og frægar
Bergþór Pálsson og Antonía Hevesi á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag
Frakkland og frönsk tónskáld Þemað á tónleikum
þeirra Bergþórs Pálssonar og Antoníu Hevesi í
Hafnarborg er Frakkland og frönsk tónskáld.
Baldvin Ómar Magnússon
Lögg. Fasteignasali
Sími: 585 0101 – Gsm: 898 1177
baldvin@huseign.is
Suðurlandsbraut 20, 2 hæð, Reykjavík | Sími: 585 0100 | www.huseign.is
Við getum boðið margar gerðir stálgrindarhúsa
með fullmáluðum einangruðum samlokueining-
um, gluggum, glerveggjum og fleira en þetta er
líklegasti ódýrasti byggingarmátinn í dag.
Nú getum við boðið stálgrindarhús frá ýmsum
fyrirtækjum í Evrópu og Asíu á mjög hagstæðu
verði sem uppfylla öll
evrópsk skilyrði.
Við vinnum með kaupanda/arkitekti eða yfir-
verktaka frá fyrstu hugmynd til verkloka. Þannig
verður ódýrasti byggingarmátinn staðreynd.
Hugmyndir af stálgrindarhúsum:
Íþróttahús, verslunarmiðstöðvar, knattspyrnuhús,
skrifstofubyggingar, verksmiðjuhús, gripahús,
íþróttastúkur, brýr og ýmislegt fleira.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Snorrason
í síma 615 2426.
Stálgrindarhús