Morgunblaðið - 13.03.2019, Side 4

Morgunblaðið - 13.03.2019, Side 4
SVIÐSLJÓS Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Dómur frá Mannréttindadómstóln- um er dómur frá alþjóðlegum dóm- stóli og hann fjallar um brot á þjóð- réttarskuldbindingum Íslands, en hann breytir í engu dómum, ákvörð- unum eða lögum sem sett hafa verið hér á landi,“ svarar Björg Thoraren- sen, prófessor við lögfræðideild Há- skóla Íslands, spurð um mögu- legar afleiðingar dóms Mannrétt- indadómstóls Evr- ópu (MDE) í máli sem Guðmundur Andri Ástráðsson höfðaði gegn ís- lenska ríkinu vegna skipunar dómara við Landsrétt. Dóm- urinn, sem birtur var í gærmorgun, sneri einkum að skipun Arnfríðar Ein- arsdóttur í embætti dómara við Landsrétt, en hún dæmdi í máli Guð- mundar Andra. Auk Arnfríðar voru þau Ásmundur Helgason, Jón Finnbjörnsson og Ragnheiður Bragadóttir skipuð dóm- arar í því ferli sem MDE hefur með dómi sínum sagt frábrugðið ákvæðum laga um skipun dómara, sem þeir segja brot gegn ákvæðum mannrétt- indasáttmála Evrópu. Endurupptaka Björg segir dóminn varpa fram spurningum um þau mál sem þessir dómarar við Landsrétt hafa dæmt í og jafnvel í víðara samhengi. Þá segir hún að ekkert gerist sjálfkrafa hvað það varðar, heldur þurfa málsaðilar í hverju máli fyrir sig að taka ákvörðun um að fara fram á endurupptöku og senda beiðni þess efnis til endurupp- tökunefndar. Nefndin mun síðan meta beiðnina og taka afstöðu til hennar. „Aðilar máls verða að vega og meta það hver fyrir sig hvaða líkur séu á því að fá einhverja aðra niðurstöðu ef mál- ið verður endurupptekið og dæmt af öðrum dómurum,“ útskýrir prófessor- inn. Hún segir jafnframt að það sé ekkert sem gefur til kynna að efnisleg niðurstaða Landsréttar í máli Guð- mundar Andra hafi verið einhver önn- ur vegna setu þessa tiltekna dómara. „Það þarf að fara yfir þennan dóm vel og kannski fyrst og fremst að skoða framhaldið. Sérstaklega hvaða áhrif þetta hefur á þessa fjóra dómara og hvernig það stenst kröfur MND að þeir dæmi áfram í málum,“ segir Björg sem bendir jafnframt á að málið snúi ekki að brotum á ákvæði um rétt til réttlátrar málsmeðferðar, heldur að skipun dómstóla skuli ákveðin með lögum. Ekki á grundvelli laga Í málinu sem höfðað var gegn ís- lenska ríkinu er meðal rökstuðnings málshefjanda að honum hafi ekki ver- ið tryggð réttlát málsmeðferð þar sem skipun dómara hafi ekki verið rétt- mæt. Fram kemur í dómi MDE að ekki hafi verið talin ástæða til þess að skoða umkvörtunarefni er snýr að réttlátri málsmeðferð þar sem ljóst sé að ferlið við skipun dómara við Lands- rétt hafi verið ólöglegt. Rök íslenska ríkisins voru þau að Hæstiréttur Ís- lands hefði vissulega gert athuga- semdir við skipunarferlið, en að dóm- stólinn hefði ekki dregið í efa lögmæti skipunarinnar. Þessu hafnaði MDE undir þeim formerkjum að augljóst var að þegar ráðherra breytti tilnefn- ingarlista um dómara hafi það ekki samræmst gildandi lögum. Jafnframt hafi það verið „skýlaust brot“ af hálfu framkvæmdavaldsins þegar það beitti valdi sínu með óhóflegum hætti í þeim tilgangi að komast hjá þeim vilja sem löggjafinn hafi sett í ákvæði um skipan dómara, að því er segir í dómi MDE. Dómurinn segir einnig ljóst að Al- þingi hafi ekki tryggt réttmæta þing- lega meðferð þegar ákveðið var að greiða atkvæði um skipun 15 dómara við Landsrétt í einu lagi, en ekki um hvert embætti. Fimm þeirra sjö dómara sem dæmdu í málinu segja í rökstuðningi sínum fyrir dómnum að þeir hafi verið knúnir til þess að dæma málshefjanda í vil þar sem ákvæði mannréttinda- sáttmálans um að dómarar skuli skip- aðir á grundvelli laga sé afdráttar- laust. Sögðu þeir andstæða niðurstöðu til þess fallna að draga úr vægi ákvæð- isins og jafnvel gera það merkingar- laust. Frestuðu málum „Þau mál sem eru í þessari viku sem þessir dómarar sem um ræðir hafa að- ild að, þeim málum hefur verið frest- að,“ hafði mbl.is eftir Birni L. Bergs- syni, skrifstofustjóra Landsréttar í gær. Hann sagði einnig að sett hefði verið í gang vinna við að greina hvað felist í dómi MDE. Í gærkvöldi var greint frá því að engir dómar verði kveðnir upp í Landsrétti í þessari viku. „Mér finnst ekki óeðlilegt að menn vilji fara betur yfir málið til þess að átta sig betur á því hvað felst í þessum dómi og í því ljósi eðlilegt að taka slíka ákvörðun sem hefur ekki beinar af- leiðingar, en gefur andrými til þess að fara yfir stöðuna,“ segir Björg, spurð hvernig hún meti ákvörðun Lands- réttar. Ekki á einu máli Sjö dómarar MDE dæmdu í mál- inu, en tveir þeirra, Paul Lemmens, forseti dómsins, og Valeriu Gritco skil- uðu séráliti. Sagði minnihlutinn dóm- inn umfram tilefni og að of mikilli hörku væri beitt við túlkun málsat- vika. „Flugstjórinn í málinu (dóms- málaráðherra og síðar þingið) gerði mistök undir stýri, en það er ekki næg ástæða til þess að skjóta niður flugvél- ina (Landsrétt),“ segir í sérálitinu. Einnig segir minnihlutinn dóminn brot á nálægðarreglu er snýr að því að leita skuli úrlausn mála á lægsta mögulegu dómsstigi. „Okkar skoðun er sú að þeir hunsa gildi nálægðar- reglunnar, með því að hunsa mat hæsta dómstóls landsins [Hæstarétt- ar Íslands] á viðeigandi innlendum lögum. Matið var gert í sambandi við tilnefningarferlið, sem vissulega hafði einhverja annmarka, en var að mestu leyti í samræmi við gildandi lög.“ Þá gagnrýnir minnihluti dómaranna að- ferðafræði meirihlutans um að líta fram hjá þeim þætti er snýr að rétt- látri málsmeðferð. Pandóru-box Dómararnir tveir segja meirihlut- ann með niðurstöðu sinni opna pan- dóru-box, sem felur í sér að einstak- lingar sem hljóta dóm geti dregið í efa lögmæti dóma á grundvelli þátta sem tengjast ekki málsmeðferðinni. Held- ur útfærslu við skipan dómara og að þær athugasemdir hafi engar tak- markanir. Þá er meirihlutinn sakaður um að notast við veika skilgreiningu á því sem hann kallar „skýlaus brot“ og að sú aðferð sem liggur að baki sé röng leið til þess að nálgast málið. Fram kemur í sérálitinu að mat minnihlut- ans sé að þó svo að aðferð meirihlut- ans væri rétt hafi henni ekki verið beitt með réttum hætti. „Við erum meðvitaðir um þá stað- reynd að [tilnefningar]ferlið varð að mikilli pólitískri deilu [á Íslandi],“ segja Lemmens og Gritco í áliti sínu og vísa til þeirrar vantrauststillögu sem lögð var fram á Alþingi gegn Sig- ríði Andersen dómsmálaráðherra. Segjast dómararnir óttast „að uppþot- ið sem fylgdi skipun fimmtán dómara við nýtt millidómstig á Íslandi hafi ekki bara fundið bergmál í niðurstöð- um dómsins, einnig hefur röksemda- færsla meirihlutans vikið frá viður- kenndri meginreglu Mannréttinda- dómstólsins,“ segir í álitinu. Engar sjálfkrafa afleiðingar  Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu hefur ekki beina verkan á dóma Landsréttar  Undir málsaðilum komið að biðja um endurupptöku  Dómara dómstólsins greinir á um túlkun ákvæða Morgunblaðið/Eggert Mótmælt á Austurvelli Ungliðahreyfingar stjórnarandstöðuflokka og „gulu vestin“ kröfðust afsagnar Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra í kjölfar dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu í gær. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 Veður víða um heim 12.3., kl. 18.00 Reykjavík 5 léttskýjað Hólar í Dýrafirði 1 skýjað Akureyri 2 rigning Egilsstaðir 1 slydda Vatnsskarðshólar 8 léttskýjað Nuuk -9 léttskýjað Þórshöfn 5 rigning Ósló -1 snjókoma Kaupmannahöfn 4 rigning Stokkhólmur -1 heiðskírt Helsinki -3 snjókoma Lúxemborg 9 heiðskírt Brussel 10 rigning Dublin 7 rigning Glasgow 5 rigning London 4 skúrir París 12 alskýjað Amsterdam 8 rigning Hamborg 7 rigning Berlín 8 léttskýjað Vín 7 léttskýjað Moskva -2 snjóél Algarve 19 heiðskírt Madríd 21 heiðskírt Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 15 léttskýjað Róm 14 rigning Aþena 14 rigning Winnipeg -6 þoka Montreal -3 léttskýjað New York 3 alskýjað Chicago 5 léttskýjað Orlando 22 alskýjað  13. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:54 19:22 ÍSAFJÖRÐUR 8:01 19:25 SIGLUFJÖRÐUR 7:44 19:08 DJÚPIVOGUR 7:24 18:51 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á fimmtudag Suðaustlæg átt, 8-15 m/s, hvassast á annesjum. Dálítil slydda eða snjókoma á Vesturlandi, rigning með köflum með suðurströndinni, en annars úrkomulítið. Hiti víða 0 til 4 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt 5-10 m/s og stöku él. Gengur í austan og suðaustan 10-20 með snjókomu eða rigningu sunnan- og vestanlands eftir hádegi og hiti nálægt frostmarki. Raumgestalt bretti Verð frá 2.900 kr. laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Samkvæmt reglum um málsmeðferð Mannréttinda- dómstóls Evrópu hefur íslenska ríkið þrjá mánuði til þess að vísa málinu til yfirréttar MDE. Sigríður Andersen dómsmálaráðherra sagði í samtali við mbl.is í gær að verið sé að fara yfir dóminn innan ráðuneytis hennar og skoðað hvort því verði vísað til yf- irréttar. Vakti það athygli ráðherrans að dómurinn sé klofinn og sagði hún dóminn fordæmalausan. Píratar sendu frá sér tilkynningu fljótlega eftir að dómurinn var birtur í gær og kölluðu eftir afsögn dóms- málaráðherra. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, tók í sama streng og sagði Sigríði ekki stætt að halda áfram í sínu starfi. Segir dóminn fordæmalausan HAFA ÞRJÁ MÁNUÐI TIL ÞESS AÐ VÍSA MÁLINU TIL YFIRRÉTTAR Sigríður Á. Andersen Björg Thorarensen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.