Morgunblaðið - 05.03.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019
FYRIR HÆSTARÉTTI (HIGH COURT OF JUSTICE) nr. CR-2018-007982
VIÐSKIPTA- OG EIGNADÓMSTÓLUM Í ENGLANDI OG WALES
FYRIRTÆKJADÓMSTÓL (ChD)
VARÐANDI AVIVA LIFE & PENSIONS UK LIMITED
-og-
VARÐANDI FRIENDS FIRST LIFE ASSURANCE COMPANY DAC
-og-
VARÐANDI THE FINANCIAL SERVICES AND MARKETS ACT 2000
HÉR MEÐ TILKYNNIST, í samræmi við kafla 114(2) í lögunum Financial Services and Markets Act
2000 („lögunum“), að þann 20. febrúar 2019 var gefin út tilskipun frá Hæstarétti (High Court of
Justice) í Lundúnum samkvæmt 111. kafla laganna um staðfestingu áætlunar („áætlunarinnar“)
um flutning frá Aviva Life &PensionsUKLimited („UKLAP“) til Friends First Life AssuranceCompany
dac („FFLAC“) á: (i) öllum rekstri sem UKLAP stofnar til eða framfylgir í útibúum UKLAP í Belgíu,
Frakklandiog Írlandiog (ii) tilteknumöðrumrekstri semUKLAPstofnar til eða framfylgirágrundvelli
frelsis þjónustu í Belgíu, Frakklandi, lýðveldinu Írlandi, Íslandi, Svíþjóð ogÞýskalandi.
Áætlað er að áætlunin taki gildi kl. 22:59 (GMT), 29.mars 2019.
Hvaðvarðar tryggingarsemheyraundir rekstursemflutturersamkvæmtáætluninni teljastEES-ríki
önnur enBretland vera ríkið þar sem samningurinn er gerður (í skilningi kafla 114(2) í lögunum) og
tryggingataki hefur rétt á að segja upp tryggingunni samkvæmt áætluninni og lögum viðkomandi
EES-ríkis innan 21 dags frá útgáfudegi þessarar tilkynningar í EES-ríkinu (eða, eftir atvikum, innan
þess tímabils sem tiltekið er í lögumEES-ríkisins).
Ef spurningar vakna um flutninginn eða uppsagnarrétt, eða ef frekari upplýsinga er þörf, má hafa
samband við okkur í símanúmerið eða heimilisfangið hér að neðan:
Samskiptaupplýsingar fyrir UKLAP:
Heimilisfang: Aviva TransferMailing (BAU J)
POBox 3661
NORWICH
NR1 3JF Bretlandi
Símanúmer: +44 (0) 1603 606388
Vefsíða:https://transfer.aviva.com/life
Samskiptaupplýsingar fyrir FFLAC:
Heimilisfang: Customer Services
Department, (Transfer Mailing) Friends First
House
Cherrywood Business Park, Loughlinstown
Dublin 18, Írlandi
Símanúmer: +353 (0) 1 618 6816
Vefsíða: https://transfer.aviva.com/life
Fallegar tækifærisgjafir
U
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Síðar peysur
Kr. 5.990
Str: S-XXL
Litir: Svart, dökkblár, rauður og offwhite
„Við ætluðum aðeins að vera með tvö
námskeið þegar við byrjuðum vorið
1996 en eftirspurnin var svo mikil að
ég hélt áfram. Ég hef raunar oft ætl-
að að hætta en alltaf er verið að
hringja og spyrja
og ekkert lát hef-
ur orðið á því,“
segir Þórhallur
Heimisson, prest-
ur og ráðgjafi,
sem haldið hefur
hjónanámskeið í
23 ár. Hafa 10
þúsund pör sótt
námskeiðin.
Fyrsta vorið
voru Guðný Hall-
grímsdóttir og Halla Jónsdóttir með
honum í námskeiðahaldinu en hann
hefur síðan staðið fyrir þeim einn.
Námskeiðin eru haldin á höfuðborg-
arsvæðinu en hann hefur einnig far-
ið með þau út á land og til annarra
norrænna landa. Í tilefni af þessum
tímamótum hyggst hann fara hring-
ferð um landið næsta haust, eins og
hann gerði nokkrum sinnum fyrstu
árin, og bjóða upp á námskeið í Vest-
mannaeyjum, á Höfn í Hornafirði,
Egilsstöðum, Akureyri, Ísafirði og
ef til vill víðar.
„Efnið hittir í mark. Ég hef aldrei
fengið kvörtun frá fólki. Efnið er
þannig að það veltur mikið á pör-
unum sjálfum, hvernig þau vinna að
málum. Ef þetta gengi illa væri ég
löngu hættur,“ segir Þórhallur.
Árangurinn mældur í því
hvernig fólk heldur áfram
Hann segir að árangurinn sé ekki
mældur í fjölda para sem ákveða að
halda áfram sambandi sínu. „Árang-
urinn er mældur í því hvernig fólk
heldur lífinu áfram, hvort sem það
ákveður að halda áfram sambúð,
hamingjusöm, eða sitt í hvoru lagi.
Þótt þau ákveði að skilja þarf ekki að
verða heimsendir og mikilvægt fyrir
þau að finna leiðir til að lífið verði
gott, meðal annars fyrir börnin ef
þau eru með í spilinu,“ segir Þórhall-
ur.
Hjónanámskeiðin eru aðeins fyrir
pör, eins og heitið gefur til kynna, en
Þórhallur býður einnig upp á hlið-
stæð námskeið fyrir einhleypt fólk:
10 leiðir til að lifa lífinu lifandi.
helgi@mbl.is
10.000 pör á
hjónanámskeið
Sr. Þórhallur fer hringferð um landið
Þórhallur
Heimisson
Opnunarathöfn verkefnisins „Sjúk-
ást“ var haldin í gær og snýr það að
fræðslu um mörk, samþykki og
kynferðislega áreitni. Á næstu
tveimur vikum munu 4.500 ungling-
ar á aldrinum 13-15 ára fá slíka
fræðslu og verður hún um allt land,
að því er segir í fréttatilkynningu
Stígamóta. Fræðslan er unnin í
samstarfi við samtök félagsmið-
stöðva og ungmennahúsa á Íslandi,
Samfés.
Viðstödd athöfnina voru fulltrú-
ar femínistafélaga úr átta fram-
haldsskólum, en 17 skólar taka þátt
í verkefninu og munu nemendur
safna sögum um óheilbrigð sam-
bönd frá skólafélögum og fræða
samnemendur. Þá verður einnig
sett af stað undirskriftasöfnun með
það að markmiði að auka kynja-
fræði í skólunum.
Fjöldi nemenda
fræðist um sambönd
Ljósmynd/Eygló Árnadóttir
Sjúkást Fræðsluverkefni um óheilbrigð og
heilbrigð sambönd var hrint af stað í gær.
David Malpass, aðstoðarfjár-
málaráðherra Bandaríkjanna,
fundaði í gær með Guðlaugi Þór
Þórðarsyni utanríkisráðherra og
ráðherrum annarra norrænna
landa og Eystrasaltsríkja í kjör-
dæmi Alþjóðabankans. Malpass er
frambjóðandi Bandaríkjanna í
stöðu forseta bankans. Ísland tekur
sæti í stjórn Alþjóðabankans í sum-
ar fyrir hönd kjördæmisins sem
hefur eitt atkvæði af 25 í stjórn
bankans sem tekur ákvörðun um
nýjan forseta.
Á fundinum kynntu Norðurlönd
og Eystrasaltsríkin þau málefni
sem ríkin átta leggja áherslu á í
málflutningi sínum innan Alþjóða-
bankans, að því er fram kemur í til-
kynningu utanríkisráðuneytisins.
Þau eru einkum á sviði jafnréttis-
mála, mannréttinda og loftslags- og
auðlindamála, auk málefna sem
lúta að viðkvæmum og óstöðugum
ríkjum. Þá leggja löndin áherslu á
að bæta mannauð í þróunarríkjum
og að Alþjóðabankinn verði leið-
andi á alþjóðavettvangi á sviði
efnahags- og þróunarmála.
Ráðherrar funduðu um Alþjóðabankann
Ljósmynd/Utanríkisráðuneyti
Ráðherrar Guðlaugur Þór Þórðarson og
David Malpass ræddu saman.