Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Stórbrunar sem við lentum í við Miðhraun í Garðabæ og Hvaleyrar- braut í Hafnarfirði í fyrra ýttu rækilega við okkur varðandi eld- varnir. Þessir eldsvoðar voru af þeirri stærðargráðu að við réðum hreinlega ekki við þá. Ég var orð- inn hræddur um öryggi minna manna og það er ískyggilegt,“ sagði Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins (SHS). Hann sagði að ef vatnsúðakerfi hefðu verið til staðar í þessum húsum hefði eldur- inn væntanlega ekki náð að magn- ast eins og hann gerði. Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri á for- varnasviði SHS, sagði að þessir tveir stórbrunar hefðu verið af þeirri stærðargráðu að slökkviliðið hefði þurft að láta eldinn geisa þar til fór að draga úr honum. Þá fyrst gat slökkvistarf hafist. SHS hefur lagt aukna áherslu á eldvarnaeftirlit frá áramótum og því verkefni verður fylgt eftir. Jón Viðar sagði að lög um brunavarnir (75/2000) og reglugerð um eldvarn- ir og eldvarnaeftirlit (723/2017) kvæði skýrt á um ábyrgð eigenda og forráðamanna húsnæðis á eld- vörnum. Þá er átt við húsnæði sem er skoðunarskylt af hálfu eldvarna- eftirlits slökkviliðs. Það eru m.a. hús þar sem margir starfa, koma saman, fara um eða dveljast, þ.e. húsnæði þar sem hætta er á stór- felldu manntjóni í eldsvoða. Þetta á t.d. við um sjúkrahús, skóla, hjúkr- unarheimili, fangelsi og gistihús. Einnig húsnæði með starfsemi sem sérstök eldhætta stafar af og þar sem hætta er á miklu eignatjóni í eldsvoða, t.d. lagerhúsnæði þar sem geymdur er mikill eldsmatur. Ábyrgðin er húseigenda „Húseigandi ber ábyrgð á því að brunavarnir séu í lagi. Með reglu- gerðinni komu ákvæði til að fylgja þessu eftir. Hver húseigandi á að tilnefna eldvarnafulltrúa sem sér um þessi mál fyrir hans hönd og er tengiliður við slökkviliðið,“ sagði Jón Viðar. Bjarni bætti því við að forráðamaður, t.d. leigjandi hús- næðisins, bæri einnig ábyrgð þótt endanleg ábyrgð væri hjá eigand- anum. „Ef húsnæðið er eftirlits- skylt vegna eldvarna þá verður að tilnefna eldvarnafulltrúa,“ sagði Bjarni. Þeir sögðu að eldvarnafulltrúar þyrftu eðli málsins samkvæmt að þekkja til eldvarna. Jón Viðar sagði að Mannvirkjastofnun hygðist halda námskeið í haust fyrir eld- varnafulltrúa. Hann sagði að sér- hæfðir starfsmenn verkfræðistofa, öryggisfyrirtækja og einkaaðilar með fagþekkingu gætu sinnt störf- um eldvarnafulltrúa. Eins gætu fyrirtækin sjálf tilnefnt eldvarna- fulltrúa úr röðum starfsmanna hefðu viðkomandi þá þekkingu sem krafist er. Eldvarnafulltrúar tryggja að eldvarnir bygginga séu til staðar og í lagi, einnig að skoð- anir og viðhald sé skráð og skjal- fest. Mörg kerfi sem tengjast eld- vörnum eins og vatnsúðakerfi og brunaviðvörunarkerfi eru skoð- unarskyld. Fagaðilar sem fá vottun eftir námskeið hjá Mannvirkja- stofnun eiga að taka þau út með reglulegu millibili. Jón Viðar sagði að lög um bruna- varnir og reglugerð um eldvarnir og eldvarnaeftirlit römmuðu mál- efnið vel inn og gæfu fullnægjandi heimildir til aðgerða. Hingað til hefði hins vegar skort á að eig- endur og forráðamenn færu eftir settum reglum. Nú væri verið að breyta því. Breytingar á eldvarna- eftirliti sem er verið að gera hér hefðu verið innleiddar fyrir löngu annars staðar á Norðurlöndunum. „Brunavarnir eru orðnar um- fangsmikill þáttur í byggingu húsa og eru enn að aukast. Nú eru byggð stærri hús með stærri rým- um en í gamla daga. Áður voru hús hólfuð meira niður og það kemur í veg fyrir útbreiðslu elds,“ sagði Jón Viðar. Bjarni sagði að bruna- varnir í stórhýsum væru orðnar tæknilega flóknar með sjálfvirkum slökkvikerfum, sjálfvirkri reyklosun og brunaviðvörunarkerfum sem ynnu með öðrum kerfum eins og loftræstikerfum og brunahólfun. Virkniprófa þyrfti allt ferlið reglu- lega. Rafræn þjónustugátt SHS „Við byrjuðum á því að kynna þetta fyrirtækjum og stofnunum þar sem mannslíf gætu verið í hættu í eldsvoða,“ sagði Jón Viðar. Sú vinna hófst í byrjun þessa árs. „Markmiðið er að allir virði þessar reglur. Við hyggjumst nýta tæknina. SHS ætlar að opna raf- ræna þjónustugátt þar sem fast- eignaeigendur eiga að staðfesta á hverju ári að eldvarnir hafi verið skoðaðar og séu í lagi. Þetta geta fagaðilar sem sinna eftirliti líka gert fyrir húseigendur. Okkar hlut- verk verður að fara á vettvang skipulega eða eftir tilviljanakenndu úrtaki, gera stikkprufur og stað- festa að allt sé í lagi.“ Bjarni sagði að SHS færi líka í heimsóknir og fylgdist með því að eldvarnafulltrúar hefðu verið til- nefndir, kynnti sér úttektir, hvort viðhald kerfa væri í lagi og færi yf- ir málin. „Ef þetta er allt í lagi þá er ekki ástæða til að skoða stofn- unina eða fyrirtækið gafla á milli,“ sagði Bjarni. Þeir sögðu mikilvægt að stöðugt væri fylgst með því að öll bruna- varnakerfi virkuðu á fullnægjandi hátt. Með sumum þáttum þarf að fylgjast oft, t.d. þarf að prófa vatnsúðakerfi á þriggja mánaða fresti. Annað nægir að skoða sjaldnar eins og brunahólfanir. Eins þarf fólk að vera vakandi fyrir því að drasl safnist ekki við flótta- leiðir og neyðarútganga og að vörum sé ekki staflað alveg upp undir úðarahausa vatnsúðakerfa. Athuga þarf reglulega að neyð- ardyr opnist og lokist eðlilega. Fylgjast þarf með viðvörunar- ljósum á stjórnborðum kerfanna daglega. Hægt er að fylgjast með þessu í daglegri umgengni um hús- næðið. SHS hefur rekið sig á að víða er eftirliti með brunavarna- kerfum og viðhaldi þeirra ábóta- vant, kerfin biluð eða virkni ófull- nægjandi. Það kallar oft á dýrar viðgerðir til að kerfin komist aftur í lag. Verði eldsvoði þegar bruna- varnakerfin eru í lamasessi er voð- inn vís. Stundum eru hús byggð til til- tekinna nota og eldvarnir miðaðar við þau. Svo er notkun hússins breytt og þá þarf að fara með bygginguna aftur í gegnum sam- þykktarferli varðandi bygging- arleyfisumsókn og eldvarnir, að sögn Jóns Viðars. Bjarni nefndi til dæmis að geymsluhúsnæði væri byggt fyrir óeldfiman varning en síðan breytt í dekkjageymslu. Það lægi í augum uppi að eldvarnir þyrfti að endurskoða í því tilfelli. „Fyrir okkur í slökkviliðinu eru eldvarnir nafli alheimsins,“ sagði Bjarni. „Stundum finnst fólki svona regluverk vera eitthvað leiðinlegt til að hrekkja almenning. En ein- hver sagði að reglugerðir um ör- yggismál og brunamál væru skrif- aðar með ösku og blóði. Þetta er gert af illri nauðsyn,“ sagði Bjarni. Jón Viðar benti á að væri ekki fylgst með því að brunavarnarkerfi væru í lagi gæti það orðið til þess að stöðva þyrfti starfsemi í hús- næðinu með tilheyrandi röskun á rekstri fyrirtækisins og fjárhags- legu tjóni. Hann sagði að slökkvi- liðið sæi fyrir sér að trygginga- félögin gætu komið að þessu eldvarnastarfi með ýmsum hætti. Þau hefðu mikilla hagsmuna að gæta að þessir hlutir væru í lagi. Eldvarnir teknar fastari tökum  Aukin áhersla á eldvarnaeftirlit hjá SHS  Húseigendur bera ábyrgð á að brunavarnakerfi séu í lagi  Skipa þarf eldvarnafulltrúa þar sem húsnæði er eftirlitsskylt  Prófa þarf kerfin reglulega Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hvaleyrarbraut Tveir stórbrunar urðu í fyrra sem reyndu mjög á slökkvi- liðið. Nú er hafin vinna við að fylgja því eftir að eldvarnir í eftirlitsskyldum húsum séu samkvæmt lögum og reglum og að brunavarnakerfi séu í lagi. Bjarni Kjartansson Jón Viðar Matthíasson fransi_skoverslun fransiskoverslunKLAPPASTÍGUR 44 www.fi.is FÍ útideildin Útideildin er verkefni fyrir útivistarfólk í meðalgóðu gönguformi sem vill hittast reglulega og stunda skemmtilega og fjölbreytta útivist á besta tíma ársins. Verkefnið hefst í apríl og endar í október. Megináhersla er á hefðbundnar göngur og ferðir um áhugaverðar ferðaslóðir og fjöll. Til að auka fjölbreytni er einnig farið í léttar ferðir á ferða- eða fjallahjólum og veitt leiðsögn og farið í æfingar í skíðagöngu í spori. Umsjónarmenn eru Örvar Aðalsteinsson og Þóra Björk Hjartardóttir. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Sími 568 2533 | www.fi.is Kynningarfundur miðvikudaginn 27. mars kl. 20 í risi FÍ, Mörkinni 6.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.