Morgunblaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 5 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Verð kr. 41.000.000 Birkiteigur 8, 230 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Hannes Hlífar Stefánssonátti sitt besta mót ílangan tíma þegar hannsigraði á opna mótinu í Prag sem lauk um síðustu helgi. Hannes hlaut 7½ vinning af níu mögulegum og varð ½ vinningi fyrir ofan sex skákmenn sem hlutu 7 vinninga en samkvæmt móts- stigum voru það Úkraínumennirnir Zubov, Gasanov og Bakhtmaskí. Viðureignir Hannesar við þá voru viðburðaríkar og réðu miklu um gengi hans. Hann þurfti jafntefli í lokaumferðinni til að vinna mótið og þeim úrslitum náði hann án mikilla vandkvæða með svörtu gegn stigahæsta keppandanum, Alexander Zubov. Árangur Hannesar reiknast upp á 2.710 Elo-stig og hækkar hann um 21 Elo-stig fyrir frammistöð- una. Í skákinni sem hér fer á eftir reynist það andstæðingi Hannesar um megn að tengja saman krafta liðsafla síns en betra samræmi er hjá Hannesi, sem nær að þrefalda á e-línunni og ráðast síðan á veik- leikana í peðastöðu hvíts: Alþjóðlega mótið í Prag 2019; 7. umferð: Vitalí Sivjúk – Hannes Hlífar Stefánsson Vínartafl 1.e4 e5 2. Rc3 Rf6 3. g3 Fremur sjaldséð leið en svona vann nú samt Spasskí kappa á borð við Kortsnoj og Gligoric end- ur fyrir löngu. 3. … d5 4. exd5 Rxd5 5. Bg2 Rxc3 6. bxc3 Bc5 7. Rf3 Rc6 8. 0-0 0-0. He1 Bb6 10. Rxe5?! Ónákvæmur leikur sem byggist á lélegu stöðumati. 10. d3 eða 10. d4 eru betri valkostir. 10. … Bxf2+ Einnig kom til greina 11. … Rxe5 11. Hxe5 og nú 11. … Bxf2+. 11. Kxf2 Rxe5 12. d4 Vitaskuld ekki 12. Hxe5 Df6+ og hrókurinn fellur óbættur. 12. … Rc4 13. Dd3 Rd6 14. He5?! Hindrar 14. … Bf5 en gefur eftir c4-reitinn. 14. … Be6 15. Ba3 Dd7 16. Bxd6 cxd6 17. Hb5 Hab8 18. a4 Gott dæmi um yfirborðskennda taflmennsku. Hvítur hefur enga raunverulega pressu á b7-peðið. 18. … Hfc8! Hótar 19. … Bc4. 19. Hh5 h6 20. h3 Dc7 21. Ha3 Bc4 22. Dd2 He8 23. Bf3 He6! Mynd sem talar sínu máli. Menn hvíts eru á víð og dreif en svartur er þess albúinn að ráðast inn eftir e-línunni. 24. Ha1 Hbe8 25. Kg1 He3 26. Hf5 Dd7 27. g4 De7 28. He5 Smá glenna sem engu breytir, svartur hótaði m.a. 28. … g6 29. Hf4 Dg5 o.s.frv. 28. … Hxe5 29. dxe5 Dxe5 30. Kg2 b6 31. Dd4 Dxd4 32. cxd4 He3 33. a5 b5 34. a6 Kf8 35. Bc6 He2 36. Kg3 Hxc2 37. Hb1 Ba2 – og hvítur gafst upp. Fram- haldið gæti orðið 38. Ha1 b4 o.s.frv. Sigur Hannesar hefði getað orðið enn stærri því að í 8. um- ferð missti hann gjörunnið tafl niður í jafntefli gegn Indverjanum Stany. Alþjóðlega mótið í Prag 2019; 8. umferð: Hannes – Stany Þessi staða kom upp eftir 43. leik svarts, g6-g5. Hannes er bú- inn að tefla skínandi vel og Ind- verjinn er við það að „kasta inn handklæðinu“. Vonin eina liggur í c-peðinu en langeinfaldast er að leika 44. d7+! Kf7 45. Bxg5 og vinnur því a 45. … Bxg5 er svarað með 46. d8(D)+. Hann getur reynt 45. … c2 en þá er falleg vinningsleið: 46. Bxd8! c1(D) 47. Bg5! Dc5 48. d8(D) Dxa7 49. Df6+ Kg8 50 Bh6! og mátar. Hannes lék hins vegar 44. Hxh7 sem hótar 45. d7 mát og svartur varðist með 44. … Bf6 sem Hannes hefði átt að svara með 45. Hc7 sem vinnur létt. Hann valdi hins vegar 45. Bg7?? en þá kom 45. … Bxg7 46. Hxg7 Bf7! og nú varð hvítur að sætta sig við jafntefli með 47. d7+ Kd8 48. Hxf7 c2 því að hann á ekkert betra en skákir eftir f-línunni. Hannes Hlífar sigraði á opna mótinu í Prag Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Einbeittur Hannes Hlífar Stefánsson við taflið á síðasta Reykjavíkurskákmóti. Það er pirrandi að gleyma lykilorði vefþjónustu eða notendareiknings vefsíðu sem sjaldan er notuð. Þá þarf yfirleitt að tilkynna um gleymt lykil- orð og óska eftir að fá nýtt sent í tölvupósti. Velja svo nýtt lykilorð í stað þess sem kom í póstinum, því það var einnota. Versta útgáfan af lykilorðahremmingum er sennilega þegar óprúttinn aðili læsir tölvu fólks með lykilorði, í fjárkúgunarskyni, og krefst greiðslu fyrir að opna tölvuna aftur. Í vikunni lenti norska fyrirtækið Norsk Hydro í þessu. Tölvuþrjótur sýkti tölvur Norsk Hydro með gísla- tökuhugbúnaði sem dulkóðaði öll gögn á tölvum fyrirtækis- ins og læsti þeim með lykil- orði. Hjá fyrirtækinu vinna um 35.000 manns og voru starfsmenn beðnir að hafa slökkt á tölvum sínum en bent á að í lagi væri að nota síma og spjaldtölvur. Norsk Hydro er með verk- smiðjur í 40 löndum og margar af þeim stöðvuðust við árásina á meðan öðrum var og er enn haldið gang- andi handvirkt. Ljóst er að kostnaðurinn vegna árásarinnar hleypur á mörgum milljónum Banda- ríkjadala. Gíslatökuhugbúnaðurinn heitir LockerGoga. Honum virðist hafa ver- ið beint vísvitandi að Norsk Hydro og virðist þrjóturinn hafa komist yfir kerfisstjóraaðgang hjá fyrirtækinu. Þaðan dreifðist forritið eins og eldur í sinu. Norsk Hydro stendur þó ekki ráðalaust gagnvart þessu. Allur tölvupóstur fyrirtækisins er í Office 365 lausn Microsoft og er því ekki geymdur á tölvum starfsmanna. Þess vegna gátu starfsmenn látið við- skiptavini og birgja vita strax hvað gekk á. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa gefið út að ekki verði greiddir nokkrir fjármunir til tölvuþrjótsins og að afrit sé til af öllum helstu gögn- um og því sé hægt að setja alla starf- semina í gang að nýju. Áhugaverður punktur í þessu er að hlutabréfaverð Norsk Hydro hefur hækkað eftir árás- ina. Hlutabréfaverð lækkaði reyndar eftir fyrstu fréttir en hefur hækkað aftur síðan og er nú hærra en það var fyrir árásina. Hvernig má það vera? Jú, æðstu yfirmenn Norsk Hydro komu heiðarlega fram og mættu strax í fréttaviðtöl. Þeir sögðu satt og rétt frá, að tölvuárás hefði verið gerð á fyrirtækið og viðbrögð fyrirtækisins hefðu verið að slökkva á öllum tölvum þess. Við hvert skref í aðgerðum sínum til að rétta við reksturinn hefur fyrir- tækið birt tilkynningar um fram- vindu mála, fyrst á Facebook-síðu sinni en síðan einnig á heimasíðu sinni, eftir að hún komst aftur í lag. Þar er einnig að finna símanúmer og netföng tengiliða sem hagsmuna- aðilar geta hringt í og fengið nánari upplýsingar hjá. Regluleg afritataka hjá fyrir- tækjum ætti að vera regla en ekki undantekning. Með því að taka reglu- lega öryggisafrit tryggja fyrirtækin sig gegn bilunum í tölvubúnaði, not- endavillum og tölvuárásum. Fyrir- tæki sem að hafa innleitt upplýsinga- öryggisstaðalinn ISO 27001 og hafa jafnvel fengið stjórnunarkerfi fyrir- tækja sinna vottuð þekkja þetta. Hluti af innleiðingu upplýsinga- öryggis skv. ISO 27001 er að gera áhættumat fyrir allan rekstur og nýta síðan niðurstöður slíks mats til að búa til áætlanir um samfelldan rekstur. Þannig má tryggja að hægt sé að halda rekstri gangandi með sem minnstum töfum ef áföll verða. Það eru ekki aðeins fyrirtæki sem verða fyrir árásum tölvuþrjóta, ein- staklingar verða jafnvel enn oftar fórnarlömb slíkra árása. Tökum því öll reglulega öryggisafrit af efni og upplýsingum á tölvum okkar. Gætum þess að setja ekki upp hugbúnað sem við þekkjum ekki. Ef fyrirtæki eiga í hlut, sýnir reynsla Norsk Hydro að best getur reynst að vera opinn og heiðarlegur gagnvart hagsmuna- aðilum okkar þegar áföll koma upp í rekstri. Tölvuárás á Norsk Hydro Eftir Svönu Helen Björnsdóttur » Tölvuþrjótur sýkti tölvur Norsk Hydro með gíslatökuhugbún- aði sem dulkóðaði öll gögn á tölvum fyrir- tækisins og læsti þeim með lykilorði. Svana Helen Björnsdóttir Höfundur er verkfræðingur og framkvæmdastjóri Stika ehf. svana@stiki.eu Upplýsingaöryggi https://www.reuters.com/article/ Varnaðarorð Fyrstu skilaboð Norsk Hydro til starfsmanna sinna voru að tengja tölvur sínar ekki innra netinu til að koma í veg fyrir að þær sýktust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.