Morgunblaðið - 23.03.2019, Síða 10
Morgunblaðið/Eggert
Hælisleitendur Frá mótmælum á Austurvelli nýlega. Hópur hælisleitenda krafð-
ist betri þjónustu hér á landi og að hætt yrði að senda umsækjendur úr landi.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Það sem af er marsmánuði hafa 57 út-
lendingar leitað eftir alþjóðlegri
vernd hér á landi. Í janúar voru þeir
73 og einnig 73 í febrúar. Fyrstu þrjá
mánuði síðasta árs voru þeir 138, en
eru nú þegar orðnir 203. Það stefnir
því í verulega fjölgun hælisleitenda á
þessu ári.
„Við þurfum að bæta við búsetuúr-
ræðum vegna þessarar fjölgunar og
erum að leita fyrir okkur í því efni,“
segir Þórhildur Ósk Hagalín, upplýs-
ingafulltrúi Útlendingastofnunar.
Sem stendur er stofnunin með samn-
ing við þrjú sveitarfélög um búsetu-
úrræði, Reykjavík, Reykjanesbæ og
Hafnarfjörð. Að
auki rekur stofn-
unin búsetu-
úrræði á eigin
vegum á nokkrum
stöðum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Þórhildur segir
að Útlendinga-
stofnun hafi í síð-
ustu viku sent
sveitarfélögum
víða um land bréf þar sem spurst var
fyrir um áhuga þeirra á að gera þjón-
ustusamning við stofnunina um fé-
lagslega þjónustu og stuðning við um-
sækjendur um alþjóðlega vernd, á
meðan þeir bíða niðurstöðu umsókna
sinna. Þjónustan snýr m.a. að því að
veita umsækjendunum húsaskjól,
fæði og félagslegan stuðning. Horft er
til þjónustu við a.m.k. 40 til 50 um-
sækjendur, en ekki er útilokað að
semja um færri í þjónustu séu skilyrði
til staðar. Vonast er til að svör berist
fyrir lok mánaðarins.
Fram kom í umræðum á Alþingi í
vikunni að fulltrúar dómsmálaráðu-
neytisins hafa upplýst fjárlaganefnd
um að útgjöld vegna hælisleitenda hér
á landi geti farið allt að 2 milljörðum
króna fram úr þeim 3 milljörðum sem
fjárlög gera ráð fyrir til málaflokksins
á þessu ári. Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir dómsmálaráðherra sagði
að kallað hefði verið eftir upplýsing-
um frá útlendingastofnun um það
hvernig bregðast mætti við.
Umsækjendum um vernd fjölgar
Hælisleitendur á Íslandi voru 138 á fyrstu þremur mánuðum 2018 en eru nú þegar orðnir 203
Fjölga þarf búsetuúrræðum Útlendingastofnun er að kanna áhuga sveitarfélaga víða um land
Þórhildur
Hagalín
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019
GRÆNT ALLA LEIÐ
Landsréttur sneri í gær við dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur í máli
Freyju Haraldsdóttur gegn Barna-
verndarstofu og er niðurstaða dóms-
ins að Freyju hafi verið mismunað
vegna fötlunar sinnar þegar umsókn
hennar um að gerast fósturforeldri
var hafnað.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafn-
aði í júní kröfum Freyju um að fella
úr gildi úrskurð úrskurðarnefndar
velferðarmála frá 6. júní 2016 þar
sem staðfest var ákvörðun Barna-
verndarstofu frá nóvember 2015 um
synjun á umsókn Freyju um leyfi til
þess að taka barn í fóstur.
Í niðurstöðu Landsréttar segir að
ef gengið sé út frá því að fatlaður
einstaklingur sé almennt ekki við
góða almenna heilsu án þess að nán-
ara mat fari fram á þeirri aðstoð sem
hann nýtur og aðstöðu hans til þess
að ala upp barn að öðru leyti yrði
honum fyrir fram gert erfiðara um
vik að uppfylla skilyrði 6. greinar
reglugerðar nr. 804/2004 um góða al-
menna heilsu í samanburði við ófatl-
aðan einstakling.
Freyja taldi sig ekki hafa notið
sömu málsmeðferðar og ófatlaðir við
umsókn sína um að gerast fósturfor-
eldri. Var henni m.a. neitað um að
sækja námskeið Foster Pride sem
er haldið á vegum Barnaverndar-
stofu ætlað áhugasömum fósturfor-
eldrum, en umsækjendum um að
taka barn í fóstur er skylt að sækja
slíkt áður en leyfi er veitt til að ger-
ast varanlegt fósturforeldri.
Sneri við dómi í máli Freyju
„Við mótmælum því að skólasystir
okkar Zainab Safari verði send úr
landi, “ sagði Svava Þóra Árnadóttir,
formaður réttindaráðs Hagaskóla, í
gærmorgun þegar hópur nemenda í
skólanum afhenti Hirti Braga
Sverrissyni, formanni kærunefndar
útlendingamála, undirskriftalista
þar sem brottvísun Zainab, sem er 14
ára var mótmælt. 600 nemendur í
skólanum skrifuðu undir listann, auk
6.200 rafrænna undirskrifta.
„Ég er ofsalega þakklát fyrir
þessa samstöðu vina minna,“ sagði
Zainab.
Hjörtur Bragi sagðist ekki geta
tjáð sig um einstök mál, en gott væri
að sjá samstöðu nemendanna.
„Ég er
ofsalega
þakklát“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samstaða Nemendur í Hagaskóla afhentu Hirti Braga Sverrissyni, formanni kærunefndar útlendingamála, undirskriftir. Zainab er fyrir miðri mynd.
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík
Sími 569-6000 - www.os.is
Ársfundur
Orkustofnunar 2019
Fundurinn verður haldinn 3. apríl
14:00 - 17:00 á Grand Hótel Reykjavík
D A G S K R Á
13:45 Mæting
14:00 Ávarp ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
14:15 Ávarp orkumálastjóra - Dr. Guðni A. Jóhannesson
14:30 ACER‘s Functions and Responsibilities
Alberto Pototschnig, forstjóri, ACER
15:00 Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna
á tímamótum
Lúðvík S. Georgsson, forstöðumaður Jarðhitaskólans
15:15 Kaffihlé
15:30 Samtenging hagkvæmnis, umhverfisáhrifa og
fjáröflunar smárra vatnsaflsvirkjana á Íslandi
Hrafnhildur Jónsdóttir, sérfræðingur í gæðum
framleiðslugagna, Marel
15:45 Raforkueftirlit og raforkuöryggi
Rán Jónsdóttir, verkefnisstjóri
– verkfræði raforkumála, Orkustofnun
16:00 Smávirkjanir á Íslandi
Erla B. Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri
– skipulag raforkuvinnslu, Orkustofnun
16:15 Ný áætlun Uppbyggingasjóðs EES 2014 – 2021
á sviði endurnýjanlegrar orku
Baldur Pétursson, verkefnisstjóri – fjölþjóðleg verkefni
og kynningar, Orkustofnun
16:30 Fundarlok / Léttar veitingar
Fundarstjóri: Harpa Þ. Pétursdóttir, lögfræðingur
alþjóðleg verkefni, Orkustofnun
Skráning á fundinn og útsending fundar á os.is