Morgunblaðið - 23.03.2019, Side 35

Morgunblaðið - 23.03.2019, Side 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 ✝ Ásbjörn Egg-ertsson fæddist í Kotvogi, Hafna- hreppi, 2. ágúst 1945. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 11. mars 2019. Foreldrar hans voru Eggert Ólafs- son, atvinnurek- andi í Höfnum, f. 17. nóvember 1909, d. 17. febrúar 1998, og Sigríður Ásta Ásbjörnsdóttir, f. 2. apríl 1915, d. 14. júlí 1985. Systkini Ásbjörns voru Ingi Eggertsson, f. 16. ágúst 1939, d. 18. mars 2016, Ólafur Eggerts- son (hann og Ásbjörn voru tví- burar), f. 2. ágúst 1945, búsett- ur í Innri-Njarðvík, Signý Eggertsdóttir, f. 28. mars 1947, d. 2. janúar 2017, Páll Sólberg Eggertsson, f. 12. mars 1951, búsettur í Keflavík. Einn eldri bróðir, Kolviður Ásbjörn, lést á barnsaldri, f. 29. október 1942, Bróðurpart starfsævi sinnar starfaði Ásbjörn fyrir Varnar- liðið á Keflavíkurflugvelli. Fyrst sem almennur verkamað- ur er hann beið skólavistar, síð- ar í verslun Varnarliðsins, þá í innkaupadeild Varnarliðsins en lengst af hjá húsnæðisdeild Varnarliðsins. Ásbjörn starfaði sem sjálfboðaliði hjá Byggða- safni Reykjanesbæjar um nokk- urt skeið frá haustinu 2010. Ásbjörn var hreppstjóri Hafnahrepps frá ársbyrjun 1981 til 11. júní 1994 þegar Keflavíkurkaupstaður, Njarð- víkurkaupstaður og Hafna- hreppur sameinuðust. Ásbjörn var oddviti Hafna- hrepps um margra ára skeið og gegndi mörgum trúnaðar- stöfum fyrir sveit sína. Hann starfaði fyrir Verslunarmanna- félag Suðurnesja á árunum 1978-1981 og var meðal annars varaformaður þess. Ásbjörn bjó lengst af í Höfnum en flutti hann með fjölskyldu sinni til Keflavíkur árið 1995. Síðustu árin bjó Ásbjörn að Miðgarði 5, Keflavík. Útför Ásbjörns var gerð frá Ytri-Njarðvíkurkirkju 22. mars. Ásbjörn var jarðsettur í Kirkju- vogskirkjugarði, Höfnum. dáinn 23. apríl 1944. Ásbjörn kvæntist Jennýju Karitas Ingadóttur 15. október, 1977. Jenný fæddist 16. október 1957. For- eldrar Jennýjar voru Ingi Helga- son, f. 8. desember 1919, d. 3. febrúar 1984 og Guðný Þórhallsdóttir, f. 31. maí 1925, d. 5. október 1990, bændur í Suður-Þingeyjarsýslu, síðast búsett á Vatnsenda í Ljósa- vatnshreppi. Börn þeirra eru: 1) Sigríður Ásta, f. 18. maí 1976, gift Edward Morthens. 2) Guðný Sóley, f. 15. júní 1979. 3) Ingi Eggert, f. 26. ágúst 1985, sambýliskona er Anna Tabas- zewska. Eftir barnaskóla nam Ás- björn við Reykjaskóla og síðar við Samvinnuskólann á Bifröst og útskrifaðist þaðan árið 1965. Það var mikill missir þegar tvíburabróðir minn, hann Ási, féll frá hinn 11. mars. Það má segja að við hittumst eða töl- uðum saman í síma hvern ein- asta dag, en það er víst mjög algengt hjá tvíburum. Við erum fæddir í Höfnunum og var það leiksvæði fyrstu tuttugu árin. Þegar við vorum litlir var farið út í morgunsárið og komið seinnipartinn inn þeg- ar við vorum orðnir svangir. Það var gott að alast upp þar. Við fórum alltaf saman gang- andi í skólann, hvernig sem veður var. Við vorum að tala um það fyrir nokkru til dæmis þegar við fórum í skólann, hvað angan af lyngi úr heiðinni var sterk, sérstaklega á vorin. Að loknu námi úr barnaskólanum fórum við í Reykjaskóla í Hrútafirði. Eftir loknum próf- um þar skildi leiðir í skólagöng- unni, Ási fór í Samvinnuskólann að Bifröst, en ég í Kennaraskól- ann. Sumrin fóru mikið í ferða- lög innanlands á jeppunum okk- ar og sváfum við alltaf í tjöldum en við vorum vanir slíkum ferðamáta frá foreldrum okkar. Ási var kosinn í hreppsnefnd í mörg ár og gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir hrepp- inn. Hann vann mest af ævi sinni fyrir Varnarliðið og gegndi hann að mestu stjórnunarstörf- um þar og fékk hann margar viðurkenningar fyrir störf sín. Ási og Jenný hófu búskap fyrst í Höfnum en fluttu síðar til Keflavíkur. Þau hjón ferð- uðust mikið innanlands með börnunum og kynntust því landinu vel en síðustu árin þeg- ar veikindi hans ágerðust dró mikið úr þeim. Það væri hægt að skrifa margt um Ása en læt hér staðar numið og votta Jennýju, börnum og barnabörn- um dýpstu samúð frá okkur Döddu. Ólafur og Kristjana Björg (Dadda og Óli). Það var að morgni 11. mars sem símtalið barst og mér voru færðar þær fregnir að tengda- pabbi væri látinn. Hann hafði kvatt um tíuleytið þann morg- uninn, í símanum var Ingi bróð- ir Sillu konunnar minnar. Höggið var þungt, nánast óbærilegt, en um leið vissi ég að þungu fargi væri létt af hon- um Ása, eins og hann var alltaf kallaður. Mín fyrstu kynni af Ása eru mér mjög minnisstæð og hug- ljúf. Ási var einstaklega hjarta- hlýr, einlægur, góðlundaður og barngóður maður. Það er mér sérstaklega minnisstætt þegar Ási fékk þær fréttir að hann væri að verða afi í fyrsta sinn, þvílík gleði og hamingja sem þeim fréttum fylgdi. Minningarnar eru margar og góðar sem þjóta um hugann, veiðiferðirnar sem voru alltof fáar en svo gefandi, veislurnar, afmælin, ferðirnar í bústaðinn til Signýjar systur Ása sem var honum svo kær og okkur öllum, bíltúrarnir um Reykjanesið þar sem Ási þekkti hvern stein og hverja þúfu þó sérstaklega í Höfnum þar sem hann var fæddur, alinn upp og bjó til margra ára. Það er erfitt til þess að hugsa að afi komi ekki til dyra á Miðgarðinum þegar litli afa- drengurinn bankar á dyrnar, svo spenntur að hitta afa sinn og nafna. Þar var tengdur næmur strengur eins og Ási nefndi í einu kvæða sinna við skírn drengsins sem fékk nafn- ið Ásbjörn. Ási er farinn í enn einn bíl- túrinn, en að þessu sinni fór hann einn og án okkar á betri stað eftir þjáningar sjúkdóms- ins sem hrjáði hann í svo mörg ár. Ég minnist tengdapabba með sorg í hjarta og miklum trega en á sama tíma er ég svo þakk- látur fyrir að hafa kynnst þess- um einstaka manni sem vildi allt fyrir alla gera og var hvers manns hugljúfi. Svefninn laðar, líður hjá mér. Lífið sem ég lifað hef. Fólk og furðuverur hugann baðar andann hvílir. Lokbrám mínum læsi uns vakna endurnærður. Það er sumt sem maður saknar vöku megin við. Leggst út af, á mér slokknar, svíf um önnur svið. Í svefnrofunum finn ég, sofa lengur vil. Því ég veit að ef ég vakna upp finn ég aftur til. Svefninn langi laðar til sín lokkafulla ævi skeiðs. Hinsta andardráttinn. Andinn yfirgefur húsið, hefur sig til himna. Við hliðið bíður drottinn. (Ný dönsk) Elsku Jenný, Silla mín, Guðný, Ingi, fjölskylda og vinir. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum. Megi góðir vættir vaka yfir ykkur og styrkja. Edward Morthens. „Þarna kemur framsóknar- maðurinn.“ Hver? Ási. Hann Ási! Það getur ekki verið – þessi indælismaður. Allmörg ár eru síðan þessi orð féllu. Í þá tíð og jafnvel enn í dag voru einstaklingar stundum dregnir í flokka og dæmdir fyr- ir skoðanir óháð því hvaða mann þeir höfðu raunverulega að geyma. Eitt höfuðeinkenni Ásbjarnar var hve grandvar og gætinn hann var til orðs og æðis, enda farsæll í leik og starfi. Fjölskyldubönd hafa tengt okkur um áratuga skeið. Þau kynni hafa verið afar ánægjuleg og happarík í dagsins önn. Hvað sem hann tók sér fyrir hendur var af vandvirkni og trúmennsku gert. Starfsævi hans var að mestu fyrir amer- íska varnarliðið á Miðnesheiði. Við brotthvarf hersins og af völdum þess heilsubrests sem hann átti við að stríða varð hann að draga sig í hlé frá hefðbundinni vinnu en sat þá aldrei auðum höndum. Ásbjörn hafði alltaf mikinn áhuga á varðveislu gamalla minja. Lagði hann mikla vinnu í þetta hin síðari ár. Gegnum tíð- ina safnaði hann saman ýmsum heimildum og skrásetti bæði fyrir sig og eins fyrir söfn. Þar voru sagnir, munir og ekki síst ljósmyndir uppistaðan; en ljós- myndun var stór þáttur í hans lífi. Allt gert af sömu ná- kvæmninni sem komandi kyn- slóðir munu njóta. Áhugamálin: Ferðalög, veiði og ljósmyndun voru hans yndi. Hann var afar fróður um landið sitt og hreint með ólíkindum glöggur á staðhætti. Steina- söfnun og vísnagerð fékkst hann líka við og þar var sama sagan. Ekkert sýnt nema brag- ur væri á. Fengum við stundum að njóta þess. Tímarnir breytast. Ási varð afhuga sínum flokki en eitt breyttist ekki. Ásbjörn Egg- ertsson var og er í huga okkar indælismaður. Fjölskyldu hans og ættingj- um sendum við samúðar- kveðjur. Þórhallur og Berta. Þegar mér barst frétt um að hann Ásbjörn frændi minn, skólabróðir og vinur hefði látist þá fyrr um morguninn leituðu að mér margvíslegar minningar um þennan góða dreng. Við Ás- björn vorum náskyldir, en mæður okkar voru systur og sem krakkar fórum við syst- kinin oft með foreldrum okkar suður í Hafnir að heimsækja frændfólkið. Manni leiddist sko ekki þar, enda margt að skoða og uppgötva, þeir tvíbura- bræður Ási og Óli fóru gjarnan með okkur krakkana niður í fjöru til að sýna okkur kross- fiska, ígulker, kuðunga og skeljar sem nóg var af í fjör- unni hjá þeim. Og þar blasti sjálft Atlantshafið við okkur. Þá var einnig farið út í hraun og kíkt á hella og gjótur sem þar var að finna og eftir það sett- umst við að borðum og gædd- um okkur á dýrindis kaffibrauði sem foreldrar þeirra höfðu reitt fram. Ekki má gleyma nærveru hersins en bræðurnir sögðu okkur gjarnan sögur af sam- skiptum krakkanna í Höfnum við þá. Það æxlaðist svo þannig til að við Ási þreyttum báðir inn- tökupróf í Samvinnuskólann að Bifröst og náðum prófinu og vorum herbergisfélagar þar í tvo vetur. Aldrei féll nokkur skuggi á samveru okkar þar eða síðar. En sumarið á milli bekkja réðum við okkur síðan sem verslunarstjóra hvor í sitt kaupfélagið vestur á fjörðum, ég að kaupfélagi Önfirðinga á Flateyri en hann að kaupfélagi Súgfirðinga á Suðureyri. Við gátum því haft nokkur sam- skipti yfir þetta sumar. Hann tók svo skemmtilega til orða, hann Sævar, einn skóla- bræðra okkar frá Bifröst, en hann og þeir bræður, Ási og Óli, voru einnig skólafélagar á Reykjum við Hrútafjörð og Sævar taldi sig svo heppinn að vera með þeim bræðrum í her- bergi því þeir komu úr allt öðru umhverfi, frá Höfnum, sem voru við hliðina á útlöndum og Keflavíkurflugvelli, og þeir fluttu með sér framandi heim, tyggjó og allskonar vörur og sælgæti sem saklausir sveita- piltar höfðu bara aldrei séð. Sævar gaf honum þá einkunn að hann hefði verið heilsteyptur úrvalsdrengur og skólasystkini okkar mörg hafa lýst honum Ása með svipuðum hætti. Ásbjörn var einstaklega glað- sinna maður, orðheppinn með afbrigðum og hlátrasköllin óm- uðu ósjaldan frá borðinu hans í borðsalnum á Bifröst. Hann var greiðvikinn og hjálpsamur og vildi öllum vel. Okkur Ása var fengið það hlutverk að sjá um kaupfélagið á Bifröst í eitt ár. Afgreiðslan fór aðallega fram að kvöldlagi og þurfti auðvitað að vera góð samvinna á milli okkar ef annar okkar þurfti að læra eða sinna einhverjum mik- ilvægum erindum eða langaði til að taka þátt í félagsstarfinu. Að loknu tveggja vetra námi á Bifröst dreifðist hópurinn um allt land, en alltaf hefur verið til staðar taugin sem varð til í þessu nána umhverfi. Ég vil fyrir hönd okkar skólasystkina Ásbjörns votta eiginkonu hans, börnum og öðr- um ættingjum okkar dýpstu samúð. Genginn er góður drengur sem skilur eftir sig ógleymanlegar minningar. Ragnar Snorri Magnússon. Ásbjörn Eggertsson Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri Ástkær sonur okkar, bróðir og frændi, HELGI MÁR KRISTJÁNSSON, féll frá laugardaginn 2. mars í Leipzig, Þýskalandi. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 29. mars klukkan 15. Kristján Ingi Sveinsson Kathleen Cheong Sesselja Anna Ólafsdóttir Jón Pétur Einarsson Davíð Örn Kristjánsson Katrín Ugla Kristjánsdóttir Paul Lukas Smelt Emilía Guðrún Jónsdóttir Einar Berg Jónsson Anja Katrínar Smelt Nóra Katrínar Smelt Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERNA MARGRÉT HARALDSSON, Melasíðu 10, Akureyri, lést á öldrunarheimilinu Lögmannshlíð föstudaginn 15. mars. Útför hennar mun fara fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 1. apríl klukkan 13.30. Haraldur E. Jónsson Ragnheiður Halldórsdóttir Bertha Kristín Jónsdóttir Geir Jón Grettisson Jóhanna Jónsdóttir Helgi Hallsson Helga Ragnheiður Jónsdóttir Steindór Björnsson Jón Eiður Jónsdóttir Guðný Sigrún Baldursdóttir ömmu- og langömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR, áður Aðalgötu 19, Keflavík, lést miðvikudaginn 13. mars á Hrafnistu, Hlévangi. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 28. mars klukkan 13. Björg Sigurðardóttir Jan-Erik Larsson Ragnhildur Sigurðardóttir Jónas Ragnarsson Ásta Sigurðardóttir Sigríður Sigurðardóttir Helgi G. Eyjólfsson Erna Sigurðardóttir Guðbrandur Sigurðsson Helga Birna Rúnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA S. JÓNSDÓTTIR, sem lést á Landspítalanum þriðjudaginn 12. mars, verður jarðsungin frá Grensáskirkju fimmtudaginn 28. mars klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Félag heyrnarlausra. Sigurður Skúlason Guðrún Kristjánsdóttir Gústaf Adolf Skúlason Ólöf Baldursdóttir Einar Skúli Hafberg Sigurðsson Hrannar Hafberg Sindri Sigurðarson Nanna Höjgaard Grettisdóttir Ólafur Þorkell Gústafsson Agie Colley Gustafsson Jón Símon Gústafsson Gústaf Agnar Gústafsson Halldór Arnoldsson Ólöf Fjóla Haraldsdóttir og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir, mágkona og amma, LINDA WILLIAMSDÓTTIR, Hraunbæ 102 Reykjavík, varð bráðkvödd á heimili sínu. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 29. mars klukkan 13. William Kristjánsson Katrín Hera Gústafsdóttir Júlía Williamsdóttir Kári Williamsson, Aníta Hrund Sveinsdóttir Halldór Örn Guðnason William Breki Halldórsson William S. Gunnarsson Sigrún G. Jónsdóttir Rósa Williamsdóttir Sigurður Erlendsson Íris Williamsdóttir, Þorvarður Lárus Björgvinsson og fjölskylda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.