Morgunblaðið - 05.03.2019, Page 8

Morgunblaðið - 05.03.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019 Óttar Guðmundsson læknir skrif-ar oft grípandi bakþanka í Fréttablað. Nú síðast lýsti hann þekktum samningalotum fortíðar:    Eftir ströng verk-föll Dagsbrún- armanna og nokk- urra annarra stéttarfélaga var samið um kaup- hækkun. Þá fór af stað mikil skriða launahækkana allra þeirra sem setið höfðu hjá. Eftir nokkurt þref var samið við önnur fé- lög og launamunurinn í samfélaginu hélst óbreyttur.    Launahækkun hinna lægstlaun-uðu hvarf snarlega á verð- bólgubálið og allt var sem fyrr. Þetta kölluðu alvarlegir en gáfuleg- ir hagfræðingar víxláhrif kaup- gjalds og verðlags. Það er ekki að ófyrirsynju að Megas orti um launa- baráttu fyrri aldar:    Gakktu í Dagsbrún og gamna þérvið,/að geta uppá næstu stór- sóknarfórn,/hjá Gvendi,/hvaða Gvendi,/stórsóknarfórn hjá Gvendi Jaka.“    Sigur alþýðunnar fólst í blóðugumfórnum Dagsbrúnarmanna sem komu uppmælingaraðlinum til góða. Orðið stórsóknarfórn var valið eitt besta nýyrði 20. aldarinnar enda sorglega lýsandi fyrir baráttu verkalýðsfélaganna.    Nú er enn á ný blásið til stórsókn-arfórnar með slagorðum og baráttumálum frá árinu 1955. Menn ætla að hækka laun hinna lægstlaun- uðu með blóðugum verkfalls- aðgerðum.    Stundum finnst mér ég verastaddur í tímavél.“ Óttar Guðmundsson Stórsóknarfórn STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Tvö skip kanna nú göngu loðnunnar með suðurströndinni og hvort bæst hefur við frá því að rúmlega 200 þús- und tonn mældust úti fyrir Aust- fjörðum í loðnuleiðangri nýlega. Fréttir hafa borist af loðnu fyrir sunnan land og norðan undanfarið, en nú líður að þeim tíma að loðnan ætti að fara að nálgast hrygningu í Faxa- flóa og Breiðafirði. Hver dagur er því dýrmætur ef leyfa á einhverja veiði í vetur. Fregn- ir bárust fyrir helgi um lóðningar austur af Eyjum og austur með Suð- urlandi. Í ljósi tímasetningarinnar var ákveðið að Polar Amaroq færi til leitar á sunnudag og byrjaði sína yf- irferð við Reykjanes. Ásgrímur Hall- dórsson fór frá Hornafirði síðdegis í gær og hélt vestur á bóginn með suð- urströndinni. „Við töldum rétt að bregðast við þessum fréttum og fara eins hratt af stað og við gætum til að kanna hvort eitthvert ósamræmi væri á milli þess sem við höfum áður mælt og þessara frétta,“ sagði Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri á uppsjávarsviði Hafrann- sóknastofnunar. Hann segir að lokið verði við vöktun á suðursvæðinu þar sem gangan er á hefðbundinni göngu- slóð áður en Polar fer vestur fyrir land til að kanna mögulega vest- angöngu og síðan austur með Norð- urlandi. aij@mbl.is Brugðist við fréttum af loðnunni  Tvö skip vakta suðurströndina Ljósmynd/Eyjólfur Vilbergsson Polar Amaroq Á loðnuveiðum í fyrravetur, nú er það loðnuleit. Séra Sigurður Pálsson lést 2. mars á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, 82 ára gamall. Hann fæddist 19. september 1936 í Reykjavík, sonur Páls Sigurðssonar prentara og Margrétar Þorkels- dóttur húsfreyju. Sigurður lauk kenn- araprófi og söngkenn- araprófi frá Kenn- araskóla Íslands 1957, BA-prófi í kristnum fræðum og uppeld- isfræði, ásamt kennsluréttindum, frá Háskóla Ís- lands (HÍ) 1977. Cand. theol. frá HÍ 1986 og lauk doktorsprófi í mennt- unarfræði frá Kennaraháskóla Ís- lands (KHÍ) 2008. Hann kenndi við Breiðagerðis- skóla 1957-69, var lögregluþjónn sumurin 1961-68, skrifstofustjóri hjá Ríkisútgáfu námsbóka 1969-77, stundakennari við MR 1979-82, við KHÍ 1979-2010 og guðfræðideild HÍ 1994-2010, námstjóri í kristnum fræðum og fíknivörnum 1977-84, deildarstjóri námsefnisgerðar hjá Námsgagnastofnun 1984-86 og for- stöðumaður námsefnissviðs 1987-90. Sigurður vígðist prestur 1988, var settur sóknarprestur í Hallgríms- sókn í tæpt ár og aftur um skeið 1993, framkvæmdastjóri Hins ís- lenska biblíufélags (Híb) 1990-97 og sókn- arpestur í Hallgríms- kirkju 1997-2006. Hann sat í stjórn Listvina- félags Hallgrímskirkju 1992-97, í stjórn Híb 1998-2012, var í þýðing- arnefnd Gamla testa- mentisins 1990-2007 og kjörinn heiðursfélagi í Híb 2015. Sigurður sat í stjórn KFUM í Reykja- vík 1974-86 og var for- maður 1978-84 og 1985- 86, var í samstarfs- nefnd kristinna trúfélaga 1979-84, í stjórn Kristilegu skólahreyfingarinnar 1979-82, í stjórn Kristilegra skólasamtaka (KSS) 1964-78, stjórnandi Æsku- lýðskórs KFUM og KFUK 1972-78, safnaðarfulltrúi í Nessókn 1972-77, tók þátt í barna- og unglingastarfi KFUM í Reykjavík 1951-72, formað- ur Stéttarfélags barnakennara í Reykjavík 1968-69 og formaður KSS 1955-57. Hann samdi fjölda kennslu- rita í kristnum fræðum og ritaði sögu Hallgrímskirkju í Reykjavík. Sigurður kvæntist Jóhönnu G. Möller, söngkonu, 1957. Þau eign- uðust Ágústu Helgu lögfræðing (d. 1990) og Margréti Kristínu, tónlist- arkonu, leikkonu og kennara. Barnabörnin eru fimm og barna- barnabörnin þrjú. Andlát Séra Sigurður Pálsson Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.