Morgunblaðið - 23.03.2019, Page 8

Morgunblaðið - 23.03.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 sp ör eh f. Sumar 18 Í þessari ferð um Noreg er óhætt að segja að margir af markverðustu stöðum landsins verði heimsóttir.Við upplifum mikilfenglegt landslag Noregs, há fjöll með snæviþöktum tindum, fallega fossa og skjólsæla dali.Við förum í siglingu um Geirangursfjörð og ökum eftir hinum hrikalega Tröllastíg niður í fjalladýrð Romsdalsfjarðarins og til Þrándheims þar sem við skoðum m.a. hina merku Niðarósdómkirkju. 8. - 15. ágúst Fararstjórn: Inga Erlingsdóttir & Guðni Ölversson Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 249.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Í tröllahöndum íNoregi Björn Bjarnason skrifar á heima-síðu sína út frá orðum Guð- brands Einarssonar, sem sagði af sér í vikunni formennsku í Lands- sambandi íslenskra verslunar- manna, í viðtali í Morgunblaðinu þess efnis að komnar hefðu verið forsendur fyrir bæði raunverulegri vinnutímastyttingu og verulegri hækk- un launataflna þeg- ar umræða um framhaldið „var bara stöðvuð“.    Björn segir: „Aforðum Guð- brands má ráða að það hafi ekki verið hagsmunir umbjóð- enda hans og samn- ingamanna VR sem hafi ráðið ferðinni að lokum heldur vilji Ragnars Þórs Ingólfssonar, for- manns VR, um að segja sig ekki frá fjórmenningaklíkunni.“    Guðbrandur segir í viðtalinu aðspurningar hafi vaknað við að sjá að kröfugerð Starfsgreina- sambandsins væri orðin stefna Sósíalistaflokksins og hvort formað- ur Eflingar gæti þá fallið frá henni.    Björn bendir á að í 21 ár hafiGuðbrandur verið formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja og 20 ár í stjórn Landssambands ís- lenskra verslunarmanna, þar af sex sem formaður: „Hann segist ekki áður hafa kynnst vinnubrögðum af þessu tagi við gerð kjarasamninga og kveður VS 1. apríl. Þetta ber allt að sama brunni og hér hefur áður verið lýst: fjórmenningaklíkan hef- ur undirtökin innan verkalýðs- hreyfingarinnar. Fyrir henni vakir ekki að semja heldur sýna vald sitt. Valdbeitingin birtist á öllum svið- um, nú síðast gagnvart Guðbrandi Einarssyni. Að barist sé fyrir bætt- um kjörum launþega er aðeins yfir- varp.“ Björn Bjarnason Hvað ræður för? STAKSTEINAR Guðbrandur Einarsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sín- um í gærmorgun að leggja fyrir Al- þingi þriðja orkupakka Evrópusam- bandsins, með þeim fyrirvara að sá hluti reglnanna er snúi að flutningi raforku yfir landamæri muni ekki koma til framkvæmda nema Alþingi heimili lagningu raforkustrengs. Þá muni jafnframt þurfa að taka á nýj- an leik afstöðu til þess hvort regl- urnar standist stjórnarskrá. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að það sé álit íslenskra stjórnvalda og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að stór hluti ákvæða orkupakkans gildi ekki eða „hafi neina raunhæfa þýðingu fyrir Ísland á meðan enginn raforkusæ- strengur er til staðar á innri raf- orkumarkaði ESB“. Þá er áréttað að ákvörðunarvald um lagningu sæ- strengs milli Íslands og Evrópusam- bandsins liggi alfarið hjá íslenskum stjórnvöldum. Í samstarfi við sérfræðinga Utanríkisráðuneytið og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið hafa unnið að undirbúningi málsins. Hefur utanríkisráðuneytið sérstaklega unnið með hliðsjón af þeim athuga- semdum sem hafa verið gerðar vegna hugsanlegrar aðkomu Orku- stofnunar Evrópu (ACER) að mál- efnum Íslands og hvort slíkt sam- ræmist stjórnarskrá. Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra segir í tilkynningu stjórnarráðsins að hann hafi tekið þeirri gagnrýni sem sett hafi verið fram á þriðja orkupakkann mjög al- varlega. Hann hafi því leitað til þeirra Stefáns Más Stefánssonar, prófessors við lagadeild Háskóla Ís- lands, Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst lögfræðings, Skúla Magnús- sonar héraðsdómara og Davíðs Þórs Björgvinssonar, varaforseta Lands- réttar, vegna málsins. „Ég tel hafið yfir allan vafa að með þeirri lausn sem ég legg til á grundvelli þessarar ráðgjafar felst enginn stjórnskip- unarvandi í upptöku og innleiðingu þriðja orkupakkans í íslenskan rétt,“ segir Guðlaugur Þór. Vandinn settur til hliðar Með þeirri leið sem stjórnvöld hafa valið er stjórnskipunarvandinn sem felst í innleiðingu þriðja orku- pakkans „settur til hliðar að sinni og reglugerðin innleidd á þeim for- sendum að þau ákvæði hennar sem fjalla um flutning raforku yfir landa- mæri eigi ekki við hér á landi og hafi því ekki raunhæfa þýðingu. Það þýð- ir í raun að gildistaka þeirra er háð tilteknum frestsskilyrðum,“ segir Stefán Már Stefánsson, prófessor. Jafnframt segir hann að „grunn- forsenda þessarar lausnar er sú að þriðji orkupakkinn leggi ekki skyld- ur á Ísland til að koma á fót grunn- virkjum yfir landamæri heldur sé ákvörðun um það alfarið á forræði Íslands.“ Orkupakkinn lagður fyr- ir Alþingi með fyrirvara  Raforkustrengur ekki lagður nema með heimild þingsins Morgunblaðið/RAX Raforka Ríkisstjórnin mun leggja orkupakkann fram á þingi. „Frelsið hefur sigrað“ er yfirskrift tilkynningar frá ritstjórum og aðstandendum Stundarinnar og Reykjavík Media í kjölfar þess að Hæstiréttur kvað upp dóm í lögbannsmáli þrotabús Glitnis á hendur fjölmiðlunum tveim. Staðfesti Hæstirétt- ur dóm Landsréttar og er Glitni gert að greiða hvoru félagi um sig 1,2 milljónir króna í máls- kostnað fyrir Landsrétti. Stundin segir það ekki duga fyrir útlögðum kostnaði. Haustið 2017 birtist í Stundinni og í vefútgáfu sama blaðs viðamikil um-fjöllun um viðskipti þá- verandi forsætisráðherra, Bjarna Benedikts- sonar, og skyldmenna hans við Glitni HoldCo ehf. í aðdraganda bankahrunsins í október 2008. Vísað var til þess að upplýsingarnar um umrædd við- skipti hefðu komið fram í gögnum sem rekja mætti til forvera Glitnis HoldCo ehf. sem Stundin hefði undir höndum og ynni úr í samstarfi við Reykjavík Media og The Guardian. Í október 2017 fékk Glitnir lagt lögbann við því að Stundin birti fréttir eða aðra umfjöllun, sem byggð væri á eða unnin upp úr gögnum eða kerfum Glitnis sem undirorpin væru trúnaði. Hér- aðsdómur og Landsréttur höfnuðu staðfestingu lögbannsins. Einn þeirra dómara sem dæmdu í málinu fyrir Landsrétti var Ragnhildur Bragadóttir, sem er einn af fjórum dómurum sem skipaðir voru í emb- ætti dómara í ferli sem MDE hefur gert athuga- semd við. Fyrirspurn var send málsaðilum um hvort þeir myndu fara fram á ómerkingu dóms Landsréttar. Þeir neituðu því og Hæstiréttur sá því ekkert til fyrirstöðu að dæma í málinu. Stundin segir frelsið hafa sigrað  Hæstiréttur staðfesti dóm Landsréttar um að hafna lögbannsbeiðni Glitnis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.