Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 52
Þjóðlaga-
hljómsveitin
Kólga og Hauk-
ur Ingi Jónas-
son guðfræð-
ingur bjóða í
samvinnu við
Kalman list-
félag upp á
dagskrá undir
yfirskriftinni
„Glaðlegir söngvar um dauðann“.
Dagskráin fer fram í Innra-Hólms-
kirkju í Hvalfjarðarsveit í dag,
laugardag, kl. 16. Þar verður bland-
að saman tónlist af efnisskrá
sveitarinnar um þetta viðfangsefni
og vangaveltum guðfræðingsins
um dauðann á milli laga. Aðgangs-
eyrir rennur óskiptur í viðgerða-
sjóð Innra-Hólmskirkju.
Glaðlegir söngvar um
dauðann á dagskrá
Krakkakort
á 0 kr. með
farsímaáskrift
1 GB og endaleysa
í mínútum og SMS
Þætt
ir
í sím
ann
fylgi
r me
ð
Fyrir
12 ár
a
og e
ldri
siminn.is/farsimiTVIST
SI
M
11
99
2
LAUGARDAGUR 23. MARS 82. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Ísland hóf undankeppni Evrópu-
móts karla í knattspyrnu eins og
best varð á kosið með því að sigra
Andorra, 2:0, með mörkum frá
Birki Bjarnasyni og Viðari Erni
Kjartanssyni. Þetta var fyrsti sigur
Íslands undir stjórn Eriks Hamrén
og jafnframt fyrsti sigurleikurinn í
sextán leikjum frá því í janúar
2018. »1-3
Góð byrjun og lang-
þráður sigur Íslands
Staða kvenna í samhengi íslenskrar
myndlistar er yfirskrift málþings sem
fram fer á Kjarvalsstöðum í dag kl. 13
í tengslum við sýninguna Hringur,
ferhyrningur og lína sem er fyrsta
yfirlitssýningin sem haldin er á verk-
um Eyborgar Guðmundsdóttur.
Hrafnhildur Schram, Heba Helga-
dóttir, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Guð-
rún Erla Geirsdóttir og Sigríður Valdi-
marsdóttir velta fyrir
sér stöðu kvenna í
íslenskri listasögu
með stöðu kvenna í
alþjóðlegri lista-
sögu til hliðsjónar.
Einnig verður
vöngum velt yfir
vinnuumhverfi
kvenna í
myndlist.
Málþing um stöðu
kvenna í myndlist
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Blóðberg, birkitré, reynitré, rifsber,
rófur og furutré. Þekking hinnar ell-
efu ára gömlu Þuríðar Yngvadóttur
vakti mikla athygli þeirra sem horfðu
á fræðsluþáttinn Hvað höfum við
gert? sem sýndur var í Ríkissjón-
varpinu síðasta sunnudag. Þar fór
hún létt með að bera kennsl á myndir
af öllu þessu og ýmsu öðru til, hluti
sem margir fullorðnir myndu klóra
sér í höfðinu yfir.
Þátturinn fjallar um loftslagsmál
og í 2. þætti var m.a. fjallað um
hvernig mannfólkið hefur fjarlægst
náttúruna. Sem dæmi var sýnt
hversu vel börn þekkja fjölmörg
vörumerki en ekki jafn auðveldlega
nöfn trjáa og grænmetistegunda.
Þuríður skar sig hins vegar úr. Og
þessa þekkingu á hún að miklu leyti
ömmu sinni og alnöfnu að þakka.
Þuríður býr ásamt tveimur yngri
systkinum og foreldrum sínum, verk-
fræðingunum Yngva Guðmundssyni
og Sigrúnu Melax, í Úlfarsárdal.
Áður bjó hún í Mosfellsbæ. „Þar var
fullt af trjám og við amma fórum
saman í gönguferðir og hún kenndi
mér allt,“ segir hún brosandi. „Svo
fer ég líka oft með ömmu að selja
jólatré.“
Amman tekur náttúruuppeldi
barnabarnanna alvarlega
Yngvi segir Þuríði móður sína taka
það hlutverk sitt að fræða barnabörn-
in um náttúruna alvarlega. Hún er
líka sérfræðingur á því sviði, vinnur
hjá ORF líftækni, var í stjórn Skóg-
ræktarfélags Íslands og er nú for-
maður Landgræðslusjóðs.
Þuríður hin yngri segist hafa gam-
an af því að læra eitthvað nýtt og að
sögn föður hennar er hún nokkurs
konar „límheili“. Stundum komi það
honum á óvart hvaða upplýsingar hún
hafi drukkið í sig. Hann hafi til að
mynda furðað sig á því að hún þekkti
blóðberg. Enn og aftur mátti rekja
kunnáttuna til Þuríðar ömmu. „Þær
höfðu þá farið að tína blóðberg við
sumarbústaðinn síðasta sumar og
gert sér te,“ útskýrir Yngvi.
Vill draga úr plastnotkun
Þuríði fannst mjög gaman að taka
þátt í tilrauninni í sjónvarpsþætt-
inum. Hún er líka áhugasöm um lofts-
lagsbreytingar. „Mér finnst að við
ættum að gera eitthvað í málinu, það
er ekki nóg að gera bara þætti og
skrifa undir samninga,“ segir hún
ákveðin. Þáttur sem þessi gæti þó
vakið fólk til umhugsunar. „Ég vil að
við hættum að nota svona mikið plast
og að nota olíu og bensín á bíla.“
Þuríður er í 6. bekk í Dalskóla. Þar
finnst henni skemmtilegast að læra
leiklist og stærðfræði.
Þegar hún verður stór langar hana
að verða verkfræðingur, eins og
mamma og pabbi. „Maður ræður
samt alveg hvað maður gerir,“ segir
faðir hennar við hana og þau hlæja
bæði.
Morgunblaðið/Hari
Loftslagsbreytingar Þuríður Yngvadóttir segir ekki nóg að gera sjónvarpsþætti um loftslagsbreytingar og skrifa
undir samninga. Til aðgerða þurfi að grípa, til dæmis draga úr notkun plasts og jarðefnaeldsneytis.
„Amma kenndi mér allt“
Þuríður Yngvadóttir, ellefu ára nemandi í Dalskóla,
sló í gegn í sjónvarpsþættinum Hvað höfum við gert?
Lengri útgáfa af viðtalinu
verður birt á mbl.is.
mbl.is