Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.3. 2019 LÍFSSTÍLL Veldu Panodil® sem hentar þér! Verkjastillandi og hitalækkandi Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Endurunnin eða staðbundin hráefni erþema sýningarinnar Staðbundiðlandslag sem er hluti af Dagskrá Hönnunarmars. Það er hönnunarmerkið FÓLK sem stendur að baki sýningunni en hún er á Klapparstíg 29. FÓLK var stofnað árið 2017 af Rögnu Söru Jónsdóttur og hefur síðan þá vakið at- hygli fyrir ýmsa skemmtilega hönn- unarvöru þar sem sjálfbærni og náttúrulegt eða endurvinnanlegt hráefni eru höfð að leiðarljósi. Þeir hönnuðir sem koma að nýrri vörulínu FÓLKS eru Jón Helgi Hólm- geirsson, Ólína Rögnudóttir og Theodóra Alfreðsdóttir. Samstarfið við hönnuðina virkar þannig að FÓLK leggur yfirleitt línurnar um hvaða hluti á að hanna og hvaða hráefni hönnuðir mega nota. Þeir fá svo frjálsar hendur til að vinna úr þeim ramma en ferlið er yfirleitt unnið í góðu samtali á milli hönnuðar og FÓLKs. FÓLK lætur að lokum framleiða hönnunina í samstarfi við innlenda eða er- lenda framleiðendur. Lampi eftir Theodóru úr gabbró og textílplötum en einnig er hægt að fá hann úr lípariti. Hér má sjá þau hreinu form sem Theodóra hefur alltaf unnið mikið með. Hringrás hráefna Hönnunarmerkið FÓLK kynnir spennandi ný húsgögn og heimilismuni á sýningunni Staðbundið landslag á Hönnunarmars. Ljósmyndir/Baldur Kristjánsson Stjakar sem nýtast undir blóm og kerti eftir Ólínu, úr íslensku grjóti, blágrýti, grágrýti, gabbró og líparít en efnið er úr íslenskri steinvinnslu. Grágrýtið kemur að mestu úr byggingargrunnum á höfuðborg- arsvæðinu en líparítið og gabbróið koma til dæmis úr Hamarsfirði og Öræfum. Urban Nomad-hillur Jóns Helga hafa slegið í gegn en hér er eins konar ný útgáfa af hill- unum, með umgjörð úr stáli þannig að þær standa á gólfi. Uppstöður borðs Jóns Helga eru plötur frá dönsku nýsköpunarfyrirtæki sem endurvinnur hráefni sem annars myndi enda í landfyllingum. Plöturnar eru endurunnar úr afgangsull. Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLK, ásamt hönnuðunum Jóni Helga Hólmgeirssyni, Ólínu Rögnudóttur og Theodóru Alfreðsdóttur. Lampi eftir Theodóru, úr textílplötum, unnar úr afgangs textíl, t.d. gömlum sængurverum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.