Morgunblaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 25
Í Svíþjóð unnum við mikið og þétt saman nokkur af Verk- fræðistofunni ásamt félögum öðrum í gegnum verkfræðistof- una HRV. Gistum í sama fjöl- býlishúsi, og fórum samferða í vinnuna á morgnana og að nátt- stað aftur að kvöldi. Finnbogi vildi mæta snemma. Við hin lögðum mörkin við 6.30 og þótti það of snemmt. Finnbogi sættist loks á það, og sagðist þá myndu nýta morgunstundina í hress- ingargöngu á meðan við ungling- arnir svæfum út. Samstarfsfélagar af minni kynslóð (unglingarnir), sem störfuðu á sama fagsviði og Finnbogi, nutu reynslu hans beint inn í sameiginleg verkefni. Þeir eru stoltir af því að vera kallaðir pjakkarnir hans Finn- boga. Því miður get ég ekki stát- að af því að vera einn af pjökk- unum hans Finnboga, pjakkarnir myndu ekki sam- þykkja það, því þó að ég hafi starfað með honum er mitt fagsvið annað en hans. En vinnulag Finnboga og vaskleg framganga er fyrirmynd okkar allra sem höfum notið þeirra for- réttinda að starfa með honum. Hildigunni og fjölskyldu Finnboga vottum við Fjóla okk- ar innilegustu samúð. Eftir Finnboga lifir mannorð mætt. Eggert Vilberg Valmundsson. Finnbogi Höskuldsson kom árið 1973 til starfa hjá Verk- fræðistofu Sigurðar Thoroddsen (nú Verkís) og starfaði þar alla tíð síðan. Hann kom beint frá námi í Danmörku í véltækni- fræði við DTU (Tækniháskóla Danmerkur). Hann var einn af hópi tæknimanna sem komu til starfa á þessum tíma og mynd- uðu sterkan kjarna í starfsliði fyrirtækisins. Finnbogi var fjölhæfur tækni- maður. Vélahönnun, lagnakerfi, vatnsúðakerfi og brunahönnun ásamt umsjón tölvukerfa og for- ritun varð aðalstarfsvettvangur hans. Hann gerðist fljótlega hluthafi í verkfræðistofunni og tók þátt í uppbyggingu hennar og rekstri. Hönnun lagnakerfa ásamt flutningakerfum var sérsvið Finnboga síðustu ár og naut hann mikils álits á því sviði bæði innan stofunnar, hjá samstarfs- aðilum og viðskiptamönnum, en þeir sóttust eftir Finnboga í hin vandasamari og stærri verkefni. Finnbogi var farsæll í starfi og verkin hans standa sem vitn- isburður um mikla fagmennsku. Hann skoðaði öll verk niður í kjölinn. Hann skilgreindi öll vandamál og leysti þau. Öll verk hans voru traust og vönduð. Hann reyndi ávallt að leita lausna sem voru hagkvæmar og auðveldar í framkvæmd. Í stóriðjuverkefnum seinni ár- in var hann bakhjarl yngri manna í hönnun og smíði flók- inna lagna- og flutningskerfa. Reynsla og yfirsýn Finnboga nýttist fyrirtækinu vel. Flókin verkefni uxu honum aldrei í aug- um en hann réðst að þeim með skipulegum og yfirveguðum hætti. Eitt helsta einkenni Finn- boga var hve drífandi og áhuga- samur starfsmaður hann var. Þeir sem unnu með honum smit- uðust gjarnan af krafti hans og elju. Okkur vinnufélögum leið vel að vinna með honum í verkefn- um og hann hafði góða nærveru. Honum var gefið mikið andlegt atgervi sem hann nýtti sér vel en hann var vinnusamur og af- kastamikill og duglegur við að mennta og þjálfa yngri starfs- menn fyrirtækisins. Við sjáum á bak traustum og góðum félaga og söknum hans, en geymum minningu um mik- inn afbragðsmann. Fráfall Finn- boga kom ekki á óvart en hann hafði um eins árs skeið glímt við erfið veikindi. Við, félagar og samstarfs- menn Finnboga hjá Verkís, sendum Hildigunni og fjölskyld- unni okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Fyrir hönd samstarfsmanna og vina hjá Verkís, Níels Guðmundsson og Kristján G. Sveinsson. það hlutverk að leiða íslenskt sjónvarp af stað fyrstu skrefin og þar varð til sá hópur sem hér sendir hinstu kveðju. Svala Thorlacius var fyrsta fréttakon- an í sjónvarpinu og sinnti því starfi með sóma, jafnt í þorska- stríðum sem öðru, þar til hún gekk til liðs við Gylfa sinn á lögmannsstofunni sem varð þeirra starfsvettvangur æ síðan. Vinahópurinn okkar samanstóð af fimm hjónum og markmiðið var fyrst og fremst að njóta vin- áttunnar og lífsins, góðs matar og menningar, oftar en ekki undir glettinni en traustri leið- sögn Gylfa. Dýrlegar veislur í heimahúsum með föstu sniði, dvalir í sumarhúsum þar sem gítar var gjarnan til staðar, en einnig fróðleiksferðir um landið á sumrin, helgarferðir til ná- lægra stórborga með leikhús- upplifun, að ógleymdum ævin- týralegum skútusiglingum um Karíbahaf, í fyrstu undir hand- leiðslu kapteins Gylfa, en af þeim siglingum eru miklar sögur. Gylfi var bæði gaman- samur og glettinn, en jafnframt formfastur og traustur. Hann var bóngóður og greiðvikinn og til hans var gott að leita ef eitt- hvað bar útaf. Hann var klett- urinn bæði í vinahópnum og líf- inu öllu. Fráfall Gylfa er annað höggið í þennan litla félagsskap, en Ólafur Ragnarsson, frétta- maður og bókaútgefandi, kvaddi okkur fyrir nær 11 árum. Þeir voru uppspretta ógleymanlegra uppátækja og gríns sem létti manni lundina í erli dagsins. Þeir eiga vonandi góðar sam- vistir á öðrum stað. Vináttan hefur verið okkur öllum mikils virði, hún léttir þyngstu stund- irnar og minningarnar lifa. Fyrir rúmum mánuði áttum við yndislegt kvöld saman þar sem Gylfi sat í öndvegi og nærvera hans var okkur öllum dýrmæt. Við þökkum honum samfylgdina og allar góðu stundirnar og ósk- um Svölu og fjölskyldunni blessunar á erfiðum tímum. Ása og Jóhannes, Elín, Björg og Troels, Þóra og Björn. Gylfi Thorlacius, hæsta- réttarlögmaður og einn eigenda Fortis lögmannsstofu, er nú fallinn frá. Ég hef starfað á Fortis, hjá Gylfa, Svölu, Sif og Kristjáni, sl. níu ár. Ég byrjaði hjá þeim rétt áður en ég lauk laganámi og komst fljótt að því að ég væri í góðum höndum. Gylfi var frá- bær yfirmaður og það var ómet- anlegt að stíga fyrstu skrefin í lögmennsku undir handleiðslu jafn reynslumikils lögmanns og hans. Hvort sem það varðaði vinnutengd málefni eða eitthvað annað, þá var alltaf gott að leita til Gylfa. Hann var boðinn og búinn til að hjálpa og hann hafði mikil áhrif á hvernig ég sinni starfi mínu í dag. Gylfi var mjög skemmtilegur og það var alltaf líf og fjör í kringum hann. Upp í hugann koma fjöldamargar gamansög- ur, ýmsar rökræður um málefni líðandi stundar og stöku fyr- irlestrar um réttarreglur er gilda um víxla og tékka – sem hann hafði einstaklega gaman af að flytja fyrir unga lögmenn. Gylfa verður sárt saknað af okkur starfsfólkinu á Fortis. Við þökkum honum fyrir far- sælt og ánægjulegt samstarf og sendum Svölu og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Tinna Björk Gunnarsdóttir. Atvinnuauglýsingar Fyrsti vélstjóri Fyrsti vélstjóri óskast til afleysingar á skuttogarann Múlaberg SI 22 sem gerður er út frá Siglufirði. Óskað er eftir réttindamanni en stærð aðalvélar er 1325 kW. Umsókn má senda á ragnar@rammi.is Fundir/Mannfagnaðir ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Hádegisfundur SES Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, verður gestur á hádegisfundi SES á morgun, miðvikudaginn 6. mars kl. 12:00, í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Húsið opnað kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 1000 krónur. Allir velkomnir. Stjórnin Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Stólajóga kl. 9.30. Göngu- ferð kl. 10.15. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. NÝTT NÁM- SKEIÐ vatnslitun fyrir byrjendur með leiðbeinanda kl. 13, kostar ekkert. Bíó í miðrými kl. 13.20. Kaffi kl. 14.30-15.20. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Guðmundi kl. 10. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leið- beinanda kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MSfræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Botsía kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 13. Brids og kanasta kl. 13. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14. Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Saltkjöt og baunir, harmónikkuleikur söngur og gaman. Verið velkomin. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Fastir liðir eins og venjulega. Spekingar og spaugarar kl. 10.45-11.45. Tölvu- námskeið kl. 13.10. U3A kl. 16.30. Góugleði Hollvina haldin þann 7. mars kl. 13.30-16, skráning stendur yfir og lýkur kl. 12 þann 6. mars. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Kl. 11 stólaleikfimi. Kl. 13 opin hand- verksstofa. Kl. 14.50 landið skoðað með nútímatækni. Kl. 14.30 kaffi- veitingar. Allir velkomnir! Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9. Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30. Tréskurður/smíði í Smiðju kl. 9/13. Félags- vist í Jónshúsi kl. 20. Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara er í Grafarvogskirkju kl. 13 til 16 alla þriðjudaga. Fyrir opna húsið er helgi- og fyrirbæna- stund kl. 12 þar sem öllum er frjálst að mæta og svo er súpa og brauð í boði fyrir vægt gjald þar á eftir. Hér er fjölbreytt dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við hæfi. Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9, botsía kl. 9.30, málm / silfurmíði / kanasta / tréskurður kl. 13. Leshópur kl. 20. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11.30, 1340 kr. mánuðurinn, allir velkomnir og kostar ekkert að prufa. Hádegismatur kl. 11.30. Bónus- bíllinn kl. 12.15. Spjallhópur kl. 13, notaleg og skemmtileg samvera, allir eru velkomnir að vera með. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hraunsel Kl 9 dansleikfimi, kl. 10 qi-gong, kl. 13 brids. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, helgistund kl. 14 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Listmálun með Marteini kl. 9 í Borgum og botsía kl. 10 og 16 í Borgum. Helgistund kl. 10.30 í Borgum og leikfimshópur Korpúlfa með Ársæl í Egilshöll kl. 11 í dag. Sundleikfimi með Brynjólfi kl. 13.30 í Grafarvogssundlaug, heimanámskennsla kl. 16.30 í Borgum. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með leiðbeinanda kl. 13-16, kaffihúsaferð kl. 14, tölvu- og snjalltækja- kennsla kl. 16. Uppl. í s. 4112760. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn- um kl. 10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Lomber á Skólabraut kl. 13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Karla- kaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Síðasti skráningardagur vegna skemmtunarinnar í salnum á Skólabraut á morgun. Hefst kl. 17.30. Skráning í síma 8939800. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka- bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Skák kl. 13, allir velkomnir. Félagslíf  EDDA 6019030519 II Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. BátarBílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Smá- og raðauglýsingar Aðalfundur Stjórn Samkaupa hf. boðar hér með til aðalfundar í félaginu fyrir rekstrarárið 2018. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 13. mars 2019 kl. 15.00 á skrifstofu félagsins að Krossmóa 4a, 260 Reykjanesbæ. Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr. samþykkta félagsins. Auk þess verða lagðar fyrir fundinn tillögur um breytingar á samþykktum félagsins, m.a. vegna ákvörðunar stjórnar um að taka hluta- bréf í Samkaupum hf. til rafrænnar skráningar hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð. Þá verður lögð fyrir fundinn tillaga um að félagið megi eignast og eiga allt að 10% hluta- fjár í félaginu í 3. ár Stjórn Samkaupa hf. Vantar þig pípara? FINNA.is MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.