Morgunblaðið - 13.03.2019, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019
Í hvíldarstöðu Spjótlyftum og öðrum gagnlegum vinnuvélum var raðað upp af stakri smekkvísi í Hafnarfirði á dögunum og þau biðu þar eftir því að fá að taka þátt í næstu stórverkefnum.
Kristinn Magnússon
Íslendingar hefðu
seint brotist út úr
haftaþjóðfélagi til vel-
megunar ef hug-
myndafræði sósíalism-
ans hefði fengið að
ráða. Opinber inn-
flutningsskrifstofa
sem útdeildi innflutn-
ingsleyfum hefði lifað
góðu lífi og Raftækja-
verslun ríkisins væri
enn starfandi. Epli, appelsínur, er-
lent sælgæti, fjölbreytilegur fatn-
aður og annað sem við göngum að
sem sjálfsögðum hlutum, væri litið á
sem sóun og munað sem ekki ætti
að leyfa nema þá helst á jólunum.
Almenningur gæti aðeins látið sig
dreyma um bíla, mótorhjól, tölvur,
snjallsímar og ferðalög til annarra
landa.
Sósíalistar hefðu tryggt að ríkið
sæti eitt að ljósvakamarkaðinum –
engar frjálsar útvarps- eða sjón-
varpsstöðvar væru starfræktar.
Gamli ríkisrekni Landssíminn sæti
einn að markaðinum með tilheyr-
andi fábreytni og lélegri þjónustu.
Nova, Vodafone? Ekki láta ykkur
dreyma. Leik- og grunnskóli undir
merkjum Hjallastefnunnar væri að-
eins til í hugskoti Margrétar Pálu
Ólafsdóttur. Einkareknir skólar eru
eitur í beinum sósíalista. Háskólinn í
Reykjavík? Nei takk. Versl-
unarskólinn, Tækniskólinn, Ísaks-
skóli og Landakotsskóli. Ekkert
rugl. Menntun og tækifæri til
menntunar eiga að vera ríkisrekin í
fyrirmyndarríki sósíalista.
Fátækt, eymd og misrétti
Hugmyndafræði sósíalismans
hefur hvergi gengið upp – hvergi
staðið undir þeim fögru loforðum og
fyrirheitum sem gefin hafa verið og
margir heillast af. Skiptir engu
hvort litið er til blóði drifinnar sögu
Sovétríkjanna sálugu, eða þeirrar
martraðar sem almenningur býr við
í dag í Norður-Kóreu, á
Kúbu eða í Venesúela.
Sósíalisminn lofar
öllum velmegun, jafn-
rétti og öryggi. Hug-
myndafræðin hefur
skilað fátækt, eymd,
misrétti og ofbeldi. Í
nafni jöfnuðar er per-
sónufrelsi tekið yfir af
stjórnvöldum fyrir
hönd „fólksins“. Hlut-
verk stjórnvalda undir
gunnfána sósíalismans
er ekki að tryggja rétt-
indi einstaklinga eða standa vörð
um réttarríkið, heldur að fara með
völdin í nafni „alþýðunnar“.
Saga hefur ekki reynst sósíalism-
anum hliðholl. Hvert af öðru breyt-
ast draumaríkin í martröð almenn-
ings – auðlegð verður að örbirgð
alþýðunnar. Enn eitt „tilraunaland“
sósíalismans er komið að hruni.
Venesúela, sem um miðja síðustu
öld var í hópi ríkustu landa heims,
er á barmi gjaldþrots. Skortur er á
flestum nauðsynjum; mat, neyslu-
vatni, lyfjum og rafmagni. Verð-
bólga er yfir milljón prósent og einn
af hverjum tíu landsmanna hafa flú-
ið land.
Sanntrúaðir sósíalistar á Vest-
urlöndum kenna öllu öðru en hug-
myndafræðinni um hrun samfélags-
ins í Venesúela. Fall Sovétríkjanna
var ekki vegna hugmyndafræðinnar
heldur miklu fremur að hugmynda-
fræðin var ekki „framkvæmd rétt“.
Fyrir hvern milljarð dollara í
landsframleiðslu þurftu gömlu Sov-
étríkin að nota tvisvar sinnum meira
af málmum og 23% meira af elds-
neyti en Bandaríkin. Þannig leiðir
sósíalisminn ekki aðeins til sóunar
heldur er hann versti óvinur náttúr-
unnar. Yfir 25% af vinnuafli í Sov-
étríkjunum voru í landbúnaði. Hlut-
fallið var um 3% í Bandaríkjunum.
Á sama tíma fluttu Bandaríkin út
meira af landbúnaðarafurðum en
þau fluttu inn. Sovétríkin neyddust
til að flytja inn landbúnaðarvörur og
notuðu 30% meira hráefni til að
framleiða hvert tonn af matvælum.
Gömul ádeilusaga frá tíma Sov-
étríkjanna lýsir þessu ágætlega.
Pavel grátbað kommissar komm-
únistaflokksins á samyrkjubúinu um
að fá sína eigin mjólkurkú. Hann
lofaði að með góðri umsjón myndi
nytin í kúnni stóraukast. Pavel vildi
fá að selja sjálfur helming af því
sem kýrin gæfi af sér umfram sett
viðmið kommúnistaflokksins. Eftir
nokkurn eftirgang fékk Pavel sínu
framgengt og hann stóð við sitt.
Hann seldi umframmjólkina sjálfur
og hafði því efni á ýmsum varningi
sem aðrir á samyrkjubúinu gátu
ekki leyft sér. Líf fjölskyldunnar
batnaði verulega og það olli öfund.
Sergey var ekki sáttur og fór á fund
kommissarsins og kvartaði fyrir
óréttlætinu. Pavel og fjölskylda
hans hefði það miklu betra en aðrir.
Sergey krafðist þess í nafni sósíal-
ísks réttlætis að kommissarinn leið-
rétti þetta ranglæti. „Allt í lagi, þú
getur fengið þína eigin kú,“ svaraði
kommissarinn. Sergey varð reiður
og hreytti út úr sér: „Ég vil ekki
mína eigin kú, bjáninn þinn. Ég vil
að þú skjótir kúna hans Pavels.“
Verðum að skilja tortryggnina
Það er sótt að hugmyndafræði
frjálsra markaðsviðskipta. Sósíal-
istar virðast hafa fengið byr að nýju
í seglin víða á Vesturlöndum sem og
popúlískir einangrunar- og þjóðern-
issinnar sem berjast gegn frjálsum
viðskiptum.
Við hægri menn getum haldið
áfram að gagnrýni sósíalismann og
draga fram jafnt sögulegar sem
samtíma staðreyndir. Og um leið
lagt til atlögu við öfgafulla einangr-
unarsinna. Slíkt er nauðsynlegt en
dugar skammt. Við þurfum að vera
tilbúnir til að verja markaðs-
hagkerfið – kapítalismann sem þrátt
fyrir ófullkomleika hefur tryggt
aukna velmegun og frelsi til orða og
æðis.
Til að ná árangri verðum við að
vera tilbúnir til að horfast í augu við
kapítalisminn er ekki fullkominn og
reyna að skilja þá tortryggni sem
gætir í garð markaðsbúskapar. Við
getum ekki leyft okkur að skella
skollaeyrum við kröfum þeirra sem
lægstu launin hafa eða gert lítið úr
daglegum áhyggjum þeirra sem
berjast við að láta enda ná saman.
Við sem sitjum á Alþingi og erum
talsmenn frelsis og takmarkaðra
ríkisafskipta, verðum að viðurkenna
að á okkar vakt hefur ríkið þanist
út. Ekki aðeins í fjölda starfsmanna
eða í milljörðum talið, heldur ekki
síður með því að mynda frjóan jarð-
veg fyrir frumskóg reglugerða og
laga. Í stað þess að einfalda líf ein-
staklinga og gera það þægilegra
hefur það verið flækt.
Hægt og bítandi hefur hið op-
inbera orðið leiðandi í launaþróun.
Það er búið að hafa endaskipti á
hlutunum og rjúfa tengslin milli
launa og verðmætasköpunar. Fáir
bera ríkari skyldur en þingmenn
Sjálfstæðisflokksins að tryggja jafn-
vægi í samfélaginu og koma í veg
fyrir að ríki og ríkisstofnanir taki
yfir þróun vinnumarkaðarins. Það á
að vera ófrávíkjanleg regla að al-
menni vinnumarkaðurinn marki
stefnuna. Hið opinbera getur fylgt í
humátt á eftir.
Illskiljanlegur hrærigrautur
Talsmenn markaðskerfisins
gleyma því oft hve nauðsynlegt það
er að koma í veg fyrir að venjulegt
launafólk beri byrðar vegna hugs-
anlegra markaðsbresta. Ef tryggja
á stuðning við frjálslyndi markaðs-
hyggjunnar verður almenningur að
geta treyst því að leikreglurnar séu
réttlátar – að þær taki ekki mið af
þeim sem best standa eða völdin
hafa.
Vandinn er að leikreglurnar – lög
og reglur markaðarins eru að verða
illskiljanlegur hrærigrautur sem
teknókratar hræra reglulega í. Af-
leiðingin er minna efnahagslegt
frelsi venjulegs fólks á sama tíma og
hinir sterku njóta. Þvert á það sem
margir halda þjóna flóknar reglur
ríkisins fyrst og fremst stórfyrir-
tækjum og öflugum hagsmuna-
samtökum, en hamla sjálfstæða at-
vinnurekendanum og launamann-
inum. Baráttumenn markaðs-
hagkerfisins gleyma of oft því sem
Adam Smith varaði við fyrir 243 ár-
um í Auðlegð þjóðanna:
„Fólk, sem stundar sömu atvinnu-
grein, fer sjaldan hvert á annars
fund, jafnvel sér til skemmtunar og
afþreyingar, svo að samræður þess
endi ekki í samsæri gegn almenn-
ingi eða einhverju ráðabruggi um að
hækka verð.“
Við þurfum markaðsöflin og sam-
keppnina til að ýta undir nýjungar,
aukna skilvirkni og þar með betri
lífskjör. Markaðurinn leysir hug-
myndaauðgi og framtakssemi ein-
staklinga úr læðingi – ekki ríkið.
Markaðurinn er besta verkfærið
sem við eigum til að gera þjóðfélag-
ið auðugra – bæta lífskjör allra, ekki
aðeins fámenns hóps. Þessi einföldu
sannindi vefjast fyrir mörgum.
Hlutverk okkar, sem berjumst fyrir
markaðshagkerfinu, er að auka
skilning á eðli frjálsra viðskipta og
eyða þeirri tortryggni sem hefur
grafið um sig. Það verður ekki gert
án þess að horfast í augu við það
sem miður fer. Við þurfum að
tryggja að athafnamaðurinn njóti
eigin hugvits, útsjónarsemi og
dugnaðar en um leið búa svo um
hnútana að allir, en ekki aðeins hinir
stóru og sterku, upplifi velmegun
frjálsra markaðsviðskipta.
Eftir Óla Björn
Kárason » Við hægri menn get-
um haldið áfram að
gagnrýna sósíalismann
og draga fram jafnt
sögulegar sem samtíma
staðreyndir. Slíkt er
nauðsynlegt en dugar
skammt.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Nokkur orð til hægri manna