Morgunblaðið - 13.03.2019, Qupperneq 31
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s
Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s
Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s
Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s
Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s
Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s
Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s
Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s
Frumsýning 15. mars.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s
Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/3 kl. 20:00 50. s Fös 15/3 kl. 20:00 52. s Sun 17/3 kl. 20:00 Lokas.
Fim 14/3 kl. 20:00 51. s Lau 16/3 kl. 20:00 53. s
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 15/3 kl. 20:00 43. s Lau 23/3 kl. 20:00 44. s Lau 30/3 kl. 20:00 45. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Lau 16/3 kl. 20:00 5. s Fös 22/3 kl. 20:00 6. s
Hvað varð um konuna?
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s
Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s
Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s
Alltof mikið testósterón
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019
Ítalski rithöfundurinn DominicoStarnone (f. 1943) verður einngesta Bókmenntahátíðar í vorog það er ánægjulegt að fá nú
svo skömmu áður í hendur splunku-
nýja og fína þýðingu Höllu Kjartans-
dóttur úr ítölsku á hans nýjustu bók,
Bönd.
Starnone er einn kunnasti rithöf-
undur Ítala í dag, höfundur þrettán
skáldsagna en hann hefur einnig
starfað sem blaðamaður og skrifað
kvikmyndahandrit. Fyrir átta árum
hlaut hann Strega-verðlaunin, helstu
bókmenntaverðlaun heimalandsins,
fyrir skáldsöguna Via Gemito. Sögur
hana hafa notið sí-
aukinna vinsælda
víða um lönd og
völdu erlend stór-
blöð á borð við
Sunday Times og
The New York
Times, Bönd sem
eina af athyglis-
verðustu erlendu
skáldsögunum
þegar hún kom út á ensku fyrir tveim-
ur árum. Áhugi fréttamanna á Star-
none síðustu ár byggist þó ekki bara á
verkum hans heldur þeim orðrómi að
hann væri hulduhöfundurinn Elena
Ferrante, höfundur Napólí-þríleiksins
ofurvinsæla. Starnone hefur hafnað
því kröftuglega en hins vegar telja
rannsóknablaðamenn nú að eiginkona
hans, þýðandinn Anita Raja, sé líklega
Ferrante. En það er önnur saga …
Bönd sver sig í ætt við margar fyrri
sagna Starnone, þar sem hann rýnir í
sambönd fólks og fjölskyldumynstur.
Þetta er stutt saga, hálfgerð nóvella,
þétt í byggingunni og flæðið afar gott;
heillandi saga sem virðist í fyrstu
fjalla um átakasamt líf hjóna en reyn-
ist síðan að auki bæði grimm og af-
hjúpandi.
Sagan er í þremur hlutum, fjallar
um hjónin Aldo og Vöndu og tvö börn
þeirra og gerist á nokkurra áratuga
tímabili. Í fyrsta hlutanum ávarpar
Vanda Aldo í sárum bréfum; hann
hefur yfirgefið hana og tvö ung börn
þeirra fyrir yngri ástkonu. Kunnug-
lega saga þar og grimm, þar sem karl-
inn hættir í sínum ástarbríma nánast
að umgangast börnin og hin örvænt-
ingarfulla Vanda er niðurbrotin og
tekur til örþrifaráða áður en hún fer
fram á skilnað.
Annar hluti sögunnar gerist nokkr-
um áratugum síðar og þá eru Vanda
og Aldo sýnilega tekin saman aftur,
eru komin á eftirlaun og börnin flutt
að heiman fyrir löngu. Lesandinn
finnur að þótt hjónin séu saman af
gömlum vana og finni visst öryggi í
sambúðinni, þá krauma óuppgerð mál
undir niðri og þegar þau snúa heim úr
leyfi og koma að íbúð sinni í rúst eftir
innbrot þá leita þessar gömlu sögur
og mál upp á yfirborðið. Í lokahlut-
anum er sjónarhornið hjá börnum
hjónanna, allt frá reynslu þeirra frá
þeim tíma er faðirinn flutti að heiman
er þau voru ung, til samtímans. Þau
eru að takast á við sín eigin vandamál
í lífinu, orðin fullorðin, og leita leiða til
að bæta sinn hag og tilveru, og gera
kröfur til foreldranna, kröfur sem
brjótast fram með óvæntum hætti.
Í Bönd birtist forvitnileg sýn á það
hvað svik geta haft langvarandi og
eyðandi áhrif á fjölskyldur, áhrif sem
eitra líf fólks upp frá því. Eins og hinn
fullorðni Aldo gerir sér grein fyrir:
„Ég hafði lagt tilveru í rúst, ég hafði
hrakið unga manneskju sem hafði
sömu löngun og ég til að gera eitthvað
úr sjálfri sér, að þeirri niðurstöðu að
langa ekki lengur til að lifa.“ (81)
Starnone er snjall höfundur og
kann vel að móta heim persónanna
með þeim hætti að lesandinn finnur
vel fyrir óorðaðri spennu og árekstr-
unum þeirra á milli, og þegar líður á
söguna opnast sárin og tilfinning-
arnar taka völdin, oft á óyfirvegaðan
og óafsakandi hátt. Framhjáhald og
svik eru kunnuglegt og klassískt
söguefni sem auðvelt er að festa í
klisjum. En Starnone er flinkur og
tekst að skapa áhrifaríkt og eftir-
minnilegt drama úr lífi ítalskrar
kjarnafjölskyldu þar sem ekkert er
sem sýnist.
Svik föðurins leggja
líf og heimili í rúst
Snjall „Starnone er flinkur og tekst að skapa áhrifaríkt og eftirminnilegt
drama út lífi ítalskrar kjarnafjölskyldu þar sem ekkert er sem sýnist.“
Skáldsaga
Bönd bbbbn
Eftir Domenico Starnone.
Halla Kjartansdóttir þýddi.
Benedikt bókaútgáfa, 2019.
Kilja, 142 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
1959
GÍSLI B. BJÖRNSSON
Hér má sjá fyrstu bókarkápu Gísla B. Björnssonar
(1938) sem hann hannaði þegar hann var enn í námi í
auglýsingateiknun í Þýskalandi eins og greinin grafísk
hönnun var kölluð á þeim tíma. Kápan er einföld að
gerð og í anda þess sem hæfði ljóðabókum, byggð á
einfaldri klippimyndatækni, geómetrískri uppbygg-
ingu myndmáls og leturs.
Gísli hannaði fjölda bókarkápa en ekki síst eru
þekkt merki hans fyrir fyrirtæki og stofnanir (lógó).
Gísli er brautryðjandi á sviði merkjahönnunar hér-
lendis og ber hönnun hans sterk einkenni módernism-
ans. Hann stofnaði auglýsingastofu Gísla B. Björns-
sonar þegar hann kom úr námi frá Þýskalandi árið
1961 og ári síðar stofnaði hann sérdeild í auglýs-
ingateiknun við Myndlista- og handíðaskólann sem í
dag er braut grafískrar hönnunar í Listaháskóla Ís-
lands.
Gísli er lærifaðir kynslóða íslenskra hönnuða og
kenndi fagið til fjölda ára. Árið 2012 var sýning á
verkum Gísla í safninu og yfirlit tekið saman í sýning-
arskrá. Í kjölfarið gaf Gísli safninu mikið safn verka.
Íslensk hönnun – Hönnunarsafn Íslands
Geómetrísk uppbygging
myndmáls og leturs
Ljósmynd/Hönnunarsafn Íslands/Elísabet V.
Ingvarsdóttir skráði
Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt íslenskrar menningarsögu sem lýtur að hönnun,
einkum frá aldamótunum 1900 til samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda muni, sem margir hafa
mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkosturinn fer sístækkandi, enda æ fleiri hönnuðir sem hasla sér völl og koma
fram með vandaða gripi sem standast alþjóðlegan samanburð og eru hvort tveggja nytjamunir og/eða skrautmunir.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 58.sýn
Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 59.sýn
Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 19/5 kl. 13:00 60.sýn
Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 54.sýn Sun 19/5 kl. 16:00 61.sýn
Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 55.sýn Sun 26/5 kl. 13:00 Auka
Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 13:00 56.sýn Sun 2/6 kl. 13:00 Auka
Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 57.sýn Lau 8/6 kl. 13:00 Auka
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Lau 23/3 kl. 19:39 18.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 20.sýn Lau 4/5 kl. 19:30 22.sýn
Fös 29/3 kl. 19:30 19.sýn Lau 13/4 kl. 19:30 21.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 3/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Sun 24/3 kl. 15:00 19.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 23.sýn
Sun 17/3 kl. 17:00 16.sýn Sun 24/3 kl. 17:00 20.sýn Lau 6/4 kl. 15:00 24.sýn
Lau 23/3 kl. 15:00 17.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 21.sýn Sun 7/4 kl. 15:00 25.sýn
Lau 23/3 kl. 17:00 18.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 22.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Fös 15/3 kl. 19:30
Aðalæfing
Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas.
Lau 16/3 kl. 19:30 Frums. Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas.
Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00
Mið 20/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 14/3 kl. 21:00 Fim 21/3 kl. 21:00 Lau 23/3 kl. 19:30
Fös 15/3 kl. 19:30 Fös 22/3 kl. 19:30 Lau 23/3 kl. 22:00
Fös 15/3 kl. 22:00 Fös 22/3 kl. 22:00
Dimmalimm (Brúðuloftið)
Lau 16/3 kl. 14:00 Lau 23/3 kl. 14:00 Lau 30/3 kl. 14:00
Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 17/3 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200