Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 24
Geimfarið er ómannað og á að taka sýni af smástirninu. Vísindamenn vona að sýnin varpi ljósi á upphaf lífs á jörðinni.
Þvermál:
490 m
Eiffel-
turninn
OSIRIS-REx
Lengd: 6,2 m (með sólar-
rafhlöðum)
Breidd:
Hæð:
Massi:
Farmur:
2,4 m
3,2 m
Smástirnið Bennu
880 kg án eldsneytis
(2.110 kg með því)
Myndavélar,
mælitæki og
búnaður til að
kortleggja smástirnið
Nálægð við jörðina:
fer tiltölulega nálægt
jörðinni á sex ára fresti
Braut um sólina:
einu sinni á 1,2 árum
Er 100-1.000 milljóna
ára gamalt
Heimild: NASA
OSIRIS-REx í leiðangri að smástirninu Bennu
4 2020
Fer að yfirborði smástirnisins
til að taka sýni úr lausum
jarðlögum (60-2.000 kg)
1 8. september 2016
OSIRIS-REx var skotið á loft
og komið á braut um sólina
3 2018-2019
Rannsakar smástirnið, leitar að
tveimur hentugum stöðum
til að taka sýni
2 3. desember 2018
Osiris kom að smástirninu
5 Mars 2021
Snýr aftur til jarðar. Á að lenda
á eyðimörk í Utah í
september 2023
TAGSAM-búnaðurinn
Hannaður til að taka
sýni af Bennu
Sólin
Jörðin
Osiris
Smástirnið
Bennu
Á smástirninu er fjöldi
stórra steina eða bjarga
Ómannað geimfar NASA, OSIRIS-
REx, kom að smástirninu Ranu í
desember eftir rúmlega tveggja ára
ferð frá jörðinni en bandaríska
geimvísindastofnunin segir nú að
miklu erfiðara verði að ná megin-
markmiðinu með leiðangrinum en
vísindamenn töldu.
Geimfarið er nú um fimm kíló-
metra frá smástirninu og hefur not-
að tæki sín til að kortleggja yfir-
borð þess. Stefnt hefur verið að því
að geimfarið fari að yfirborði smá-
stirnisins í júlí á næsta ári og noti
fjarstýrðan búnað með griparm til
að taka sýni af því án þess að lenda.
Aðgerðin á aðeins að taka fimm
sekúndur og krefst mikillar ná-
kvæmni. Þangað til á geimfarið að
rannsaka yfirborðið og leita að
hentugum stöðum til að taka sýni.
Stjórnendur leiðangursins segja
að yfirborð smástirnisins sé þakið
stórum steinum og björgum og
höfðu þeir búist við því að það væri
sléttara. Geimfarið var hannað með
það fyrir augum að það gæti notað
slétt svæði með 25 metra radíus til
að taka sýni en myndir frá farinu
sýna að svo stórt svæði án steina er
hvergi að finna á smástirninu.
Stefnt að meiri nákvæmni
Stjórnendur leiðangursins hafa
þó ekki hætt við sýnatökuna og
ætla að gefa sér meiri tíma til að
undirbúa hana og tryggja að hægt
verði að nota búnaðinn af meiri ná-
kvæmni en gert var ráð fyrir. „Við
ætlum að hæfa miðdepilinn í skot-
skífunni,“ hefur fréttaveitan AFP
eftir Richard Burns, sem stjórnar
verkefninu.
Bennu er í um 85 milljón kíló-
metra fjarlægð frá jörðinni. Á smá-
stirninu eru meira en 200 björg sem
eru stærri en tíu metrar að þver-
máli, sum allt að 30 metrar, að því
er fram kemur í grein vísinda-
manna í tímaritinu Nature Astro-
nomy. Þar eru einnig margir gígar
sem eru 10 til 150 metrar á lengd.
Smástirnið hefur lítið breyst frá
því að það myndaðist og vísinda-
menn vona að sýni úr því varpi ljósi
á myndun sólkerfisins fyrir um 4,6
milljörðum ára og uppruna líf-
rænna efnasambanda sem urðu til
þess að líf kviknaði á jörðinni.
bogi@mbl.is
Sýnataka
erfiðari en
talið var
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019
Ný sending –
frábært úrval
Flottir
í fötum
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími 551-3033
gallabuxur
Álfabakka 12, 109 Reykjavík • S. 557 2400 • Netverslun elbm.is
Opið virka daga kl. 8-18
Sængurverasett, dúkar,
servíettur, viskustykki,
dýnuhlífar & lök, sloppar & inniskór,
handklæði & þvottapokar.
Vörurnar fást í
Efnalauginni Björg í Mjódd
LÍN fyrir hótel, veitingahús, gistiheimili,
sjúkrastofnanir og heimili
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Theresa May, forsætisráðherra Bret-
lands, reyndi í gær að telja breska
þingmenn á að styðja brexit-
samninginn við Evrópusambandið
eftir að leiðtogar aðildarríkjanna
samþykktu að fresta útgöngu lands-
ins úr ESB að minnsta kosti til 12.
apríl.
May hafði óskað eftir því á fundi
ESB í fyrradag að útgöngunni yrði
frestað til 30. júní en leiðtogarnir
samþykktu eftir átta klukkustunda
viðræður að bjóða Bretum að fresta
brexit til 22. maí gegn því skilyrði að
breska þingið samþykkti brexit-
samninginn í næstu viku. Neðri deild
þingsins hafði hafnað samningnum
tvisvar með miklum mun og stjórn-
málaskýrendur telja ólíklegt að hann
fái nægan stuðning á þinginu.
Leiðtogar ESB sögðu að ef breska
þingið samþykkti ekki samninginn í
næstu viku yrði útgöngunni frestað til
12. apríl og ef Bretar næðu ekki sam-
komulagi um aðra lausn á málinu fyr-
ir þann dag gengju þeir úr ESB án
samnings.
Breskir fjölmiðlar, þeirra á The
Daily Telegraph og The Guardian,
segja að leiðtogar ESB-ríkjanna hafi í
raun tekið ráðin af May í brexit-mál-
inu með því að hafna beiðni hennar
um frest til 30. júní, þ.e. fram yfir
kosningar til Evrópuþingsins sem
fara fram 23.-26. maí. The Daily Tele-
graph sagði að May hefði í raun verið
„sett úr leik“ á fundinum.
May fékk eina og hálfa klukku-
stund til að færa rök fyrir beiðni sinni
um þriggja mánaða frest á brexit og
„það voru 90 mínútur af engu“, að því
er The Guardian hefur eftir
embættismanni sem var á fundinum.
„Hún gat ekki einu sinni svarað því
hvort hún væri að undirbúa atkvæða-
greiðslu um samninginn. Hún var
spurð í þrígang hvað hún hygðist gera
ef hún bíður ósigur í atkvæðagreiðsl-
unni og hún gat ekki svarað því.“
Leiðtogarnir spurðu May hvort
hún hefði einhverja varaáætlun ef
samningnum yrði hafnað í þriðja
skipti og hvernig hún ætlaði að reyna
að tryggja honum nægan stuðning.
„Hún gekk mjög langt í því að víkja
sér undan því að svara þessum spurn-
ingum,“ hefur The Guardian eftir öðr-
um heimildarmanni. „Hún var ekki
sannfærandi,“ sagði þriðji embættis-
maðurinn. „Það var ekki ljóst hvort
hún hefði einhverja varaáætlun og
ekki einu sinni hvort hún hefði ein-
hverja áætlun yfirhöfuð.“
Velji á milli fjögurra kosta
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs
ESB, sagði að Bretar þyrftu að velja
á milli fjögurra kosta fyrir 12. apríl.
Þeir þyrftu annaðhvort að samþykkja
brexit-samninginn, ganga úr ESB án
samnings, óska eftir löngum fresti á
brexit eða ógilda úrsögnina.
Haft var eftir Emmanuel Macron,
forseta Frakklands, að fyrir leiðtoga-
fundinn hefði hann talið um 10% líkur
á því að breska þingið samþykkti
brexit-samninginn en eftir að hafa
hlýtt á May á fundinum teldi hann lík-
urnar aðeins 5%. „Þú ert mjög bjart-
sýnn,“ mun þá Tusk hafa sagt.
Bresk blöð sem hafa verið hliðholl
Íhaldsflokknum segja að vaxandi
andstaða sé við May meðal þing-
manna hans vegna framgöngu henn-
ar í brexit-málinu. The Daily Tele-
graph segir að forystumaður
óbreyttra þingmanna flokksins hafi
skýrt May frá þessu og sagt henni að
þeim þingmönnum sem vilji að hún
segi af sér hafi fjölgað. Að sögn blað-
anna gæti May reynt að tryggja
nægan stuðning við samninginn með
því að bjóðast til að segja af sér. Efnt
yrði þá til leiðtogakjörs í flokknum og
sigurvegarinn tæki við embætti for-
sætisráðherra.
Neðri deild þingsins hefur hafnað
þeim kosti að Bretland gangi úr ESB
án samnings. May hefur hins vegar
ekki viljað útiloka þann möguleika.
Óskað eftir löngum fresti?
Hafni þingið samningnum og út-
göngu án samnings gæti það óskað
eftir öðrum og miklu lengri fresti á
brexit. Bretar myndu þá þurfa að
taka þátt í kosningunum til Evrópu-
þingsins. Framkvæmdastjórn ESB
hefur sagt að ef Bretar óska eftir
lengri fresti þurfi að fresta útgöng-
unni að minnsta kosti út þetta ár og
mögulega miklu lengur. Lengri frest-
ur myndi auka líkurnar á því að þing-
kosningum yrði flýtt í Bretlandi eða
að efnt yrði til nýrrar þjóðaratkvæða-
greiðslu um brexit. Kosningar gætu
t.a.m. orðið til þess að ný ríkisstjórn
óskaði eftir aðild Bretlands að tolla-
bandalagi ESB.
Fjórði kosturinn, ákvörðun um að
hætta við brexit, er talinn ólíklegasta
niðurstaðan. Rúmar þrjár milljónir
manna höfðu þó í gær skrifað undir
bænarskrá á vef breska þingsins um
að ógilda úrsögnina. Stuðningsmenn
brexit segja að ef þingið ógildi úr-
sögnina verði það mikill hnekkir fyrir
lýðræðið og óvirðing við 17,4 milljónir
kjósenda sem greiddu atkvæði með
útgöngunni í þjóðaratkvæði í júní
2016. Forystumenn stjórnmálaflokka
landsins höfðu lofað að virða niður-
stöðu atkvæðagreiðslunnar.
Líklegt er að margir kjósendanna
líti á það sem svik við sig neyðist
Bretar til að taka þátt í kosningunum
til Evrópuþingsins, þremur árum eft-
ir að útgangan var samþykkt.
Leiðtogarnir sagðir
hafa tekið ráðin af May
Aukin andstaða við forsætisráðherrann í Íhaldsflokknum