Morgunblaðið - 23.03.2019, Síða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019
✝ Skúli Jónssonvar fæddur á
Rauðabergi á Mýr-
um 11. janúar
1926. Hann lést á
Dvalardeildinni
Mjallhvíti á Höfn
hinn 12. mars 2019.
Foreldrar hans
voru hjónin Hall-
dóra Guðmunds-
dóttir, húsmóðir, f.
í Hoffelli 1. júní
1901, d. 4. ágúst 1985, og Jón
Jónsson Malmquist bóndi, síðast
í Akurnesi, f. á Kleifarstekk í
Breiðdal 12. október 1888, d. 26.
mars 1956.
Skúli var fjórði í röðinni af
tólf systkinum en þau eru: Hall-
gerður, f. 1920, d. 2001, Björg, f.
1922, d. 2009, Guðmundur, f.
1924, Anna, f. 1927, Unnur, f.
1929, Egill, f. 1930, d. 2008,
Þóra Ingibjörg, f. 1933, Hanna,
vandasamari og erfiðari verk
eftir því sem þeim óx fiskur um
hrygg. Búskapurinn átti hug
hans allan frá unga aldri og í
Akurnesi var búið með sauðfé,
kýr og kartöflur. Með tímanum
færðist búskapurinn yfir á hans
herðar þar sem faðir hans var
ekki við fulla heilsu eftir miðjan
aldur. Eftir að faðir hans lést
stóð Skúli fyrir búinu ásamt
móður sinni og þeim systkinum
sem ennþá voru heima. Árið
1967 afhenti Halldóra þeim
bræðrum Skúla og Ragnari jörð
og bú og bjuggu þeir eftir það
félagsbúi til ársins 1993 er Skúli
dró sig út úr búrekstrinum.
Hann vann áfram af krafti við
búið á meðan heilsan leyfði.
Árið 2011 flutti Skúli á
Dvalardeildina Mjallhvít.
Útför Skúla fer fram frá
Hafnarkirkju í dag, 23. mars
2019, klukkan 14.
f. 1937, Pétur
Haukur, f. 1939, d.
2017, Droplaug, f.
1943, og Ragnar, f.
1946.
Vorið eftir að
Skúli fæddist flutt-
ist fjölskyldan að
Fornustekkum í
Nesjum. Þar leigðu
þau 2/3 af jörðinni í
þrjú ár en fóru svo
að Hoffelli þar sem
þau bjuggu næstu tíu árin. Árið
1937 keyptu Jón og Halldóra
landspildu úr Árnanesi undir
nýbýli sem þau gáfu nafnið Ak-
urnes. Þangað fluttu þau vorið
1939 og Skúli með þeim ásamt
fleiri systkinum sínum.
Skúli fór snemma að hjálpa til
við búskapinn eins og tíðkaðist á
þeim tíma. Krakkar byrjuðu
ungir að taka ýmsa snúninga af
þeim fullorðnu og voru svo falin
Þær eru margar minningarn-
ar sem leita á hugann þessa
dagana. Skúli frændi minn hef-
ur kvatt þessa jarðvist og kom-
ið er að kveðjustund. Mér er
efst í huga þakklæti fyrir að
hafa átt Skúla að í lífinu. Skúli
var rólegur að eðlisfari, hann
var traustur, nægjusamur,
hjálpsamur og bar mikla um-
hyggju fyrir okkur systkinun-
um sem ólumst upp á hlaðinu
hjá honum. Gamla húsið stóð
okkur alltaf opið og þangað fór-
um við oft.
Skúli fylgdist af áhuga með
því sem við tókum okkur fyrir
hendur og setti sig inn í ýmsa
hluti. Hann fylgdist vel með því
hvernig við stóðum okkur í
skólanum. Honum fannst mikil-
vægt að við menntuðum okkur
og hann talaði oft um það við
mig núna síðustu ár hvað það
skipti miklu máli að fólk lærði
það sem það hefði áhuga fyrir
þannig að það gæti haft það að
atvinnu síðar. Enda naut hans
þess sjálfur í ævistarfi sínu að
vinna við það sem hann hafði
áhuga á. Skúli var bóndi og
þrátt fyrir að líkamlegri heilsu
hans hrakaði það mikið að hann
yrði að láta af störfum þá var
hugur hans skýr og hann fylgd-
ist vel með búskapnum í Akur-
nesi af sama áhuga og hann var
vanur, vissi alltaf hver staðan
var og gaf ráð ef á þurfti að
halda.
Í umgengni okkar við Skúla
lærðum við að vinna. Hann leið-
beindi okkur í nýjum viðfangs-
efnum og var ekkert að spá í
aldur í því sambandi. Ef við
töldum verkefnin of erfið full-
vissaði hann okkur um að við
gætum þetta og þar með var
hálfur sigur unninn. Með Skúla
á kantinum fannst manni að
maður réði við allt, hann var
maður sem við treystum alltaf.
Mér er minnisstætt þegar
hann kenndi mér ungri að aldri
að keyra, fyrsta ökuferðin var
þannig að hann gekk öruggum
skrefum við hliðina á traktorn-
um austan af túni og heim. Við
höfðum dyrnar opnar þannig að
hann gat talað við mig alla leið-
ina og sagt mér hvað ég ætti að
gera. Smám saman urðu verk-
efnin flóknari. Hann gerði kröf-
ur um vandvirkni og að maður
gerði hlutina vel, t.d. í heyskap
þá átti að koma rétt að með
baggavagnana og stoppa á rétt-
um stað því annars lét hann
mann bakka á rétta staðinn þó
að það gæti tekið óratíma.
Skúli var glettinn og mér er
minnisstæður einn atburður
rétt fyrir fyrstu jólin hans í
Mjallhvíti, þar sem hann sýndi í
verki einlægan kærleika gagn-
vart börnum og gat strítt mér í
leiðinni.
Við mæðgur fórum til hans
til að setja upp litla jólatréð
sem hann átti og annað jóla-
skraut. Honum þótti það full-
kominn óþarfi að skreyta fyrir
jólin en við vorum ákveðnar í
þessu og allt var tiltækt, vant-
aði bara límband sem Skúli
sendi mig fram til að sækja.
Þegar ég kom inn til hans aftur
sátu dætur mínar með litla jóla-
tréð í fanginu alsælar á svipinn
og sögðu mér að Skúli hefði
gefið þeim tréð, glottinu á
Skúla þegar ég leit á hann
gleymi ég aldrei. Eftir þetta
var ekki jólatré hjá Skúla og
við hlógum oft að þessu í að-
draganda jóla.
Síðustu árin dvaldi hann á
Dvalarheimilinu og þangað var
gott að koma, setjast hjá Skúla
og spjalla, hann fylgdist vel
með öllu sem fram fór hjá okk-
ur fólkinu hans allt fram á síð-
asta dag. Takk, elsku Skúli, fyr-
ir allt. Guð geymi þig.
Nanna Dóra Ragnarsdóttir.
Skúli, föðurbróðir minn, er
allur. Skúli bjó í fárra metra
fjarlægð og tók þátt í uppeldi
okkar systkinanna. Þar duttum
við í lukkupottinn.
Skúli var hávaxinn, svip-
sterkur, stórhentur og stór-
fættur. Hendur annarra voru
litlar í samanburði við hans.
Barnshönd varð að engu í lófa
hans en var þar þó ávallt vel-
komin. Það sama átti við um
fætur hans. Kornflexpakki
dugði vart til þess að taka snið-
mát af fætinum á honum.
Skúli var mikið hreystimenni.
Það þurfti ekki mörg högg með
sleggjunni til þess að reka nið-
ur girðingarstaur. Ekki vílaði
hann fyrir sér að færa til stærð-
ar steina til þess að stífa eða
stramma af girðingarstaura eða
ýta fullum heyvagni af smá-
böggum úr stað ef hann var
ekki alveg rétt staðsettur. Þá
hafði hann ekki mikið fyrir að
bera 30 kg mjólkurbrúsa í sitt-
hvorri hendi 100 m vegalengd.
Þetta voru allt verk sem ekki
voru á færi annarra að sinna og
verða seint toppuð. Skúli var
ósérhlífinn og hugsaði síst um
sinn eigin hag við aflraunir
sínar. Hann hreykti sér ekki af
verkum sínum.
Úti við leyfði Skúli manni
alltaf að vera með í því sem
verið var að gera. Lagði upp úr
því að ala með manni iðjusemi.
Lét ekki viðgangast að maður
ynni verkin vitlaust. Hann sagði
eitt sinn við mig „þú hefur ekk-
ert verksvit“. Við reyndar hlóg-
um svo að öllu saman enda var
alla jafna stutt í glettnina hjá
Skúla. Þetta veganesti hefur
reynst manni vel í leik og starfi.
Við fórum oft saman í bíltúr
og þar á meðal inn til fjalla.
Hann þuldi upp öll örnefni
þannig að umhverfið lifnaði allt
við.
Þarna naut hann sín mjög.
Benti á hentugar gönguleiðir og
kenndi manni að velja bestu
leiðirnar til þess að aka yfir ár.
Í þessum ferðum hafði hann
fulla trú á ökulagi mínu.
Smalasögur og sögur af
gönguferðum hafði hann gaman
af að heyra. Þegar til stóð að
fara í Núpana skipulögðum við
það daginn áður að ég myndi
hringja í hann af Lyngtungna-
fjallinu. Síminn þurfti að vera
tiltækur. Að loknu góðu spjalli
voru fyrirmælin að hringja í
hann þegar heim var komið og
fá afganginn af sögunni. Að-
allega held ég þó að það hafi
verið til að hann vissi að allir
hefðu komið heilir heim.
Skúli var skipulagður og allir
hlutir í föstum skorðum. Fljót-
ur að taka ákvarðanir og þegar
þær höfðu verið teknar var best
að framkvæma eins fljótt og
kostur var. Hann tók margar
mjög skynsamlegar ákvarðanir
varðandi sinn eigin hag þegar
árin færðust yfir og stóð að því
leytinu til framar mörgum öðr-
um. Svör hans voru yfirleitt að
sama skapi mjög skýr. Bara
„já“ eða „nei“.
Í spjalli okkar eitt sinn barst
tal okkar að ósætti milli manna.
Hann taldi að það gæti komið
upp að menn deildu en svo væri
það þá bara búið og menn héldu
áfram. Hann gat verið fastur á
sinni skoðun en vildi ekki nein
illindi til langframa. Þetta var
góður eiginleiki.
Með okkur Skúla mynduðust
náin tengsl og okkar á milli
ríkti gagnkvæmt traust. Það
voru mikil forréttindi að alast
upp honum við hlið og njóta
samvista við hann fram á sein-
asta dag. Minning hans mun
lifa um ókomna tíð.
Anna Lilja Ragnarsdóttir.
Elskulegur frændi, Skúli í
Akurnesi, er látinn. Þær eru
margar minningarnar sem leita
í huga okkar þegar kemur að
kveðjustund. Skúli var órjúfan-
legur hluti af uppvexti okkar
systkinanna. Hann bjó í Akur-
nesi ásamt ömmu okkar og
yngri bræðrum og var í augum
okkar ættarhöfðingi sem við
bárum mikla virðingu fyrir.
Skúli var sterkur persónu-
leiki, hann var góður maður,
traustur vinur, hjálpsamur og
einstaklega barngóður og þess
fengum við systkinin að njóta
alla tíð og síðar börnin okkar.
Hann fylgdist alltaf vel með
sínu fólki bæði í starfi og leik.
Það var gott að vera í kring-
um Skúla, hann var rólegur og
yfirvegaður, glaður í bragði og
einstakt snyrtimenni, það báru
fjárhúsin hans glöggt vitni um,
svo og umhverfið allt í Akur-
nesi.
Hann var mikill dýravinur,
átti hvíta fallega hundinn Bonsó
sem átti bælið sitt í forstofunni.
Svo átti hann glæsilega hestinn
Stjarna sem keppti og vann til
verðlauna á kappreiðum á
Stapasandi. Skúli var eftirsótt-
ur göngumaður og gekk til
dæmis Hoffellsnúpa fram á efri
ár.
Hann hafði einstakt lag á að
hafa börn með sér í vinnu. Við
munum vel þá daga þegar við
vorum í kartöfluupptöku í
Akurnesi og þá fannst okkur
gott að skríða með Skúla í röð-
inni, hann kenndi okkur bæði
að setja niður og taka upp kart-
öflur.
Skúli las mikið, fylgdist vel
með fréttum og í minningunni
átti hann sitt sæti við gluggann
í eldhúsinu í Akurnesi þar sem
hann fylgdist með ferðum um
veginn og las Moggann.
Minningarnar um Skúla
frænda okkar eru margar og
góðar og þær munum við
geyma í hjarta okkar.
Að leiðarlokum viljum við
þakka kærum frænda sam-
fylgdina, vináttu hans og hjálp-
semi við foreldra okkar alla tíð.
Guð veri með þér, elsku
frændi.
Systkinin Grænahrauni,
Jóna Ingólfsdóttir.
Skúli frændi okkar hefur nú
lokið þessari jarðvist og er far-
inn að sinna öðrum verkum.
Það var ekki hans háttur að
dvelja lengi við verklok. Nei,
hugurinn var alltaf kominn að
því sem taka átti næst fyrir í
búskapnum. Þannig hugsaði
hann, lifði og vann.
Æska hans og uppvöxtur var
mjög frábrugðinn okkar og þær
aðstæður sem mótuðu skapgerð
hans allt aðrar en við bjuggum
við. Á sinni ævi varð hann vitni
að mestu tækni- og samfélags-
breytingum sem átt hafa sér
stað hingað til á Íslandi og var
hlynntur öllum framförum sem
léttu verkin. Nema þó kannski
þeim tækjabúnaði sem Sam-
bandið var með í umboðssölu
enda hafði hann litla trú á
kaupfélögunum og Fram-
sóknarflokknum. Reyndar not-
aði hann stundum lýsingarorðið
að eitthvað væri „framsóknar-
legt“ yfir það þegar menn köst-
uðu til hendinni eða gerðu
klaufaleg mistök. Skúli hélt þó
alltaf í þau gildi sem voru við
lýði fyrr á tímum þegar flestar
nauðþurftir voru af skornum
skammti og fara þurfti vel og
sparlega með hlutina. Þannig
átti hvert amboð sinn stað, hon-
um var illa við það ef hann gat
ekki gengið að hlutunum vísum
og var lítið fyrir að kaupa
óþarfa. Því miðlaði hann til
okkar.
Frá því að við vorum litlir
treysti Skúli okkur alltaf fyrir
því að leysa þau verk sem hann
lét okkur í té og var ólatur að
hafa okkur með. Hann talaði við
okkur eins og við værum menn
með mönnum og hafði gaman af
því að fá okkur til að taka á.
Fljótlega eftir að við höfðum
náð tökum á því að sjá upp
fyrir stýrið og ná niður á fót-
stigin fórum við að keyra með
hann um Akurnesjörðina og það
var í raun sérstakt embætti að
vera ökumaðurinn hans. Þeim
áfanga náðum við allir fyrir
fermingaraldur, slíkt var
traustið.
Skúli var óvenjuhraustur og
stórgerður á líkama og sál og
hnullungarnir sem hann setti
við hornstaurana á girðingunni
upp með Laxá munu bera þess
vitni um ókomna tíð. Hann var
ákaflega lítið fyrir að viður-
kenna að hann kenndi sér
meins. Þó sýndi hann því fullan
skilning ef okkur varð mis-
dægurt, það var bara aldrei
neitt sem beit á hann. Eitt sinn
kvartaði Sveinn undan haus-
verk við Skúla. Hann glotti,
taldi það nú vera einhverja
ímyndunarveiki, kannaðist ekki
við að hafa fundið fyrir slíku á
sinni ævi. Sveinn trúði því ekki
og spurði hvort hann hefði
virkilega aldrei fengið haus-
verk. Þá svaraði Skúli að bragði
og sagðist einu sinni hafa fengið
hausverk á ævinni, fyrir nokkuð
mörgum árum þegar hann hafi
verið að smala niðri í Stein-
grímslandi. Var það svo óþægi-
legt að á endanum þurfti hann
að leggjast flatur á bakið og
bíða á meðan verkurinn gekk
yfir.
Ekki gerði hann sér grein
fyrir því hvað það var langur
tími en á endanum gat hann þó
staðið upp og komið sér heim.
Hann sagði þó að hann hefði
verið hálf linur í annarri hlið-
inni í svolítinn tíma á eftir.
Þetta var í eina skiptið sem þeir
ræddu um hausverki sín á milli.
Okkar gæfa er sú að hafa
alist upp með Skúla og fengið
að njóta samverustunda og ráð-
legginga hans fram á seinustu
stundu. Minning hans mun lifa.
Birgir Freyr Ragnarsson,
Sigurður Ragnarsson,
Sveinn Rúnar Ragnarsson.
„Það þýðir ekkert annað en
að gera þetta almennilega fyrst
að menn ætla að gera þetta á
annað borð“ hafði Skúli að
segja um svo til allar fram-
kvæmdir. Það flýgur í gegnum
hugann við skrifin.
Það er margs að minnast frá
liðnum árum og áratugum við
fráfall Skúla í Akurnesi. Við frá
Seljavöllum áttum mikla sam-
leið með honum, enda var mikil
samvinna á milli bæjanna
Akurness og Seljavalla alla tíð.
Við hugsum með þakklæti til
alls sem Skúli gerði fyrir okkur.
Þó að Skúli hafi ekki átt sína
eigin fjölskyldu þá voru margir
sem höfðu mikið samneyti við
hann, bæði ungir og aldnir.
Skúli hóf búskap ungur að ár-
um og var alla sína tíð fyr-
irmyndarbóndi í Akurnesi.
Hann átti góðar skepnur og var
mikill ræktunarmaður sem sést
best á því hversu kartöflurækt
á Akurnesi hefur blómstrað í
gegnum árin. Hann var klett-
urinn í Akurnesi, hörkudugleg-
ur og snyrtilegur í allri um-
gengni. Það er enn þann dag í
dag snyrtilegt og gott bú í
Akurnesi.
Hann var barngóður og alltaf
ánægjulegt að vera með honum
við leik og störf. Hann kenndi
okkur að vinna og gat sagt okk-
ur til við aksturinn þó að hann
væri ekkert fyrir það að aka
sjálfur. Skúli var heimakær, en
í þau skipti sem við buðum hon-
um að ferðast með okkur var
hann góður ferðafélagi. Hann
var víða kunnugur staðháttum
og fólki.
Mér er það sérstaklega
minnisstætt þegar við fórum
austur á Bakkafjörð og komum
þar við í litlu kaupfélagi. Þegar
fjölskyldan kom út úr búðinni
var Skúli hvergi sjáanlegur. Þá
stóð hann við afgreiðsluborðið
skellihlæjandi. Hann keypti
naglbít sem hafði verið til í
Kaupfélaginu óverðmerktur til
fjölda ára.
Þessi naglbítur er eflaust
ennþá til í Akurnesi.
Á bolludagsmorgni þegar við
Eiríkur bróðir vorum litlir
ákváðum við að stika út í Akur-
nes til þess að flengja þar heim-
ilisfólkið. Það kom í minn hlut
að flengja Skúla og Hauk bróð-
ur hans. Ég óttaðist að þeir
myndu ekki taka mér vel í það
skiptið.
Ég ruddist inn til Skúla með
miklum bægslagangi með prik á
lofti. Hann greip prikið, hratt
og örugglega og skellihló að
uppátækinu. Honum fannst það
bráðfyndið.
Skúli var hæfileikaríkur mað-
ur og greindur. Þegar deilt var
um jarðamörk og önnur mál var
oft leitað til Skúla og efaðist
engin um hans dómgreind, enda
var hann bæði sannsögull og
heiðarlegur.
Hann var mikill göngumaður,
hávaxinn og ótrúlega sterkur.
Þegar ég fór í göngur með
frændum mínum Skúla og Leifa
átti ég erfitt með að halda í við
þá þrátt fyrir að vera helmingi
yngri.
Það var ekki fyrr en Skúli
var á áttræðisaldri að hann leit-
aði fyrst til læknis, enda var
hann þvílíkt hraustmenni. Þar
fannst hann hvergi á sjúkra-
skrá.
Skúli dvaldi síðustu árin á
Dvalarheimilinu Mjallhvíti á
Höfn og var nokkuð ánægður
með dvölina. Þegar ég sagði að
ég ætti að koma oftar í heim-
sókn þá svaraði hann að ég ætti
ekki að vera að tefja mig á því.
Þó að það liðu jafnvel mánuðir
á milli heimsókna þá var það
alltaf eins og við hefðum hist í
gær.
Við gátum talað um allt, ekki
síst innansveitarmál og lands-
málin. Hann hafði sterkar skoð-
anir á þjóðfélagsmálum og mik-
ill sjálfstæðismaður.
Skúla í Akurnesi verður nú
tekið vel með opnum örmum á
góðum stað. Minning hans mun
lifa í hjörtum okkar.
Aðstandendum votta ég inni-
lega samúð mína.
Hjalti Egilsson og fjöl-
skylda, Seljavöllum.
Skúli Jónsson
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
i ll i undirbúnings og
framkvæmd útfar r ásamt vinnu við dánarbús-
skiptin. Við þjónum með virðingu o umhyggju
að leiðarljósi og f fa legum metnaði.
Ellert Ingason,
umsjón sálmaskrár
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna