Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 8
Óskað var eftir aðstoð lögreglu við dómsmálaráðuneytið, sem stendur við Sölvhólsgötu, um hádegisbil í gær þegar hópur mótmælenda kom sér fyrir í anddyri ráðuneytisins. Um var að ræða fámennan hóp fólks úr samtökunum Refugees in Iceland og No Borders Iceland. Fólkið vakti athygli á kröfum hæl- isleitenda um bættan aðbúnað, eins og gert hefur verið síðustu vikur, meðal annars á Austurvelli. Í samtali við mbl.is í gær sagði Hafliði Helgason, upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins, að allir hefðu sinn rétt til að mótmæla. „En það er annað að vera inni í bygg- ingum, þeim var bara vísað út fyrir þröskuldinn,“ sagði Hafliði og sagði aðgerðir lögreglu friðsamlegar. Mótmælt við dóms- málaráðuneytið Ljósmynd/Eva Björk 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 Það er fagnaðarefni að kjara-samningur, sem verður leið- sögn fyrir almenna samninga, skuli hafa náðst.    Ýmsir atburðir sem orðið höfðuí landinu sýndu að draum- órar um kjarasamninga sem væru langt handan við allt sem venju- legt hagkerfi ræður við væru enn óraunhæfari en ella.    Það er fjarri því að vera sjálf-sagt fyrir ríkisvaldið að hafa atbeina að því að belgja út þegar bólginn kjarasamning.    En við þær aðstæður sem uppieru nú hefði verið mun meira ábyrgðarleysi að sitja hjá og þykjast stikkfrí þegar samn- ingsaðilar voru sammála um að friður yrði ekki án inngrips ríkis- valdsins.    Páll Vilhjálmsson lýsti stöðunnim.a. þannig: „Eftir háflug hagkerfisins í 8 ár stefndi um tíma í harkalega lendingu þar sem hvorttveggja atvinnuleysi og verðbólga tækju stökk upp á við.    Hættumerkin voru þrjú; gjald-þrot WOW, loðnubrestur og sósíalísk verkalýðshreyfing.    Síðustu daga er þó ástæða tilbjartsýni.“    Von Páls er nú líklegri til aðrætast. Laus úr möru STAKSTEINAR „Við erum vel meðvituð um aðstæð- ur þessa fólks á Kópavogshælinu og viljum finna varanlega lausn á þess málum,“ segir Sóley Ragnarsdóttir, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra. Eins og sagði frá í Morgunblaðinu á miðvikudag búa fjórir – karlar og konur – enn á hælinu. Eru þar með skráð lögheimili í húsum í eigu Land- spítalans en njóta þjónustu frá Ási styrktarfélagi. Aðstæðurnar sem fólkið býr við þykja hvorki boðlegar né í samræmi við kröfur tímans og hafa forsvarsmenn Áss óskað eftir því við félagsmálaráðherra að bætt verði úr og hafa gefið til þess frest út líðandi mánuð. Þorri vistmanna á Kópavogshæl- inu flutti þaðan á brott fyrir allmörg- um árum og fór á sambýli eða sam- bærilega þjónustu sem uppfyllir kröfur dagsins í dag. Tíu manns urðu þó eftir, sex af þeim eru nú látnir og eftir urðu fjórir og um þá hverfast málin nú. Sóley segir mál þessa fólks hafa verið í vinnslu í félagsmálaráðu- neytinu í talsverðan tíma. Ýmsum tillögum til lausna hafi verið velt upp og málið rætt við fjölda aðila. „Ég vonast til þess að við getum kynnt farsæla lausn á þessu máli alveg á næstu dögum,“ segir Sóley í samtali við Morgunblaðið. sbs@mbl.is Ráðuneytið er að leita að lausnum  Fjórir dveljast enn á Kópavogshæl- inu  Frestur er gefinn út aprílmánuð Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kópavogshælið Fjórir dveljast þar enn sem þykir ekki vera boðlegt. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími: 510 1700 • vr@vr.is • vr.is VR boðar til félagsfundar til að kynna nýgerða kjarasamninga. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica mánudaginn 8. apríl kl. 19.30. Við hvetjum alla félagsmenn VR til að mæta á fundinn. Léttar veitingar í boði. Fundinum verður streymt á Mínum síðum á vr.is. Félagsmenn skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Kynning á nýjum kjarasamningum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.