Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 16
Scoresbysund GRÆNLAND ÍSLAND Ammassalik FÆREYJAR Fæðusvæði fullorðinnar loðnu Dreifi ng ungloðnu Fæðugöngur loðnu Göngur loðnu til baka frá fæðusvæðum Hrygningargöngur Hrygningarstöðvar Útbreiðsla loðnu í venjulegu árferði síðan um aldamót Loðnuafli fiskveiðiárin 1980/81 til 2018/19 Heildarloðnuafli og útbreiðsla loðnu Júní-september Október-desember Janúar-mars 1980 /1981 1985 /1986 1990 /1991 1995 /1996 2000 /2001 2005 /2006 2010 /2011 2015 /2016 2018 /2019 þús. tonn 1.000 1.250 750 500 250 VIÐTAL Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Brestur í loðnuveiðum og blikur á lofti eru orð sem oft hafa verið notuð að undanförnu. Loðnan hefur breytt hegðan sinni síðustu ár og mörgum spurningum er ósvarað um um- hverfisþætti, útbreiðslu, þróun stofns- ins og göngur loðnunnar til hrygn- ingar, sem að stærstum hluta hefur verið í Faxaflóa og Breiðafirði. Einstaklingar, fyrirtæki og sveitar- félög víða um land þurfa að endur- skoða fjárhagsstöðuna og komið hefur fram að loðnubresturinn sé mikið högg fyrir þjóðarbúið. Þannig geti ríkið orð- ið af um fjórum milljörðum ef miðað sé við vertíð eins og var í fyrra sem þó var ekki meðal þeirra stóru. Mörg spjót hafa staðið á starfs- mönnum Hafrannsóknastofnunar síð- ustu vikur, en þar stendur Þorsteinn Sigurðsson í brúnni á uppsjávarsviði. Hann segir að loðnan sem hrygnir fyr- ir Vesturlandi sé trúlega að mestu hrygnd, en hrygning fyrir norðan sé venjulega seinna á ferðinni. Þar virðist minna af loðnu ganga til hrygningar en síðustu tvö ár af fréttum að dæma. Fregnir hafi borist héðan og þaðan um loðnu, en Þorsteinn segir að það sé í samræmi við það sem menn hafi vitað og ekkert sem breyti fyrri ákvörð- unum varðandi ráðgjöf um veiðar. Horfðu til vertíðarinnar 2017 Mest af loðnunni hrygnir við þriggja ára aldur og drepst síðan að stórum hluta. Loðnubresturinn kom ekki með öllu á óvart því árgangurinn sem átti að bera uppi veiði vetrarins mældist lítill við mælingar þegar hann var mældur sem ungloðna í september 2017. „Þessar upplýsingar lágu fyrir, en það sama var upp á teningnum 2015 fyrir vertíðina 2017 og þá var ekki útlit fyrir vertíð,“ segir Þorsteinn. „Við fórum í hefðbundinn leiðangur í janúar og þær mælingar voru á pari við það sem við höfðum séð um haustið og í framhaldinu var sagt að það yrði lítil sem engin vertíð og ein- ungis ráðlagt að veiða rúm 50 þús- und tonn. Útgerðirnar urðu eðlilega óróleg- ar og létu stofnunina fá fjármagn til að fara í frekari rannsóknir auk þess sem þær lögðu til skip til aðstoðar. Aftur var farið af stað og við lentum þá í loðnu við Kolbeinseyjarhrygg- inn og alveg inn í Skjálfanda. Út úr því kom ráðgöf um tæplega 300 þús- und tonna afla og heimildir fyrir ís- lensk upp á um 190 þúsund tonn og 17 milljarða útflutningsverðmæti að því er útgerðarmenn hafa sagt. Þetta er í raun ástæðan fyrir því hversu jákvæðir við vorum í allan vet- ur og hversu mikið og lengi var leitað. Við gátum ekki annað en vonast eftir því að eitthvað sambærilegt myndi gerast aftur. Við sáum hins vegar aldr- ei neitt rangt við það sem kom út úr haustmælingum 2015, en svo dúkkaði þetta magn upp fyrir norðan land í febrúar. Ég efast um að við hefðum farið út í viðlíka leit í vetur hefði eng- inn árangur orðið 2017. “ Óvissa með vertíð 2020 -Mælingar á loðnu sem á að bera uppi vertíðina 2020 hafa ekki gefið til- efni til bjartsýni. Telurðu líkur á loðnu- vertíð næsta vetur? „Niðurstöður til þessa eru ekkert já- kvæðar fyrir vertíð næsta vetur. Hins vegar getur margt gerst á milli þess sem mælt er af ungloðnu í september og svo aftur á sama tíma ári seinna. Þó að við mælum lítið þá er ekki hægt að segja fullum fetum að ekki verði ver- tíð. Þarna erum við hins vegar með vís- bendingavísitölur úr mælingum á ung- loðnu. Við getum þó séð út úr þessum gögnum að ef einhver veiði verður er mjög ólíklegt að það verði stór vertíð.“ -Af hverju fáum við ekki stærri hrygningar- eða veiðistofn heldur en raun ber vitni, ef við göngum út frá því að hrygning síðustu ára hafi verið í samræmi við staðla ykkar og Alþjóða- hafrannsóknaráðsins? „Það að tryggja stærð hrygningar- stofns að einhverju lágmarki þarf ekki að vera ávísun á að niðurstaðan verði ásættanleg vertíð þremur árum seinna. Umhverfisaðstæður og náttúr- an spila þarna inn í og hvernig vorar í sjónum þegar lirfur eru að klekjast út og þurfa fæðu. Fyrsta spurningin er um afföllin af lirfunum og næsta spurning er um afföll af seiðum fram eftir hausti. Í gamla daga sáum við í seiðarann- sóknum að það var ekkert samhengi á milli seiðavísitölu og því sem kom sem hrygningarstofn þremur árum seinna. Afföll og það hvað gerist á fyrsta árinu virðast ráða árgangastyrk í hrygn- ingarstofni. Ef við berum loðnuna saman við þorskinn þá töldum við okkur þurfa að byggja stofninn upp til að fá betri ný- liðun. Nýrri árgangar úr risastórum hrygningarstofni hafa ekki skilað þeirri nýliðun sem við vorum að vonast til. Þó að það sé mikið af hrognum þá tengist þetta væntanlega aðstæðum í hafinu frá því að lirfurnar klekjast út og fyrsta árinu í lífi þeirra.“ Þáttur hvala í afráni -Getur verið að skýringa sé að leita í vanmati á afráni og norðlægari út- breiðslu loðnustofnsins heldur en áður? „Það er alveg ljóst að þegar loðnan er komin að ströndum Grænlands að loknu fyrsta árinu verður miklu minna afrán af fiski á stofninn einfaldlega vegna þess að miklu minna er af fiski þegar komið er norður með Austur- Grænlandi. Hins vegar geta aðrir af- ræningjar þá haft meiri áhrif en áður. Eitt af verkefnunum sem unnið er að er að fá gleggri mynd um þátt hvala í afráninu. Við höfum sinnt talningu hvala í samhliða mælingum okkar á haustin og því er komin einhver vitn- eskja um fjölda langreyða og hnúfu- baka á loðnuslóðinni á haustin, þegar þeir eru líklegast hvað flestir á þeim slóðum. Til að geta metið afránið er lykilatriði að vita fjöldann en það þarf líka að vita hversu lengi sá fjöldi er á slóðinni og hversu stórt hlutfall þeirrar fæðu er loðna. Þá fyrst er hægt að áætla magnið. Auðvitað getur það verið mikið ef langreyður og hnúfubakur éta loðnuna, þótt vitað sé að langreyður éti örugglega minna. Hnúfubakur er vax- andi stofn og við höfum verið að reyna að ná húðsýnum úr þeim með litlum skutli. Þá er hægt að greina meðal- samsetningu fæðunnar einhverja mán- uði á undan. Þetta er hins vegar erfitt því fyrst þarf að finna hnúfubakinn og það ger- ist ekki nema í góðu veðri. Svo þarf að komast nálægt honum þegar hann kemur upp til að blása, sem getur líka verið erfitt. Það er ljóst að við getum ekki skotið 300 hnúfubaka til að skoða fæðu þeirra og því verðum við að leita annarra leiða. Burtséð frá afráninu er það stað- reynd að loðnan hefur flutt sig um set og er norðar en áður, og það get- ur líka verið hluti af skýringunni á því hversu stofninn hefur verið lítill á síðustu árum. Það kann að vera að það vistkerfi sem hún er í núna sé af einhverjum völdum verra en það sem hún var í áður fyrr. Nákvæmlega hvað það er sem veldur því að færri koma nú til baka til hrygningar en áður er erfitt að segja en það er hins vegar staðreynd og endurspeglast kannski ágætlega í veiðisögunni. Meðalvertíðin síðustu tólf ár var rétt rúm 300 þúsund tonn en á níunda og tíunda áratugnum fór afli oft yfir milljón tonn og meðalafl- inn var yfir 900 þúsund tonn á því 20 ára tímabili.“ Hvað stýrir breytingum? - Hvað eruð þið að gera til að fá svör við þessum margvíslegu spurningum? „Það eru margvísleg verkefni í gangi en stóra verkefnið er að reyna að átta sig á breytingum í útbreiðslu og göngum og skilja hvernig lífsfer- illinn er núna og hvað það er sem stýrir þeim breytingum sem við höf- um orðið vitni að. Með verkefnunum erum við að reyna að nálgast svör við spurningum eins og hvar eru hrygningarsvæði loðnunnar í dag, hversu mikið sjáum við af lirfum og hver er dreifing þeirra? Skila lirfur úr hrygningu fyrir norðan sér inn í hrygningarstofninn eða hvað verður um þær? Hver eru tengsl umhverfis- þátta og útbreiðslu loðnunnar? Eru breytingar í því sem loðnan er að éta og er fæðuframboðið nægjanlegt? Til þess að svara þessum stóru spurningum þá eru ýmis verkefni í gangi sem þó eru mörg hver skammt á veg komin enda fjármagn til þessara rannsókna af skornum skammti og lengst af hafa allt of fáir komið að því að sinna þessum verkefnum. “ -Hvað með aukið úthald rannsókna- skipa og fleiri leiðangra norður með Grænlandi og yfir til Jan Mayen? „Við ákváðum að byrja á lirfunum við upphaf lífsgöngunnar og vinna okkur þaðan. Best hefði verið ef við hefðum fengið 2-3 rannsóknaskip til að vakta þetta svæði frá vori og fram að hrygningu, í 9-10 mánuði. Þannig fengjum við betri mynd af ástandinu, en þetta er varla raunhæft í stöðunni og fjármagn ekki fyrir hendi. Í vetur höfum við náð að auka vöktunina með mismunandi skipum, en það er einkum vöktun á magninu þegar hún er að koma inn til hrygningar og í veiðina. Með því náum við ekki að svara grunnspurningum.“ Formlegur samstarfshópur -Hvað með samstarfið við útgerðir uppsjávarskipa? „Samstarf Hafrannsóknastofnunar og útgerðarinnar hefur verið til í ýmsu formi um langt árabil eða frá því að breytingar fóru að sjást á hegðun loðn- unnar. Fyrir tæpu ári var settur á laggirnar formlegur samstarfshópur og frá því fyrir jól höfum við fundað 2-3 sinnum í viku. Í hópnum eru þrír fiskifræðingar Hafrannsóknastofn- unar og fimm fulltrúar útgerðarinnar. Fyrstu skrefin voru að fara yfir vinnu- brögð okkar og hvernig við stöndum að mælingum þannig að allir væru frá upphafi á sömu bylgjulengd. Verkefnið hefur að mínu viti tekist mjög vel og þróast þannig að það sem við ákváðum að gera í loðnuleitinni í vetur var áður rætt í samráðshópnum og sátt var um þá framkvæmd innan hópsins. Undirbúningur var góður og í einhverjum tilvikum fórum við eftir hugmyndum útgerðarinnar um hvar byrjað var að leita, en það var þá frek- ar spurning um röð verkefna frekar en heildarmyndina.“ -Þurftuð þið að gefa afslátt af vísind- unum í þessu samstarfi? „Það er nokkuð sem við gerum ekki. Við vorum með starfsmenn um borð í öllum þeim skipum sem við nýttum til rannsókna í vetur og þeir fylgdust með því að öll framkvæmd leiðangranna væri með sama hætti og er á okkar eigin skipum,“ segir Þorsteinn Sig- urðsson. Brestur í loðnu og blikur á lofti  Unnið að margvíslegum rannsóknum  Afrán og breytt vistkerfi  Enginn afsláttur á vísindunum Morgunblaðið/Eggert Hafrannsóknastofnun Mikið hefur mætt á Þorsteini Sigurðssyni og samstarfsfólki hans í vetur. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 Veiðiskipin voru drjúg í loðnuleit- inni í vetur og fram hefur komið að útgerðirnar hafi lagt 130 millj- ónir í verkefnið. Þorsteinn var spurður hvort það væri eðlilegt: „Þessari spurningu um hvað sé eðlilegt ætla ég ekki að svara. Hins vegar er óeðlilegt í vöktun á stofni eins og loðnustofninum, sem skiptir svo miklu máli, að þeir sem eiga að sjá um vöktun- ina og veita ráðin séu háðir því að fá skip sem þeir ráða ekki að fullu yfir. Ef einhverjar veiðar hefðu ver- ið í gangi, t.d. á litlum upphafs- kvóta í loðnu eða á kolmunna í færeyskri lögsögu í byrjun árs- ins, er ekki víst að við hefðum fengið þessi skip til loðnuleitar og vöktunar. Í vetur gekk þetta vel vegna þess að það voru laus skip til þessara verkefna, en með tryggu fjármagni til verksins þar sem skip væru t.d. leigð að undangengnu útboði gætum við skipulagt okkur betur fyrirfram.“ Skip voru laus til leitar VÖKTUN Á VEIÐISKIPUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.