Morgunblaðið - 13.03.2019, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Mótmæli héldu
áfram í Alsír í
gær, þrátt fyrir
að Abdelaziz
Bouteflika, hinn
82 ára gamli for-
seti landsins,
hefði dregið for-
setaframboð sitt
til baka á mánu-
daginn. Var forsetakosningunum,
sem áttu að fara fram í næsta mán-
uði, einnig frestað.
Óttuðust mótmælendur að yfir-
lýsingin og frestun kosninganna
væru einungis bragð af hálfu for-
setans til þess að framlengja völd
sín, en Bouteflika hefur nú þegar
setið í fjögur kjörtímabil.
Samkvæmt yfirlýsingu Boute-
flika mun ný þjóðarráðstefna koma
saman til þess að ákveða næsta
kosningadag, en kjörtímabili Bou-
teflika lýkur 28. apríl næstkom-
andi.
Segja Bouteflika
beita brögðum
ALSÍR
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Theresa May reyndi til þrautar að
sannfæra neðri deild breska þings-
ins um að styðja samkomulag sitt við
Evrópusambandið um útgöngu
Bretlands úr sambandinu, eftir að
hafa seint í fyrrakvöld tryggt það
sem hún kallaði „lagalega bindandi“
breytingar á samkomulaginu. Neðri
deildin felldi það hins vegar með 391
atkvæði gegn 242, þar sem breyting-
arnar þóttu ekki ganga nógu langt til
að tryggja hagsmuni Breta. 16 dagar
eru nú þar til Bretar eiga að yfirgefa
sambandið.
Lögfræðiráðgjafi ríkisstjórnar-
innar, Geoffrey Cox, veitti sam-
komulaginu í raun náðarhöggið í
gær, en í áliti hans stóð að þrátt fyrir
breytingarnar sem May hefði náð
fram í viðræðum í Strassborg væri
hættan á því að Bretar gætu orðið
innlyksa í Evrópusambandinu „enn
óbreytt.“
Neðri deildin felldi upphaflega
samkomulag May við sambandið í
janúar síðastliðnum með 432 at-
kvæðum gegn 202. Helsta ástæðan
fyrir höfnuninni þá var sögð „írski
varnaglinn“, en það eru ákvæði
samningsins sem taka gildi ef ekki
næst að semja nánar um viðskipta-
samband Bretlands og Evrópusam-
bandsins á næstu árum.
Varnaglanum er ætlað að tryggja
það að landamæri Írlands og Norð-
ur-Írlands geti haldist opin, en
íhaldsmenn á breska þinginu hafa
margir hverjir áhyggjur af því að
ákvæði varnaglans reki annars veg-
ar fleyg á milli Norður-Írlands og
hinna þriggja landanna innan Stóra-
Bretlands og hins vegar að Evrópu-
sambandinu er fært ákvörðunarvald
um það hvenær og hvernig Stóra-
Bretland geti sagt skilið við varnagl-
ann. Hafa þingmenn flokksins því
viljað fá lagalega bindandi heimildir
fyrir Breta til þess að slíta sig frá
ákvæðum varnaglans eða gera hann
tímabundinn að öðru leyti.
Mikil andstaða á þinginu
Eftir að álit Cox um að breyting-
arnar sem samþykktar voru í fyrra-
kvöld breyttu í raun ekki þeirri stöðu
lýstu helstu andstæðingar Evrópu-
sambandsaðildarinnar innan Íhalds-
flokksins, sem kenna sig við The
European Research Group, að þeir
gætu ekki stutt samkomulagið þegar
það kæmi til atkvæða í gærkvöldi.
Þingmenn hins norður-írska DUP-
flokks, sem veitir minnihlutastjórn
May stuðning, sögðu sömuleiðis að
breytingarnar sem May hefði náð
fram gengu allt of skammt til þess að
þeir gætu stutt við samkomulagið.
Kölluðu forvígismenn flokksins eftir
„skynsamlegu samkomulagi“ í stað
þess sem May hefði borið á borð.
Í ljósi þess að Verkamannaflokk-
urinn hefur lýst sig andvígan sam-
komulaginu var því snemma orðið
ljóst að við ramman reip væri að
draga fyrir May.
„Brexit gæti glatast“
Í ræðu sinni í þinginu varaði May
við því að ef neðri deildin hafnaði
samkomulaginu gæti það jafnvel
haft þau áhrif að ekkert yrði af út-
göngu Breta úr Evrópusambandinu.
„Ég tel að allir þurfi að sjá, sér í lagi
þeir sem vilja í raun og sann fá Brex-
it, að ef samkomulagið verður fellt í
kvöld, hættir deildin á að fá ekkert
Brexit,“ sagði May og bætti við að
betri samningur væri ekki í boði.
Leiðtogar Evrópusambandsins
tóku undir þau orð May. Jean-
Claude Juncker, forseti fram-
kvæmdastjórnar sambandsins, sagði
til að mynda að það yrði ekki reynt í
þriðja sinn að semja við Breta um út-
gönguna. Angela Merkel Þýska-
landskanslari sagði sömuleiðis að
Evrópusambandið hefði nú gengið
mjög langt til þess að finna ásætt-
anleg svör við þeim áhyggjum sem
Bretar hefðu lýst yfir.
Framhaldið ræðst í dag
Niðurstaðan í gærkvöldi þýðir að
neðri deild þingsins mun ákveða í
dag hvert framhald málsins verður,
en þá mun ráðast endanlega hvort
Bretar ákveði að yfirgefa Evrópu-
sambandið án samnings 29. mars
næstkomandi. Talið er ólíklegt að sú
leið njóti meirihluta innan neðri
deildarinnar, þar sem mikil óvissa
ríkir um efnahagslegar afleiðingar
þess.
Fari svo að neðri deildin felli
samningslausa útgöngu verður kosið
um það á morgun, fimmtudag, hvort
Bretar muni biðja Evrópusamband-
ið um að fresta útgöngudeginum um
einhvern tíma. Slík bón þyrfti þó að
fá samþykki ríkjanna 27 sem áfram
verða innan sambandsins, en leiðtog-
ar þeirra munu funda í Brussel dag-
ana 21.-22. mars.
Strassborgarsam-
komulagið ekki nóg
Neðri deildin felldi samkomulag May enn og aftur
AFP
Brexit Theresa May reyndi að tryggja sér stuðning þingsins í gær.
Brexit
» Neðri deildin felldi sam-
komulag Theresu May við ESB
með 391 atkvæði gegn 242 í
gærkvöldi.
» Þingið mun ákveða í dag
hvort Bretar yfirgefi sam-
bandið án samnings 29. mars
nk.
» Verði það fellt verður ákveð-
ið á morgun hvort beðið verður
um frest á útgöngunni.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Flugöryggisstofnun Evrópusam-
bandsins ákváð í gær að banna notk-
un flugvéla af Boeing 737 Max 8 gerð
í lofthelgi aðildarlandanna, í kjölfar
flugslyssins í Eþíópíu á sunnudag-
inn. Áður hafði flugmálastjórn Bret-
lands, CAA, ákveðið slíkt bann og
sagt það vera tímabundna neyðar-
ráðstöfun meðan komist væri til
botns í orsökum slyssins, en yfirvöld
í Malasíu, Singapúr, Kína, Óman og
Ástralíu hafa einnig ákveðið að loka
lofthelgi sinni fyrir Max 8-þotunum.
Þá ákváðu þýsk flugmálayfirvöld
einnig að loka lofthelgi sinni fyrir
vélunum síðdegis í gær.
Bandaríska flugumferðarstofnun-
in, FAA, fyrirskipaði í fyrrakvöld
Boeing-verksmiðjunum að gera
betrumbætur á hönnun vélarinnar,
sem yrðu teknar í gagnið ekki síðar
en í apríl. Miðuðust betrumbæturnar
einkum að sjálfvirkum kerfum sem
eiga að koma í veg fyrir ofris flugvél-
arinnar. Sagði í yfirlýsingu stofnun-
arinnar að gripið yrði til frekari að-
gerða ef þörf krefði vegna flug-
öryggis, en hún ákvað að kyrrsetja
ekki vélarnar að svo stöddu. Hefur
stofnunin sent menn ásamt fulltrú-
um frá rannsóknarnefnd flugslysa til
Eþíópíu til þess að aðstoða við rann-
sókn slyssins, en flugritar vélarinnar
fundust í fyrradag.
Flugfélög kyrrsetja vélarnar
Auk þeirra ríkja sem kyrrsettu
eða meinuðu Max 8-vélunum að
fljúga innan lofthelgi sinnar ákváðu
nokkur flugfélög að kyrrsetja vélar
sínar að fyrra bragði. Norska lágfar-
gjaldaflugfélagið Norwegian Air
Shuttle, sem rekur 18 vélar af þess-
ari gerð, tilkynnti þannig í gær að
það hygðist kyrrsetja þær tíma-
bundið. Aerolinas Argentinas, helsta
flugfélag Argentínu, kyrrsetti fimm
Max 8 vélar í gær og flugfélög í Bras-
ilíu, Suður-Afríku og Mexíkó gerðu
slíkt hið sama. Þá fyrirskipuðu yfir-
völd í Suður-Kóreu eina flugfélaginu
þar í landi sem rekur vélarnar að
kyrrsetja þær. Indverska flugfélagið
SpiceJet, sem á 13 vélar, sagði hins
vegar að það myndi ekki leggja sín-
um vélum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
sagði í gær um harmleikinn að svo
virtist sem það væri að verða of flók-
ið að fljúga flugvélum. Kvaðst forset-
inn sjá það of oft að framleiðendur
tækju flækjustigið einu skrefi of
langt, þegar gömlu góðu einföldu að-
ferðirnar hefðu reynst miklu betur.
AFP
Kyrrsettar Boeing 737 Max 8 kemur til lendingar í Bretlandi á síðasta ári.
Loka lofthelg-
inni fyrir Max 8
Flugöryggisstofnun Evrópusam-
bandsins bannar þotunum að fljúga
Flugslysið í Eþíópíu
» Bretland, Frakkland, Þýska-
land, Ástralía, Malasía, Singa-
púr, Óman og Kína voru meðal
þeirra ríkja sem lokuðu loft-
helgi sinni í gær fyrir Boeing
737 Max 8-vélum.
» Flugfélög í Argentínu, Bras-
ilíu, Noregi, Suður-Kóreu og
Mexíkó kyrrsettu Max 8-vélar
sínar að fyrra bragði.
» Bandarísk flugmálayfirvöld
fyrirskipuðu betrumbætur á
hönnun vélarinnar, en ákváðu
ekki að kyrrsetja þær.