Morgunblaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ER08 hægindastóll
Leður – verð 285.000,-
Embluverðlaunin eru norræn matarverðlaun sem er ætlað
að hampa norrænni matarmenningu. Þann 1. júní verða
verðlaunin afhent í Hörpu í Reykjavík í tengslum við norrænt
kokkaþing.
NORRÆNU
MATARVERÐLAUNIN2019
Þekkir þú einhvern sem skarar
fram úr í matvælageiranum?
Skráningarfrestur er til og með
31. mars 2019.
Hráefnisframleiðandi
Norðurlanda 2019
Matvælafrumkvöðull
Norðurlanda 2019
Matvælaiðnaðarmaður
Norðurlanda 2019
Matarblaðamaður
Norðurlanda 2019
Norðurlandaverðlaun fyrir
mat fyrir marga 2019
Mataráfangastaður
Norðurlanda 2019
Norðurlandaverðlaun
fyrir mat fyrir börn og
ungmenni 2019
Allir geta tilnefnt í flokkana sjö með einföldum hætti á vefsíðunni
www.emblafoodawards.com
Það eru bændasamtök á Norðurlöndunum í samvinnu við Norrænu ráðherranefndina
sem veita verðlaunin.
Á vefsíðunni emblafoodawards.com er tekið við tilnefningum í sjö flokka sem eru:
Emil Thorarensen
Eskifirði
Haldnir voru veglegir afmælistón-
leikar í Eskifjarðarkirkju, sem jafn-
framt hýsir Tónlistarmiðstöð Aust-
urlands, í tilefni 70 ára afmælis séra
Davíðs Baldurssonar og prófasts
Austurlandsprófastsdæmis.
Guðný Jónsdóttir, kirkjuvörður og
meðhjálpari, sagði í samtali við
fréttaritara Morgunblaðsins að fjöl-
menni hefði verið saman komið til að
heiðra og sýna séra Davíð virðingu á
þessum merku tímamótum. Reiknaði
hún með að ekki færri en 300 manns
hefðu vermt sæti kirkjunnar.
Séra Davíð tók við prestsembætt-
inu á Eskifirði fyrri hluta árs 1977 og
hefur þjónað þar æ síðan, eða allan
sinn starfsferil, en mun láta af störf-
um innan skamms. Við sjötugsaldur
verður fólk að láta af störfum, enda
þótt það sé fullfrískt.
Hr. Karl Sigurbjörnsson emeritus
sagði fréttaritara það vera nánast
einstakt að prestar störfuðu alla sína
starfsævi í sama prestakallinu.
Í störfum sínum hefur séra Davíð
reynst einkar farsæll og í uppáhaldi
hjá sóknarbörnum sínum. Hugar að
velferð þeirra, með sínu góða hjarta-
lagi, hokinn af reynslu sem raun-
verulegur sálfræðingur og geð-
læknir.
Davíð hefur ætíð verið mikill, dýr-
mætur æskulýðsleiðtogi, ræktað
samfélagið og verið kraftmikill fyrir
austfirskt samfélag í orði og verki.
Eiginkona hans er Inger Linda Jóns-
dóttir, lögreglustjóri á Austurlandi
og fv. sýslumaður Sunnmýlinga.
Það er almennt mál manna að
Eskfirðingar séu ennþá með gömlu
kirkjuna tekna í notkun 1900, komna
á aldur, sem hefur nýst vel í tímans
rás til síns brúks. Davíð lét ekki stað-
ar numið fyrr en ákvörðun var tekin
um byggingu nýrrar kirkju, sem
jafnframt yrði nýtt sem Tónlistar-
miðstöð Austurlands og húsnæðið
var tekið í notkun árið 2000.
Meðal þeirra sem fram komu á
sviði afmælistónleikanna voru hljóm-
sveit Þóris Baldurssonar, bræðurnir
Ellert Borgar, Haukur, Þórhallur og
Guðmann Þorvaldssynir, Fjarða-
dætur, Óskar Einarsson hjá Fíladel-
fíu og austfirski gospelkórinn, auk
margra annarra.
Morgunblaðið/Emil Thorarensen
Kveður Séra Davíð Baldursson tók á móti tónleikagestum í kirkjunni, m.a.
þeim Kristínu Guðjónsdóttur (t.v.) og Dagbjörtu Briem Gísladóttur.
Sjötugum séra
Davíð var fagnað
Afmælistónleikar í Eskifjarðarkirkju
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur
samþykkt tillögu fulltrúa D- og V-
lista um úttekt á rakaskemmdum í
öllu skólahúsnæði Mosfellsbæjar.
„Ef fram koma merki um örveru-
vöxt í þeirri skoðun verði strax gerð
áætlun um úrbætur og ráðist í þær.
Þrátt fyrir þær þrjár úttektir sem
Efla hefur gert á húsnæði Varmár-
skóla og úrbætur í kjölfar þeirra eru
enn uppi efasemdir í skólasamfélag-
inu í Mosfellsbæ um að nóg sé að
gert.
Því er mikilvægt að fyrsta verk-
efni tengt þessari skoðun verði að
ráðast í heildstæða úttekt á Varm-
árskóla og mæla loftgæði þannig að
ekki leiki vafi á að húsnæði skólans
mæti kröfum sem gerðar eru til
skólahúsnæðis,“ segir í tillögunni.
Á bæjarstjórnarfundinum kom
fram breytingartillaga um að bæjar-
stjórn stæði sameiginlega að tillög-
unni og var tillagan ásamt breyting-
artillögunni samþykkt með níu
atkvæðum allra bæjarfulltrúa.
Mosfellsbær Bæjarstjórn hefur ákveðið að fara í úttekt á skólahúsnæði
bæjarins, m.a. Varmárskóla, sem hefur í þrígang verið skoðaður af Eflu.
Úttekt á skólahús-
næði í Mosfellsbæ
Fasteignir