Morgunblaðið - 23.03.2019, Side 15

Morgunblaðið - 23.03.2019, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 Nú í marsmánuði hóf Hafrannsókna- stofnun merkingar á þorski á ný eftir nokkurt hlé. Merktir voru 1800 þorsk- ar fyrir vestan og norðan land um borð í rannsóknaskipunum þegar skipin voru í stofnmælingu botnfiska. Í haust er áætlað að halda merkingunum áfram og þá verður ungþorskur merktur í Arnarfirði og Ísafjarðar- djúpi. Þorskur sem merktur hefur verið við Ísland hefur sjaldan endurheimst fyrir utan íslenska lögsögu. Þorskur merktur við Grænland hefur hins veg- ar endurheimst við Ísland en í mis- miklum mæli eftir árum. Nú herma fréttir að íslenskur þorskur sé farinn að veiðast við Jan Mayen. Því er nauð- synlegt að merkingar séu stundaðar reglulega þannig að hægt sé að fylgj- ast stöðugt með því hvort breytingar verði á fari þorsks við Ísland, segir á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar. Fyrstu merkingar á þorski við Ís- land voru gerðar árið 1904 og frá þeim tíma hefur þorskur verið merktur reglulega. Frá árinu 2010 hefur hins vegar mjög lítið af þorski verið merkt á Íslandsmiðum. Þó að fyrri rannsókn- ir hafi gefið mikilvægar upplýsingar um far hafa umhverfisbreytingar í hafinu við Ísland undanfarin ár haft áhrif á útbreiðslu ýmissa sjávar- tegunda við landið. Því er mikilvægt að varpa á nýjan leik ljósi á far þorsks- ins við þessar breyttu aðstæður. Í frétt á heimasíðu Hafró kemur fram að sjómenn hafi á undanförnum áratugum verið öflugir liðsmenn í merkingaverkefnum og óskar stofn- unin eftir liðsinni þeirra. Til nokkurs er að vinna því greiddar eru tvö þús- und krónur fyrir endurheimt hefð- bundin T-merki. aij@mbl.is Þorskur merktur á nýjan leik Merkingar Um 1.800 þorskar voru merktir fyrir vestan og norðan.  Vilja fræðast um far fiskanna Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verktakafyrirtækið Þingvangur hefur sett á sölu 15 íbúðir á svonefndum Hljómalindarreit í Reykjavík. Fermetraverðið er hæst vel á aðra milljón króna. Þær eru í tveimur húsum, Klapparstíg 28 og 30. Pálmar Harðarson, fram- kvæmdastjóri Þingvangs, segir staðsetninguna einstaka. Íbúðirnar séu við eitt fegursta torg borgar- innar en kosti margar undir 40 milljónum. Hluti af ákveðnum lífsstíl „Við erum að selja íbúðir á undir 40 milljónum. Þetta eru splunku- nýjar íbúðir í splunkunýjum húsum sem eru með ýtrustu kröfur um hljóðvist, aðgengi og öryggi. Þetta er aðgangur að því að vilja búa vel í miðbænum. Það er ákveðinn lífsstíll að búa þarna. Ég er ekki viss um að slíkt framboð af nýjum íbúðum verði nokkru sinni aftur. Það verður líklega aldrei aftur gert svona torg í miðbænum. Þetta er flottasti hektarinn í höfuðborg- inni,“ segir Pálmar. Pálmar segir skipulagsmál hafa tafið fyrir afhendingu íbúðanna. „Það stóð til að vera með stiga- hús í öðru húsinu. Að lokum þurfti hins vegar að vera stigahús í báð- um húsum. Þess vegna þurftum við að bíða með að setja íbúðirnar í sölu. Þá þurfti að ljúka frágangi á veitingastað á jarðhæð,“ segir Pálmar. Um er að ræða tvær eignir. Annars vegar 11 íbúðir á Klappar- stíg 30. Fermetraverðið er frá 672 til 1.058 þúsund og er meðalstærðin 43 fermetrar. Meðalverðið er 39,4 milljónir. Hins vegar eru fjórar íbúðir til sölu á Klapparstíg 30. Fermetraverðið er 676 til 819 þús- und og meðalstærðin 104 fermetrar. Meðalverðið er 76,7 milljónir. Kenndur við plötubúð Húsin tvö eru samliggjandi í ný- byggingu sem hýsir Skelfiskmark- aðinn á jarðhæð. Veitingastaðurinn var opnaður í ágúst síðastliðnum, en er nú til sölu. Hljómalindarreiturinn er kennd- ur við hljómplötuverslunina Hljómalind sem var á Laugavegi 21. Þar er nú rekið kaffihús á horni Laugavegar og Klapparstígs. Uppbyggingunni á Hljómalindar- reit fylgdi niðurrif nokkurra húsa. Stærsta nýbyggingin er hótel við Smiðjustíg og Hverfisgötu, hótelið Canopy Reykjavík, sem var opnað í júlí 2016. Á jarðhæð hótelsins, Hverfisgötumegin, er m.a. veitinga- húsið Geiri Smart. Nýjar íbúðir á Hljómalindarreit Klapparstígur 28 Íbúð Stærð, m2 Verð, m. kr. Þús. kr./m2 201 72,3 58,9 815 202 106,5 74,9 703 301 97,5 79,9 819 302 137,5 92,9 676 Meðalt. 103,5 76,7 753 Klapparstígur 30 Íbúð Stærð, m2 Verð, m. kr. Þús. kr./m2 201 81,7 54,9 672 202 46,8 39,9 853 203 40,5 37,9 936 301 34,3 32,9 959 302 36,4 37,5 1.030 303 40,0 38,9 973 304 40,5 38,9 960 401 34,3 33,9 988 402 36,4 38,5 1.058 403 39,9 39,9 1.000 404 41,2 39,9 968 Meðalt. 42,9 39,4 945 KLAPPARSTÍGUR 28 KLAPPARSTÍGUR 30 Nýjar íbúðir í sölu á Hljómalindarreit  Fermetraverðið allt að 1.058 þúsund Fram kom í Morgunblaðinu í lok janúar að meðalverð allra eigna í fjölbýli sem seldust í 101 Reykjavík á fjórða fjórðungi í fyrra var 548 þúsund. Þá kom fram í Morgunblaðinu í september að meðalverð 34 íbúða á Hafnartorgi er um 110 milljónir og meðalverð á fer- metra tæplega 900 þús. Þetta voru tvö hús við Geirsgötu. 900 þúsund á Hafnartorgi FERMETRAVERÐIÐ VISSIR ÞÚ... Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 ... að kollagen í húðminnkar eftir 25 ára aldur? Hafðu samband við okkur og við aðstoðumþig að finna réttumeðferðina! Okkar meðferðir auka kollagenframleiðslu og gera undur fyrir þína húð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.