Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 Sagt er að Albert Einstein hafi skil- greint geðveiki þann- ig að einhver endur- taki sama hlutinn ítrekað en búist við nýrri niðurstöðu. Mér verður stundum hugsað til hans þegar ég velti fyrir mér þankagangi margra veitingamanna, bak- ara og sumra annarra sem selja vörur og þjónustu hér á landi. Ég tel að það sé óumdeilt að það gangi ekkert allt of vel hjá þorra veitingamanna og bakara. Í það minnsta eru gjaldþrotin mörg upp á síðkastið og barlómurinn mikill. Þetta er að gerast á sama tíma og viðskiptavinir eru almennt þeirrar skoðunar að verð á þessum stöðum sé allt of hátt. Við erum sem sé með þá sviðs- mynd að fyrirtækin ganga illa þrátt fyrir að almenningi ofbjóði svimandi hátt verð. Þetta er löngu þekkt staðreynd sem fáir deila um og ætti að vera þessum aðilum áhyggjuefni og ástæða til að staldra við. Í ljósi þessa ástands efndu verð- lagseftirlit ASÍ og Neytenda- samtökin til löngu þarfs málþings um nákvæmlega þetta og stefndu þar að aðilum sem hvað gleggst til málanna þekkja. Þar var mér boðið að halda erindi um hvað ég, sem einn farsælasti veitingamaður síð- ustu áratuga, hefði um málið að segja. Það er ekkert leyndarmál að ástæða velgengni minnar er fyrst og fremst því að þakka að ég þekki til fyrrnefndrar kenningar Ein- steins og hef reynt að tileinka mér það að rembast ekki of lengi við það sem illa gengur. Á vegferð minni hef ég síðan öðl- ast skilning á gildi þess að selja vörur ódýrt og fá viðskipta- vininn til mín aftur og aftur. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessi aðferð getur nýst fleirum, bæði veitinga- mönnum, bökurum og öðrum, og var það inn- tak erindis míns. Máli mínu til stuðnings nefndi ég dæmisögur úr eigin rekstri, sögur sem öfundarmenn mínir vilja kalla frægðarsögur. Það er plagsiður á Íslandi, sér- staklega þegar kemur að því að ræða umbætur, að menn þora ekki að koma sér að efninu, kjarna málsins. Oftar en ekki er skautað fram hjá því augljósa og talað und- ir rós. Hátt matarverð á Íslandi er hinsvegar grafalvarlegt mál og þeir sem boðuðu til fundarins eiga heimtingu á því ásamt almenningi í landinu að það sé þannig fjallað um þetta mál að það skili alvöru árangri, annars er betur heima setið. Ég ákvað því í framsögu minni að lýsa skepnunni eins og hún er og draga ekkert undan en samfara því hvetja menn til að lækka verð, þeim og almenningi til góðs. Þetta er ekki snákaolíusölumaður að tala enda sé ég fram á að tapa ef menn hlíta ráðum mínum. Aðilar á markaði, sem hafa setið þar eins og feitir kettir, sýna hins vegar kunnugleg viðbrögð þegar bent er á að keisarinn er allsber. Það er drullað yfir mig persónu- lega auk þess sem aðilar halda fram tómri vitleysu til að gera mig og þann rekstur sem ég stend fyr- ir tortryggilegan. Það er þó vonarglæta í myrkr- inu en sá rómaði og margfrægi veitingastaður Þrír frakkar var fyrir tilviljun að gera sambærilega tilraun og ég var að hvetja fólk til að gera og viti menn, hún virðist ganga upp. Ég hvet því alla matarunnendur til að sýna framtaki Stefáns Úlfarssonar stuðning og mæta til hans í heimsins besta plokkfisk. Niðurstaðan gæti orðið sú að fleiri fylgdu í kjölfarið og þá myndi hagur allra vænkast. Berrassaði keisarinn Eftir Þórarin H. Ævarsson Þórarinn H. Ævarsson » Það er ekkert leyndarmál að ástæða velgengni minn- ar er fyrst og fremst því að þakka að ég þekki til fyrrnefndrar kenningar Einsteins. Höfundur er framkvæmdastjóri IKEA. Borð 140x80cm 94.900 kr. Stóll 20.900 kr. Spegill 11.900-32.900 kr. Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Verið velkomin Nýjar vörur Opið Hús s 570 4800 gimli@gimli.is www.gimli.is Bakkastaðir 167, 112 Reykjavík (Grafarvogur) 99,8 m2 Halla Unnur Helgadóttir lögg. fasteignasali – halla@gimli.is - 659 4044 Opið hús mánud. 25. mars kl. 18:00 til 18:30. Íbúð merkt 01 02 02 Vel skipulögð og björt 3ja-4ra herbergja íbúð á 2. hæð fyrir miðju í litlu fjöl- býlishúsi. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þvotta- hús, baðherbergi, 2 svefnherbergi og geymslu. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði á bílaplani. Útsýni til fjalla. Verð 43,5 m. Skemmtifélag Gísla Marteins Baldurssonar hefur enn komið saman í vikulokin þar sem hláturinn, hið góða meðal sálarinnar, fékk útrás og svo voru felldir hálærðir dómar af létt- úð um málefni sem kall- að er mesta vá heims- ins. Það er að segja hvernig sýklalyfjum er úðað í fóður dýra og sprautað í dýrin. Afleiðingarnar eru alvarlegar, um sjö hundruð þúsund manns deyja árlega og þar af þrjátíu þúsund í Evrópu. Pensilín virkar ekki á sjúklingana. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin er annar klúbbur, þar sitja ekki viðhlæj- endur sem klóra hver öðrum svo hláturgus- urnar ganga yfir hlust- endur eins og hjá Gísla mínum Marteini. Nei, þar eru læknar og vís- indamenn sem biðja börnum framtíðarinnar griða og þessi alheims- lögregla heilbrigðis- málanna krefst aðgerða gegn sýklalyfjaóþoli og segja að verði ekki brugðist við muni þessi ógn, sprottin upp und- an græðgi lyfjamafíunnar og verk- smiðjubúa í kjötframleiðslu, valda fleiri dauðsföllum en krabbamein eft- ir 50 ár. Ísland ber nú af fyrir að nota minnst af sýklalyfjum í búfé og hér er bannað að nota lyf í fóðrið. Færustu læknar í heiminum á sviði sýklalækninga segja Íslendinga eiga að staldra við, þeir eigi nefnilega öfundsverðustu stöðu allra þjóða hvað varðar litla notkun sýklalyfja og eigi að auki heilbrigðustu búfjár- stofna heimsins. Gísli Marteinn! Þér finnst þessi út- valdi hópur þinn rosa skemmtilegur á föstudögum og oft er hann það. En stundum minnirðu á Jón sterka – ,,sástu hvernig ég tók hann?“. Hefðirðu t.d. valið einn lækni, já, t.d. Karl G. Kristinsson prófessor og yfirlækni, í þáttinn þetta kvöld og sleppt vini þínum Helga Seljan þá hefði umræðan orðið önnur og ekki verið gert grín að framferði í búskap sem er dauðans alvara. Í þættinum sat Helgi Seljan, ekki rannsóknar- blaðamaðurinn klári sem kemur að fréttaskýringþættinum Kveik á RÚV og fjallaði um ógnina af sýklalyfj- unum fyrr í vetur, heldur hinn glað- væri Helgi Seljan sem virtist vera að fara á ball og var laus við allar áhyggjur. Og svo sat Arnþrúður Karlsdóttir þarna eins og friðardúfa og hló líka á kostnað læknavísind- anna. En málið er eigi að síður alvarlegt. Við Björn Sigurðsson í Úthlið fund- um það ekki upp, það skekur þegar frjálsa för matvæla og er á borði lækna og stjórnmálamanna um allan hinn vestræna heim og okkar menn mega ekki loka bæði augum og eyrum. Stundum stíga menn og þjóðir nið- ur fæti og sjá aldrei eftir því, um það fjallaði hinni fjölmenni fundur 300 manna á Kanarí sem taldi rétt Ís- lands skýran, að biðja um frest á inn- flutningi á hráu kjöti, ógerilsneyddri mjólk og hráum eggjum, við núver- andi aðstæður. Það gæti verið jafn réttmæt krafa að banna allan innflutning á kjöti og grænmeti til Íslands miðað við þá ógn af sýklalyfjaóþoli sem ESB- löndin búa við. Það væri allavega stuðningur við kröfu Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar. Eftir Guðna Ágústsson » Þetta mál skekur þegar frjálsa för matvæla og er á borði lækna og stjórnmála- manna um allan hinn vestræna heim. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Hlátrasköllin bera stundum viskuna af leið, Gísli Marteinn Ríkisútvarpið birti glefsur úr samhengis- litlu og sóðalegu öl- æðisrausi sex þing- manna, sem voru á fylliríi á Klaustur- barnum í Rvk. Ölæð- israusið einkenndist af niðurlægjandi lyg- um og meiðandi um- mælum um fjar- staddra einstaklinga. Umræða sexmenninganna var ein- staklega sóðaleg og kvikindisleg í garð þeirra, sem um var rætt, og til skammar þeim sem þar sátu við borð. Atvikið var rætt í Kastljósi RÚV. Þar kom fram í máli stjórn- anda þáttarins og annars viðmæl- anda hans, að atvikið væri Alþingi til skammar. Hinn viðmælandinn, Páll Magnússon alþingismaður, greip þá styrkum rómi inn í sam- tal þeirra og sagðist frábiðja sér og Alþingi að bera nokkra ábyrgð á smánarlegri framkomu þessara manna. Þetta væru fullorðnir menn sem ættu einir að bera ábyrgð á orðum sínum og gjörðum. Eftir þessa ábendingu Páls var öllum ljóst að ábyrgð annarra al- þingismanna á sóðakjafti sauð- drukkinna vinnufélaga þeirra væri engin. Það á ekki að refsa einum fyrir athafnir annars. Alþingi vanvirt Mörgum þótti því skjóta skökku við þegar forseti Alþingis dæmdi sjálfan sig og aðra þingmenn í sök fyrir þessa drukknu þingmenn og tók smán þeirra á sig og Al- þingi. Þetta gerði for- seti Alþingis þegar hann freistaðist til að biðja þjóðina að fyrir- gefa Alþingi sóðalegt drykkjuraus þeirra. Þannig sást forseta Alþingis yfir þá meginreglu réttar- ríkisins að menn beri sjálfir ábyrgð á orðum sínum og gjörðum. Páll Magnús- son hafði þó varað við þessum af- glapahætti í Kastljósi RUV. Með afsökunarbeiðni sinni dró þingforsetinn Alþingi á kaf í Klaustursvaðið. Hann klíndi á Al- þingi ósóma sexmenninganna og gerði þingið þannig ábyrgt fyrir hegðun drukkinna þingmanna úti í bæ. Með því sagði hann þjóðinni að viðbjóðurinn á Klausturbarnum væri athæfi sem þingið bæri ábyrgð á. Bros í munnvikum Eftir að forseti þingsins lýsti drukknu dónana á ábyrgð Alþing- is létu nokkrir þingmenn sem þingið ætti hlut að framkomu þingmannanna á Klaustur- barnum. Þeir ruddust í pontu Al- þingis og jusu yfir „Klaustur- dónana“ hneykslan sinni og skömm á háttalagi þeirra. Sumir töldu sér varla fært að vera undir sama þaki og dónarnir. Ég sá nokkra slíka ræðubúta og satt best að segja fékk ég þá tilfinn- ingu að vandlætaranum væri ekki alltaf jafn leitt og hann léti. Í nokkrum tilvikum var augljóst að bros læddist í munnvikin og laumaðist jafnvel í augnkrókana. Sumum virtist gleði í því að smána pólitíska andstæðinga sem engu gátu svarað. Ódrukknar fígúrur Ein birtingarmynd af hneyksl- un þingmanna var sýnd í sjón- varpi. Þar tóku tveir háttvirtir þingmenn dagskrárvald þing- fundar og léku fígúrur. Önnur var löng og mjó eins og Stóri-Kláus. Báðar höfðu þær svartar merktar ullarfrollur ofan yfir hausinn. Þannig hímdu þær sitt hvorum megin við ræðustól Alþingis. Þessari uppákomu var ætlað að smána og trufla ræðumanninum í stólnum. Hann var einn úr ölvaða Klausturhópnum. Hann hefur þó þá skýringu að þegar hann varð sér til skammar hafði hann tapað dómgreind sinni sökum ölvunar. Fígúrurnar háttvirtu brutu leikreglur Alþingis eins og fautar í fótbolta, sem grípa boltann í hendurnar til að skora mark. Fígúrurnar voru ódrukknar, og sönnuðu því með framkomu sinni að ekki fer alltaf saman að vera ódrukkinn og algáður. Vonandi eru ekki mjög margar þvílíkar á Alþingi. Forseti Alþingis, Klausturbarinn og Páll Magnússon Eftir Birgi Dýrfjörð Birgir Dýrfjörð »Með afsökunarbeiðni sinni dró þingforset- inn Alþingi á kaf í Klaustursvaðið. Höfundur er félagi í Samfylkingunni. bd@mi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.