Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Blaðsíða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.3. 2019 Hulda Guðbjörg Þórðardóttirhefur fengið nokkrargreiningar um ævina. Sjö ára gömul var hún greind með ADHD, nokkrum árum seinna með þunglyndis- og kvíðaröskun og 18 ára gömul fékk hún þá greiningu að hún væri með jaðarpersónuleika- röskun. Henni fannst þær grein- ingar aldrei alveg réttar. „Ég man að þegar ég fékk Asper- ger-greininguna núna í desember að þá hugsaði ég strax; Já! Þetta er ég! Það þýðir samt ekki að ég hafi ekki fengið áfall, nokkrum klukkustund- um síðar blossuðu tilfinningarnar upp en ég var svo fegin að vera kom- in nær því að vita hver ég í rauninni er,“ segir Hulda Guðbjörg sem er þriggja barna móðir og býr í Noregi. Hulda segist alltaf hafa upplifað sig öðruvísi en aðra en hún fór í gegnum greininguna fyrir aðeins nokkrum mánuðum. „Ég átti fáar vinkonur, flestar þeirra voru bara kunningjar mínir og mér fannst ég aldrei falla inní hópinn. Þegar ég varð unglingur vildi ég miklu frekar vera heima og lesa bók og sá ekki að það væri eitt- hvað nauðsynlegt að hafa samskipti við fólk og hanga úti á kvöldin. Ég tók öllu bókstaflega og mamma var tiltölulega fljót að passa sig á hvernig hún orðaði hlutina. „Kastaðu þessu bara í vaskinn“ var mjög fljótt breytt í „settu þetta var- lega í vaskinn“. Atvikið sem er enn hlegið að í dag er þegar ég var ung- lingur, við bjuggum í blokk og vor- um með sameignina. Mamma bað mig að hlaupa niður og athuga hvort ruslatunnan væri full. Ég skipti hins vegar ekki um tunnu þótt hún væri full því skilaboðin höfðu ekki hljóm- að á þá leið, ég átti bara að athuga hvort hún væri full! En þessi bókstaflegi skilningur minn hafði einnig áhrif á námið mitt og lá við að ég fengi lesblindugrein- ingu þrátt fyrir að vera lestr- arhestur og góður námsmaður, en þar flæktist þessi bókstaflegi skiln- ingur fyrir mér“. Þegar þremur árum yngri bróðir Huldu fékk einhverfugreiningu fannst móður systkinanna margt sem sagt var um bróðurinn frekar koma heim og saman við Huldu. „Við fórum þá að ræða að þetta væri eitthvað sem vert væri að skoða. En svo leið tíminn, ég var orðin of gömul til að fara „barnaleið- ina“ í greiningunni sem er þá orðið mjög dýrt og svo bara gleymdist þetta. Seinna greindist annar bróðir minn líka á einhverfurófinu, mamma mín greindist með Asperger og ég fór aftur að segja við sjálfa mig að nú ætti ég að koma mér í greiningu. Það var ekki fyrr en ég eignaðist sjálf dætur og tvær þeirra af þremur voru á leið að fá greiningu að mér fannst ég þurfa að klára sjálfa mig fyrst.“ Hulda var heppin, hún byrjaði í grunnskóla, í bekk með krökkum sem lærðu inn á hana og notuðu það aldrei gegn henni að hún væri „öðru- vísi“. „Það var frekar að þau hjálp- uðu mér út úr aðstæðum. Þegar ég var 10 ára byrjaði ég í nýjum skóla og bekkjarfélagarnir þar nýttu sér að ég var öðruvísi og lögðu mig í ein- elti. Kvíði og þunglyndi komu sterkt fram hjá mér á þessum árum, sem er algengt meðal kvenna með Asperger en eineltið hafði haft sitt að segja. Einnig missti ég föður minn um svipað leyti, sem hjálpaði ekki. En málið er að einkenni stelpna eru oft afskrifuð sem merki um eitt- hvað því við erum stelpur. Ég var með dýr algjörlega á heilanum, átti þrjár kanínur og fjóra dverghamstra og nokkra fugla líka og áttu eftir að bætast við fleiri tegundir. En af því að ég var stelpa þá þótti það bara sætt. Á meðan var yngsti bróðir minn með svakalegan áhuga á legó en það þótti ekki alveg nógu gott að hann sæti allan daginn yfir kubb- unum.“ Hulda segir það sína upplifun að stelpur á einhverfurófi nái oft betur að fela einkennin heldur en strákar, strákarnir reyni ekki að sýnast glað- ir fyrir einhvern annan. „Einnig er talað um að margir á einhverfurófi eigi erfitt með að sýna samkennd en mitt vandamál og margra kvenna á einhverfurófi er að ég finn of mikla samkennd. Ég get varla lesið blöðin því ég tek allt svo mikið inn á mig.“ Greiningin hefur breytt miklu. „Ég finn að ég er ekki eins mikið að reyna að gangast upp í að vera einhver staðalmynd af konu, er ekki að berjast við að reyna að vera eitt- hvað sem er „eðlilegt“. Ég vil svo gjarnan að við getum aðstoðað stelp- urnar okkar og séum meðvituð um hvernig konur á einhverfurófi geta verið, því við erum allar ólíkar þótt við séum með einhvers konar ein- hverfugreiningu.“ Of mikil samkennd „Það var ekki fyrr en ég eignaðist sjálf dætur og tvær þeirra af þremur voru á leið að fá greiningu að mér fannst ég þurfa að klára sjálfa mig fyrst.“ Hulda Guðbjörg Þórðardóttir var orðin 28 ára gömul þegar hún fékk sína greiningu um Asperger. Í heimildarmyndinni er fylgst með hennar greiningarferli. Þegar ég ólst upp fengu stelpurhreinlega ekki greiningu og ídag eru margar stelpur sem ekki greinast því okkur vantar réttu greiningartólin, þetta eru svo strákalæg greiningartól,“ segir Laufey Eyþórsdóttir, sérkennari og myndlistarkona. Laufey er 45 ára gömul og greind- ist með Asperger fyrir fjórum árum. „Ég hugsa að það hefði gjörbreytt lífi mínu ef ég hefði til dæmis 12 ára gömul fengið að sjá svona mynd um einhverfurófið eins og Að sjá hið ósýnilega, áttað mig fyrr á að ég væri á einhverfurófi. Sennilega á það sama við allar okkur konurnar sem tókum þátt í myndinni; við hefðum þurft á svipuðu að halda þegar við vorum yngri og þátttaka okkar litast af því að við vitum hvað þetta er nauðsynlegt, okkur langar til að hægt sé að ná til þeirra stelpna sem þurfa á því að halda.“ Laufey er með meistaragráðu í sérkennslufræðum og kennir á Ísa- firði og Súðavík. Í meira en áratug hefur hún unnið með börnum á ein- hverfurófi, sem og börnum sem eiga félagslega erfitt og falla utan kass- ans. Hún nær vel til þeirra og þar er mikill styrkur að því að geta sagt unga fólkinu að hún þekki einhverfu af eigin raun. Að auki rekur hún nú sína eigin einhverfuráðgjöf. „Það er svo mikilvægt að fólk fái réttan stuðning eftir greiningu. Greiningin ein og sér er fyrsta skref- ið en svo þarf að taka næsta skref og mitt starf snýst um það. Það er nauðsynlegt að börn og fullorðnir upplifi að það sé einhver sem skilji þau sem starfar með þeim.“ Sonur Laufeyjar, sem sjálfur er með greiningu, bað hana um að fara í greiningu. „Það skipti hann máli og ég fór í gegnum greiningu hjá Lauf- eyju Gunnarsdóttur. Ég var þá búin að vita þetta í nokkur ár, því þegar strákurinn minn greindist fór ég að lesa frásagnir kvenna á einhverf- urófi og sá þá að þetta ætti við um mig. Þetta voru atriði eins og að eiga erfitt með samskipti sem barn og unglingur, lesa ekki rétt í aðstæður, eiga óvenjuleg áhugamál, ég var til dæmis heltekin af yfirnáttúrulegum sögum. Þótt ég væri klár á bókina og hefði ýmsa styrkleika lenti maður mikið utanveltu. Ég var bara svo ofboðslega ákveð- in að um leið og ég fann út að ég var ekki sterk í einhverju æfði ég mig klukkutímum saman, var fullkomn- unarsinni og er náttúrlega ennþá! Á þennan hátt efldi ég mig á mörgum sviðum.“ Skyntruflanir geta reynst mörg- um á einhverfurófi erfiðar, sér- staklega börnum þar sem fólk hefur ekki skilning á sterkri upplifun þeirra. „Til dæmis bara það að upplifa vatn sjóðandi heitt en manni er sagt að vatnið sé ekkert heitt þótt sárs- aukinn sé skerandi. Það er ýmislegt sem er ætlast til að maður geri sem reynist manni mjög líkamlega erfitt vegna skyntruflana. Mér fannst gott að draga mig inn í bækur, þar fékk ég frið, og ég var búin með allar barnabækur bóka- safnsins þegar ég var 11 ára.“ Þú hafðir vitað þetta lengi án þess að fá formlega greiningu – hverju breytti hún? „Í hvert skipti sem ég nefndi þetta við aðra og sagðist vita að ég væri á rófinu sagði fólk: Nei, það getur ekki verið! Þú ert allt of fær. Ég plumaði mig sem sagt of vel til að fólk tryði mér. Ég upplifði að þótt ég reyndi að útskýra var ekki hlustað á mig. Í dag veit ég líka að það er ástæða fyrir því að sumar aðstæður eru erf- iðar fyrir mig, hvaða hluti ég þoli illa og af hverju svo ég neyði sjálfa mig helst ekki í aðstæður sem taka mikla orku frá mér. Það er líka mikilvægt að muna og fyrir samfélagið að vita hvað ein- hverfan getur falið í sér mikinn styrk; þegar maður er búinn að komast í gegnum sínar glímur og leyfir sér að vera maður sjálfur. Minn mesti styrkur er að vera ekki venjuleg. Ég er ekki bara ein- hverfan. Ég er svo ótal margt ann- að.“ Laufey Eyþórsdóttir fékk að heyra að hún væri of fær til að vera á einhverfurófinu. „Ég er ekki bara einhverfan. Ég er svo ótal margt annað.“ Minn styrkur að vera ekki venjuleg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.