Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 36
Djassklúbburinn Múlinn heldur
áfram vordagskrá sinni á Björtu-
loftum í Hörpu í kvöld með tón-
leikum Salsakommúnunnar. Mun
hún slá upp salsaveislu og bjóða
gestum upp í dans. Salsakomm-
únan er ellefu manna hljómsveit og
leikur kröftuga og dansvæna tón-
list undir áhrifum frá tónlistar-
hefðum Suður-Ameríku.
Salsakommúnan leikur
á Múlanum í kvöld
FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 95. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Ég tel að það gæti hentað okkur
vel að spila á móti KR og ég er gíf-
urlega spenntur fyrir þessu ein-
vígi,“ segir Halldór Garðar Her-
mannsson körfuboltamaður úr Þór í
Þorlákshöfn sem sló út Tindastól á
ævintýralegan hátt á mánudags-
kvöldið og mætir nú Íslandsmeist-
urunum í undanúrslitaeinvígi sem
hefst í Vesturbænum í kvöld. »1
Gæti hentað okkur vel
að spila á móti KR
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Málþing um nokkrar ólíkar birting-
armyndir sjónrænna lista víðs-
vegar um Asíu, í fortíð og nútíð,
verður haldið í dag kl. 15 í Veröld
– húsi Vigdísar. Sigurður Guð-
mundsson, myndlistarmaður og
rithöfundur, setur þingið og af
einstökum erindum má nefna að
mongólski listfræðing-
urinn Uranchimeg
Tsultem mun fjalla
um Búdda í mynd-
list nútímans og
Gunnella Þor-
geirsdóttir
þjóðfræð-
ingur segja
frá jap-
anska list-
forminu
netsuke.
Asísk list í Veröld –
húsi Vigdísar
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Við pabbi fórum saman til London
árið 2016 í feðgaferð. Við fórum þá á
stað þar sem voru nýbakaðir kanil-
snúðar, dísætir og góðir. Upp úr því
hófst svona tilraunastarfsemi af
pabba hálfu. Hann fékk einhverja
veiru og bara gat ekki hætt,“ segir
Danival Örn Egilsson um upphaf
þess að hann og faðir hans, Egill
Helgi Lárusson, fóru að baka og
selja kanilsnúða. Þeir feðgar reka
saman Sæta snúða og sérhæfa sig í
alls kyns tegundum af kanilsnúðum.
Lárus Orri Egilsson, yngri bróðir
Danivals, er nú einnig kominn inn í
reksturinn.
Sætir snúðar voru áður lítill blár
bakkelsisvagn í Frakkagarðinum á
Frakkastíg en nú hafa feðgarnir fært
reksturinn í Mathöll Höfða. „Pabbi
hefur lengi verið að gera pítsadeig
heima og verið þekktur fyrir að gera
góðar pítsur þannig að hann hafði
það alveg í sér að þróa deig,“ segir
Danival um Egil föður sinn sem
kennir einnig viðskiptagreinar í
Verslunarskóla Íslands. „Hann byrj-
ar í raun sjálfur á þessu og ekki með
neitt að leiðarljósi. Ekkert í pípunum
um að við ætluðum að taka þetta eitt-
hvað lengra. Það var ekki fyrr en
nokkru seinna, þegar hann var búinn
að vera að leika sér að þessu í ár, að
hann fór að gera þetta fyrir afmæli
og fjölskylduveislur.“
Öruggast að byrja í vagni
Viðbrögð fjölskyldu og vina voru
vonum framar og fóru þeir feðgar að
hugsa um hvort hægt væri að selja
snúðana. Öruggasta ákvörðunin til að
byrja reksturinn var að kaupa mat-
arvagn. Bæði vegna þess að það er
ódýrara og gefur einnig meiri tæki-
færi til að sérhæfa sig. Þeir hafa hins
vegar lagt vagninum núna og hreiðr-
að um sig í Mathöllinni. Danival úti-
lokar samt ekki að vagninn fari aftur
á sinn stað þegar sumarið nálgast.
Viðbrögðin þegar þeir opnuðu í
Mathöllinni komu þeim feðgum hins
vegar á óvart. „Fyrstu vikuna þurft-
um við því miður að vísa fólki frá,
sem er leiðinlegt því við viljum þjón-
usta alla. Við erum komnir í takt
núna og náum að fæða fólkið sem
sækir til okkar, en þetta fer langt
fram úr okkar björtustu vonum. Það
er líka gaman að sjá að fólk gerir sér
ferð hingað til okkar. Þetta er ekki
bara fólk sem er að koma í Mathöll-
ina og tekur einn í leiðinni.“
Íslendingar æstir í snúðana
Danival segir að þegar þeir byrj-
uðu með vagninn hafi þeir átt von á
að viðskiptavinir þeirra yrðu mest-
megnis erlendir ferðamenn. „Margir
Bandaríkjamenn sækja til Íslands og
þeir eru mjög ginnkeyptir fyrir
þessu. Þannig að við héldum að uppi-
staðan yrði ferðamenn og kannski
einn og einn Íslendingur. En fljót-
lega eftir að við opnuðum tóku Ís-
lendingarnir algjörlega yfir og eru
þeir sem koma og versla mest hjá
okkur. Þess vegna ákváðum við að
færa okkur hingað í Mathöll Höfða.“
Morgunblaðið/Eggert
Snúðar Feðgarnir Egill Helgi Lárusson og Danival Örn Egilsson með brot af snúðunum sem þeir bjóða upp á.
Tilraunastarfsemi sem
varð fjölskyldufyrirtæki
Sætir snúðar leggja vagninum fyrir Mathöll Höfða
HEYRNARSTÖ‹IN
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust
™
Beltone Trust™ heyrnartækin
gera þér kleift að heyra jafn-
vel minnstu smáatriði – sem
stundum reynast þau mikil-
vægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum
allan okkar metnað í að veita góða þjónustu
og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu
í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnar-
tæki lánuð til reynslu.