Morgunblaðið - 13.03.2019, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
ALLT Í BAÐHERBERGIÐ
Tengi hefur mikla og góða reynslu af niðurföllunum frá Unidrain.
Unidrain eru margverðlaunuð dönsk hágæðahönnun.
Ólafur Ingi Brandsson fagnar 50 ára afmæli sínu í dag. Hann ernýkominn heim frá Lancaster í Pennsylvaníu þar sem hannkeppti í bogfimi, nánar tiltekið með berboga. „Berbogi er eins
og ólympískur bogi eða sveigbogi eins og hann kallast, mínus allt
aukadótið, sigti og stangir. Maður notar semsagt engin hjálpartæki
með berboganum.“
Ólafur á Íslandsmetið í berboga, bæði innanhúss og utanhúss, en
það er samt örstutt síðan hann hóf að stunda íþróttina. „Það var 10.
janúar 2018, korter yfir átta um kvöldið. Ég hef verið viðloðandi vík-
ingafélagið Rimmugýgi og fór á bogifimiæfingu með þeim þá um
kvöldið og kolféll fyrir þessu og hef verið heltekinn af íþróttinni
síðan.“
Hann keppti á móti í Sviss síðastliðið sumar og hlaut tvö silfur og
eitt brons og í keppninni í Bandaríkjunum lenti hann í 69. sæti af 190
keppendum. „Margar af bestu berbogaskyttum heims voru á því móti
og ég er bara búinn að stunda íþróttina í ár svo þetta gekk vel.“
Íslandsmót í bogfimi verður um næstu helgi og er Ólafur sigur-
stranglegur í berbogaflokknum. „Ég ætla líka að keppa í sveigboga-
flokknum með berboganum mínum, aðeins til að stríða hinum.“
Ólafur var lengi á sjó en er núna öryrki, en auk þess að stunda bog-
fimi af kappi hannar hann skartgripi. „Þeir eru með víkingalegu yfir-
bragð og eru svokallað hringabrynjuskart og meirihlutinn er úr áli.
Ólafur er með Facebook-síðuna Knotty Viking of Iceland þar sem
hann sýnir skartgripi sína.
Ólafur ætlar að taka því rólega í dag en verður með súpu um
helgina í tilefni afmælisins fyrir sína nánustu.
Berbogaskyttan Ólafur staddur á mótinu í Lausanne í Sviss sl. sumar.
Spáð sigri í berboga
á Íslandsmótinu
Ólafur Ingi Brandsson er fimmtugur í dag
K
ristín Sigfúsdóttir
fæddist 13. mars 1949
á Gunnarsstöðum í
Þistilfirði og ólst þar
upp, elst af sex systk-
inum. Snemma lærði hún að taka til
hendinni og öll störf urðu skemmti-
leg. „Meira að segja að reyta ristla,
þegar fólkið sagði sögur, flutti
kvæði, kvaðst á eða söng við vinn-
una. Sjö ára gömul mjólkaði ég eina
kúna þegar ég fór í fjósið með móð-
ur minni. Þar lærði ég ógrynni
sönglaga af henni og kúnum líkaði
söngurinn vel.“
Farskóli var í sveitinni og var
Kristín um níu mánuði alls í barna-
skóla í Garði hjá heiðurshjónunum
Baldri Jónssyni og Margréti Jak-
obsdóttur. Að Laugum í Reykjadal
lá svo leiðin í héraðsskóla þar sem
Kristín lauk gagnfræðaprófi árið
1966. Síðan lauk Kristín námi við
Húsmæðraskólann að Varmalandi í
Borgarfirði og Hússtjórnarkenn-
araskóla Íslands. Stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri lauk
hún árið 1975. Siðan tók Kristín
fjölda námskeiða í næringarfræði
og líffræði, framhaldsnám í uppeld-
is- og kennslufræðum, leiðsögu-
mannspróf og að síðustu meistara-
gráðu í umhverfisfræðum frá
Háskóla Islands. Lokaritgerð sina
vann hún ásamt Sóleyju Jónas-
dóttur líffræðingi hjá Vegagerð rík-
isins en þær mældu svifryk, nit-
ursambönd og fleira í loftgæðum á
Akureyri og fjölluðu um gerð um-
hverfisvísa fyrir bæjarfélagið.
Á skólaárunum vann Kristín
ýmsa sumarvinnu svo sem síldar-
söltun og ráðskonustörf í vegavinnu
svo eitthvað yrði til að fjármagna
leiguna og skólann yfir veturinn.
Nokkur sumur með kennarastarf-
inu rak hún hótel á Laugum í
Reykjadal með skólasystur sinni,
var leiðsögumaður, í heyskap eða
veiðiferðum.
Kristín kenndi við Mennta-
skólann á Akureyri. Þar átti hún
farsælan feril við kennslu líffræði,
umhverfisfræði og næringarfræði í
rúm þrjátíu ár. Fyrstu tíu starfsár
Háskólans á Akureyri kenndi Krist-
ín kennaranemum og hjúkrunar-
nemum næringarfræði í stunda-
kennslu. Önnur störf eru þátttaka í
stjórnmálum og félagsstarfi af ýms-
um toga, en Kristín er mikil kven-
réttindakona. Hún er virk i Vinstri-
hreyfingunni grænu framboði,
Zontaklúbbi Akureyrar, Sjálfsbjörg,
Hjartavernd Norðurlands og Holl-
vinasamtökum Sjúkrahússins a
Akureyri.
„Ég nýt lífsins hvern dag, hef
Kristín Sigfúsdóttir framhaldsskólakennari – 70 ára
Gæðastund Kristín við rúgbrauðsgerð með barnabörnum sínum í eldhúsinu heima á Gunnarsstöðum.
Nýtur lífsins hvern dag
Hjónin Ólafur og Kristín stödd í
Kaldbaksvík á Ströndum.
Selfoss Kári Hrafn
Hjaltason fæddist 3.
júní 2018 kl. 5.51. Hann
vó 4.185 g og var 54,5
cm langur. Foreldrar
hans eru Sigríður Rós
Sigurðardóttir og
Hjalti Jón Kjartansson.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.