Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019
Nýtt myndbandsverk á sjö skjáum
eftir Ragnar Kjartansson myndlist-
armann verður frumsýnt í Metro-
politan-safninu í New York 30. maí
næstkomandi. Greint er frá verkinu
í The New York Times og jafnframt
aukinni áherslu safnsins á sýningar
virtra samtímalistamanna. Verk
Ragnars kallast „Death Is Else-
where“ og er haft eftir safnstjór-
anum, Max Hollein, að í innsetningu
sinni vefi Ragnar saman „tónlist,
ljóðlist, nánd og landslagi í umhverfi
sem umvefur gesti.“
Fram hefur komið að Metropolit-
an-safnið sem hefur átt í nokkrum
fjárhagsvandræðum hefur sagt upp
leigusamningi um fyrra sýningar-
húsnæði Whitney-safnsins við Madi-
son-breiðgötu sem gengur nú undir
nafninu Met Breuer, kennt við arki-
tekt byggingarinnar Marcel Breuer.
Þar hefur Metropolitan undanfarin
ár lagt áherslu á samtímalist, með
myndarlegum hætti, en Hollein seg-
ir að sýningin á verkum Ragnars og
tveggja annarra þekktra samtíma-
listamanna, Wangechi Mutu og Kent
Monkman, sýni hvernig safnið muni
leggja aukna áherslu á samtíma-
listina í hinum umfangsmiklu höfuð-
stöðvum þess í Central Park við
Fimmtu breiðgötu. Hollein segir
hinar væntanlegu sýningar sýna að
safnið muni stilla fram samtímalist í
aðalbyggingunum á ögrandi en jafn-
framt skemmtilegan hátt og að hluta
í rýmum sem ekki hafa áður verið
notuð undir verk eða innsetningar.
Sýning Mutu byggist á skúlptúrum
sem verða á syllum á framhlið safn-
byggingarinnar. Monk hefur hins
vegar skapað stór málverk sem
verða sýnd í hinum glæsta forsal
safnsins.
Morgunblaðið/Einar Falur
Virt Nýtt verk Ragnars Kjartans-
sonar verður frumsýnt í Metro-
politan í New York, einu stærsta og
þekktasta listasafni jarðar.
Nýtt verk Ragnars í
Metropolitan-safninu
Aukin áhersla á merka samtímalist
Hátt á þriðja tug norrænna hönnuða
og hönnunarteyma eiga verk á sýn-
ingunni Núna Norrænt/Now Nordic,
sem Halla Helgadóttir, framkvæmda-
stjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands
opnar kl. 15 í dag, laugardag, í Lista-
safni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Sýn-
ingin er hluti af HönnunarMars, sem
formlega verður settur 28. þessa
mánaðar. „Upptaktur að Hönnunar-
Mars, getum við sagt, eins og nokkrir
fleiri viðburðir í borginni, og stendur
lengur eða til 26. maí,“ segir Hlín
Helga Guðlaugs-
dóttir, en þær
María Kristín
Jónsdóttir eru
sýningarstjórar
fyrir Íslands
hönd.
Danska
hönnunargalleríið
Adorno fékk til
liðs við sig sýning-
arstjóra frá Dan-
mörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og
Íslandi til þess að tefla fram áhuga-
verðum hönnuðum, sem starfa á
mörkum hönnunar, handverks og
lista í löndunum fimm. Sýningin var
fyrst sett upp á Chart listamessunni í
Kaupmannahöfn haustið 2018, ferðað-
ist síðan til Lundúna og kemur til Ís-
lands í tilefni HönnunarMars. Því
næst liggur leiðin til New York.
Rafrænn vettvangur
Hlín Helga segir að sýningarstjór-
arnir hafi þróað verkefnið Núna nor-
rænt í sameiningu. „Markmiðið er að
sýna það helsta í norrænni sam-
tímahönnun og varpa jafnframt ljósi á
sameiginlega eiginleika og andstæða
þætti. Á sýningunni eru munir frá
upprennandi og nafnkunnum hönn-
uðum og hönnunarteymum,“ segir
hún. Þau eru: Garðar Eyjólfsson,
Hugdetta & 1+1+1, Magnús Ingvar
Ágústsson, Ragna Ragnarsdóttir,
Studio Brynjar & Veronica, Studio
Flétta, Studio Hanna Whitehead og
Tinna Gunnarsdóttir frá Íslandi;
Alexandru Murar, Astrid Tolnov,
Gurli Elbækgaard, Jonas Edvard,
Netter Andresen, Nikolaj Steenfatt
og Stine Linnemann frá Danmörku;
Aalto+Aalto, Hanna Anonen, Maija
Puoskari og Tero Kuitunen frá Finn-
landi, Cosmin Cioroiu & Kathrine
Lønstad, Kim Thomé, Pettersen &
Hein og Runa Klock frá Noregi; og
Elsa Chartin, Färg & Blanche, Lith
Lith Lundin, Lotta Lampa og Sara
Lundkvist frá Svíþjóð.
Hlín Helga segir mismunandi eftir
því hvar sýningin er haldin hversu
margir munir séu eftir hvern og einn
hönnuð. Yfirleitt þó einn, en stundum
fleiri. „Sérstaða sýningarinnar felst í
og með í því að hún er hugsuð sem
rafrænn vettvangur með vísun á vef-
síðuna Adorno.design þar sem miklu
fleiri munir eftir hönnuðina eru hvort
tveggja til sýnis og sölu. Sýningin er í
rauninni hugsuð sem sýnishorn af
eldri munum sem og öðrum sem voru
hannaðir sérstaklega á sýninguna.
Núna norrænt er brot af því besta,“
útskýrir hún.
Á mörkum listar, hönnunar
og handverks
Spurð hvort norræn hönnun standi
undir því orðspori að vera látlaus með
augljóst notagildi og úr náttúrulegum
efnum segir hún það vissulega ein-
kenna hana að stórum hluta. „Við
beinum hins vegar sjónum að öllu
óhefðbundnari og meira abstrakt,
jafnvel tilraunakenndari hönnun en
þeirri sem fólk tengir venjulega við
norræna hönnun. Þetta sýnir í hnot-
skurn hversu hönnunarsenan er fjöl-
breytt,“ segir Hlín Helga og lætur
þess getið að annar eigandi Adorno
muni ávarpa gesti á opnunardaginn.
Og að fyrsta sunnudaginn í maí bjóði
þær María Kristín gestum upp á leið-
sögn um sýninguna. Í fyllingu tímans
fylgi þær svo sýningunni eftir til New
York. vjon@mbl.is
Samtímahönnun frá 5 löndum
Sýningin Núna norrænt verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi í
dag Brot af því besta í norrænni samtímahönnun Tuttugu og átta hönnuðir
Ljósmynd/Hildur Inga Björnsdóttir
Fjölbreytt Grænn kollurinn nefnist Feitur tvíburi og er eftir Lotta Lampa frá Svíþjóð, gráyrjóttu hlutirnir granít-
leir eftir Studio Hanna Whitehead á Íslandi, og Blanda eins og vasarnir tveir heita eru eftir Runa Klock frá Noregi.
Ljósmynd/Gallerí i8
Veggteppi Fyrirspurn véfréttarinnar eftir Magnús Ingvar Ágústsson.
Hlín Helga
Guðlaugsdóttir
Tvær sýningar verða opnaðar í
Hönnunarsafni Íslands í dag:
Borgarlandslag sem er sýning arki-
tektsins Paolo Gianfrancesco og
Veðurvinnustofa, sýning hönnuðar-
ins og listamannsins Shu Yi.
Um þá fyrrnefndu segir m.a. á
vef safnsins að borgir séu mögu-
lega magnaðasta sköpun mannsins,
þær mótist í stöðugu samspili fólks
sín á milli og við umhverfið. Þó að
kort gefi ekki sanna mynd af borg
gefi þau vísbendingu um einhvers
konar takt og með því að sýna sam-
an kort af höfuðborgum Evrópu og
stærstu borgum í ríkjum Banda-
ríkjanna gefist yfirsýn sem ekki sé
möguleg á Google Maps eða með
því að fletta í bók. Gianfrancesco
bjóði upp á þessa borgarveislu og
noti gögn úr opnu kortakerfi sem
nefnist Open Street Map.
Meðan á sýningunni stendur
verður sex völdum borgum gert
hátt undir höfði með ævintýra-
legum matarboðum, segir á vefnum
og munu valdir íbúar Reykjavíkur,
af erlendu bergi brotnir, deila sögu
sinni og fjalla um borg uppruna-
lands síns í gegnum mat, tónlist og
fleira. Á sýningartímanum verður
einnig röð fyrirlestra um listina að
ferðast og munu nokkrir heims-
hornaflakkarar deila frásögnum af
lífsstíl sínum og stórkostlegum
ferðalögum. Um sýningu Shu Yi
segir aðeins þetta: „Síbreytilegt
veðurfar á Íslandi er viðfangsefni
hönnuðarins og listamannsins Shu
Yi sem hefur komið sér fyrir í and-
dyri Hönnunarsafns með vinnuað-
stöðu og mun starfa þar næstu tvo
mánuði við að umbreyta veðurfars-
upplýsingum í myndrænt form.“
Safnið er á Garðatorgi 1 í Garða-
bæ.
Paolo
Gianfrancesco
Shu
Yi
Veðurvinnu-
stofa og Borg-
arlandslag