Morgunblaðið - 23.03.2019, Side 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
„Tónleikarnir eru liður í að koma
saman og vera í góðum gír áður en
við förum til Bremen í apríl,“ segir
Sunna Gunnlaugs píanóleikari og
vísar hvort tveggja til tónleika Tríós
Sunnu Gunnlaugs og finnska
trompetleikarans Verneri Pohjola í
Kaldalóni í Hörpu kl. 20 á mánu-
dagskvöldið og heimsins stærstu
djasskaupstefnu í Þýskalandi,
Jazzahead. Auk hennar eru í tríóinu
Þorgrímur Jónsson á kontrabassa
og Scott McLemore á trommur.
„Við ætlum að flytja lög af breið-
skífunni, Ancestry, sem við tókum
upp í Síbelíus akademíunni í Finn-
landi í nóvember 2017, og hefur
fengið glimrandi dóma í erlendum
fjölmiðlum, til dæmis fjórar stjörn-
ur í breska tímaritinu Jazzwise auk
þess sem við vorum tilnefnd til
Íslensku tónlistarverðlaunanna í öll-
um fjórum flokkum djasstónlistar-
innar; fyrir bestu plötu ársins, bestu
tónsmíð ársins og sem höfundur og
flytjandi ársins,“ segir Sunna.
Útvalinn hópur
Mest þykir henni og félögum
hennar þó til um að vera valin í hóp
sextán atriða af þeim fjögur
hundruð, sem sóttu um að kynna
djasstónlist sína á fyrrnefndri kaup-
stefnu, sem haldin er á hverju ári.
„Á kaupstefnunni, sem er 25.-28.
apríl koma saman listrænir stjórn-
endur, bókarar og þúsundir manna
hvaðanæva úr heiminum til að fylgj-
ast með því sem er að gerast í
djassheiminum, mynda ný tengsl og
leita að hljóðfæraleikurum til að
koma fram á tónleikum og hátíðum.
Okkur býðst að spila í um hálftíma
á European Jazz Night á föstudeg-
inum í frábærum sal sem heitir
Schlachthof, en þá er fókusinn á
evrópskan djass.“
Eins og á tónleikunum í Hörpu
ætla þau að leika lögin af Ancestry í
Bremen. Sunna hefur fulla trú á að
tónleikarnir geti opnað þeim dyr út
í heim, enda verði þeim bæði út-
varpað og sjónvarpað og að öðru
leyti vel staðið að kynningum.
„Reyndar höfum við farið reglulega
í tónleikaferðir um Evrópu, Banda-
ríkin og Kanada frá því við fórum
að spila saman árið 2011 og gáfum
út fyrstu plötu okkar, Long Pair
Bond.“
Tvær plötur komu síðan með
nokkurra ára millibili, Distilled og
Cielito Lindo. Í hittifyrra fékk tríóið
Verneri Pohjola í lið með sér við
gerð þeirrar nýjustu, Ancestry.
„Pohjola er rísandi stjarna í djass-
heiminum og hefur verið verðlaun-
aður í Finnlandi fyrir framlag sitt
til finnskrar djassmenningar. Hann
kom með ferskan tón inn í tríóið og
féll strax vel inn í hópinn.
Auk Tríós Sunnu Gunnlaugs og
Verneri Pohjola voru Scott McLe-
more, trommara tríósins, og kvart-
ett hans meðal hinna sextán útval-
inna til að koma fram á kaup-
stefnunni með tónlist af plötunni
The Multiverse, sem fékk þrjár til-
nefningar til Íslensku tónlistarverð-
launanna.
Hlutur landans
„Við erum um tíu manns sem för-
um á kaupstefnuna, meðal þeirra er
Ingi Bjarni Skúlason píanóleikari
sem spilar á Club Night, einum af
mörgum slíkum afsprengjum þess-
arar kaupstefnu en í fyrra gaf
hljómplötufyrirtæki í New York út
disk með honum, einnig verða
fulltrúar frá ÚTÓN, Útflutnings-
skrifstofu íslenskrar tónlistar, og
fleiri.“
Sunna hefur verið listrænn
stjórnandi tónleikaraðanna Freyju-
jazz í Listasafni Íslands og Jazz í
Salnum. Hún situr í stjórn Europ-
ean Jazz Network og kveðst ævin-
lega fagna því mjög þegar hlutur Ís-
lands eykst á alþjóðlegu djass-
senunni og reyna jafnframt að auka
hlut kvenna í þeirri senu hér og þar.
Djassað á kaup-
stefnu í Bremen
Tríó Sunnu Gunnlaugs og Verneri Pohjola með tónleika
í Kaldalóni í Hörpu Boðið á djasskaupstefnu í Bremen
í góðum gír Sunna Gunnlaugs, Þorgrímur Jónsson, Verneri Pohjola og Scott McLemore leika við hvern sinn fingur.
Silkiormar verða til umfjöllunar á
fjölskyldustund í Náttúrufræði-
stofu Kópavogs sem boðið verður
til í dag, laugardag, kl. 13. Þar sýn-
ir Signý Gunnarsdóttir silkibóndi
hvernig silkiræktun fer fram, út-
skýrir lífsferil silkiormsins og sýnir
afurðir ræktunarinnar. Einnig
verður boðið upp á teiknismiðju þar
sem gestum býðst að teikna og lita
silkiorma eftir raunverulegum
fyrirmyndum. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir en fjölskyldu-
stundin er liður í vikulegum við-
burðum Menningarhúsanna í Kópa-
vogi fyrir fjölskyldur.
Silkiormar á
fjölskyldustund
Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar
stendur, í samvinnu við íslensku- og menn-
ingardeild HÍ, fyrir málþingi um berkla og
menningu í Þjóðminjasafninu í dag milli kl. 10
og 15. „Í sumar eru 100 ár liðin frá dauða Jó-
hanns Sigurjónssonar skálds. Hann var einn af
fjölmörgum skáldum og rithöfundum sem dóu
úr berklum eða tæringu,“ segir í tilkynningu
frá félaginu um tilefni málþingsins. Rifjað er
upp að margir efnilegir listamenn hafi lotið í
lægra haldi fyrir berklum fyrr á tímum, en
engin örugg meðferð var til fyrr en um miðja
öldina og berklar því raunverulegur ógn-
valdur.
„Á málþinginu verða þessari flóknu sögu
gerð skil og varpað ljósi á þau gífurlegu áhrif
sem berklarnir höfðu á mannlífið.“ Frummæl-
endur eru Helgi Sigurðsson, yfirlæknir og prófessor í krabbameinslækn-
ingum, sem fjallar um berkla og afleiðingar þeirra á Íslandi; María Páls-
dóttir leikkona sem fjallar um Kristneshælið; Óttar Guðmundsson geð-
læknir og Jóhanna V. Þórhallsdóttir tónlistarkona sem fjalla um berkla í
óperum; Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum nútímabókmenntum,
sem fjallar um Jóhann Sigurjónsson skáld og Sveinn Yngvi Egilsson, pró-
fessor í íslenskum bókmenntum síðari alda, sem fjallar um deyjandi skáld.
Fundarstjóri er Torfi Tulinius prófessor.
Málþing um berkla og menningu í dag
Jóhann Sigurjónsson
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 24/3 kl. 13:00 Sun 14/4 kl. 16:00 Lau 18/5 kl. 13:00 Aukas.
Sun 24/3 kl. 16:00 Sun 28/4 kl. 13:00 Lau 18/5 kl. 16:00 Aukas.
Sun 31/3 kl. 13:00 Sun 28/4 kl. 16:00 Sun 19/5 kl. 13:00
Sun 31/3 kl. 16:00 Sun 5/5 kl. 13:00 Sun 19/5 kl. 16:00
Sun 7/4 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 16:00 Sun 26/5 kl. 13:00
Sun 7/4 kl. 16:00 Sun 12/5 kl. 13:00 Sun 2/6 kl. 13:00
Sun 14/4 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 16:00 Lau 8/6 kl. 13:00
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Lau 23/3 kl. 19:39 Fös 5/4 kl. 19:30 Lau 4/5 kl. 19:30
Fös 29/3 kl. 19:30 Lau 13/4 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fös 3/5 kl. 19:30 9.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Lau 23/3 kl. 15:00 Lau 30/3 kl. 15:00 Sun 7/4 kl. 15:00
Lau 23/3 kl. 17:00 Sun 31/3 kl. 15:00 Sun 7/4 kl. 17:00 Aukas.
Sun 24/3 kl. 15:00 Sun 31/3 kl. 17:00 Lau 13/4 kl. 17:00
Sun 24/3 kl. 17:00 Fös 5/4 kl. 18:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 17:00
Fös 29/3 kl. 18:00 Aukas. Lau 6/4 kl. 15:00
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas.
Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Loddarinn (Stóra Sviðið)
Lau 27/4 kl. 19:30 Frums. Fim 2/5 kl. 19:30 3.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 5.sýn
Þri 30/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 10/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 6.sýn
Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið)
Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn
Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn
Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 23/3 kl. 19:30 Fös 29/3 kl. 19:30 Lau 30/3 kl. 22:00
Lau 23/3 kl. 22:00 Fös 29/3 kl. 22:00
Fim 28/3 kl. 21:00 Lau 30/3 kl. 19:30
Dimmalimm (Brúðuloftið)
Lau 23/3 kl. 14:00 Lau 30/3 kl. 14:00 Lau 6/4 kl. 14:00
Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s
Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Fös 3/5 kl. 19:00 aukas.
Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s
Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s
Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Mið 15/5 kl. 19:00 31. s
Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Fim 16/5 kl. 19:00 32. s
Frumsýning 15. mars.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fös 24/5 kl. 20:00 216. s
Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s
Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Lau 23/3 kl. 20:00 44. s Lau 30/3 kl. 20:00 45. s Lau 6/4 kl. 20:00 46. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Fim 28/3 kl. 20:00 7. s Fös 5/4 kl. 20:00 8. s
Hvað varð um konuna?
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s
Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s
Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s
Alltof mikið testósterón
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!