Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 22
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Gengi Icelandair hækkaði um 5,8% í
784 milljóna króna viðskiptum í Kaup-
höll Íslands í gær. Eftir lokun mark-
aða í fyrrakvöld kom fram að ekkert
yrði af fjárfestingu Indigo Partners í
WOW air og skömmu síðar tilkynnti
Icelandair Group að stjórn þess hafi
samþykkt að hefja viðræður við
WOW air um aðkomu að rekstri fé-
lagsins. Síðustu þrjá daga hefur gengi
Icelandair samanlagt hækkað um
24% en gengi Icelandair Group í
Kauphöllinni hefur undanfarna mán-
uði sveiflast að stórum hluta til eftir
gangi mála hjá WOW air.
Um miðjan ágúst hækkaði gengi
Icelandair um 13% eftir fréttir af
rekstrartapi WOW air sem nam 4,8
milljörðum króna frá júlí 2017 til júní
2018. Sama dag birtust fréttir af
skuldabréfaútgáfu WOW að upphæð
500-1.000 milljónir sænskra króna.
Hlutabréf í Icelandair lækkuðu um
17,26% þann 28. ágúst, daginn eftir að
Björgólfur Jóhannsson tilkynnti að
hann hygðist hætta sem forstjóri fé-
lagsins, samfara því sem félagið til-
kynnti um lækkun afkomuspár.
Þann 11. september hækkuðu bréf
Icelandair um 10% en þá hafði skulda-
bréfaútgáfa WOW air dregist á lang-
inn.
Þann 5. nóvember hækkaði gengi
Icelandair um 39% en þann sama dag
var tilkynnt um fyrirhuguð kaup fé-
lagsins á WOW air.
Þann 29. nóvember greinir Ice-
landair frá því að hætt hefði verið við
fyrirhuguð kaup þess á WOW air.
Lækkuðu bréf félagsins þá um 12,7%
og enn frekar um tæp 18% næstu tvo
daga á eftir.
Þann 13. desember hækkaði gengi
Icelandair um rúm 7% vegna upp-
sagna hjá WOW air og fækkunar
flugvéla úr 20 í 11.
Þann 8. febrúar lækkaði gengi Ice-
landair um 16% eftir að ársuppgjör
félagsins var birt en tap þess nam 6,7
milljörðum króna.
Þann 28. febrúar hækkar gengi
Icelandair um 7,5% og um 12,3%
næstu þrjá daga í kjölfar þess að
samningaviðræður WOW og Indigo
tókust ekki fyrir tilsettan tíma.
Dagana 11. og 12. mars lækkar
gengi Icelandair um tæp 15% í kjölfar
tveggja flugslysa Boeing 737 Max 8-
véla, en Icelandair hafði gert ráð fyrir
16 slíkum þotum í notkun árið 2021.
Auk þess spiluðu jákvæðar fréttir af
viðræðum WOW air og Indigo Part-
ners inn í en félagið hugðist hækka
fjárfestingu sína í WOW air úr 75 í 90
milljónir Bandaríkjadala.
Upp og niður
hjá Icelandair
Gengisþróun Icelandair Group frá ágúst 2018
12
11
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
ágúst september október nóvember desember janúar febrúar mars
15. ágúst ’18
Tilkynnt er að WOW air
hafi tapað 4,8 milljörðum
frá júlí 2017 til júní 2018.
18. ágúst ’18
Icelandair kynnir kolsvarta
afkomuspá. Björgólfur Jóhanns-
son hættir sem forstjóri. Lækkun-
in nemur 17,26% á einum degi.
11. september ’18
Dráttur verður á því að
WOW air ljúki skulda-
bréfaútgáfu sinni.
5. nóvember ’18
Icelandair undirritar
samning með fyrir-
vara um kaup á öllu
hlutafé í WOW air.
29. nóvember ’18
Tilkynnt að hætt hafi verið við
kaupin á WOW air. Um kvöldið
er tilkynnt um viðræður WOW
og Indigo Partners og gefa bréf
Icelandair eftir dagana á eftir. 14. desember ’18
Tilkynnt að Indigo muni
leggja WOW air til allt
að 75 milljónir dollara í
formi hlutafjár og lána.
8. febrúar ’19
Icelandair kynnir
ársuppgjör fyrir 2018.
Tap félagsins nam 6,7
milljörðum króna.
9. mars ’19
Tilkynnt að Indigo muni leggja allt
að 90 milljónir dollara í WOW air og
að skuldabréfaeigendur hafi verið
beðnir um að gefa meira eftir.
22. mars ’19
Bréf Icelandair hækka í kjölfar
þess að tilkynnt er um viðræður
milli félagsins og WOW air.
Sveiflast eftir gangi mála hjá WOW
22 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019
23. mars 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 117.46 118.02 117.74
Sterlingspund 154.29 155.05 154.67
Kanadadalur 88.16 88.68 88.42
Dönsk króna 17.914 18.018 17.966
Norsk króna 13.916 13.998 13.957
Sænsk króna 12.831 12.907 12.869
Svissn. franki 118.12 118.78 118.45
Japanskt jen 1.0621 1.0683 1.0652
SDR 163.82 164.8 164.31
Evra 133.73 134.47 134.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 162.6919
Hrávöruverð
Gull 1317.3 ($/únsa)
Ál 1890.5 ($/tonn) LME
Hráolía 68.38 ($/fatið) Brent
STUTT
Tilboðsblöð og nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/lodir
Möguleg útfærsla bygginga/tölvumynd Arkís
Reykjanesbraut
Atvinnulóðir á eftirsóttum stað
Lóðir til sölu
Reykjavíkurborg óskar eftir kauptilboðum í byggingarétt á tveimur
atvinnulóðum við Bústaðaveg 151.
Við Bústaðaveg 151B er heimilt að byggja 3.815 m2 atvinnuhúsnæði
auk bílakjallara.
Við Bústaðaveg 151C er heimilt að byggja 3.673 m2 atvinnuhúsnæði
auk bílakjallara.
Skilafrestur tilboða til þjónustuvers Reykjavíkurborgar
að Borgartúni 12-14, er til kl. 14:00 þann 10. apríl 2019.
B
C
FA
R
03
19
-0
5
● Byggðastofnun, sem hefur það hlut-
verk að efla byggð og atvinnulíf með
sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra
allra landsmanna til atvinnu og búsetu,
eins og segir í fréttatilkynningu, hagn-
aðist um 113,4 milljónir króna á árinu
2018, samkvæmt sömu tilkynningu.
Eignir Byggðastofnunar námu tæp-
um 15 milljörðum króna í lok síðasta árs
og hækkuðu um tæplega 1,8 milljarða
frá árslokum 2017.
Eigið fé stofnunarinnar nam 3,1 millj-
arði króna í lok árs 2018 og eiginfjár-
hlutfall var 21,45%, í samræmi við lög
um fjármálafyrirtæki.
Hreinar vaxtatekjur voru 468 millj-
ónir króna á árinu, sem eru 42,6% af
vaxtatekjum.
Í tilkynningunni segir að eiginfjár-
staða stofnunarinnar sé áfram sterk og
gefi henni færi á að vera öflugur bak-
hjarl atvinnulífs á landsbyggðinni.
Hagnaður Byggðastofn-
unar 113 milljónir króna