Morgunblaðið - 13.03.2019, Page 32

Morgunblaðið - 13.03.2019, Page 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Anna Karín Lárusdóttir bar sigur úr býtum fyrir myndina XY í stutt- myndasamkeppninni Sprettfiskur á Stockfish-hátíðinni, sem haldin var í fimmta sinn í Bíó Paradís og lauk um helgina. Verðlaunin voru ein milljón króna í tækjaúttekt frá KUKL. Anna Karín er hvort tveggja leik- stjóri og framleiðandi XY. Myndin fjallar um Lísu, sem er 15 ára og býr yfir stóru leyndarmáli um lík- ama sinn og læknasögu. Þegar Bryndís æskuvinkona hennar kem- ur aftur inn í líf hennar áttar Lísa sig á hve lítið hún í rauninni veit um sjálfa sig. Markmið keppninnar er að vekja athygli á ungu og upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja til frekari dáða með verðlaunum sem leggja grunninn að næsta verkefni. Fjöldi umsókna barst í keppnina, en sex myndir voru valdar til þátt- töku. Í dómnefnd sátu Alissa Sim- on, dagskrárstjóri Palm Springs IFF, Steve Gravestock, dagskrár- stjóri á Toronto IFF, og Wendy Mitchell, norrænn fréttaritari hjá Screen International tengiliður San Sebastian-kvikmyndahátíðarinnar. XY besta stuttmyndin á Sprettfiski Sigurvegari Anna Karín Lárusdóttir. Sviðsupptaka á Júlíusi Sesari eftir William Shakespeare í leikstjórn Nicholas Hytner verður sýnd í Bíó Paradís í kvöld kl. 20, en upptakan er hluti af NT Live á Breska þjóð- leikhússins. Í upphafi verks kemur Sesar sigri fagnandi til Rómar og íbúar þyrpast út á götur borg- arinnar til að taka þátt í hátíð- arhöldunum. Gríðarlegar vinsældir Sesars valda óróa hjá mennta- elítunni sem leggur á ráðin um að steypa honum af valdastóli. Í kjöl- far morðsins á honum brýst út borgarastyrjöld á götum höfuð- borgarinnar. Í aðalhlutverkum eru Ben Whishaw, Michelle Fairley, David Morrissey og David Calder. Uppfærslan var þátttökusýning þar sem áhorfendur léku Rómarbúa. Uppfærslan hlaut frábærar við- tökur breska gagnrýnenda. Í fjög- urra stjörnu dómi í The Guardian segir að verkið sé „stórbrotið og pólitískt aðkallandi“. Í fjögurra stjörnu dómi Time Out segir að uppfærslan sé „einstaklega gríp- andi“ og „springi út eins og glæsi- legur njósnaspennutryllir“. Í fjög- urra stjörnu dómi Sunday Times er leikhópnum hælt í hástert og í fjög- urra stjörnu dómi Daily Telegraph er talað um stjörnuleikhóp sem skili pólitísku umróti sem kallist á við okkar tíma. Júlíus Sesar frá London í Bíó Paradís Júlíus Sesar Aðalleikararnir fjórir. Söngvaskáldið og trúbadorinn Halli Reynis mætir með kassagítarinn sinn á Sagnakaffi kl. 20 í kvöld í Borgarbókasafnið Gerðubergi. Þar í kaffihúsinu mun hann skemmta gestum og gangandi til kl. 22 með söng og sögum af fólki sem hann hefur hitt gegnum tíðina og hefur gefið honum ástæðu til að semja lög og texta. Inn í frásögnina blandast sögur af ferðalögum en einmitt á ferðum sínum hefur hann hitt margt af þessu fólki. Halli hefur gefið út nokkrar plöt- ur, þá fyrstu 1993. Síðasta platan hans og Vigdísar Jónsdóttur harm- onikuleikara, Ást og friður, kom út í fyrra, en Halli samdi öll lögin á plötunni. Halli spilar, syngur og kennir tónlist en hann lauk B.ed-gráðu í tónlistarkennslu vorið 2012 frá Há- skóla Íslands og 2014 lauk hann meistaranámi sem tónlistar- og leiklistarkennari frá HÍ. Á Sagnakaffinu er reynt að víkka út ramma hefðbundinnar sagna- mennsku. Sagðar eru sögur í tali, tónum, takti, ljóðum og leik. Með kassagítarinn á Sagnakaffi Söngvaskáld Halli Reynis trúbador. Arctic 12 Metacritic 71/100 IMDb 7,3/10 Bíó Paradís 18.00 Free Solo Metacritic 83/100 IMDb 8,8/10 Bíó Paradís 18.00 Heavy Trip Metacritic 72/100 IMDb 7,2/10 Bíó Paradís 22.30 Capernaum Metacritic 75/100 IMDb 8,4/10 Með enskum texta. Bíó Paradís 17.30 Brakland IMDb 6,9/10 Bíó Paradís 22.00 Taka 5 Morgunblaðið bbbnn Bíó Paradís 20.00 Tævanskir kvik- myndadagar Bíó Paradís 20.00 Julius Caesar - National Theatre Live Bíó Paradís 20.00 Serenity 16 Metacritic 38/100 IMDb 5,2/10 Sambíóin Álfabakka 19.40, 22.00 Sambíóin Egilshöll 22.30 Sambíóin Akureyri 22.20 Alita: Battle Angel 12 Metacritic 54/100 IMDb 7,6/10 Smárabíó 19.40, 22.30 Fighting With My Family 12 Laugarásbíó 22.20 Sambíóin Keflavík 22.00 Smárabíó 19.40, 22.10 Borgarbíó Akureyri 19.30 Vesalings elskendur Morgunblaðið bbbnn IMDb 7,8/10 Smárabíó 19.50 Háskólabíó 18.10, 21.00 Tryggð Morgunblaðið bbbbn Háskólabíó 18.20 The Mule 12 Metacritic 58/100 IMDb 7,2/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Vice Laugarásbíó 19.45 Cold Pursuit 16 Metacritic 66/100 IMDb 6,9/10 Smárabíó 22.20 Háskólabíó 20.40 Borgarbíó Akureyri 21.40 Green Book 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 70/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Kringlunni 16.10, 19.00, 21.45 Sambíóin Akureyri 19.40 The Favourite 12 Ath. Íslenskur texti. Morgunblaðið bbbbb Metacritic 90/100 IMDb 7,9/10 Háskólabíó 18.00, 20.30 The Wife Metacritic 77/100 IMDb 7,3/10 Sambíóin Kringlunni 16.40 Instant Family Metacritic 57/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 19.50 Bohemian Rhapsody 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 49/100 IMDb 8,1/10 Háskólabíó 20.40 A Star Is Born 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 88/100 IMDb 7,8/10 Sambíóin Kringlunni 19.00 The Lego Movie 2 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 64/100 IMDb 7,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.20 Sambíóin Akureyri 17.20 Spider-Man: Into the Spider-Verse Morgunblaðið bbbbm Metacritic 87/100 IMDb 8,8/10 Smárabíó 17.00 Ótrúleg saga um risastóra peru IMDb 6,2/10 Smárabíó 15.00, 17.40 Ralf rústar internetinu Metacritic 71/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 17.20 Metacritic 65/100 IMDb 6,1/10 Laugarásbíó 17.20, 19.45, 22.20 Sambíóin Álfabakka 16.40 (VIP), 17.00, 18.00, 19.20 (VIP), 19.40, 20.50, 22.00 (VIP), 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.20, 18.00, 20.00, 21.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 16.20, 19.00, 21.40 Sambíóin Akureyri 17.00, 19.40, 22.20 Sambíóin Keflavík 19.20, 22.00 Smárabíó 16.00 (LÚX), 16.30, 19.00 (LÚX), 19.30, 22.00 (LÚX), 22.30 Captain Marvel 12 Að temja drekann sinn 3 Á sama tíma og draumur Hiccup um að búa til friðsælt fyr- irmyndarríki dreka er að verða að veruleika, þá hrekja ást- armál Toothless Night Fury í burtu. Laugarásbíó 17.30, 19.45, 22.00 Sambíóin Álfabakka 17.30 Sambíóin Egilshöll 17.30 Smárabíó 15.10, 17.10 Háskólabíó 18.20 Borgarbíó Akureyri 17.20, 19.30, 21.50 What Men Want 12 Kona ein grípur til sinna ráða þegar gengið er freklega framhjá henni á karllæga vinnustaðnum þar sem hún starf- ar. Metacritic 49/100 IMDb 4,2/10 Sambíóin Álfabakka 19.50, 22.20 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 21.45 Sambíóin Keflavík 19.30 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.